Morgunblaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Morgunblaðið
gefur út
glæsilegt
sérblað um
Heimili og
hönnun
föstudaginn
9. maí
Í blaðinu verða kynntir geysimargir
möguleikar og sniðugar lausnir fyrir heimilin.
Skoðuð verða húsgögn og hönnun fyrir stofu,
hjónaherbergi, barnaherbergi og innréttingar
bæði í eldhús og bað.
SÉRBLAÐ
HEIMILI & HÖNNUN
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Anna María Benediktsdóttir
Sími: 569 1390
maja@mbl.is
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 5.maí.
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
!
"
"!!
!"
#$!%
"
#$
$"#
!
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
$
!
$#$
"%
!$"
#!$
"#
""
$$#
%
$"
"%%
!
#$
""
%
$
%!
!
Heildarhagnaður TM á fyrsta árs-
fjórðungi ársins nam 72 milljónum
króna og dróst saman um tæp 90%.
Hagnaður á sama tíma í fyrra nam
700 milljónum króna. Fjárfestinga-
tekjur jukust milli ára og voru 872
milljónir í stað 758 milljóna á fyrsta
ársfjórðungi í fyrra.
Helstu ástæður þess að mikill
samdráttur verður á hagnaði er sú
að tjónaþungi var mikill og nam tap
af vátryggingastarfsemi 542 millj-
ónum króna en í fyrra var hagnaður
á sömu starfsemi upp á 72 milljónir.
Eigin iðgjöld jukust um 11% milli
ára og eigin tjón hækkuðu um 55%
yfir sama tímabil. Hið háa tjóna-
hlutfall verður þess valdandi að
samsett hlutfall hjá félaginu á
fyrstu þremur mánuðum er 126%
en á sama tíma í fyrra tókst að
halda því í 99%.
Í tilkynningu frá félaginu kemur
fram að hækkun innlendra og er-
lendra hlutabréfa sé helsta ástæða
þess að fjárfestingatekjur félagsins
jukust milli ára en að afkoma af
skuldabréfum hafi hins vegar verið
undir væntingum og er það sagt
skýrast af slakri ávöxtun ríkis-
skuldabréfa.
Rekstrarkostnaður félagsins
hækkaði um 3,2% miðað við sama
tímabil í fyrra.
Tjónaþunginn mikill
Morgunblaðið/Kristinn
Uppgjör Sigurður Viðarsson segir
veturinn hafa verið tjónaþungan.
Hagnaður TM dregst saman um 90%
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins, Unn-
ur Gunnarsdóttir, neitar að tjá sig
um þau mistök sem urðu hjá starfs-
manni eftirlitsins og urðu til þess að
trúnaðarupplýsingar varðandi fjár-
hagslega stöðu Sparisjóðs Norður-
lands voru gerðar opinberar. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
er nú unnið að sameiginlegri yfirlýs-
ingu FME og Seðlabankans vegna
mistakanna en stofnanirnar vinna nú
að því að varpa frekara ljósi á hvern-
ig það gat gerst að Seðlabankinn
fékk þær upplýsingar að viðkomandi
gögn væru hæf til birtingar þegar
trúnaður átti í raun að ríkja um þau.
Forsvarsmenn Sparisjóðs Norð-
urlands undirbúa nú bréf til beggja
stofnananna vegna uppákomunnar
að sögn Hólmgeirs Karlssonar
stjórnarformanns sjóðsins en hann
las um það í fjölmiðlum að Seðla-
bankinn hefði birt opinberlega upp-
lýsingar um eiginfjárstöðu sjóðsins
og heildartap af rekstri hans á síð-
asta rekstrarári. Hann hafði eins og
aðrir gert ráð fyrir að stjórn spari-
sjóðsins gæfist færi á að leggja árs-
reikning fram á aðalfundi og kynna
fyrir eigendum sjóðsins áður en efni
hans yrði gert opinbert.
Hvorki FME né Seðlabankinn
hafa sett sig í samband við spari-
sjóðsstjóra eða stjórnarformann
sjóðsins vegna málsins og gert þeim
grein fyrir stöðu mála og hvort eða
hvernig brugðist verði við af hálfu
þeirra í kjölfarið. Eins og fram kom í
ViðskiptaMogganum í gær kom birt-
ing upplýsinganna illa við forsvars-
menn sjóðsins sem vinna nú að því að
bæta eiginfjárstöðu hans. Í samtali
við blaðið sagði Jónas Mikael Pét-
ursson sparisjóðsstjóri að uppákom-
an hefði ekki gert sjóðnum auðveld-
ara um vik við að vinna að því að efla
eiginfjárgrunn sjóðsins.
FME neitar að tjá sig um
brot gegn trúnaðarskyldu
Von á sameiginlegri yfirlýsingu FME og Seðlabankans á
næstu dögum Sparisjóður Norðurlands kallar eftir svörum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Eftirlit Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, hefur ekki viljað
tjá sig í kjölfar þess að starfsmaður eftirlitsins brást trúnaðarskyldu sinni.
mbl.is
alltaf - allstaðar
Hagnaður VÍS á fyrsta fjórðungi
þessa árs nam 733 milljónum króna í
samanburði við 14 milljóna króna tap
á sama tíma í fyrra. Fjármunatekjur
námu 1.113 milljónum króna saman-
borið við 171 milljón króna í fyrra.
Iðgjöld tímabilsins hækkuðu um
2,6% og voru 3.959 milljónir króna.
Framlegð af vátryggingarekstri var
neikvæð um 165 milljónir króna.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, for-
stjóri, segir í tilkynningu að afkoma
félagsins á fyrsta ársfjórðungi sé
umfram væntingar og skýrist aðal-
lega af góðri ávöxtun af fjárfestinga-
eignum félagsins á tímabilinu, sem
nam 3,2%. „Afkoma félagsins af vá-
tryggingastarfsemi var ágæt ef litið
er framhjá áhrifum óveðursins 14.
mars síðastliðinn. Óveðrið olli tals-
verðu tjóni hjá landsmönnum og í lok
mars höfðu ríflega 500 tjón verið til-
kynnt til félagsins vegna þess og
bókfærð tjón komin yfir 240 millj-
ónir króna. Þetta er mesta tjón sem
orðið hefur í einu óveðri hjá félaginu
síðan í febrúar 1991 en í desember
2007 voru þrjú óveður sem ollu til
samans svipuðu tjóni. Samsett hlut-
fall var 105,2% á tímabilinu og er
óveðrið í mars rúm 6% í hlutfallinu.“
Þá segir að áherslur stjórnenda á
aukna skilvirkni í rekstri hafi skilað
sér í 2,5% lægri rekstrarkostnaði.
Hagnaður hjá VÍS
240 milljóna tjón vegna óveðursdags
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VÍS Sigrún Ragna, forstjóri, segir
afkomuna vera umfram væntingar.