Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Síða 33
10.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Frá vinstri: Anna Sif Mogensen,
Logi Sigurðarson og Sindri
Sigurðarson, synir Ásdísar,
og Thelma Mogensen.
* Það er kannskivæmið að segjaþað en móðir mín
er auðvitað fyrir-
myndin mín.
Frá vinstri: Elín Þorkelsdóttir, Ásdís Ásgeirsdóttir ljósmyndari,
Ásdís Ósk Erlingsdóttir og Hafdís Harðardóttir, eiginkona Jóhanns.
Kartöflupressa með graslauk,
sýrður perlulaukur, kart-
öfluflögur, hnúðkál, radísur og
volgt majónes
Saltaður þorskhnakki
800 g þorskhnakki
300 g gróft salt
300 g púðursykur
8 stk. kardimommur
½ msk. kúmen
6 anísstjörnur
lime-börkur
Kryddin eru mulin saman og
svo blandað við saltið og púð-
ursykurinn, ysta lagið af lime-
inu er tekið af með fínu rif-
járni og svo sett saman við
kryddblönduna. Þorskurinn
liggur í pæklinum í 2 og hálfa
klukkustund og er svo skol-
aður. Þegar hann er eldaður
er hann steiktur upp úr
smjöri á pönnu í 2-3 mínútur
á hvorri hlið.
Kartöflupressa
200 g litlar kartöflur
Kartöfluflögur
Kartöflurnar eru skornar
niður í örþunnar skífur í man-
dólíni og svo djúpsteiktar við
150 gráður þar til þær verða
gylltar á litinn og stökkar.
Hnúðkál
1 haus hnúðkál
Skorið er utan af hnúðkáls-
hausnum og hann svo skorinn
niður í örþunnar sneiðar í
mandólíni.
Radísur
Radísurnar eru skornar
niður í örþunnar sneiðar í
mandólíni.
Volgt majónes
2 stk. egg
200 ml repjuolía
40-50 ml súrmjólk
salt
lime-safi
Eggin eru sett í matvinnsluvél
og vélin látin ganga þar til fer
að þykkna, þá er olíunni hellt
saman við í mjórri bunu, svo
er súrmjólkinni blandað sam-
an við og majónesið smakkað
til með salti og lime-safa. Svo
er hægt að fínsaxa jurtir og
blanda út í.
20 g fínt skorinn
graslaukur
60 g smjör
salt og pipar
hvítlauksolía
Kartöflurnar eru soðnar þar
til þær molna auðveldlega
niður, þá er smjörinu og gras-
lauknum blandað saman við
og stappað vel saman, smakk-
að til með salti, pipar og hvít-
lauk, svo er þetta sett í mót,
pressað og kælt. Svo skorið
út í hæfilega bita og hitað aft-
ur.
Sýrður perlulaukur
12 stk. perlulaukur
40 ml hvítvínsedik
40 g sykur
70 ml vatn
Botninn er skorinn undan
perlulauknum og hann létt
soðinn, svo er hann kældur
og kjarninn kreistur út. Hvít-
vínsedikið, sykurinn og vatnið
er soðið þar til sykurinn hef-
ur leyst upp og svo er heitum
vökvanum hellt yfir laukana
og þeir látnir liggja í og full-
eldast.
Saltaður
þorskhnakki