Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Side 16
Miðvikudagur 7. janúar 200916 NÁMSKEIÐ&SKÓLAR DV0901068231 Alda Björk Valdimarsdóttir „Á upphafsskeiði þöglu myndanna voru kvikmyndastjörnur ekki til.“ DV0811199093.jpg Tom Cruise og Katie Holmes Cruise er dæmi um þegar ímynd stjörnu er orðin það sterk að hún verður að hálfgerðu fyrirbæri. DV0901065018 Bette Davis Ein þeirra Hollywood-stjarna sem fjallað er um á námskeiðinu. Námskeið um stjörnukerfið í Hollywood verður kennt við Háskóla Íslands á komandi vorönn. Alda Björk Valdi- marsdóttir, sem kennir námskeiðið, segir að slíkt stjörnukerfi gæti að líkindum aldrei þrifist hér á landi. Stjörnufræði Hollywood Eitt af þeim námskeiðum sem kennd verða við kvikmyndafræðiskor Há- skóla Íslands á komandi vorönn er námskeið með yfirskriftinni Stjörnu- fræði. Að sögn Öldu Bjarkar Valdi- marsdóttur, sem kennir námskeiðið, hefur lengi skort ítarlega umfjöll- un um hlutverk stjörnunnar í heimi kvikmyndanna. Á síðustu árum hafi þó hlaupið líf í þetta fræðasvið og stjarnan verið könnuð meðal ann- ars frá sjónarhóli táknfræði, við- tökufræði, sálgreiningar, femínisma og menningarfræði. Alda tekur líka sérstaklega fyrir nokkrar stjörnur, til dæmis Bette Davis, Joan Craw- ford, Marlon Brando og Tom Cruise, og munu nemendur horfa á myndir sem þessir leikarar leika í. „Þetta er svolítið fræðilegt nám- skeið þar sem ég nota mikið greinar úr bókinni Kvikmyndastjörnur,“ seg- ir Alda. „Ég byggi námskeiðið meðal annars á greinum eftir fræðimennina Richard Dyer, Molly Haskell og Jack- ie Stacey sem hefur skoðað samband stjörnu og áhorfenda.“ StjöRNuRNAR oRÐNAR „vENjuLEgRI“ Margir standa vafalítið í þeirri trú að stjörnur séu einungis yfirborðsleg fyrirbæri. Þetta er eitt af því sem Alda kemur inn á á námskeiðinu. „Dyer vill meina að þetta sé miklu flóknara. Það megi ekki afgreiða stjörnur sem eitthvað yfirborðslegt því þær hafi ákveðna hugmynda- fræðilega virkni í samfélaginu sem þurfi að skoða þetta í samhengi við. A T A R N A … vertu á grænni grein

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.