Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2009, Síða 24
miðvikudagur 7. janúar 200924 Ættfræði
30 ára
n Julius Caesar Deiparine Keldulandi 5, Reykjavík
n Katarzyna Urszula Jankowska Holtsgötu 34,
Njarðvík
n Svava Gísladóttir Bárugranda 11, Reykjavík
n Katla Sigurðardóttir Fagrabergi 36, Hafnarfjörður
n Sigurður Örn Kolbeins Nýbýlavegi 60, Kópavogur
n Páll Þórir Daníelsson Þorláksgeisla 43, Reykjavík
n Unnur Ingimundardóttir Lyngdal 7, Vogar
n Sveinn Sævar Frímannsson Lækjartúni 16,
Akureyri
n Jenný Lovísa Árnadóttir Túngötu 12, Grindavík
40 ára
n Guðrún Kristmanns Birgisdóttir Rauðási 12,
Reykjavík
n Ragnar Kristinn Ingason Melseli 14, Reykjavík
n Þorbjörn Sigurðsson Áshlíð, Flúðir
n Guðmundur H Kjartansson Kirkjuteigi 31,
Reykjavík
n Valgerður Halldórsdóttir Sólheimum 22,
Reykjavík
n Þórdís Sólmundardóttir Lóurima 9, Selfoss
n Ari Þór Jónsson Vesturgili 4, Akureyri
n Hulda Júlía Sigurðardóttir Skipasundi 69,
Reykjavík
n Hlynur Örn Sigurðsson Gullengi 11, Reykjavík
n Elísabet Á Sigurjónsdóttir Grasarima 6, Reykjavík
n Rögnvaldur Kristbjörnsson Krummahólum 2,
Reykjavík
50 ára
n Haraldur Guðmundsson Hraunbæ 6, Hveragerði
n Jómundur G Hjörleifsson Heggsstöðum,
Borgarnes
n Þorsteinn Einarsson Seilugranda 9, Reykjavík
n Benóní Torfi Eggertsson Langholtsvegi 161,
Reykjavík
n Hilmar Heiðar Eiríksson Víðivangi 14, Hafnar-
fjörður
n Rannveig Pálsdóttir Hólabergi 80, Reykjavík
n Margrét Kjartansdóttir Foldahrauni 30, Vestman-
naeyjar
n Guðný Ólafsdóttir Melseli 8, Reykjavík
n Gunnar Magnússon Sogavegi 28, Reykjavík
n Jóhann Gestur Jóhannsson Grjótási 8, Njarðvík
n Árný Gyða Steindórsdóttir Vesturgötu 71,
Reykjavík
60 ára
n Guðrún Guðmundsdóttir Hraunbæ 55, Reykjavík
n Guðmundur Óli Scheving Brávallagötu 6,
Reykjavík
n Bergur Höskuldsson Reynihólum 1, Dalvík
n Páll Gunnar Loftsson Sundstræti 35b, Ísafjörður
n Ásta Jónsdóttir Ugluhólum 10, Reykjavík
n Gísli Geir Jónsson Nýhöfn 5, Garðabær
n Hildur Sveinsdóttir Daltúni 31, Kópavogur
n Valgerður Guðmundsdóttir Álfheimum 32,
Reykjavík
n Þórdís Guðmundsdóttir Brekkuhvammi 12,
Hafnarfjörður
n Inga Jóna Andrésdóttir Háholti 6, Garðabær
n Bjarni Reykjalín Furulundi 19, Akureyri
n Knútur Eyjólfsson Stararima 57, Reykjavík
n María N Guðmundsdóttir Skerjavöllum 9,
Kirkjubæjarkl.
n Þorsteinn G Benjamínsson Kveldúlfsgötu 14,
Borgarnes
70 ára
n Þórunn Lýðsdóttir Markarvegi 13, Reykjavík
n Dagný Þ Ellingsen Akurholti 11, Mosfellsbær
75 ára
n Viggó Þorsteinsson Laufrima 4, Reykjavík
n Þórir Þorsteinsson Ásgarði 77, Reykjavík
n Sæunn Magnúsdóttir Reynimel 50, Reykjavík
n Marteinn Jónsson Óðinsgötu 6a, Reykjavík
80 ára
n Jónas Thorarensen Rekagranda 3, Reykjavík
85 ára
n Kristján Larsen Lönguhlíð 11, Akureyri
NÍU ÁRA Í ÞRJÁTÍU ÁR
Jón Víðis Jakobsson, forseti Hins
íslenska töframannagildis og verk-
efnastjóri hjá frístundaheimilinu
Álfheimum í Hólabrekkuskóla, er
39 ára í dag. Jón ætlar ekki að blása
til stórafmælisveislu í tilefni dagsins
og býst við að hann verið með hefð-
bundnu sniði. „Þetta leggst mjög
vel í mig. Dagurinn verður eins og
venjulega, ég fer í vinnuna og segi
börnunum að ég sé níu ára á morg-
un. Þá er ég búinn að vera níu ára í
heil þrjátíu ár,“ segir hann í samtali
við DV.
Alltaf að töfra í afmælum
Jón Víðis heldur upp á afmæli sitt
með pompi og prakt á tíu ára fresti.
Hann verður fertugur á næsta ári og
segist líka það ágætlega að aðeins
eitt ár sé í stóra afmælið. Hann sé
eftir allt ennþá níu ára. Hann seg-
ir að eftir vinnudaginn á frístunda-
heimilinu sé hann boðinn í mat til
móður sinnar. Að öðru leyti hefur
hann engin sérstök áform á afmæl-
isdaginn.
Aðspurður hvort hann sé mikið
afmælisbarn, svarar hann: „Ég fer
í fullt af afmælum sem töframaður
og ég er mikið afmælisbarn að því
leyti. Svo er ég líka á fullu í jólaboð-
um. Var til dæmis að töfra í jóla-
boði hjá forsetanum um síðastliðna
helgi.“ Þá var jólaboð fyrir börn er-
lendra sendiráðsstarfsmanna og
sýndi Jón Víðis nokkur galdrabrögð
þar.
Margir í stórfjölskyldu Jóns Víðis
eiga afmæli í kringum jól og áramót
og því myndaðist sú hefð á árum
áður eftir að jólavertíðinni lauk, að
stórfjölskyldan fór gjarnan saman í
bíó á afmælisdaginn hans. Stundum
allt upp í tuttugu manns. „Þá fórum
við gjarnan öll saman á aðal jóla-
myndina sem var í bíó hverju sinni.
Við höfum reyndar ekki gert mikið
af því undanfarið,“ segir hann
Nóg að gera í töfrabransanum
Jón Víðis er greinilega með marga
bolta á lofti í einu.„Það eru áhöld
um það hver er aðalvinnan mín. Ég
er fyrir hádegi að undirbúa daginn
og starfið. Svo frá eitt til fimm eftir
hádegi er ég að að vinna með börn-
unum á frístundaheimilinu Álf-
heimum. Svo er ég pantaður í ýmis
boð sem töframaður,“ segir hann.
Jón Víðis lætur vel af starfi
töframannsins. Hið íslenska töfra-
mannagildi telur alls 23 meðlimi
og því er ljóst að nóg framboð er
af töframönnum hér á landi. Að-
spurður hvort mikil samkennd eða
samkeppni sé innan stéttarinnar,
svarar hann: „ Það er bæði mjög
heilbrigð samkeppni en líka góð og
mikil samkennd.“
Jón Víðis hefur nóg að gera,
hann er pantaður í boð bæði fyrir
fullorðna og fyrir börn. Algengt er
að hann sé pantaður í stórafmæli
hjá fullorðnum til þess að töfra fyrir
börnin. „En þá eru börnin líka á öll-
um aldri,“ segir hann glettinn.
Þess fyrir utan hefur Hið ís-
lenska töframannagildi haldið ár-
leg töfrakvöld og farið saman á er-
lendar töfraráðstefnur svo eitthvað
sé nefnt. Þeir sem vilja kynna sér
starfsemi töframanna hér á landi
geta skoðað vefsíðuna toframenn.
is, en Hið íslenska töframannagildi
er félagi í hinu alþjóðlega bræðra-
lagi töframanna og er hringur núm-
er 371 í því.
Þá heldur Jón Víðis sjálfur úti
vefsíðunni tofrar.is og þar er hægt
að fræðast um töframanninn sjálf-
an.
Til
hamingju
með
afmælið!
„Ég geri nú bara ráð fyrir því að vera í
vinnunni til að verða hálf níu í kvöld,“
segir afmælisbarn dagsins, Guðrún
Kristmanns Birgisdóttir, spurð um
plön dagsins.
Guðrún vinnur sem leikskóla-
liði og deildarstjóri á leikskóla og
segir langan dag fyrir höndum þar
sem fundarhöld taki við að loknum
vinnudegi.
„Þannig hljómar nú bara afmæl-
isdagurinn þetta árið,“ segir Guðrún
hógvær en viðurkennir þó að hún
muni halda upp á daginn síðar.
„Mér skilst að eiginmaðurinn sé
með einhver plön næsta föstudags-
kvöld sem ég veit ekkert um. Ég á því
vonandi skemmtilegt kvöld í vænd-
um.“
Guðrún viðurkennir að hún sé
mikið afmælisbarn í eðli sínu þó svo
að hún hafi nú ekki verið mikið fyrir
að halda stórveislur. „Ég er meira fyr-
ir að halda góð partí með gítarspili og
söng. Ég bý svo vel að eiga góða vini
sem kunna á gítar og geta haldið uppi
góðri stemningu.“
Guðrún segir aldurinn leggjast vel
í sig og að í dag muni hún bera glæsi-
legt barmmerki með tölunni fjörutíu.
„Systir mín, sem er fjórtán mánuðum
eldri en ég og því nýbúin að ganga í
gegnum þessi tímamót, var svo sæt
að færa mér þetta forláta barmmerki
og mun ég bera það með stolti í dag,“
segir Guðrún í gamansömum tóni.
Það er ekki bara nóg að gera inn-
an um öll börnin í leikskólanum hjá
Guðrúnu því sjálf á hún þrjú börn.
„Ég á þrjú yndisleg börn sem ég eign-
aðist á fjórum árum,“ segir afmælis-
barn dagsins að lokum sem óskar sér
þess eins í afmælisgjöf að allt gangi
vel hjá sér og sínum. kolbrun@dv.is
Guðrún Kristmanns Birgisdóttir er fertug í dag:
Óvænt kvöld í vændum
Vinnur allan afmælisdaginn
guðrún verður vinnandi fram á
kvöld á sjálfan afmælisdaginn.
Jón Víðis Jakobsson, forseti Hins íslenska töframannagildis, er 39 ára í dag: