Morgunblaðið - 17.06.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Kjaraviðræðum Félags vélstjóra og
málmtæknimanna (VM) og Sam-
taka atvinnulífsins (SA) var slitið í
gær og hefur enginn fundur verið
boðaður. Fulltrúar VM og annarra
félaga funduðu lengi á skrifstofu
ríkissáttasemjara á mánudag um
sameiginlegar sérkröfur iðnaðar-
mannasamfélagsins og hittu full-
trúa SA eftir hádegi í gær.
Guðmundur Ragnarsson, for-
maður VM, segir að það hafi legið
fyrir að ef félagið ætlaði sér að
ganga inn á þá vegferð sem samið
hefði verið um hjá VR og Flóa-
félögunum þyrfti að mæta sér-
kröfum VM.
„Það lá ljóst fyrir eftir fundinn
að þeim kröfum var öllum hafnað,
þannig að ég lýsti því yfir að ég
sæi ekki grundvöll fyrir því að við
færum með þennan samning áfram
án viðbóta úr sérkröfunum. Þá
sögðu SA-menn að þeir hefðu ekk-
ert meira að tala um og fundinum
var í kjölfarið slitið,“ segir Guð-
mundur. Skömmu áður hafði slitn-
að upp úr viðræðum við Rafiðn-
aðarsamband Íslands (Rafís) og
SA.
Verkföllum VM og Rafís hefur
verið frestað til 22. júní og segir
Guðmundur að niðurstaðan í sér-
kröfunum skeri úr um það hvort
skrifað verði undir nýjan kjara-
samning fyrir þann tíma.
Til hvers að mennta sig?
Guðmundur segir að hann sé
ekki tilbúinn að leggja samninginn
fyrir sína félagsmenn eins og hann
sé útfærður nú.
„Við erum að lenda í sömu vand-
ræðum og hjúkrunarfræðingar,
þ.e.a.s. hvernig samningurinn end-
ar. Þessi tala, 300 þúsund krón-
urnar, sem menn virðast algjörlega
hafa blindast af, mun rústa öllu
taxtakerfi í landinu.
Þeim sem eru á lægstu laun-
unum veitir ekki af launahækkun
en það er verið að keyra öll laun
niður samhliða. Þá spyr maður sig
til hvers maður ætti að mennta sig
ef lægstu laun eru 300 þúsund og
við erum með taxta sem eru 40
þúsund krónum yfir.“
Hann segir að VM sé í skrýtinni
stöðu, nánast í kjaraviðræðum við
VR og Flóafélögin. „Þessi félög eru
með skýr forsenduákvæði sem
segja að enginn megi fá meira en
þau. Ég lít svo á að þegar svona
stór félög fara á undan, setja skýrt
í sinn kjarasamning að enginn
megi fá meira, sé verið að taka
samningsréttinn fyrir þá sem eftir
koma.
Það er verið að brengla öllum
launahlutföllum og við fáum ekkert
um það að segja. Það kalla ég vald-
beitingu.“
Hann spáir upplausn á vinnu-
markaði hér á landi innan fimm
ára. „Þessi gjörningur er einhliða,
hann er gerður í ósátt við alla.
Valdbeiting í svona umhverfi endar
með ósköpum.“
Valdbeiting
hvernig stóru
félögin sömdu
Deila VM og SA komin í rembihnút
Formaður VM er ómyrkur í máli
Morgunblaðið/Ómar
Stál í stál Félagar í VM fara í verk-
fall á mánudag verði ekki samið.
VM vill betri kjör
» Rúmlega 15-20% félags-
manna í VM eru á töxtum.
» Félagar í VM hafa alltaf unn-
ið mikla yfirvinnu.
» Unga fólkið í VM vill hins
vegar betri laun í dagvinnu svo
að ekki þurfi að draga fram líf-
ið með yfirvinnu.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lítið þokaðist á stöðufundi ríkissátta-
semjara með formanni Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) og
formanni samninganefndar ríkisins í
gær. Ólafur G. Skúlason, formaður
FÍH, sagði síðdegis í gær að þá hefði
ekki verið boðaður nýr samninga-
fundur. „Við vorum að skoða hvort
það væru einhverjar hliðar á þessu
máli sem við gætum leyst í samein-
ingu,“ sagði Ólafur um fundinn. „Það
kom ekkert nýtt fram og náðist engin
niðurstaða.“
Hann kvaðst telja að deiluaðilar
vildu báðir ná samkomulagi. Takist
það ekki fyrir 1. júlí mun gerðar-
dómur kveða upp úr um deiluna. En
hvenær verður greint frá kröfum
hjúkrunarfræðinga?
„Við greinum ekkert frá þeim,
þetta er bara rætt við samningaborð-
ið,“ sagði Ólafur. „Við erum að reyna
að fá sambærileg laun og aðrir há-
skólamenntaðir.“ Hann sagði að mið-
að við meðaltals dagvinnulaun ríkis-
starfsmanna, t.d. viðskipta- og
hagfræðinga, tæknifræðinga og ann-
arra sem væru með styttra eða svipað
langt nám að baki og hjúkrunarfræð-
ingar, væru þessir hópar með 14%-
25% hærri laun en hjúkrunarfræðing-
ar. Ólafur sagði að ekki væri krafist
sömu launa og læknar hefðu, en benti
á að hið opinbera hefði gefið fordæmi
um verulegar launahækkanir í kjara-
samningum sem ríkið gerði nýlega
m.a. við lækna. Því mætti ætla að
svigrúm væri hjá ríkinu til launa-
hækkana.
Ekkert tilboð upp á 20%
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, sagði á Alþingi í
fyrradag að ríkið hefði boðið launa-
hækkanir upp á rétt um 20% og
styrkingu á stofnunum. Ólafur kvaðst
ekki hafa fengið slíkt tilboð á blaði.
Fjölmargir hjúkrunarfræðingar
hafa sagt upp eða sagst ætla að segja
upp störfum. Ólafur sagði að sumir
þeirra sem ætluðu að segja upp væru
að hugsa um að afla sér annarrar
menntunar, aðrir ætluðu að sækja um
önnur störf og sumir veltu því fyrir
sér að fara til starfa í útlöndum. Hann
kvaðst hafa heyrt í íslenskum hjúkr-
unarfræðingi í Noregi sem gæti fram-
fleytt fimm manna fjölskyldu á einum
launum. Þar væri vinnuvika á þrí-
skiptum vöktum 35,5 stundir en hér
40 stundir. „Þannig að þú færð bæði
meiri fjölskyldutíma og hærri laun,“
sagði Ólafur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spítali Um 90 hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum hafa þegar sagt upp störfum.
Hjúkrunarfræðingar
líta í kringum sig
Lítið þokaðist á samningafundi hjúkrunarfræðinga í gær
Páll Halldórsson, formaður samninganefndar Bandalags háskólamanna,
segir ekkert nýtt hafa komið fram á stöðufundi BHM við ríkissátta-
semjara og formann samninganefndar ríkisins í gær.
Hann segir að komi ríkið með „ómótstæðilegt“ tilboð verði það að
sjálfsögðu skoðað en sem stendur sé ekki ástæða til að boða til form-
legs samningafundar.
„Við berum auðvitað hönd fyrir höfuð okkar,“ svarar Páll spurður
um fyrirhugaða málsókn félagsins á hendur ríkinu. Hann segir félags-
menn bálreiða vegna lagasetningarinnar en fara þó að lögum og mæta
til vinnu.
Bálreiðir en virða lögin
FUNDUR BHM OG RÍKISINS
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Dagdeild aldraðra í Þorraseli mun í
sumar flytjast þaðan á Vesturgötu,
þrátt fyrir hörð mótmæli íbúa við
Þorrasel. Kom þetta fram á fundi
síðdegis í gær sem íbúar voru boð-
aðir á af borgaryfirvöldum.
„Við kynntum fyrir íbúum að þrátt
fyrir mótmæli þeirra hefði sú
ákvörðun verið tekin í borgarstjórn
og velferðarráði að dagdeild aldr-
aðra í Þorraseli yrði flutt þaðan á
Vesturgötu 7,“ segir Sigþrúður Erla
Arnardóttir, framkvæmdastjóri
þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, í
samtali við Morgunblaðið. Aðspurð
segir hún að mikil mótmæli hafi ver-
ið á fundinum. „Fólk er óánægt með
þessa ákvörðun Reykjavíkurborgar
og fram komu hörð mótmæli.“
Flutningurinn mun eiga sér stað
snemma í ágúst en ekki hefur enn
verið ákveðið hvað kemur í stað dag-
deildarinnar í húsnæðinu.
Verða keyrðir á Vesturgötu
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur komið fram hugmynd
frá skóla- og frístundasviði borgar-
innar um að þar verði dagvistun fyrir
fötluð börn. Björk Vilhelmsdóttir,
formaður velferðarráðs, hefur sagt
að um 28 milljóna hallarekstur sé af
dagdvöl aldraðra í Þorraseli en telur
að spara megi þá fjárhæð með flutn-
ingi starfseminnar á Vesturgötu.
Íbúar við Þorrasel á Þorragötu
verða þá sóttir á heimili sín og keyrð-
ir til og frá Vesturgötu samkvæmt
fyrirkomulagi borgarinnar.
Notendur dagdeildarinnar og íbú-
ar í sambyggðu fjölbýlishúsi hafa
mótmælt flutningi starfseminnar allt
frá því þeir fengu veður af áform-
unum í október á síðasta ári. Segja
þeir að aðstæður þeirra muni versna
til muna verði dagdeildin flutt á
Vesturgötu.
Notendur mæla
gegn flutningi
Morgunblaðið/Eggert
Fundur Sigþrúður Erla Arnard. frkvstj. þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar.
Dagdeild aldraðra skal flutt í sumar Jón G. Tómasson, fyrrverandi borg-arritari og borgarlögmaður, og íbúi
við Þorragötu, segir vinnubrögð
borgarinnar vera með ólíkindum.
Ákvörðunin brjóti bæði í bága við
lög um fjöleignarhúsalög og ákvæði í
lóðarsamningi um að í húsinu skuli
vera starfsemi í þágu aldraðra. „Þeir
þjösnast bara áfram án þess að leita
samþykkis okkar eða álits á því sem
þeir eru að gera,“ segir Jón í samtali
við Morgunblaðið.
„Stjórnsýslan í Reykjavíkurborg
er í molum. Til dæmis um það má
nefna að boð til þessa kynningar-
fundar kom ekki fyrr en tæpum sól-
arhringi fyrir fundinn. Ég er alveg
dolfallinn yfir þessari framkomu
borgaryfirvalda sem virðast vilja
fara með gamla fólkið eins þeim sýn-
ist.“
Stjórnsýsla
borgarinnar
í molum