Morgunblaðið - 19.06.2015, Page 28

Morgunblaðið - 19.06.2015, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015 ✝ GuttormurArnar Jónsson fæddist á Sauð- árkróki 19. febr- úar 1932. Hann andaðist á heimili sínu laugardaginn 6. júní 2015. For- eldrar Guttorms voru Jón Sig- tryggur Sigfússon, f. að Brekku í Svarfaðardal 1. september 1903, d. 17. nóv- ember 1987 og Sigurbjörg Theodóra Guttormsdóttir, f. á Síðu í Víðidal í Vestur-Húna- vatnssýslu 4. október 1904, d. 19. febrúar 1952. Systkini Gutt- orms eru Björn Haraldur, f. 1933, Hrafnhildur Svava, f. 1934, Lissý Björk, f. 1936, d. 2011, Anna Soffía, f. 1940, Sig- urlaug, f. 1941 og Viðar, f. 1946. Guttormur kvæntist 17. júní 1958 Hrefnu Einarsdóttur frá Hraunprýði á Hellissandi, f. 20. júní 1931, d. 17. desember 2004. Hrefna var dóttir Einars Ögmundssonar vélstjóra, f. 26. febrúar 1899 á Hellu í Beruvík, d. 3. mars 1974 og Sigríðar Sesselju Hafliðadóttur, f. 17. Harpa Hrund, f. 1997, Eva Sól, f. 2001 og Ólafur Hrafn, f. 2005, og fyrir átti Einar Emmu Hönnu, f. 1986. Fyrstu árin var Guttormur með foreldrum sínum í Vest- urhópi, en elst síðan upp í Ketu, Skógargötu 26 á Sauð- árkróki. Hann dvaldi mörg sumur hjá móðurforeldrum sín- um Arndísi og Guttormi á Síðu þar sem honum leið afskaplega vel. Á unglingsárunum vann hann við brúargerð norður í landi. Guttormur lauk prófi frá Iðnskólanum á Sauðárkróki 1951 og sama ár flytur hann suður til Keflavíkur. Hann hóf fljótlega störf hjá Varnarliðinu, fyrst sem kokkur, þá bílstjóri og lengst af sem verkstjóri á flutningamiðstöð Varnarliðsins, og starfaði hann þar alla sína starfsævi. Á þessum árum kynntist hann verðandi eig- inkonu sinni, Hrefnu. Búskap sinn hófu þau á Þórustíg 12 í Ytri-Njarðvík haustið 1953 og fluttu síðan í eigið hús 1958 sem þau byggðu að Reykjanes- vegi 16. Á Reykjanesveginum bjuggu þau alla sína tíð ásamt systrahópnum. Guttormur hafði áhuga á veiðum og var m.a. í Stangveiðifélagi Kefla- víkur. Fjölskyldan var Gutt- ormi hjartans mál og var hann afskaplega frændrækinn. Útför Guttorms fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 19. júní 2015, kl. 14. júní 1908 í Berg- holtskoti í Stað- arsveit, d. 1. ágúst 1984. Dætur Gutt- orms og Hrefnu eru Sigurbjörg Arndís, f. 15. des- ember 1956, leik- skólasérkennari, gift Haraldi Auð- unssyni, börn þeirra eru Einar Baldvin, f. 1985, Jón Arnar, f. 1987 og Guðrún, f. 1993; S. Harpa, f. 16. apríl 1958, stúdent, sambýlismaður Orri Brandsson, sonur þeirra er Guttormur Jökull, f. 1985; Soffía, f. 19. desember 1962, hjúkrunarfræðingur, var gift Sighvati Halldórssyni, þau slitu samvistum, börn þeirra eru Hrefna Lára, f. 1990, Ástrós Eir, f. 1995 og Elías Sturla, f. 1997; Alma Björk, f. 21. febr- úar 1966, hjúkrunarfræðingur, gift Björgvini Björgvinssyni, börn þeirra eru Arna Björk, f. 1990, Björgvin Andri, f. 1994, Davíð Hrafn, f. 1997 og Gutt- ormur Arnór, f. 2005; Elfa Hrund, f. 2. júní 1971, fé- lagsráðgjafi, gift Einari Ásbirni Ólafssyni, börn þeirra eru Elsku pabbi, ekki átti ég von á því að missa þig svona snemma og skyndilega, var að vona að við fengjum að hafa þig hjá okkur lengur. Þú varst svo hress þegar þú hringdir í mig kvöldið áður, nýkominn úr matarboði hjá yngstu dóttur þinni, Elfu, og fjöl- skyldu hennar sem þú gerðir oft, þar sem hún bjó næst þér, nýbú- inn að panta þér ný heyrnartæki. Við áttum gott spjall, komum víða við, þú spurðir um nafna þinn og ég nefndi að hann væri að fara norður á Bíladaga, þið voruð nánir og hann var nýbúinn að heimsækja þig. Og hvað þið mamma studduð vel við okkur þegar nafni þinn gekk í gegnum krabbameinsmeðferðirnar þrjár, það var góður stuðningur. Marg- ar eru minningarnar frá Reykja- nesveginum, alltaf gott að koma á æskuslóðirnar, þegar ég kom suður í stutta heimsókn eða lengri, eins og sumarið 2011 þeg- ar ég flutti til þín og vann í Leifs- stöð. Það var góður tími og þegar við fórum tvö á Síðu þá um sum- arið því Elfa hélt upp á afmælið sitt þar. Það var skemmtileg ferð, mikið spjallað á leiðinni um öll heimsins mál, stoppað var í Borg- arnesi eins og þú gerðir alltaf á leiðinni norður og fékkst þér kaffi og kleinu. Á Síðu leið þér alltaf vel og vildir helst hvergi annars staðar vera. Eftir skemmtilega helgi með stórum hópi sem fagn- aði tímamótunum með Elfu með mikilli veislu kvölds og morgna og öll rými á báðum hæðum voru notuð þegar lagst var til svefns. Eftir veisluna varst þú á Síðu í nokkrar vikur. Þú gast ekki beðið eftir því að það hlýnaði í veðri svo að þú gætir farið á Síðu til lengri eða skemmri dvalar þar sem m.a. var fylgst með veiði í Víðidals- ánni, athugað með sprettuna á túnunum, horft eftir hrossunum hans Viðars, farið í bíltúra um sveitina, fékkst fólk í kaffi sem þú hafðir mjög gaman af og tókst mjög vel á móti með kaffi og með- læti og kíkt í kaffi til frændfólks á Hvammstanga eða í Víðigerði. Á Síðu ég fer læt ekki bíða eftir mér. Þegar sól á lofti er ég í sveitina fer kaffi og kleina í Borgarnesi er ómissandi hluti af ferðalagi. Minningarnar eru margar, þær verða rifjaðar upp á komandi árum, beðið eftir hringingu frá þér á hverju kvöldi sem var svo notalegt að fá. Það tekur tíma að átta sig á því að þú ert farinn og að ég geti ekki hringt í þig og spjallað eða fengið hringingu frá þér. Allar góðu ferðirnar á Síðu frá fæðingu fram á unglingsár og þegar ég veiddi maríulaxinn minn aðeins 14 ára í Vesturhóps- vatni, 6 punda fallegan lax. Þú mömmu rauðar rósir færðir hvern föstudag. Þeir dagar voru henni kærir að fá blóm þann dag. Elsku pabbi, ég sakna þín, kem til með að ylja mér við allar góðu minningarnar, þær verða ljós í lífi mínu um ókomin ár. Þín dóttir, Harpa. Elsku pabbi. Hver hefði trúað því að þú féllir frá svona snöggt. Fyrir mánuði síðan dreymdi mig að þú værir dáinn, ég vaknaði upp með tárvot augu, mikið var ég fegin að þetta var bara draum- ur, ég hugsaði með mér að ég gæti bara ekki afborið að missa þig, þú varst mér svo kær. Ég var alltaf pabbastelpa, ég held að við höfum verið lík á ýmsan hátt og við skildum hvort annað. Þú gast þér alltaf tíma til að spjalla, enda var alltaf gott að leita til þín. Við systurnar höfum misst mikið, tengdasynir sjá einnig eftir góð- um félaga og afabörnin sakna þín sárt. Nú ert þú kominn til mömmu, þinnar ástkæru eigin- konu sem við misstum fyrir tæp- um 11 árum síðan. Á morgun haldið þið saman afmælisveislu í tilefni afmælis móður okkar. Þú varst stoltur af þínum upp- runa. Hugur þinn leitaði alltaf á Sauðárkrók þangað sem við ferð- uðumst í sumarfríunum þínum og gistum hjá föður þínum í nokkrar vikur, þar áttir þú einnig frænd- fólk og vini sem þú varst dugleg- ur að heimsækja. Einnig dvöld- um við á ættaróðalinu þínu á Síðu í Víðidal þaðan sem móðurfor- eldrar þínir voru. Þessi frí með þér og mömmu voru okkur ógleymanleg, þú lifðir fyrir þessi frí. Uppáhaldsártími þinn var á vorin, þá lifnaði allt við og þá styttist í ferðalag á heimaslóðir. Þú hafðir einnig gaman af lax- veiðitúrum og fékk eiginmaður minn þann heiður að fara í lax- veiðferðir með þér í Víðidalsá og tengdaföður mínum. Einnig fórst þú í marga laxveiðtúra með Haf- steini mági þínum. Mér er það minnisstætt þegar þú komst heim úr þessum túrum, þá var veisla. Fyrir ári síðan fórum við sam- an á Síðu og gistum þar nokkrar nætur í tengslum við fermingu, ég naut þessara daga með þér og fannst það forréttindi að fá að vera ein með þér á Óðalinu. Á kvöldin sátum við saman í eldhús- inu og spjölluðum. Þú varst alltaf að bíða eftir að hlýnaði í veðri svo þú kæmist aftur á Óðalið, en þú náðir ekki þangað aftur. Það verður tómlegt að fara aftur á Síðu án þín. Þú varst alltaf svo mikill ung- lingur, alltaf svo duglegur að spjara þig. Þú fórst þínar ferðir sjálfur. Þú áttir við slitgigt að stríða og æðavandamál, varst oft verkjaður vegna þess og áttir oft erfitt með svefn, en alltaf var stutt í brosið og húmorinn. Þú varst mikill fjölskyldumaður og fylgdist vel með okkur. Ég er þakklát fyrir að hafa hóað í fjöl- skylduna í súpuboð þremur vik- um áður en þú fórst frá okkur. Ég er svo þakklát fyrir að hafa heim- sótt þig fjórum dögum áður en þú fórst, stoppaði lengi hjá þér, fór- um að leiði eiginkonu þinnar með sumarblóm sem við völdum sam- an. Það var þér ofarlega í huga að setja niður sumarblóm hjá henni þrátt fyrir að það væri hífandi rok og varla stætt. Þú hringdir síðan í mig tveimur dögum áður en þú fórst , varst svo glaður í bragði eins og alltaf. Elsku pabbi minn, það mun taka mig tíma til langan átta mig á því að þú sér farinn frá okkur, þú skilur eftir þig stórt tómarúm í mínu hjarta, en minningarnar um þig verða ekki teknar frá mér. Ég elska þig, hvíl þú í friði. Meira: mbl.is/minningar Þín dóttir, Alma Björk. Elsku pabbi, núna ertu kom- inn til mömmu. Það eru margar minningar sem koma upp þegar ég hugsa til baka. Það var alltaf margt um manninn á æskuheim- ilinu. Þið mamma eignuðust fimm stelpur og fjölskyldan skipti ykk- ur öllu máli. Það var fastur liður að fara norður til afa á krókinn öll sumur á meðan hann lifði. Þar dvöldum við í góðu yfirlæti og ferðuðumst um norðurlandið, kíktum í ber og veiddum í soðið í Faxalæk. Ég dáðist að þér alla tíð, pabbi minn, hvað þú varst duglegur að sinna mömmu eftir að hún veiktist. Eftir fráfall hennar vorum við svo heppin hvað þú varst duglegur að heim- sækja okkur. Börnin mín eiga margar góðar minningar um þig til að orna sér við. Ferðirnar á óðalið þitt voru stór þáttur í lífi þeirra. Að fara með afa á rúntinn og kaupa ís í Víðigerði og renna fyrir fisk eða bara að spjalla við þig við eldhúsborðið. Þú hafðir unun að því að segja sögur af sveitinni og fuglalífinu. Þú þreyttist aldrei á því að gefa fugl- unum að borða, hvort sem það voru smáfuglar eða hrafnar. Elsku pabbi, þú máttir ekkert aumt sjá og þú varst alltaf til staðar fyrir okkur. Takk fyrir allt, elsku pabbi. Ég var heppin að eiga þig fyrir föður. Þín dóttir, Elfa Hrund. Í dag kveð ég ástkæran tengdaföður minn til margra ára, hann Guttorm A. Jónsson. Ég kynntist Guttormi þegar ég byrj- aði með dóttur hans Soffíu. Ég þóttist vita að Gutta litist nú mátulega vel á mig fyrst um sinn enda mjög kröfuharður maður. Okkur Gutta varð vel til vina og kunni ég mjög vel við hann. Gutti hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Það gat nú líka haft ákveðin áhrif út á við. Það var alltaf gaman að um- gangast hann og rökræða málin. Oft var farið norður á Síðu en Gutti var óðalsbóndinn þar og hafði þar stjórn á öllum hlutum. Þar var mikilvægt að allir hlutir væru í föstum skorðum og að leikreglunum væri fylgt í hví- vetna. Ég minnist þess að dætur hans tipluðu þar á tánum svo að þær gerðu nú allt rétt. Það var mér alltaf ánægja að grilla lamb- ið fyrir hann og þá beið maður í ofvæni eftir niðurstöðu dómarans um ágæti lambsins, hvort það væri ofsteikt og óætt eða meyrt og fínt eins og hann vildi hafa það. Hann sagði alltaf sína skoð- un og því var nú mikilvægt fyrir fólk að kunna að taka gagnrýni og hafa móðgunarstuðulinn á réttu róli. Við fórum nokkrum sinnum saman norður á Síðu, stundum til erindagjörða eða bara til að anda að okkur norð- lenska loftinu og njóta lífsins. Gutta leið alltaf best á Síðu, enda hans heimavöllur. Það var sér- staklega gaman að aka Vatnsnes- hringinn með Gutta því þar þekkti hann hvern einasta stað og maður var alltaf jafn uppnum- inn af fróðleik hans og þekkingu á staðháttum. Á Síðu gátum við rætt málin ofan í kjölinn og þar komu þá oft fram nýjar víddir á vandamálum heimsins. Mjög skemmtilegar voru fjölskyldu- ferðirnar norður og var þá oft mikið um leiki og skemmtun. Skemmtilegt var að ganga upp í Björg og krakkarnir höfðu mjög gaman af að veiða í Faxalæk. Þar nutu þau tilsagnar Gutta afa síns enda mikill sérfræðingur í veiði. Ég kveð nú hann Gutta tengda- föður með sorg í hjarta. Hann fór alltof snemma frá okkur. Ég votta aðstandendum hans og vin- um mína samúð. Sighvatur Halldórsson. Takk fyrir túrinn, já takk fyrir veiðitúrinn. Já, við Gutti fórum saman til veiða í Víðidalsá í nokk- ur ár, minningarnar úr þessum ferðum leita á hugann nú þegar komið er að tímamótum. Þegar andlát ber að höndum þá rifjast upp minningar, minn- ingar um góðan mann sem naut þess að dveljast á óðalinu norður í Húnavatnssýslu, já, Síða átti hug hans allan mörg undanfarin ár og hlakkaði hann jafnan mikið til er vora tók og hann gat farið að huga að norðurferð. Hann hlakkaði til að kveðja skammdeg- ið og kuldahroll vetrarins og taka þess í stað á móti tíð hækkandi sólar og vaknaði lífs. Ég man það vel er ég kom á Síðu í fyrsta skipti 1981 en þá var ég leiðsögumaður við Víðidalsá, þá var búskapur ennþá á bænum, kýr í fjósi og kindur í túni. Ég kom þar til að fá leyfi til að veiða í Faxalæk og var það auðsótt mál, mig grunaði ekki þá að stundirn- ar á Síðu ættu eftir að verða miklu fleiri, en enginn veit sína framtíð, en það var svo árið 1985 að kynntist minni ástkæru eigin- konu og um leið Guttormi Arnari Jónssyni tengdaföður mínum. Gutti tók mér strax vel og fljótt kom í ljós að við áttum við sameiginlegt áhugamál, nefni- lega lax- og silungsveiði og var okkur tíðrætt um þau málefni, það var svo fyrir tilstilli föður míns heitins að við Gutti héldum til veiða í Víðidalsá og þar naut hann sín best í ánni sinni í ná- grenni við óðalið sitt. Helsta einkenni Gutta var traust og heiðarleiki, hann var smekkvís maður og framúrskar- andi vandvirkur í því sem hann tók sér fyrir hendur, hann var grandvar maður og var næmur á jafnvel smæstu hluti. Undanfarin ár átti Gutti við nokkurn heilsubrest að stríða og átti hann margar andvökunætur, en með þrautseigju og ótrúlegum viljastyrk þá hélt hann áfram þrátt fyrir margar hindranir sem urðu á vegi hans. Viljastyrkur hans var aðdáunarverður. Nú þegar komið er að þessum tímamótum þá vil ég þakka þér, Gutti, fyrir vináttuna, traustið og samferðina undanfarin 30 ár, minningin um góðan mann lifir. Hugur minn er hjá þér, elsku Alma mín, Guð gefi þér styrk til að takast á við sorgina við andlát föður þíns. Aðstandendum öllum sendi ég mínar dýpstu samúðar- kveðjur. Guð veri með ykkur öll- um. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Björgvin V. Björgvinsson. Guttormur var höfðingi heim að sækja og ég kynntist því vel eftir að ég fór að leggja leið mína á heimili hans og Hrefnu á Reykjanesveginum hér á árum áður. Hann tók vel á móti mér, sem betur fer, enda engum dreng auðvelt að koma inn á heimili þar sem eru eingöngu dætur, og það fimm. Gutti var einnig höfðingi í sér, hann hugsaði vel um sína og var einkar natinn við dæturnar. Alla tíð fylgdist Gutti vel með barnabörnunum, og hafði gaman af kraftinum í þeim, enda kallaði hann fyrstu drengina í þeim hópi skærulið- ana. Höfðingjar fara sínar eigin leiðir, og það sama átti við um Gutta. Alltaf var haft í flimting- um í fjölskyldunni að Gutti færi bara norður í sínum fríum, bein- ustu leið, annað hvort styttri leið- ina í Víðidalinn eða þá lengri í Skagafjörðinn. Hann var heldur lítið fyrir að bregða út af þessum vana. Aðeins einu sinni skrapp hann til út- landa, alla leið til Oregon að heimsækja okkur. Þetta var sannkölluð ævintýraferð, og ferð- uðust þau Gutti, Hrefna og for- eldrar mínir saman í þrjár vikur að líta eftir börnum sínum og barnabarni. Það var greinilegt að hann naut sín í ferðinni og hafði gaman af að spjalla við heima- menn, enda nánast á heimavelli eftir langt starf á Vellinum. Og þeir skemmtu sér vel, Gutti og faðir minn og samtal þeirra og vangaveltur um lífið og tilveruna þarna úti var eins og unglingar væru mættir á staðinn. Nokkur nýyrði lærði ég af þeim félögum. Líklega hefur Gutti viljað fylgj- ast með sínu fólki þarna úti, eins og honum var svo eiginlegt og kært, þó að hann hafi ekki endi- lega orðað það þannig. Kann ég honum og Hrefnu einlægar þakk- ir fyrir heimsóknina. Gutti ólst upp á Króknum og fluttist ungur suður í Njarðvík, en það fór ekki fram hjá nokkrum manni að honum leið betur fyrir norðan. Á Síðu í Víðidal fór vel um Gutta, og þegar dæturnar og barnabörnin skelltu sér í veiði, í Faxalæk eða upp í tjarnir þá var hann í essinu sínu, að stússast með veiðidót, spá í veiðina og hvernig strengirnir reyndust hér og þar í læknum. Hann kitlaði í puttana að fá að gera að þegar fiskum var slengt í vaskinn í eld- húsinu á Síðu. Og minnið hjá kall- inum – það var hreint aðdáunar- vert hve vel hann mundi eftir öllum staðháttum þó langt væri um liðið frá því hann sjálfur hefði gengið niður með Faxalæk eða farið upp í Björg, og þess vegna varð allt spjall með honum lifandi og eins og hann hefði verið með í veiðiferðinni, eða hvað það nú var sem menn voru að þvælast. Þegar fæturnir fóru að fúna hjá Gutta, þá nýtti hann símann skipulega við að fylgjast með sínu fólki, og veðrinu. Það er nánast útilokað að rifja upp símtal við Guttormur Arnar Jónsson Bróðir okkar og frændi, HARALDUR JÓNSSON frá Fremra-Hálsi í Kjós, lést miðvikudaginn 3. júní á hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 19. júní kl. 13. . Ósk Jónsdóttir, Jenný Jónsdóttir, Ása Jónsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Jón Þorgilsson, Eyvindur Þorgilsson, Birna Grímsdóttir, Ingi Valtýsson. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR, Melabraut 9, Seltjarnarnesi, lést á elliheimilinu Grund þann 14. júní. Jarðarförin auglýst síðar. . Guðmundur Jóhannesson, Bergljót Helga Jósepsdóttir, Alexander Jóhannesson, Helga Hafsteinsdóttir, Anna B. Jóhannesdóttir, Steingrímur Ellingsen, Guðlaug I. Hecker, Gary Hecker, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.