Morgunblaðið - 17.06.2015, Qupperneq 23
– það voru góðar stundir og ein-
göngu til þess að færa meira líf í
kennslu næsta dags.
Önnur kvöld fórum við kennar-
ar Njarðvíkurskóla í gönguferðir
strax að loknum kvöldmat. Helga
bankaði venjulega á dyrnar hjá
mér og svo koll af kolli fórum við
til þeirra sem næstir okkur
bjuggu. Þetta voru vissulega
ánægjulegir tímar sem oft hafa
verið rifjaðir upp síðan. Þá var líf-
ið ljúft, börnin okkar ung og
hverfið kyrrlátt. Það var samstillt-
ur hópur sem starfaði við Njarð-
víkurskóla.
Helga hafði eiginleika sem allir
kennarar vilja hafa, samvisku-
semi, gat sett saman vísur og hafði
einstaklega fallega rithönd.
Hún var trygg manneskja og
traust í samskiptum. Helga var
trúuð og áttum við oft skemmti-
legar samræður um trúmál sem
og önnur mál. Hún mat fjölskyldu
sína mikils og talaði oft um hve
heppin hún væri að eiga sinn góða
mann og yndislegu börn sem erft
hafa eiginleika foreldranna, ríku-
lega ljúfmennsku og kærleika.
„Í lífinu er aðeins eitt sem er þess virði
að eignast hvað sem það kostar og það
er kærleikurinn“.
(Swami Vivekananda.)
Ég þakka Helgu samfylgdina
og bið henni blessunar Guðs.
Guðrún Erla Björgvinsdóttir.
Það var spenna í loftinu þegar
við Helga flugum á vit ævintýr-
anna haustið 1969. Við vorum ný-
útskrifaðar úr Kennaraskólanum,
höfðum verið bekkjarsystur og
ákváðum að sækja um störf sem
kennarar á Ísafirði. Við vorum
báðar ættaðar að vestan, hún frá
Súgandafirði, ég frá Flateyri. Við
komum okkur fyrir í lítilli íbúð í
Odda þar sem vel fór um okkur. Á
Ísafirði tóku á móti okkur Björg-
vin Sighvatsson og hans góða
samstarfsfólk við Barnaskóla Ísa-
fjarðar, sem var tilbúið að aðstoða
okkur nýgræðingana.
Við fengum smáaðlögun, yngri
börnin byrjuðu í skólanum mánuði
fyrr en þau eldri svo það gafst tími
til að kynnast nýju umhverfi og
heilsa upp á ættingja áður en full
kennsla tók við. Á þessum árum
hafði maður tvo bekki í umsjón og
voru bekkir mun fjölmennari en
nú er. Það var gott að vera tvær
saman, við gátum borið saman
bækur okkar og ekki veitti af.
Við kenndum í gamla skólahús-
inu. Eldri bekknum kenndum við
fyrir hádegi. Í hádegishléinu var
farið í Kaupfélagið, keypt brauð
og álegg og síðan heim í Odda og
snætt. Eftir hádegið tók svo við
kennsla yngri barnanna.
Helga vann sitt starf af trú-
mennsku frá fyrsta degi. Hún var
skipulögð og snyrtileg í öllu sem
hún tók sér fyrir hendur og ætl-
aðist til hins sama af nemendum
sínum. Hún hafði einstaklega fal-
lega rithönd þótt hún hafi verið
pínd til að skrifa með hægri hendi
þrátt fyrir að vera örvhent.
Þetta ár okkar saman á Ísafirði
var mjög eftirminnilegt. Við eign-
uðumst fjölda góðra vina á meðal
samstarfsmanna og ættingja.
Nemendurnir létu stundum hafa
fyrir sér en oft minntumst við á
þessa fyrstu nemendahópa okkar
og rifjuðum upp skemmtileg atvik
þeim tengd. Við fengum að taka
þátt í leik og starfi heimamanna
og þá naut húmorinn hjá Helgu
sín best – í góðra vina hópi. Hún
gat gert góðlátlegt grín að okkur
samferðafólkinu, hún var góð eft-
irherma og vísukorn setti hún oft
fram með góðlátlegu gríni. Stund-
um greip hún í gítar og þá var
sungið upp úr Nýju danslagatext-
unum.
Helga var mun húslegri en ég,
hafði reynslu bæði af matseld og
tiltekt, svo þessi sambúð varð mér
hinn besti skóli. Svo átti maður að
sitja með handavinnu þegar næði
gafst, alltaf að nýta stundina. Við
höfum verið ósköp maddömulegar
ungfrúrnar í Odda veturinn 1969-
1970.
Þessi vetur hefur verið erfiður
fjölskyldunni vegna veikinda
Helgu. Aldrei heyrðist þó æðru-
orð. Hún kvartaði aldrei og Þórð-
ur og börnin hafa sinnt henni af
slíkri prýði að eftir var tekið.
Samúðarkveðjur frá okkur
Magnúsi.
Hildur Eiríksdóttir.
Kveðja frá Njarðvíkurskóla
Við fengum þá sorgarfrétt rétt
fyrir skólaslit Njarðvíkurskóla nú
í vor að Helga Magnúsdóttir, fyrr-
verandi kennari við skólann, væri
látin. Helga hóf störf við skólann
árið 1975 og starfaði við skólann
nær óslitið þar til hún lét af störf-
um árið 2008. Á starfsferli sínum
við skólann tók hún að sér ýmis
störf og verkefni og vék sér ekki
undan ábyrgð ef til hennar var
leitað.
Má þar nefna að hún var ár-
gangastjóri frá upphafi starfs ár-
gangastjóra við grunnskóla og síð-
ar deildarstjóri við skólann. Mér
er því afar ljúft að minnast merkr-
ar samstarfskonu sem skilur eftir
sig gott og göfugt ævistarf við
skólann.
Helga var afar farsæll kennari,
hún var traust, hlý og skapandi og
lagði ekki bara grunn að framtíð
og velferð nemenda sinna heldur
var hún einnig góð fyrirmynd
starfsmanna skólans. Hún nálgað-
ist starf sitt af mikilli virðingu,
lagði metnað í kennslu sína og
samskipti við nemendur. Vinnu-
söm og sérstaklega vandvirk var
hún með afar fallega rithönd enda
stýrði hún innleiðingu á því þegar
breytingar urðu frá tengiskrift yf-
ir í grunnskrift og eru mörg henn-
ar verkefna enn notuð við kennslu
í dag.
Vandvirkni hennar kom einnig
fram í því hvernig hún beitti mál-
inu, hvort heldur í töluðu eða rit-
uðu og var hún mjög hagmælt og
setti saman vísubrot eða lengri
ljóðabálka ef tilefni gafst til og var
þá alltaf hugað að réttri brag-
fræði.
Hún sinnti öllum sínum verkum
af einstakri alúð og metnaði og var
frumkvöðull á ýmsum sviðum og
lagði grunn að mörgum verkefn-
um sem við byggjum enn á í skóla-
starfinu.
Njarðvíkurskóli stendur í
þakkarskuld við Helgu fyrir far-
sæla og gefandi samleið og vottar
aðstandendum hennar innilega
samúð.
Ásgerður Þorgeirsdóttir,
skólastjóri Njarðvíkurskóla.
Haustið 1954 hóf Gídeonfélagið
á Íslandi að færa nemendum í 12
ára bekk í grunnskólum landsins
Nýja testamentið að gjöf. Áhöld
eru um hvort fyrsta afhendingin
hafi farið fram í Laugarnesskól-
anum eða í Langholtsskólanum og
er það í sjálfu sér aukaatriði.
Falleg og söguleg mynd er hins
vegar til af afhendingu Nt í Lang-
holtsskólanum frá þessum tíma
þar sem faðir minn, Þorkell Gunn-
ar Sigurbjörnsson, sem var fyrsti
forseti Gídeonfélagsins á Íslandi,
afhendir ungri stúlku eintak af Nt.
Mynd þessi hefur æ síðan verið
notuð í sögulegu samhengi þegar
minnst er afhendingu fyrsta Nt til
skólabarna hér á landi. Stúlkan á
myndinni er Helga Magnúsdóttir
og var hún alla tíð meðvituð um
þessa sögulegu stund, sem hún
sagði að hefði haft veruleg og var-
anleg áhrif á sig.
Enda varðveitti hún Nt sitt
vandlega og las reglulega í því sér
til uppbyggingar og leiðsagnar á
lífsleiðinni. Hafði hún það gjarnan
meðferðis í skólann sem hún
kenndi í þegar hún vissi að von
væri á fulltrúum Gídeonfélagsins,
til þess að sýna börnunum þetta
sögulega eintak og segja þeim frá
því hvað þessi magnaða bók hefði
verið henni mikils virði í lífi og
starfi.
Fyrir 10 árum í kringum 60 ára
afmæli Gídeonfélagsins á Íslandi
setti Helga sig í samband við mig
og tilkynnti mér að hún vildi af-
henda félaginu umrætt eintak til
varðveislu af sögulegum ástæð-
um. Varð úr að hún kom á heimili
föður míns, sem þá var 93 ára
gamall, og afhenti honum eintakið
að mér viðstöddum. Eintakið sem
hann hafði afhent henni í Lang-
holtsskólanum fimmtíu og einu ári
áður.
Að sjálfsögðu í skiptum fyrir
nýtt eintak, sögu Gídeonfélagsins
á Íslandi auk bænabókarinnar Í
skugga vængja þinna, eftir þann
sem þetta skrifar.
Haustið 2013 hafði Helga sam-
band við mig eftir að út spurðist
að ég hefði greinst með krabba-
mein til þess að flytja mér kveðju
sína og uppörvunarorð. Nú hefur
hún sjálf þurft að láta í minni pok-
ann fyrir ámóta ógnandi óværu.
En þá er gott að hugsa til þess
að hún hvíldi í orðum og fyrirheit-
um frelsara síns Jesú Krists, úr
Nýja testamentinu fræga sem
hún eignaðist forðum. Orðum sem
fylgdu henni alla tíð og hafa mátt
til að viðhalda lífi hennar í faðmi
frelsarans á himnum að eilífu.
Ég á aðeins eitt líf,
það er mér mjög dýrmætt
og ég tek því verulega alvarlega.
Ég reyni að lifa því
og ég vanda mig.
Samt veikist ég,
verð fyrir vonbrigðum og særist.
Að lokum slokknar á líkama mínum,
hann deyr og verður að moldu.
Ég á aðeins eitt líf,
en það gerir ekkert til,
ég sætti mig við það,
í ljósi þess að líf mitt er í Jesú.
Honum sem fær er um
að græða sár,
endurreisa og lífga við.
Honum var og er líf mitt falið
og það varir að eilífu.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Blessuð sé minning Helgu
Magnúsdóttur kennara. Saga
hennar og saga Gídeonfélagsins á
Íslandi er samofin órjúfanlegum
böndum sem munu vara.
Sigurbjörn Þorkelsson,
fv. forseti og fram-
kvæmdastjóri Gídeon-
félagsins á Íslandi.
Helga Magnúsdóttir kennari er
látin.
Ég kynntist Helgu fyrst þegar
ég kom að Njarðvíkurskóla árið
1983 en þar var hún kennari.
Síðan þá hefur Helga verið vin-
ur minn alla tíð og samstarfsfélagi
allt til ársins 2004.
Helga var samviskusöm og
vandvirk í hvívetna, lipur og prúð-
menni í samstarfi.
Helga var einstaklega góður
kennari. Hún vildi allt fyrir nem-
endur sína gera.
Fulltrúar úr nemendahópi
hennar komu og heimsóttu hana
og færðu henni blóm þar sem hún
lá veik. Henni þótti vænt um þessa
heimsókn og minntist hennar með
sérstaklegri hlýju.
Í bókinni „Kyrrðin talar“ eftir
Eckhart Tolle segir: „Gerðu núið
að vini, ekki óvini. Viðurkenndu
það og virtu. Þegar það er und-
irstaða og miðdepill lífs þíns vind-
ur lífi þínu fram af áreynsluleysi
og átakalaust.“
Þegar dýpst er skoðað getum
við spurt sérhvern mann um eðli
lífsins og sá getur aðeins veitt því
svar með því að taka ábyrgð á eig-
in lífi. Eina svarið sem hann getur
gefið lífinu er að axla ábyrgð. Með
því að taka þeirri áskorun að þjást
með reisn, hefur lífið tilgang til
síðustu stundar.
Við eigum öll eftir okkar för um
dalinn dimma. Ef til vill er vitund-
in um það eitt af því sem gerir
okkur mannleg. Við erum í fylgd
hins eilífa samtímamanns allra
manna á öllum tímum.
Mér fannst Helga lifa lífinu
með þessum hætti. Hún gerði sér
grein fyrir hvernig fortíð mótar
fólk. Hún átti góðar minningar úr
Reykjavík þar sem hún ólst upp.
En hún horfði einnig til framtíðar.
Helga tókst á við erfiðan sjúk-
dóm af ótrúlegu æðruleysi. Hún
vissi vel að hverju stefndi.
Viktor Emanuel Frankl skrif-
aði bókina „Leitin að tilgangi lífs-
ins“. Þar talar hann um persónu-
legan harmleik og erfið örlög og
segir m.a. um tilgang þjáningar-
innar:
„Við megum aldrei gleyma því
að við getum fundið tilgang í líf-
inu, jafnvel þótt við séum í von-
lausri aðstöðu gagnvart örlögum
sem ekki verða umflúin.
Þá ríður á að bera vitni því
besta sem manninum einum er
gefið, þ.e. að geta snúið persónu-
legum harmleik í sigur, þrenging-
um upp í mannleg afrek.
Þegar við eigum þess ekki leng-
ur kost að breyta aðstæðum – t.d.
vegna ólæknandi sjúkdóms eins
og óskurðtæks krabbameins – er
tækifærið í því fólgið að breyta
okkur sjálfum.“
Hann sagði einnig: „Með því að
taka þeirri áskorun að þjást með
reisn, hefur lífið tilgang til síðustu
stundar.“ Svona var Helga.
Hún átti til að bera þessa stór-
kostlegu hæfileika, sem hér var
lýst, að hefja sig yfir erfið veikindi,
sem hún þurfti þó að berjast við á
hverjum einasta degi síðasta árið.
Helga var heilsteypt kona og
æðrulaus. Ég minnist hennar með
sérstökum hlýhug.
Ég votta fjölskyldu Helgu sam-
úð mína, Þórði, börnum hans og
barnabörnum.
Ég geri mér grein fyrir þeirri
tilfinningu sem grípur hjartað er
sá tapast sem alls ekki má missa,
þegar sá hverfur sem gefið hefur
lífinu stóran hluta af tilgangi sín-
um.
Gylfi Guðmundsson.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson.)
Margar góðar minningar koma
í hugann þegar Helga er fallin frá.
Við unnum saman í Njarðvíkur-
skóla í áratugi. Helga var sérlega
góður kennari og metnaðarfull
fyrir hönd nemenda sinna. Hún
bar hag hvers einstaklings fyrir
brjósti og fylgdist með nemendum
sínum, líka eftir að þeir voru lagð-
ir af stað út í lífið. Helga var dug-
leg og vinnusöm. Það var alveg
frábært að vinna með henni, hvort
sem var í kennslu eða félagsmál-
um.
Hún var glöð og ljúf kona sem
mátti ekkert aumt sjá og vildi
leysa hvers manns vanda. Á góð-
um stundum tók hún fram gítar-
inn og við brustum í söng. Helga
var vel hagmælt, hún átti t.d. létt
með að setja saman skemmtilegan
texta við fjörug lög sem við í
Njarðvíkurskóla sungum saman
af ýmsum tilefnum.
Það var gaman að ferðast með
Helgu, bæði innan lands og utan.
Þá ríkti gleðin ein. Ein okkar fór
með Helgu í diplómanám fyrir
nokkrum árum, sú samvinna var
góð og gefandi eins og öll önnur
samskipti okkar.
Hún var mikil föndur- og
handavinnukona, heimili hennar
ber vott um listfengi hennar.
Árið 2008 lauk Helga störfum
við Njarðvíkurskóla ásamt fjórum
öðrum kennurum sem kölluðu sig
eftir þetta vinkonurnar fimm. Við
hittumst reglulega á kaffihúsum
eða heima hver hjá annarri.
Elsku Helga tók veikindum sín-
um af hugrekki og með reisn. Við
þökkum fyrir vináttu til margra
ára. Við sendum fjölskyldu Helgu
innilegar samúðarkveðjur og sér-
lega Þórði eiginmanni hennar sem
gerði henni kleift að vera heima
eins lengi og heilsan leyfði.
Hvers virði er vinátta vænlegum
snótum?
Hvers virði er lífið þeim á
stefnumótum?
Hvert orðtak og umhyggja lýsir og leið-
ir
sem leiftrandi afl og úr væntingum
greiðir.
(Helga Magnúsdóttir.)
Erna, Guðríður, Guðrún
og Sigrún.
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2015
Rabbi byrjaði
ungur að stunda
sjóinn á síðutogur-
um. Síðan réð hann
sig til norskrar út-
gerðar og gerðist kyndari á
fraktskipum og sigldi um heims-
ins höf í tæp fimm ár. Ég var
ekki gömul þegar Rabbi kynntist
mömmu, sex eða sjö ára. Hann
kom vestur á Ísafjörð fyrir til-
stuðlan vinar síns, Halldórs Her-
mannssonar, til að fara á sjó á
Guðnýju IS. Hann bar með sér
einhvern framandi blæ, glæsileg-
ur, dökkhærður með liðað hár,
víðförull og svo mikill heimsmað-
ur. Hann var einstakt ljúfmenni,
heiðarlegur, einlægur, ótrúlega
þolinmóður og skipti aldrei
skapi. Það hefur trúlega ein-
hvern tíma reynt á þolrif hans að
hafa þennan óstýriláta telpu-
hnokka í eftirdragi. Ég var ekki
par hrifin af því að „einhver mað-
ur“ kæmi og stæli henni mömmu
minni frá mér. Við sem höfðum
ákveðið að leggjast í ferðalög
þegar ég yrði eldri og fara til
Þýskalands, þar sem hún hafði
verið nokkru áður við störf og
þýskunám. Ef mig grunaði t.d.
að hann þyrfti að nota baðher-
bergið þeyttist ég þangað inn,
læsti og beið eins lengi og ég
hafði þolinmæði til. Aldrei sagði
hann styggðaryrði við mig eða
ávítaði og auðvitað gafst ég fljót-
lega upp á þessu háttalagi. Rabbi
reyndist mér hinn besti faðir og
eignuðust þau mamma saman
tvo drengi, Gunnstein og Odd.
Fyrir átti hann fimm börn. Hann
var einstakt snyrtimenni, alltaf
vel til hafður hvort sem var til
sjós eða lands. Hann vildi hafa
sín spariföt klæðskerasaumuð og
úr úrvalsefni. Skórnir skyldu
Jón Rafn Oddsson
✝ Jón Rafn Odds-son (Rabbi)
fæddist 24. maí
1926. Hann lést 7.
júní 2015.
Útförin fór fram
13. júní 2015.
vera frá Lloyd, ekk-
ert minna. Hann og
mamma höfðu ein-
stakt dálæti á töl-
unni þrettán. Hann
keypti sér bát til að
stunda skak og
rækjuveiðar á vetr-
um. Hann fékk
nafnið Farsæll ÍS
13, smíðaður af afa
Gunnari, skipasmið.
Síðan eignaðist
hann annan bát og nefndi hann
Gunnar Sigurðsson ÍS 13 (er
núna í eigu Byggðasafns Vest-
fjarða). Þegar þau eignuðust bíl
var hann Í 1013. Rabbi var mikill
sögumaður og hafði einstakt lag
á að halda athygli okkar með
mjög svo skemmtilegum frá-
sögnum frá ferðum sínum um
heimsins höf og margar heims-
álfur. Hann hafði sérstakt dálæti
á enska boltanum og Arsenal var
hans uppáhaldslið. Gat horft á
endurtekningar aftur og aftur og
spáð í hvað betur hefði mátt fara,
sérstaklega ef hans lið tapaði.
Hann þekkti alla leikmennina
með nafni. Á sínum yngri árum
las hann mjög mikið. Hann hafði
sérstakt dálæti á Íslendingasög-
unum og las Laxness mikið.
Hann sat líka oft og las ljóð.
Hann var heilsuhraustur nánast
alla sína tíð. Þau mamma bjuggu
á Hlíðarveginum fram í desem-
ber 2012. Hann varð fyrir því
óláni að hrasa í stiga og jafnaði
sig aldrei fullkomlega eftir það.
Um sama leyti greindist mamma
með krabbamein sem dró hana
til dauða ári seinna. Undanfarið
hefur hann dvalið á öldrunar-
deild Heilbrigðisstofnunar Vest-
fjarða í einstaklega góðu yfirlæti
starfsfólksins þar og kann ég því
hjartans þakkir fyrir öll elsku-
legheitin, sem hafa verið honum
ómetanleg og ekki síður okkur.
Rabbi dó í faðmi fjölskyldunnar á
sjómannadaginn. Hans verður
sárt saknað. Blessuð sé minning
hans.
Kristín og fjölskylda.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
BRYNJÓLFUR MÁR SVEINSSON
yfirvélstjóri,
Skaftahlíð 34,
er var bráðkvaddur 23. maí,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 19.
júní kl. 11.
.
Jóhanna Fjeldsted,
Brynjólfur Rafn Brynjólfsson,
Hjörtur Fjeldsted, Anna Sólveig Davíðsdóttir
og barnabörn.
Elsku mamma, tengdamamma, amma,
dóttir og stjúpdóttir,
ÞÓRUNN MAGDALENA
GARÐARSDÓTTIR,
er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
.
Sigríður Sæunn Jakobsdóttir, Örlygur Kristmundsson,
Edda Rúna Kristjánsdóttir, Rósant Guðmundsson,
Guðrún Kristjánsdóttir, Egill Þórarinsson
og barnabörn
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
DANÍEL HAFLIÐASON,
Búð II,
Þykkvabæ,
lést 15. júní 2015.
.
Sigurður, Kristín og Hafrún.