Morgunblaðið - 19.06.2015, Side 10

Morgunblaðið - 19.06.2015, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015 Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Við vildum breyta þessu að-eins og færa nær nútíman-um, leggja áherslu á fjöl-breytileikann og rytmíska söngtónlist,“ segir Óskar Einarsson, kórstjóri Kór Lindakirkju, sem hef- ur gert garðinn frægan undanfarið fyrir gospeltónlist sína og söng. „Þetta er þó ekki gospelkór heldur kirkjukór sem leggur mikla áherslu á léttari tónlist og léttleik- ann almennt,“ bætir Óskar við. Fullt hefur verið á alla tónleika kórsins sem hefur haft í nægu að snúast síðastliðið ár þegar kemur að tónleikahaldi. „Í vetur vorum við með um þrettán tónleika sem er óvenju mikið en við gáfum út geisla- disk, fórum í tónleikaferðalag og tókum þátt í uppfærslu söngleiks,“ segir Óskar, ánægður með gengi kórsins á landsvísu. Orkumikill og í aðalhlutverki Er kórinn sagður afar orkumik- ill og er eini aðalkór þjóðkirkjunnar með áherslu á gospeltónlist. Elva Ösp Ólafsdóttir, meðlimur í kórnum, segir það vera einsdæmi því yfirleitt séu slíkir kórar í aukahlutverki inn- an þjóðkirkjunnar. „Lindakirkja hefur á sér frábært orð fyrir að vera kirkja þar sem talað er á mannamáli og innihaldið í starfinu í hávegum haft,“ segir hún. Allir séu sammála um að hafa messurnar „hressar og skemmtilegar“. Lindakirkja hefur þá sérstöðu að vikuleg messa er haldin á sunnudagskvöldum sem gefur ákveðinn blæ yfir samkom- unni. „Þar myndast mjög hugguleg stemning, til dæmis á veturna.“ Að jafnaði mæta um 100 manns í mess- urnar og hlustar þegar kórinn hefur þar upp raust sína. Segir kórstjórinn að töluvert sé um að kirkjugestir syngi með kórn- um, slík sé stemningin. „Í ferming- unum sem voru nú í vor fengum við alla fermingargestina til að syngja keðjusöng á meðan presturinn, Guð- mundur Karl Brynjarsson, spilaði á ukulele,“ segir Óskar en þetta mælt- ist einkar vel fyrir og spurðist út fyrir kirkjuveggina. „Menn eru farnir að hlakka hreinlega til næstu ferminga,“ bætir hann við glaður í bragði. „Upplifunin var alveg frábær og fólk átti ekki til orð yfir hve mikill kraftur byggi í þessum litla kór frá Íslandi, hann væri í raun eins og eld- fjall,“ segir Óskar en kórinn hélt út fyrir landsteinana í vor og söng fyrir um þúsund manns í Stokkhólmi. Telst borgin vagga gospelsins í Skandinavíu að sögn Óskars. „Við fórum bara beint þangað sem við vissum að fólk var að fást við sömu tónlist og við.“ Þar tók kórinn hönd- um saman við tvö hundruð manna sænskan gospelkór og söng fyrir gesti Hvítasunnukirkjunnar í Stokk- hólmi. Í kjölfarið seldi kórinn fjölda eintaka af geisladiski sínum sem hann gaf út síðasta haust og ber heitið Með fögnuði. Inniheldur disk- urinn þrettán ný íslensk gospellög sem öll nema eitt eru frumsamin af Óskari Einarssyni kórstjóra, Guð- mundi Karli Brynjarssyni sókn- arpresti og Áslaugu Helgu Hálfdán- ardóttur kórfélaga. „Það er einsdæmi held ég að kór gefi út frumsaminn geisladisk eftir kór- stjórann, prestinn og einn kórfélag- Eldfjallið í Lindakirkju Kór Lindakirkju er fimmtíu manna kór sem hefur vak- ið athygli fyrir blöndu sína af hefðbundinni kirkju- tónlist og gospeltónlist eins og hún gerist best. Hafa þau haldið fjölmarga tónleika í vetur og vor, tekið þátt í sýn- ingum og sungið erlendis við frábærar undirtektir. Dúettinn Unijon heldur tónleika á Minjasafni Egils Ólafssonar að Hnjóti, Örlygshöfn, Patreksfirði, kl. 20 annað kvöld, laugardagskvöld 20. júní. Uni- jon leggur áherslu á ljúfsára og nota- lega stemmningu svo tónleikagest- um gefist kostur á að slaka á og sleppa tökum á amstri hversdagsins. Söngvaskáldin Úní og Jón Tryggvi eru tónelskt par frá Stokkseyri, sem flytja rólega tónlist þjóðlegum og rómantískum nótum. Minjasafn Egils Ólafssonar Á rómantísk- um nótum Söngvaskáld Úní og Jón Tryggvi. Ég útskrifaðist einu sinniúr menntaskóla. Þráttfyrir óljósar minningareftir því sem leið á út- skriftarkvöldið og skort á hvítkolla- sönnunargögnum á samfélags- miðlum á borð við Instagram á ég ennþá skírteini heima sem talar sínu máli. Rykfallið og óspennandi lesning, en skírteini samt sem áður. Það má fylgja sögunni að útskriftin mín var svokölluð „lokuð útskrift“ – þ.e. skírteinið var ekki til sýnis fyrir gesti í veislunni heldur vel varðveitt ofan í skúffu, svo óspennandi var það. Samt stóð ég mig vel í framhalds- skóla. Námslega séð var ég í mesta lagi meðalnemandi en það sem ég á við er að ég fékk það út úr mennta- skólagöngunni sem ég vildi fá út úr henni. Maður upplifði þroskaskeið sem innihélt nógu marga skelli og erfiðleika til þess að maður áttaði sig á því hvað lífið hefur upp á að bjóða en á sama tíma fékk maður að kynnast sjálfum sér og öðrum og ná þannig að skynja betur samfélagið í kringum mann. Menntaskólagangan mín var líka tímasett þannig að hún spannaði eitt áhugaverðasta framfaraskeið samfélagsmiðla í sögunni. Mig rek- ur minni til þess þegar ég og félagar mínir, sumarið áður en við hófum menntaskólagöngu, kynntumst stelpuhópi í strætisvagni á leið heim úr miðbæ Reykja- víkur á 17. júní. Kynnum okkar lauk þeð því að við fengum addressuna á blogg- síðu vinahópsins. Einhvers konar lifandi friend-request. Þetta breyttist á menntaskólagöngu minni. Fyrst kom Myspace í allri sinni dýrð og við tók tímabil þar sem allir reyndu eftir bestu getu að læra á þetta ný- stárlega tryllitæki. Síð- an kom Facebook og eftir það hefur tækniheimurinn aldrei litið um öxl. Aldrei er maður látinn í friði, alltaf þurfa manni að berast fregnir af því hvað næsti maður er að bralla. Aldrei getur maður hitt manneskju sem er óskrifað blað í þínum augum, því líkurnar á að þú hafir einhvern veginn rambað á prófíl viðkomandi, nú eða ömmu hans, eru yfirgnæf- andi. Þú veist þar af leiðandi alltaf hver hann er, hvað hann gerir og hvað hann kýs. Og hvað amma hans kýs ef því er að skipta, því eldri kynslóðin hefur einnig tekið þessa nýju tækni upp á arma sína. En þessi áhugi okkar á að vita allt um alla er ekki einskorðaður við ungu kynslóðina sem er drifkraftur- inn í þróun samfélagsmiðla. Langamma mín hefur mikinn áhuga á ættfræði og getur setið tímunum saman og rakið ætt okkar saman við ætt ótrúlegasta fólks. Forvitni hennar og áhugi getur vel minnt á áhuga unga fólksins á öðru fólki í kringum það. Ég sé ekki fyrir mér að hegðun langömmu minnar væri að nokkru leyti frábrugðin hegðun minni á samfélagsmiðlum, ef hún væri sjálf á mínum aldri. Þessi vangavelta vaknaði upp í huga mér þegar ég sá hvítkollana spássera um stræti miðborgar- innar í lok maí. Út- skriftartíminn er nefnilega fín áminning um að þrátt fyrir að tímarnir og tæknin breytist er mannlega eðlið og for- vitnin áfram sú sama, hvort sem þú útskrif- aðist árið 2015 eða árið 1915. bmo@mbl.is »Ég sé ekki fyrir mér aðhegðun langömmu minnar á samfélagsmiðlum væri að nokkru leyti frá- brugðin hegðun minni á samfélagsmiðlum, ef hún væri sjálf á mínum aldri. HeimurBjörns Más Björn Már Ólafsson bmo@mbl.is Sýningin Nesstofa - Hús og saga hefur verið opnuð í Nesstofu á Sel- tjarnarnesi og verður opin kl. 13-17 alla daga nema mánudaga til 31. ágúst. Nesstofa er meðal elstu og merk- ustu steinhúsa landsins. Á sýning- unni er lögð áhersla á að sýna hús- ið, byggingar- og viðgerðarsögu þess, en auk þess er fjallað um nokkra þætti í merkri sögu hússins. Í Nesi var landlæknisembættið stofnað árið 1760, hafin var lyfsala í húsinu 1772 og þar starfaði einnig ljósmóðir. Í Urtagarðinum við Nes- stofu má skoða íslenskar jurtir sem notaðar voru við lyfjagerð eða nýtt- ar til næringar og heilsubótar. Sýningin í Nesstofu er í samvinnu við Seltjarnarnesbæ og er aðgangur ókeypis. Hægt er að fara á heima- síðu Þjóðminjasafnsins og prenta út aðgengileg verkefni með vísbend- ingum um fólkið í Nesstofu og ýmsa furðuhluti þar innan dyra. Þessi verkefni eru sérstaklega ætluð til að vekja forvitni barna. Vefsíðan www.thjodminjasafn.is/fraedsla/nr/4665 Morgunblaðið/Jim Smart Nesstofa Apótekið hefur verið innréttað eftir gömlum lýsingum á því. Merkilegt hús með langa sögu Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Bjarni H. Þórarinsson kynnir donn- ettur, afrakstur nýjustu deildar Vís- indaakademíunnar, á sýningunni Nýja Íslandi í Spark Design. Líkt og orðum og hljóðum er raðað upp í sonnettum og ljóðum er ljósmyndum og landslagi raðað upp í donnettum. Bjarni hugsar donnettuna sem nýtt listform sem hver sem er getur unnið með, líkt og hver sem er getur ort ferskeytlu. Spark er opið daglega frá kl. 10- 18 og laugardaga frá kl. 12-17. Donnettur kynntar á Nýja Íslandi Morgunblaðið/Einar Falur Sjónháttafræðingur Saga býr að baki hverri donettu Bjarna. Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is 25ÁRA 1988-2013 Þar sem gervihnattabúnaðurinn fæst VORUMAÐ FÁ LOFTNET FYRIR FERÐABÍLA,HJÓLHÝSI OG FELLIHÝSI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.