Morgunblaðið - 19.06.2015, Side 35
tengslum við lýtalækningar bæði í
Bandaríkjunum og Frakklandi og
flutt fyrirlestra á lýtalæknaþingum
hérlendis og erlendis og verið með-
höfundur að vísindagreinum.
Áhugamál
Þórdís var í Barnamúsíkskólanum
frá 5 ára aldri og lærði á píanó til 17
ára aldurs. „Þó að ég sé ekki mjög
iðin við píanóið í dag þá hefur þetta
nám án efa átt sinn þátt í því að ég
valdi skurðlækningar. Eins hefur
það komið að góðum notum við
áhugamál mitt, að syngja djass. Var
í djassbandi í Frakklandi og tróð
reglulega upp með því. Mikil
spennulosun og frábærlega
skemmtilegt. Hef aðeins verið að
syngja síðan ég kom til Íslands en þó
ekki nóg. Hlusta mikið á tónlist og
þá fyrst og fremst djass.
Byrjaði í skátunum 9 ára með góð-
um vinkonum úr Fossvoginum og
við höfum haldið hópinn æ síðan.
Hittumst alltaf reglulega og erum
allar að fara með mökum í hjólreiða-
ferð í tilefni af afmæli okkar til Kró-
atíu í júlí.
Önnur áhugamál eru hjólreiðar,
er í hjólahóp sem fer reglulega í
ferðir í nágrenni Reykjavíkur og síð-
an erlendis, og skíði. Fer reglulega í
veiði og er í Árdísunum, mjög
skemmtilegum hóp kvenna sem
skipuleggur nokkrar veiðiferðir á
hverju sumri.
Nýjasta áhugamálið er uppeldi
dóttur okkar, Þórdísar Láru, sem er
yndislegur gleðigjafi í lífi okkar og
gaman að sjá lífið upp á nýtt með
henni.
Ég er mjög ánægð yfir því að eiga
50 ára afmæli á 100 ára afmæli kosn-
ingaréttar kvenna. Ég fékk þau
skilaboð í uppeldinu að láta eitthvað
verða úr mér fyrst ég ætti afmæli
sama daga og konur fengu kosninga-
rétt.“
Fjölskylda
Eiginmaður Þórdísar er Sigurður
R. Ragnarsson, f. 10.6. 1965, verk-
fræðingur og framkvæmdastjóri Ís-
lenskra aðalverktaka. Foreldrar
hans eru Ragnar Stefán Hall-
dórsson, f. 1.9. 1929, verkfræðingur
og fyrrv. forstjóri ÍSAL, og k.h.
Margrét Kristín Sigurðardóttir, f.
27.3. 1931, viðskiptafræðingur.
Fyrri maki: Páll Þórhallsson, f.
24.9. 1964, lögfræðingur hjá forsæt-
isráðuneytinu.
Börn: Hjalti Pálsson, f. 6.6. 1991,
Kjartan Pálsson, f. 13.2. 1996, Bjarki
Már Sigurðsson, f. 10.11. 1996, Mar-
grét Eva Sigurðardóttir, f. 17.10.
1999 og Þórdís Lára Sigurðardóttir,
f. 19.11. 2013.
Systkini: Þorbergur Kjartansson,
f. 1.11. 1961, rafvirki í Reykjavík,
Björg Kjartansdóttir, f. 5.1. 1967,
fjárfestingarstjóri AREV í Reykja-
vík, Ragna Vala Kjartansdóttir, f.
23.1. 1970, innhússarkitekt og versl-
unareigandi í Montréal í Kanada,
Auður Elfa Kjartansdóttir, f. 20.5.
1975, sérfræðingur í snjóflóðum hjá
Veðurstofu Íslands og fram-
kvæmdastjóri Reykjavík hiking, Sif
Haukdal Kjartansdóttir, f. 14.3.
1987, félagsfræðingur í Reykjavík.
Foreldrar: Kjartan O. Þorbergs-
son, f. 2.7. 1936, tannlæknir í
Reykjavík, Oddný Sv. Björgvins, f.
25.2. 1940, blaðamaður og rithöf-
undur í Reykjavík. Fósturmóðir:
Svala Haukdal Jónsdóttir, f. 31.5.
1952, starfsmaður Nýherja, bús. í
Reykjavík.
Í Þórsmörk Hjónin og Þórdís Lára.
Úr frændgarði Þórdísar Kjartansdóttur
Þórdís
Kjartansdóttir
Oddný Jóhanna Sveinsdóttir
húsfr., f. í Brekkuborg í Breiðdal
Björgvin Þorsteinsson
kaupm. í Ási á Fáskrúðsfirði
Ragnheiður Björgvinsdóttir Lee
verslunareigandi á Englandi
Sverrir Einarsson
listmálari í Rvík, síðar í Hveragerði
Oddný Sv. Björgvins
blaðam. og rith. í Rvík
Kristjana R. Kristjánsdóttir Hall
húsfr., fædd á Borðeyri
Einar Magnúsen Jónasson
sýslum. í Barðastr.sýslu og lögfr. í Rvík
Hjálmfríður Marsibil Kristjánsdóttir
húsfreyja í Rvík og á Ísafirði
Sigurjón Kristjánsson
vélstjóri í Reykjavík
Guðríður Þórdís Sigurjónsdóttir
húsfr. og vann á Hótel Loftleiðum
Þorbergur Kjartansson
kaupmaður í Rvík
Kjartan O. Þorbergsson
tannlæknir í Reykjavík
Oddný Runólfsdóttir
húsfreyja í Skál á Síðu
Kjartan Ólafsson
bóndi í Skál á Síðu, V-Skaft.
Jóhann Gunnar
Þorbergsson
læknir í Rvík
Óskar Þór
Jóhannsson
krabbameins-
læknir í Rvík
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 2015
90 ára
Auður Þórðardóttir
85 ára
Ester Helgadóttir
Geir Sigurjónsson
Magnús R. Gíslason
Sigríður F. Guðmundsd.
Sigurlaug Pétursdóttir
Sigvaldi Sigurjónsson
80 ára
Alexander G. Guðmundss.
Arnar Eysteinn Sigurðsson
Guðríður Sigurðardóttir
Hörður Ívarsson
Júlíus Guðlaugsson
Lóa Ingólfsdóttir
Magnús Thejll
Ragnar Magnússon
Örn Jensson
70 ára
Ástráður K. Sigurðsson
Bjarni G. Bjarnason
Gerður Guðrún Aradóttir
Guðbjörg Ingólfsdóttir
Guðrún Laufey Magnúsd.
Jón Rafn Sigurðsson
Kristín Dýrmundsdóttir
Sigurbjörg Eiríksdóttir
60 ára
Arnheiður R. Auðbergsd.
Eyjólfur Bragason
Gunnlaugur Axel Einarsson
Hildur Ingvarsdóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Kristín Jóhannsdóttir
Ólöf Björnsdóttir
Rannveig G. Halldórsdóttir
Þorgrímur Ólafsson
50 ára
Birgir Ingimarsson
Böðvar Fjölnir Sigurðsson
Einar Aðalsteinsson
Helga Liv Óttarsdóttir
Hermann Sæmundsson
Jón Benjamín Einarsson
Katla Rán Svavarsdóttir
Linda Viðarsdóttir
Margrét Friðjónsdóttir
Ríkharður Reynisson
Rúnar Ólafur Axelsson
Sigurbjörn Sveinsson
Stefán B. Guðjónsson
Þórdís Lilja Jensdóttir
40 ára
Edgar Konráð Gapunay
Elena Zaytseva
Elín Engilbertsdóttir
Guðný St. Hreiðarsdóttir
Gunnar Freyr Steinsson
Halla Magnúsdóttir
Helena Lind Svansdóttir
Hulda Hr. Bergþórsdóttir
Ingimundur Ó. Sverrisson
Jóhannes Magnússon
Jóna Erlendsdóttir
Ragnheiður Tryggvadóttir
Skúli Húnn Hilmarsson
Valdís Beck
Víðir Garðarsson
Þorvarður G. Guðmundss.
Þröstur Erlingsson
30 ára
Birkir Magnússon
Dagbjört Örvarsdóttir
Elsa Rut Hjaltadóttir
Erna Aðalsteinsdóttir
Guðmundur S. Bergmann
Halldór Þór Helgason
Kamil Cabaj
Kristinn Erlingsson
Nirosha S. Palliya Guruge
Rafal Baranowski
Rannveig Jónsdóttir
Samúel Ingi Stefánsson
Sigurður Rúnar Sigurðsson
Snorri Sigurðss. Norðdahl
Þorbjörn Sigurgeirsson
Til hamingju með daginn
30 ára Brynjar er Hafn-
firðingur en býr á Álfta-
nesi og er smiður hjá
HBH byggir.
Maki: Lovísa Karítas
Magnúsdóttir, f. 1985,
kennari í leikskólanum
Krakkakoti.
Börn: Elín Máney og
Theodór Gauti, f. 2012.
Foreldrar: Steingrímur
Páll Björnsson, f. 1959,
tollvörður, og Elín Sigurð-
ardóttir, f. 1963, mat-
ráður, bús. í Hafnarfirði.
Brynjar Örn
Steingrímsson
30 ára Erna er Álftnes-
ingur og býr þar og er
ráðstefnustjóri á Hótel
Sögu.
Maki: Hróðmar Eydal, f.
1988, þjónn á Vox Hótel
Hilton.
Systur: Björg Eyjólfs-
dóttir, f. 1968, og Hrefna
Þórarinsdóttir, f. 1986.
Foreldrar: Þórarinn Ey-
þórsson, f. 1937, banka-
maður, og Sigríður Eiríks-
dóttir, f. 1951, húsmóðir,
bús. á Álftanesi.
Erna
Þórarinsdóttir
30 ára Svanhildur er frá
Þórshöfn á Langanesi en
býr á Akranesi og er
stuðningsfulltrúi í Brekku-
bæjarskóla.
Maki: Hjálmar Þór Ingi-
bergsson, f. 1979, ofn-
gæslumaður hjá Elkem á
Grundartanga.
Börn: Lilja Rós, f. 2003,
og Ingibergur, f. 2010.
Foreldrar: Björn Gott-
skálksson, f. 1963, og
Rósbjörg Sigríður Stef-
ánsdóttir, f. 1968.
Svanhildur
Sigríður Ríkarðs
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir hefur
varið doktorsritgerð sína við guð-
fræði- og trúarbragðafræðideild Há-
skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið
Andlegir, trúarlegir og tilvistarlegir
þættir innan líknarmeðferðar. Rann-
sókn byggð á eigindlegum og meg-
indlegum rannsóknaraðferðum (Spiri-
tuality as a Dimension of Palliative
Care – An Icelandic Mixed Methods
Study).
Þessi rannsókn er sú fyrsta sinnar
tegundar á Íslandi sem framkvæmd er
innan guðfræði og tekur líknar-
meðferð til skoðunar. Tilgangur henn-
ar var að öðlast dýpri skilning á því
hvernig fólk sem er deyjandi skynjar
andlega, trúarlega og tilvistarlega
þætti í lífi sínu. Í rannsókninni tóku
þátt einstaklingar sem þáðu líknar-
meðferð á líknareiningum Landspít-
alans. Eigindleg viðtöl voru tekin við
10 manneskjur og tvö mælitæki frá
European Organization for Research
and Treatment of Cancer voru lögð
fyrir 30 einstaklinga, mælitæki sem
snertir andlega, trúarlega og tilvist-
arlega þætti og lífsgæðaspurninga-
listi. Niðurstöður rannsóknarinnar
leiða í ljós að and-
legir, trúarlegir og
tilvistarlegir þætt-
ir eru margbrotnir
og snerta mis-
munandi svið
mannlegrar til-
veru. Einnig komu
fram tengsl á milli
þess hvernig þátt-
takendur mátu andlega vellíðan sína
og lífsgæði. Þegar grundvallarþemun í
eigindlegu viðtölunum voru skoðuð
kom í ljós ákveðin samsvörun við þau
atriði sem mælitækinu um andlega,
trúarlega og tilvistarlega þætti er ætl-
að að meta. Niðurstöðurnar draga
fram mikilvægi tengsla, þ.e. tengsl
manneskjunnar við sjálfa sig, tengsl
við Guð/æðri mátt sem birtist einkum
í notkun bænarinnar og tengsl við fjöl-
skyldu. Tilvistarlegir þættir endur-
spegluðust í einkennum andlegrar og
tilvistarlegrar kreppu og í hugmyndum
um dauðann og líf eftir dauðann.
Rannsóknin kynnir guðfræðilegt líkan
sem nýtist í sálgæslu en megináhersla
guðfræðinnar er að mæta andlegum,
trúarlegum og tilvistarlegum þörfum.
Guðlaug Helga Ásgeirsd.
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir varð stúdent frá MH 1980 og lauk embættisprófi í
guðfræði, cand. theol. frá guðfræðideild HÍ 1988. Hún kláraði framhaldsnám í
fjölskyldumeðferð við Endurmenntunarstofnun HÍ 1997. Guðlaug Helga starfaði
sem prestur við öldrunarþjónustudeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar
um árabil. Hún hefur gegnt embætti sjúkrahúsprests þjóðkirkjunnar frá 1998.
Eiginmaður Guðlaugar Helgu er Lárus S. Marinusson, forstöðuheilsuþjálfari á
Reykjalundi og eiga þau þrjú börn, Einar Daða, Guðnýju Helgu og Elías Hlyn.
Doktor
VARAHLUTIR Í
RACER OGMTB TAX
FREE
DAGAR!
HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200
VERSLAÐU Á
WWW.GÁP.IS
SKOÐAÐUÚRVALIÐOGVERÐINÁGAP.ISEÐAKÍKTU ÍHEIMSÓKN ÍFAXAFEN7!
LÉTTARIGREIÐSLUR
VAXTALAUST Í ALLT AÐ 6MÁNUÐI
Þegar þú verslar fyrir 75.000 eðameira getur þú dreift
greiðslunni vaxtalaust í allt að 6mánuði
FLEIRI HJÓL - HÆRRI AFSLÁTTUR
Ef fleiri en einn í fjölskyldunni kaupa sér
hjól þá eykst afslátturinn.
FJÖLSKYLDUDÍLLINN