Morgunblaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015 Sigríður Matthildur Guðjohnsen stendur svo sannarlega á tíma-mótum um þessar mundir því ekki er nóg með að hún sé fimm-tug í dag heldur mun hún einnig útskrifast með BA-próf í upp- eldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands á morgun. Sigríður er einnig menntuð sem snyrtifræðingur og starfaði um árabil hjá Snyrti- akademíunni í Kópavogi eða frá 1999 til 2007. Árið 2009 ákvað hún að að leggjast aftur á skólabekk árið við Háskóla Íslands. Í sumar segist Sigríður ætla að gera það sama og við hin, bíða eftir að sólin láti sjá sig. Hún segir dætur sínar vera á leið í íþróttaferðalög í sumar en hún fari ekki með þar sem dætur hennar séu orðnar svo sjálfstæðar, „nema þegar kemur að því að borga, þá tek ég fullan þátt,“ skýtur hún inn í. Sigríður starfaði einnig fyrir skautahreyf- inguna sem gjaldkeri stjórnar en dóttir hennar er mikill skautaiðk- andi. Hún segir að börnin hafi alltaf verið í forgangi hjá sér. Sigríður er ekki sú eina sem á afmæli í dag en kosningaréttur kvenna er 100 ára. „Ég er rosalega stolt af því skal ég segja þér, ég fæddist á fimmtíu ára afmælinu,“ segir Sigríður og í dag er hún ná- kvæmlega helmingi yngri en kosningarétturinn. Sigríður er gift Björgvin Ingvari Ormarssyni vélaiðnfræðingi hjá Mannviti. Hún á fjögur börn, Guðrúnu Elísabet 15 ára, Þuríði Björgu 17 ára, Söndru Dögg 22 ára og Ásgeir Arnór 28 ára. Auk þess á hún tvo stjúpsyni, Sigþór 34 ára og Ágúst 36 ára. isak@mbl.is Afmælisbarnið Sigríður bíður eftir því að sólin láti sjá sig. Ósköp látlaust fimmtugsafmæli Sigríður Guðjohnsen er fimmtug í dag Þ órdís Kjartansdóttir fæddist í á Fæðingar- heimilinu í Reykjavík 19. júní 1965. Fjöl- skyldan bjó á Bollagötu hjá föðurömmu Þórdísar til 5 ára aldurs, flutti þá í Fossvoginn og þar bjó hún til fullorðinsára. Þórdís vann á sumrin við barnapössun og í ung- lingavinnunni. „Síðan var ég í mörg sumur í Skógræktarfélagi Rvk, sem var alveg frábær sumarvinna. Svo vann ég alltaf á veturna með skóla. Ég heimsótti ömmu mína stundum á sumrin, sem bjó á Englandi og rak þar antikbúð í borginni Colchester. Ótrúlegt að hugsa til þess núna en við Björg systir máttum fara einar til London 11 og 13 ára að versla í Oxford-stræti! Og auðvitað ferð- uðumst við einar milli landa en villt- umst stundum í neðan- jarðarlestunum í London.“ Náms- og starfsferill „Ég var í Fossvogsskóla og síðan í Réttarholtsskóla og fór í hverfa- menntaskólann minn sem var Menntaskólinn við Sund. Fór til Frakklands sem skiptinemi með AFS á 3. ári, tók síðan 3. og 4. bekk saman til að geta útskrifast með mínum árgangi, vorið 1985. Þórdís útskrifaðist úr læknisfræði frá Háskóla Íslands ’93. Við höfum haldið hópinn níu stelpur úr þessum hóp og höfum m.a. ferðast saman er- lendis á slóðir þar sem við vorum í sérnámi, yndislegur vinahópur. Ég fór í framhaldsnám á háskólasjúkra- húsinu í Strassborg í Frakklandi 1997 og þar voru við stjórn tveir kvenprófessorar, Bruan-Rodier og Wilk, sem „ólu“ mig upp sem lýta- lækni. Engin spurning að það mót- aði mig að lýtalækninum sem ég er í dag.“ Þórdís bar ábyrgð á uppbyggingu brjósta eftir krabbamein og meðferð brunasára í Strassborg frá því að hún fékk sérfræðiviðurkenningu þar 2003. Hún starfaði á Lýtalækn- ingadeild LSH 2007-2013. Byrjaði eigin stofurekstur á Íslandi 2007 og stofnaði Lýtalækningastöð Reykja- víkur, Dea Medica, 2011. Þórdís hef- ur sótt margvísleg námskeið í Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir – 50 ára Fjölskyldan Stödd á Sikiley nú í júní. Efri röð: Kjartan, Hjalti og Sigurður með Þórdísi Láru. Neðri röð: Ines tengdadóttir, Þórdís, Margrét Eva og Kristín Inga tengdadóttir. Á myndina vantar Bjarka Má. Stolt að vera 50 ára á 100 ára kosningaafmæli Pétur R. Antonsson og Sigrún K. Jónsdóttir áttu 60 ára demantsbrúð- kaupsafmæli 16. júní síðastliðinn. Árnað heilla Demantsbrúðkaup Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. ...með nútíma svalalokunum og sólstofum Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16 • Svalalokanir • Glerveggir • Gler • Felliveggir • Garðskálar • Handrið Við færumþér logn & blíðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.