Morgunblaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 2015
✝ GuðmundurIngvi Gests-
son, fyrrverandi
logsuðumaður og
trélistamaður,
fæddist á Ak-
ureyri 8. apríl
1941. Hann lést 8.
apríl 2015 á
Sjúkrahúsinu á
Akureyri.
Foreldrar hans
voru hjónin Hans-
ína Jónsdóttir og Gestur Hall-
dórsson. Systkini hans voru
Klara, f. 1942, d. 1992, Hall-
dór, f. 1945, d 2002, Hekla, f.
1947, d. 2009, Sigurður Svan,
f. 1952, og hálfbróðir sam-
mæðra Sigfús, f. 1960.
Guðmundur Ingvi ólst upp
á Oddeyri en dvaldi á sumrum
í sveit í Syðri-Neslöndum í
Mývatnssveit. Þar eignaðist
hann uppeldisforeldra, systk-
inin Jón og Sig-
urveigu sem voru
honum nátengd
alla tíð.
1962 giftist
hann eftirlifandi
konu sinni, Júl-
íönu Helgu
Tryggvadóttur.
Þau eignuðust
þrjú börn:
Tryggva, f. 1963,
d. 1979, Ragn-
heiði, f. 1964, d. 1964, og
Magnús Hólm, f. 1967, d.
1967.
Guðmundur Ingvi og Júl-
íana Helga bjuggu lengst af á
Akureyri en 1990 fluttu þau
til Hafnarfjarðar og bjuggu
þar í 18 ár. 2008 fluttust þau
svo aftur til Akureyrar.
Útför Guðmundar Ingva
fór fram frá Akureyrarkirkju
27. apríl 2015.
Elskulegur frændi minn er
látinn eftir langa baráttu við
erfiðan sjúkdóm. Eins og allir
vita þá er misjafnt hvað lífið
ýmist gefur okkur eða tekur frá
okkur, í raun má segja að það
sé misjafnt hvernig spil við
fáum á hendi. Lífið er oft ein-
faldlega ekki sanngjarnt og
skammtar okkur allskonar áföll
og erfiðleika til að takast á við,
en sem betur fer líka gleði og
hamingju.
Ingvi og Júlíana kona hans
eignuðust þrjú börn og þeirra
hlutskipti var að fylgja þeim
öllum til grafar, nokkuð sem
ekkert foreldri ætti að þurfa að
gera. Ragnheiður og Magnús
létust mjög ung en Tryggvi
sonur þeirra lést stuttu fyrir 16
ára afmælið sitt. Ég man ekki
eftir þeim 2 yngri en Tryggvi
var aðeins ári yngri en ég og
því þekktumst við vel og mér
þótti mjög vænt um þennan
frænda minn. Ingvi og Júlíana
áttu langa samleið en aðeins
tæpur mánuður var í 53 ára
brúðkaupsafmæli þeirra þegar
hann lést. Það var kært milli
okkar og við heimsóttum þau
þegar við fórum norður og oft
komu þau við hjá okkur væru
þau fyrir sunnan. Meðan þau
bjuggu í Hafnarfirði voru heim-
sóknir þó tíðari en eftir að þau
fóru aftur norður. Síðastliðið
sumar stoppuðum við hjá þeim
í þrjá daga, vorum með hjól-
hýsið okkar þar. Við fórum
skemmtilega ferð með þeim inn
í Eyjafjörðinn með viðkomu á
nokkrum stöðum og fengum
mikla fræðslu því bæði þekktu
þau Eyjafjörðinn og alla bæi
þar.
Það er ekki hægt að skrifa
kveðjuorð án þess að minnast á
hversu mikill hagleiksmaður
frændi var. Lengi smíðaði hann
mest úr járni, meðal annars
marga stóra kertastjaka sem
standa á gólfi og taka mörg
kerti, borð sem voru settar
glerplötur í og allt upp í bíla-
kerrur. Á seinni árum fékk
hann sér rennibekk og skipti úr
járnsmíðinni yfir í mýkra efni
og fór að vinna í tré. Hann
smíðaði marga fallega gripi,
barnahringlur, allskonar skál-
ar, nálapúðastatíf með pinnum
fyrir tvinnakefli, vörubíla,
dúkkuvagna, aska í mörgum
stærðum og skar út í þá og svo
mætti lengi telja.
Við kveðjum frænda, hugs-
um til hans með kærleik og
hlýju. Ég veit að mamma mín
og hin systkini þín, afi og
amma og síðast en ekki síst
börnin þín hafa tekið vel á móti
þér og leiða þig um nýjar sólar-
strendur hinum megin. Hvíldu í
friði. Ég vil kveðja með sálm-
inum/ljóðinu hans Alla afa sem
á svo einstaklega vel við þegar
að leiðarlokum er komið.
Við fákæn leggjum flest af stað
í ferð sem einkum snýst um það
að leita margs á lífsins braut,
þar lán og óhöpp falla í skaut.
Sú braut er hvorki bein né slétt,
samt bjargast allt sé stefnan rétt ,
hvar endar hún fæst ekkert val,
því ungur má, en gamall skal.
Þeim leið til baka engin er
sem yfir landamærin fer,
en víst ég tel, að vinar hönd
þar vísi inn á sólarströnd.
(Aðalsteinn Ólafsson)
Elsku Júlíana mín, orð
megna lítils en við vottum þér
okkar innilegustu samúð og
biðjum algóðan Guð að styrkja
þig og styðja. Elsku Siggi
Svan, Fúsi og allir aðrir að-
standendur, við vottum ykkur
öllum innilegustu samúð.
Birna Kristbjörg
Björnsdóttir og
fjölskylda, Grindavík.
Elsku Ingvi minn, ég á
margar góðar minningar um
þig. Allar heimsóknirnar til
ykkar Júllu á Eiðsvallagötuna
eru svo eftirminnilegar. Oft gat
ég platað þig til að sýna mér
gervitennurnar þínar sem mér
þóttu ótrúlega spennandi og
þegar heimsókninni lauk þá
kvaddi ég þig með þessum orð-
um „takk fyrir tennurnar Ingvi
minn!“
Þú varst minn vinur og
stóðst með mér. Þegar ég vildi
eignast kött, sem fékk ekki
miklar undirtektir heima við,
sagðir þú foreldrum mínum
hversu gott það væri fyrir börn
að alast upp með dýrum. Ein-
hvern veginn tókst þér að sann-
færa þau því einn daginn birtist
þú í dyragættinni með lítinn
kettling undir úlpunni.
Þú varst mikill listasmiður
og bjóst til marga fallega hluti
úr járni og við. Ég var ekki há í
loftinu þegar ég fékk fyrsta
gripinn, sérsmíðaðan af þér;
fallegur stóll sem smellpassaði
fyrir mig. Sá var mikið notaður
og í miklu uppáhaldi. Eitt af
þínum fallegu járnlistaverkum,
sem er í abstrakt expressjón-
ískum stíl, prýðir garðinn hans
pabba í dag. Það verk minnir
mig á dans og gleði, sem var
einmitt svo ríkt í þér. Þú varst
alltaf hress og kátur með bros
á vör. Þegar mér verður hugs-
að til þín sé ég þig skælbros-
andi og sólbrúnan, umvafinn
sólinni. Fyrsta utanlandsferðin
mín var þriggja vikna sólar-
landaferð með foreldrum mín-
um og ykkur Júllu. Það var sól
og gleði alla daga og ís í brauði
hjá þér og mér að minnsta
kosti þrisvar á dag.
Þú hafðir mikinn áhuga á
fuglum og áttir skápa með fal-
legum uppstoppuðum fuglum
sem mér þótti afar merkilegt.
Seinna meir heillaðist Ragnar
sonur minn einnig af fuglasafn-
inu, þá átta ára og vildi ólmur
eignast einn slíkan fugl. Svo at-
vikaðist það að þið fóruð saman
í göngutúr og funduð dauðan
máv. Ragnar var fljótur að
biðja þig um að láta stoppa
hann upp og varð frekar leiður
þegar hann fékk að vita að það
væri ekki hægt, þar sem þessi
mávur var mjög illa farinn.
Þessu gleymdir þú ekki og þeg-
ar Ragnar fermdist mörgum
árum síðar mættir þú með upp-
stoppaðan máv í gjöf handa
honum sem vakti mikla kátínu.
Þú grínaðist lengi með það
að ég þyrfti nú að fara að finna
mér mann og gifta mig. Ég
gifti mig ekki fyrr en 2013 og
þegar þá var komið varst þú
búin að vera glíma við erfið
veikindi í mörg ár. Þrátt fyrir
veikindin komuð þið Júlla suð-
ur og voruð viðstödd brúðkaup-
ið okkar Frímanns, það var
besta gjöfin sem þið gátuð gef-
ið okkur.
Við vorum einnig svo heppin
að fá fallegar handgerðar gjafir
úr listasmiðju þinni, viðarskál,
fuglapar og tvo blómastanda
sem prýða nú stofuna hjá okk-
ur.
Talan átta er þín tala. Þú
fæddist 8. apríl og fékkst svo
að kveðja á afmælisdaginn
þinn, 8. apríl síðastliðinn, eins
og þú varst búinn að tala um.
Það tekur 8 mínútur fyrir
geisla sólarinnar að snerta
jörðina. Þú varst sannkallaður
sólargeisli, þú elskaðir sólina
og hún þig.
Elsku Ingvi minn, við kveðj-
um þig með þakklæti og hlýju í
huga í sólinni sumardaginn
fyrsta.
Elsku Júlla okkar, við vott-
um þér og öllum aðstandendum
innilega samúð.
Ingibjörg Ragnarsdóttir
og fjölskylda.
Kær vinur okkar er látinn.
Ingva, eins og við kölluðum
hann alltaf, kynntumst við 1969
þegar Tryggvi heitinn, sonur
þeirra Júllu og Ingva, var í
Laugarnesskólanum í blindra-
deildinni með Fjólu Björk okk-
ar, en bæði eru þau látin.
Mikil samgangur var á þess-
um tíma á milli okkar fjöl-
skyldnanna og þótti okkur
mjög vænt um þau samskipti í
gegnum árin.
Ingvi var safnari og þótti
honum gaman að sýna eggja-
og fuglasafnið sitt á sínum tíma
en allt safnið var í sérsmíð-
uðum hillum, skúffum og skáp-
um, þar sást vel hvað Ingvi var
mikill fagurkeri.
Fyrir nokkrum árum fluttu
þau hjónin til Akureyrar og var
sú venja að kíkja í kaffi þegar
við komum norður og alltaf var
vel tekið á móti okkur með
hlýju og kærleika.
Þá bauð Ingvi okkur að kíkja
í skúrinn sinn en þar dundaði
hann sér við að renna hluti úr
tré, smíða kirkjur, bíla og allt
mögulegt annað sem honum
datt í hug og allt var þetta
listasmíði.
Við þökkum samfylgdina,
kæri vinur, og við vitum að litlu
englarnir þínir hafa tekið vel á
móti þér.
Hver minning dýrmæt perla að liðn-
um lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Megi góður Guð styrkja þig í
sorginni Júlla mín. Guð geymi
þig. Þínir vinir,
Guðrún (Rúna) og
Sigurður (Siggi).
Guðmundur Ingvi
Gestsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
JÓNÍNU ÁRNADÓTTUR,
Markarvegi 16,
Reykjavík.
.
Arna Kristjánsdóttir, Ívar Trausti Jósafatsson,
Þórður Ingimar Kristjánsson, Ann Kristín Hrólfsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ÓLAFÍA MAGNÚSDÓTTIR
frá Ballará,
Háahvammi 9,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn 19. apríl.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
4. maí kl. 13.
.
Sæmundur Kr. Sigurlaugsson,
Þórdís Sæmundsdóttir, Gestur Guðbrandsson,
Hafþór Ómar Sæmundsson, Hrönn Harðardóttir,
Elínborg Harpa Sæmundsdóttir, Thomas Danielsson,
Ólafía Kristín Sæmundsdóttir, Einar Tryggvason,
Sigurlaugur Jón Sæmundsson
og barnabörn.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
SVÖLU EIRÍKSDÓTTUR
PÉTURSDÓTTUR,
Hjarðarhaga 48,
Reykjavík,
áður Grund við Grímsstaðaholt.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild
A-6 Landspítala í Fossvogi fyrir einstaka alúð og umhyggju.
.
Karl Sigurjón Hallgrímsson, Elínborg Einarsdóttir,
Sigþór Sævar Hallgrímsson, Erla Sighvatsdóttir,
Matthildur Sjöfn Hallgrímsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
ÞORSTEINU SIGURÐARDÓTTUR,
Hrafnistu í Reykjavík,
áður Njörvasundi 6.
Við færum starfsfólki hjúkrunarheimilisins Hrafnistu sérstakar
þakkir fyrir góða umönnun mömmu.
.
Hafliði Benediktsson, Ingibjörg Skarphéðinsdóttir,
Helga Benediktsdóttir, Jónas R. Jónsson,
Ingibjörg Benediktsdóttir, Haukur Hauksson,
Erna Benediktsdóttir, Steindór Gunnarsson,
Birna Benediktsdóttir, Daníel Guðbrandsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
RÖGNVALDUR ÞÓRHALLSSON,
Helgamagrastræti 53,
Akureyri,
lést á heimili sínu mánudaginn
20. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahlynningar Akureyrar fyrir
góða og hlýja umönnun.
.
Unnur Björnsdóttir,
Björn Rögnvaldsson, Fanney Baldursdóttir,
Hólmfríður Rögnvaldsdóttir, Örn Friðriksson,
Svava Rögnvaldsdóttir, Gunnar Gestsson,
Katrín Rögnvaldsdóttir, Ágúst Kristófersson,
Ásdís Rögnvaldsdóttir, Þórhallur Bergþórsson,
Matthías Rögnvaldsson, Erla Jóhannesdóttir,
Guðrún Rögnvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þakka öllum sem hafa aðstoðað mig vegna
andláts og útfarar eiginmanns míns og
vinar,
GUÐMUNDAR INGVA GESTSSONAR
járnsmiðs og trélistamanns,
Seljahlíð 13c,
Akureyri.
Einnig þakka ég starfsfólki Heimahlynningar og Sjúkrahússins á
Akureyri.
.
Júlíana Helga Tryggvadóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
ÁSGEIR J. BJÖRNSSON
kaupmaður frá Siglufirði,
Lindasíðu 4,
Akureyri,
sem lést föstudaginn 24. apríl, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 4. maí kl. 13.30.
.
Sigrún Ásbjarnardóttir,
J. Gunnlaug Ásgeirsdóttir, Magnús Guðbrandsson,
Gunnar Björn Ásgeirsson, Ellen Hrönn Haraldsdóttir,
Ásbjörn Svavar Ásgeirsson, Sigríður Sunneva Pálsd.,
Rósa Ösp Ásgeirsdóttir, Unnsteinn Ingason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu samúð
og hlýhug við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
ÞÓRÐAR GUÐJÓNSSONAR
húsamíðameistara.
Sérstakar þakkir til alls starfsfólks
Hrafnistu í Reykjavík fyrir alúð og
umhyggju.
.
Kolbrún Þórðardóttir, Stefán Jónsson,
Matthías Þórðarson, Guðrún Harðardóttir,
barnabörn og langafabörn.