Morgunblaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
Launþegar þessa
lands bera ekki
ábyrgð á því efna-
hagshruni sem varð
fyrir sex árum en
urðu verr úti en okk-
ar nágrannaþjóðir
vegna mikillar
áhættusækni og
skuldsetningar ís-
lenskra banka og við-
skiptajöfra.
Þegar Geir Haarde bað Guð að
blessa Ísland fór landinn út í búð
og keypti sér lopa og sneri sér að
ýmsum heimilisiðnaði til að jafna
út kaupmáttarskerðinguna sem
fólst í hruni krónunnar. Landinn
sneri sér samsagt að uppruna sín-
um og tók til við ýmiss konar
handverk í anda baðstofunnar.
Bland.is blómstrar sem og alls
konar síður sem selja notaðar
vörur og það er auðvitað mjög
gott að við sóum minna og end-
urnýtum alls konar hluti. En núna
sex árum síðar þegar sem betur
fer ýmis ytri skilyrði hafa verið
okkur hagstæð og fyrirtæki og
þjónustugreinar eru að rétta vel
úr kútnum er kominn tími til að
stíga föst og örugg skref í þá átt
að launþegar fái til
baka þá skerðingu
sem þeir urðu fyrir
við hrun og að laun
þeirra batni í sam-
ræmi við bætta af-
komu fyrirtækja og
ríkissjóðs.
Það svigrúm sem er
til staðar til hækk-
unar launa án þess að
verðbólga fari á flug á
að nýta til þess að
hækka neðri þrep
launastigans til þess
að bæta kjör þess hóps sem verst
varð úti í hruninu. Þessu mark-
miði má auðveldlega ná með
krónutöluhækkunum sem stig-
lækka upp launastigann og ógna
þannig ekki verðbólgumarkmiðum
og stöðugleika. Og þessu þarf síð-
an að fylgja eftir með bættri
framleiðni og skipulagningu en
þar er verk að vinna í okkar sam-
félagi.
Krafa launþega er að þeir fái
sanngjarnan hlut þeirrar arðsemi
sem þeir eiga þátt í að skapa og
að samningsaðilar muni nú eftir
þeim hópi sem einna helst tók á
sig auknar byrðar í hruninu.
Baðstofutímabilið
er liðið á Íslandi
Eftir Helgu
Ingólfsdóttur
» Það svigrúm sem er
til staðar til hækk-
unar launa án þess að
verðbólga fari á flug á
að nýta til þess að
hækka neðri þrep launa-
stigans.
Helga Ingólfsdóttir
Höfundur er bæjarfulltrúi í Hafn-
arfirði og stjórnarmaður í VR.
Með fjölgun þjóð-
arinnar og auknum lífs-
gæðum fjölgar og þeim
sem gamlir verða. Við
verðum að horfast í
augu við að svona er
staðan og forðast ekki
þá staðreynd, eins og
kettir heitan graut, að
tala aldraðra tvöfaldast
á næstu 30 árum og að
menn verða gamlir og
lúnir í lífsstritinu og geta sumir hverjir
þá ekki lengur búið að sínu og verið
með sínum og þurfa því að vistast á
hjúkrunarheimilum eða öðrum sjúkra-
stofnunum. Stjórn og fjársýsla hjúkr-
unarheimilla er miðuð við neyð og líkn
nú til dags. Dvalarheimili eru ekki
lengur í boði og vistunarmatsnefndir
hafa þröngt svigrúm. Það er ótrúleg
mismunun að allir fá ókeypis sjúkra-
húsvist nema aldraðir, og það eftir að
dvalarheimilisvist var lögð niður. Hér
og nú er ekki staður né stund til að
nefna margar tölur, en
margir sjúkir og aldr-
aðir greiða um 400 þús-
und krónur í dvalargjöld
á mánuði. Kostnaður á
rými er um milljón
krónur á mánuði. Stofn-
kostnaður rýma er rúm-
lega 33 milljónir króna.
Á næstu áratugum þarf
að byggja 3.000 rými
sem kosta um 100 millj-
arða króna, samkvæmt
75 m² rýmiskröfum, sé
rýmiskrafan lækkuð í 45
m² kostar uppbyggingin 50 milljarða
króna. Ofgnóttarstefna má ekki leiða
okkur í öngstræti og skort. Bygging
hjúkrunarheimila og viðtengdra þjón-
ustuíbúða er ekkert þjóðfélagslegt
vandamál. Það er viðfangsefni sem
verður leysa miðað við þarfir. Hjúkr-
unarheimili eru góðar og þarfar stofn-
anir, en í guðanna bænum, þau eru
bara venjuleg sjúkrahús en eiga ekki
að vera nein dekurheimili. Þau eru
tákn mannlegrar umhyggju fyrir þá
sem gefið hafa lífsþrek sitt í framvindu
menningar og lífsgæða þjóðarinnar.
Þar eru unnin göfug verk sem aldrei
verða fullþökkuð. En fyrir þá um-
hyggju á gamlinginn ekki að greiða
sérstaklega frekar en aðrir sem þurfa
á sjúkrahúsvist að halda. Lausn á
vandamáli hins andlega dauða ellinnar
er, að efla hið innra líf í brjósti hinna
fullorðnu, vekja logann í fylgsnum
hugsunar til nýs lífs. Það er að bæta
lífi við árin. Fólk á bæði að fara í and-
legan og líkamlegan göngutúr dag
hvern. Þá myndi gamli unglingurinn
ekki horfa með kvíða til elliáranna og
viska ellinnar væri í hávegum höfð, er
enginn væri vetur andlegs dauða,
heldur eilíft haust vaxtar og uppskeru
til dánardægurs.
Kostnaðarstaðreyndir Milljónir
27 fm einbýli m. fylgihlutum 31
20% hlutdeild í samnotasvæði 9
Rekstur pr. mán. 1
Kostnaður pr. rými 41
Stofnkostnaður 200 rýma er því 8,2
milljarðar.
Til minnis fyrir þá sem ekki vilja
muna er vesturálma Borgarspítala
byggð fyrir fjármagn úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra. Verðmæti þess
húss er vart undir fjórum milljörðum
króna og ekki vantar svalirnar til þess
að gamlingjarnir geti sólað sig. Okkur
sárlega vantar þetta hús fyrir rúmlega
150 aldraða og sjúka höfuðborgarbúa.
Að lokum þetta, þið Landspítalafólk
eigið að muna og skilja að öldungurinn
hefur sömu réttindi og aðrir þjóð-
félagsþegnar og hættið þessu meið-
andi röfli um að aldraðir séu fyrirstaða
á vitrænum rekstri Landspítalans, ef
einhver er vandinn er hann í sjálfinu
ykkar.
Við verðum að klára gelgjuna
Eftir Erling Garðar
Jónasson » Til minnis fyrir þá
sem ekki vilja muna
er vesturálma Borg-
arspítala byggð fyrir
fjármagn úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra.
Erling Garðar Jónasson
Höfundur er formaður
Samtaka aldraðra.
Aukablað
um bíla fylgir
Morgunblaðinu
alla þriðjudaga
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift
- með morgunkaffinu
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.
Kaupauki
Gjafapoki fylgirvið kaup á tveimur
bollum
Björt, litaglöð lína fyrir kaffielskendur
ESPRESSO bollalínan
• Postulínsbollar 100 ml
• Uppþvottavéla- og
örbylgjuvænir
• Einfaldir og þægilegir
Fæst í stærri Hagkaups verslunum www.danco.is
Heildsöludreifing