Morgunblaðið - 19.06.2015, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 19.06.2015, Qupperneq 23
Júlíana Sveinsdóttir Í dag er þess minnst að 100 ár eru liðin frá því íslenskar konur fengu kosningarétt. Á þeim tímamótum er rétt að líta yfir farinn veg og huga að sjónlistum íslenskra kvenna. Þar ber í raun eitt orð hæst. Það er orðið hönnun. Í fyrstu var það einungis notað í sambandi við iðju kvenna, hannyrðir, fyrir utan það sem kemur fram í Ólafssögu helga, „ hagur og sjónhannar um smíðir allar, hvort er hann gerði eða aðrir menn“. Íslensk- ar konur hafa komið að sjón- menntum frá því land byggðist. Það er hægt að rekja nútíma- myndlist á Íslandi til upphafs síðustu aldar. Íslenskar konur voru í hópi frumherja í íslenskri myndlist. Blek- berinn hefur haft yndi af íslenskri myndlist. Sá áhugi beinist ekki hvað síst að framlagi íslenskra kvenna til íslenskrar myndlistar. Að þessu sinni ætlar blekberi að beina sjónum að fimm íslenskum konum sem hafa hver á sinn hátt leitt sjónmenntir, sumar á Íslandi en aðrar jafnframt erlendis. Blekberi ætlar ekki með þessu að gera lítið úr framlagi annarra íslenskra kvenna eða karla. Miklu fremur lýsir greinin hugljómun blekberans þegar greinin er skrifuð. Frumherjar íslenskrar myndlistar máluðu gjarnan upphafið landslag með fegurðina að leiðarljósi. Í lands- laginu ríkti fegurðin ein. Að auki fóru íslenskir málarar að vinna úr bókmenntaarfinum, þjóðsögum og fornsögum. Þetta er sú klassík sem flestar þjóðir fara í gegnum. Arfur fortíðar er mun glæstari en það sem nútíðin hefur að bjóða! Þrátt fyrir allt hefur nútíðin meiri þekkingu en fortíðin. Í módernisma er tekist á við framtíðina í gegnum nútímann. Júlíana Sveinsdóttir var meðal frumherja í íslenskri málaralist. Hún málaði og starfaði í Danmörku en reyndi þó að búa sér heimili á Ís- landi. Myndir hennar frá heimaslóð- um hennar í Vestmannaeyjum eru ekki upphafning á fegurð eyjanna, miklu fremur er Júlíana að brjótast úr klassíkinni og í nokkrum uppstill- ingum hennar þar sem hún málar vasa, skálar og borð virðist sem hún sé fremur að fást við strangflatarlist, geometríu, en klassíska uppstillingu. Nína Tryggvadóttir var í næstu bylgju íslenskra málara. Hún hélt á aðrar slóðir en Júlíana en hún nam í París. Portrait-myndir hennar bera keim af geometríu og kúbisma. Í námi sínu málaði Nína hlutbundnar myndir en um leið og hún fékk tæki- færi til frjálsrar listsköpunar skap- aði hún sinn eigin stíl. Þrátt fyrir að hallast að óhlutbundnu formi í list sinni, þá er hið hlutbundna til í huga hennar og höndum. Eitt hennar stóra meistaraverk er altarismynd í Skálholti þar sem Frelsarinn kemur til mannsins úr tóminu. Stórkostlegt verk í einfaldleika sínum. Það þótti fréttnæmt fram yfir miðja síðustu öld þegar konur luku háskólaprófum. Hlutskipti þeirra var í hæsta lagi ófaglærð skrif- stofuvinna að loknu námi í gagn- fræðaskóla eða verslunarskóla. Guð- munda Andrésdóttir starfaði á skrifstofu en varð fyrir hugljómun þegar hún sá málverkasýningu eftir stríð. Hún ákvað að nema málaralist. Hún málaði aldrei mynd með hlut- bundnu myndformi. Líkt og Nína Tryggvadóttir þróaði Guðmunda sitt myndform í geometríunni. Það var oft sagt að Guðmunda væri föst í hringaformi. Það kann að vera að Guðmunda hafi ekki klárað myndina en eftir stendur tilraun til að fanga hreyfingu í fleti. Þar er Guðmunda einstök. Gerður Helgadóttir sagði skilið við klassíska myndbyggingu um leið og hún hóf nám á erlendri grundu. Geometrísk verk hennar einkennast af léttleika, verkin eru ekki efnis- mikil en umfram allt eru verkin til af sjálfum sér, ekki neinni fyrirmynd þó þau hafi hlutbundna skírskotun í nöfnum. Gerður vann verk sín í málma, mósaík og steingler. Gluggar Skálholtskirkju eru merkilegir fyrir meira en litadýrðina. Í gluggunum eru krossform, eitt geometrísku for- manna. Að auki er í þeim fólgin mikil og þrauthugsuð táknhyggja. Að lokum verður að nefna konu sem aldrei fór mikið fyrir og dó fyrir aldur fram. Eyborg Guðmundsdóttir hafði starfað á skrifstofu hjá Bún- aðarfélaginu en ekki fengist við nám í myndlist. Hún hafði kynnst form- byltingu eftirstríðsáranna. Kunn- ingjar hennar í íslenskri myndlist hvöttu hana til að afla sér þekkingar í listum. Hún gerði eins og hugur hennar stóð til og hóf nám í hring- iðunni í París. Þar fékk hún að sýna meðal þeirra sem voru fremstir á sviði sjónvillu, op art, í geometrí- unni. Meðal lærimeistara hennar var Victor Vasarely. Þessar fimm konur voru í fremstu röð formbyltingarmanna í íslenskri myndlist. Allt orkar tvímælis þá sagt er eða gert. Það sem hér er sagt er ekki til þess að hallmæla nokkurri konu eða karli sem fengist hefur við sjónmenntir. Þessar konur og marg- ar fleiri hafa lagt drjúgan skerf til heimslistar og heimalistar. Þær hafa göfgað mannsandann í umhverfi sínu. Hlutur ofangreindra kvenna er ótvíræður. Íslenskar konur, til hamingju með daginn. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Það þótti fréttnæmt fram yfir miðja síðustu öld þegar konur luku háskólaprófum. Höfundur er alþingismaður. Konur í klassík til módernisma Gerður Helgadóttir Guðmunda Andrésdóttir Eyborg Guðmundsdóttir Guðmunda Andrésdóttir Eyborg Guðmundsdóttir Gerður Helgadóttir Júlíana Sveinsdóttir Nína Tryggvadóttir Ljósmynd/Salbjörg Rita Jónsdóttir 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.