Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2009, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2009, Blaðsíða 2
„Hann kostaði held ég sex og hálfa milljón, ég veit svo sem ekkert hvað hann kostar í dag,“ segir Gunn- ar Páll Pálsson, formaður VR, en á heimasíðunni eimreidin.is var sagt að Gunnar Páll hefði til umráða hjá VR jeppa sem kostar 10,5 milljónir króna auk þess að VR borgi rekstur bílsins. 1.150 þúsund í laun „Ég hef svo sem ekkert um það að segja, þetta eru starfskjör sem mér eru boðin og eru búin að vera lengi,“ segir Gunnar Páll aðspurður hvort honum finnist við hæfi að keyra um á glæsibifreið. „Hann var keyptur núna í haust og svo hefur náttúrlega gengið fallið þannig að ég veit svo sem ekkert hvernig þeir verðleggja bíla.“ Gunnar Páll sagði í Bítinu á Bylgj- unni nú í janúar að hann væri með í kringum 1.150 þúsund krónur í laun á mánuði fyrir störf sín í VR og stjórnarformennsku í lífeyrissjóðn- um. Spurður um hvaða skilaboð til félagsmanna hann er að gefa með að vera með ofurlaun og aka um á ríf- lega sex milljóna króna bifreið segir Gunnar Páll: „Ég held að launakjör hafi verið ákveðin út frá sambærileg- um störfum, við höfum barist fyrir markaðslaunum. VR er stór vinnu- staður og stórt félag og við erum með hátt í 30 þúsund manns í félaginu. Ég held þú ættir að kanna hvernig bílum aðrir verkalýðsforingjar eru á,“ segir Gunnar Páll og spyr hvort verkalýðs- foringjar eigi að vera á öðurvísi bíl en aðrir launamenn.„Þetta eru engin skilaboð.“ Á að geta staðið undir þessu sjálfur Kristinn Örn Jóhann- esson, annar tveggja mótframbjóðenda Gunnars Páls til for- manns VR, seg- ir skilaboðin sem Gunnar Páll gefur félagsmönnum séu þau sömu og hann hefur gefið hingað til. „Hann er bara úr tengslum við sína félagsmenn, öll launakjörin hans, framkoma og ákvarðanir í Kaup- þingi og lífeyris- sjóðnum. Sjálf- ur sagði hann í Kastljóssviðtali að hann gerði sig óstarfhæfan í stjórn lífeyr- issjóðsins af því hann sat í Kaupþingi, þess vegna gat hann ekki tekið afstöðu til Exista. Hann er full- ur af mót- sögnum og þversögnum og þetta er bara ein birtingarmynd þess.“ Kristinn Örn segir Gunnar Pál vel geta staðið undir bílnum sjálfur. „Mér þykir þetta langt í frá eðlilegt, mér finnst hann vera með nógu há laun til að geta staðið und- ir bílakaupum og rekstri sjálfur. Mér fyndist eðli- legt að hann fengi kíló- metragjald eins og gengur og gerist fyr- ir þær ferðir sem hann fer í vinn- unni.“ Hann segir að ef hann nái kjöri muni hann breyta launakjörum og bílahlunnindum formanns VR. 8,9 sekúndur upp í hundrað- ið Bíllinn sem Gunn- ar Páll keyrir um á er af gerðinni Niss- an Murano og var keyptur í ágúst 2008, í dag kostar sams konar bíll 10,5 milljónir króna en verðið hefur hækkað mikið frá því í ágúst vegna veikrar stöðu krónunnar. Að sögn Einars M. Nikulássonar í eignaum- sýslu er bíllinn á rekstrarleigu. Á heimasíðu Ingvars Helgasonar eru upplýsingar um nýjustu árgerðina af bílnum og er honum lýst þar sem lúxusjeppa sem sameini kosti fólks- bíls og jeppa á einstaklega þægileg- an máta. Hann er með leðurinn- réttingu, tölvustýrðri miðstöð, með loftkælingu og með sex loftpúðum. Í honum er bakkmyndavél með lita- skjá og BOSE-hátalarakerfi. Hann er 234 hestöfl og er aðeins 8,9 sekúndur upp í hundraðið. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, hefur til um- ráða lúxusjeppa af gerðinni Nissan Murano. Gunnar Páll segir bílinn hafa kostað sex og hálfa milljón þegar hann skipti um bíl í sumar. Kristinn Örn Jóhannesson, mótframbjóðandi Gunnars til formanns VR, segir að Gunnar Páll sé úr tengslum við sína fé- lagsmenn með því að aka um á svona dýrum bíl. föstudagur 30. janúar 20092 Fréttir hitt málið Eigum pústkerfi í flestar gerðir bifreiða Gott verð! Þetta helst - þessar fréttir bar hæst í vikunni DeilDu um Davíð Varnarmúr Sjálfstæðisflokksins um Davíð Oddsson seðlabanka- stjóra rofnaði þegar ríkisstjórn- in sprakk. Forysta Sjálfstæð- isflokksins batt vonir við það að ekki þyrfti að leysa Davíð frá störfum í Seðlabankanum. Vonin var að 1. mars yrði Davíð kominn í nýtt starf og því kæmist Geir hjá því að segja honum upp störfum í Seðlabankanum. DV hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að unnið hafi verið að því að koma Árvakri, útgáfu- félagi Morgunblaðsins, í hendur manna sem hliðhollir eru Sjálfstæðisflokknum og að Davíð Oddsson hafi átt að verða rit- stjóri Morgunblaðsins. Þannig átti Davíð að fara sjálfviljugur frá bank- anum en ekki með valdboði. Samhliða þessu hefðu Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið verið sameinuð samkvæmt hugmyndum sjálfstæð- ismanna, sú löggjöf tæki gildi 1. mars. stjórnin springur Ljóst varð um síðustu helgi að eitthvað mikið yrði að gerast til að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar héldi áfram. Þá var óánægjan með stjórnarsamstarfið orðin svo mikil í Samfylk- ingunni að verulegra breyt- inga þótti þörf. Þetta var í annað skipti eftir bankahrun sem líf stjórnarinnar hékk á bláþræði og í þetta skipti slitnaði þráðurinnn. Stjórninni var slitið með gagnkvæmum ásökunum fólks úr stjórnarflokkunum. Í kjölfarið hófst stjórnarmyndun Samfylkingarinnar og vinstri-grænna og var hún langt komin þegar DV fór í prentun á fimmtudagskvöld. Því var útlit fyrir að vinstristjórn kæm- ist til valda í fyrsta skipti síðan vinstristjórn Framsóknarflokks, Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags, auk Borgaraflokks, stýrði landinu frá 1989 til 1991. Útlit var fyrir að fyrsti kvenforsætisráðherrann tæki við embætti. bjórsmygl fyrir pípara Píparar sem hafa verið í við- skiptum við lagnadeild BYKO fengu gefins bjór fyrir að eiga í viðskiptum við fyrirtækið. Réttir tollar voru ekki greiddir af bjórnum sem var skráð- ur sem kynningarefni í vörureikning- um. Pípulagningamaður, sem vill ekki láta nafns síns getið, segist hafa fengið tvo eða þrjá bjórkassa gefins frá BYKO í gegnum tíðina. „Þeir sem vildu bjór gátu fengið hann,“ segir píparinn. Ýmsir hafa orðið til að lýsa þessu sem mútum. Sigurjón Örn Steingrímsson, fyrrverandi yfirmaður lagnadeildar BYKO, er grun- aður um smyglið og er málið til rann- sóknar hjá tollstjóraembættinu. Sigurjón var rekinn frá BYKO vegna málsins eftir að forsvarsmenn BYKO höfðu kært smyglið til tollstjóra- embættisins.Um er að ræða stórfellt smygl á kössum af þýskum Di- ebels Alt-bjór í gámum BYKO frá Lettlandi. Sigurjón segir að bjórinn hafi verið fluttur inn til að hygla viðskiptavinum BYKO svo þeir héldu áfram að vera í viðskiptum við fyrirtækið. 2 3 1 F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ðþriðjudagur 27. janúar 2009 dagblaðið vísir 18. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 m yn d h ei ð a h el g a d ó tt ir Geir Haarde vildi ekki reka davíð OddssOn: DAVÍÐ ÁTTI AÐ FÁ MOGGANN deila eftir stjórnarslit fréttir fréttir leiðBeiningar tilstjórnValda listi neytendasamtakanna um Björgun heimilanna Ættir jóhönnu ÆttfrÆði Viðskipta- Blaðið selt á krónu RéÐ sON RITARA sÍNs fréttir fréttir fOrsetinn BOðar „nÝtt lÝðVeldi“ neytendur F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð miðvikudagur 28. janúar 2009 dagblaðið vísir 19. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 Stórfellt Smygl á bjór frá lettlandi í gámum byKO: BYKO MÚTAÐI PÍPURUM MEÐ BJÓR fréttir Hrun Hjá Bretum fréttir Hafnar gYðingum Í HjÓLaBúð „júðar ekki veLkomnir“ BotnLauSttaP deCode „Það viSSu aLLir af ÞeSSu“ eigandinn SegiSt ekkert Hafa vitað davÍðfÆr 78 miLLjÓnir miSSti vinnuna en eignaðiSt Barn fÓLk erLent SviPta LeYndar- HuLunni af ÍSLandi neYtendur Leigan Í frjáLSu faLLi 176 ÞúSund á Hvern ÍSLending fréttir fréttir united fÓr Hamförum SPort mánudagur 26. janúar 20092 Fréttir Óánægjan með stjórnarsamstarf- ið hefur grafið um sig í Samfylk- ingunni frá því í annarri viku eftir bankahrunið. Um og upp úr miðj- um október var þrýstingurinn mjög mikill á að gerðar yrðu ráðstafanir til þess að bæta stöðu ríkisstjórnar- innar, meðal annars með því að láta ráðamenn Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans axla ábyrgð. Leynileg bókun Össurar Skarphéðinssonar á ríkisstjórnarfundi um að reka skyldi Davíð Oddsson úr embætti seðla- bankastjóra segir sína sögu, en hún var gerð snemma í október í miðju bankahruninu. Þessi þrýstingur innan Samfylk- ingarinnar var orðinn svo mikill seint í nóvember síðastliðnum eftir fund flokksstjórnarinnar að byrjað var á að leggja drög að nýjum meiri- hluta á þingi og þar af leiðandi nýrri ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokksins. Viðræður um stjórnarslit og nýja rík- isstjórn á þessum tíma komust þó aldrei á neinn rekspöl þar sem Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, taldi þingflokk- inn á að bíða eftir landsfundi Sjálf- stæðisflokksins í lok janúar. Mjög þýðingarmikið væri fyrir Samfylk- inguna, sem einn stjórnmálaflokka hafði inngöngu í Evrópusambandið á stefnuskrá sinni, að sýna þolinmæli. Í ljósi bankahrunsins og gjaldmið- ilskreppunnar væru verulega auknar líkur á að Sjáflstæðisflokkurinn sam- þykkti aðildarumsókn að ESB. Ekkert af þessu hefur gengið eftir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að slá landsfundi sínum á frest. Þar með er Evrópuáætlun Samfylking- arinnar og formanns hennar í upp- námi. Björgvin axlar ábyrgð Enginn hafði axlað ábyrgð á banka- hruninu fyrr enn í gær að Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði óvænt af sér og tók með sér stjórn Fjármálaeftirlitsins og Jónas Fr. Jóns- son, forstjóra þess. Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlits- ins, hefur auk þess lýst því að hann ætli að segja sig úr bankaráði Seðla- bankans. Seinfærni ríkisstjórnarinnar í þessum efnum þótti áberandi og vaxandi ólgu hefur gætt í þjóðfé- laginu vikum og mánuðum saman. Ljóst var að bankakerfið var hrunið og rekstur fyrirtækja, heimila og op- inberrar þjónustu væri í uppnámi. Fall íslensku krónunnar framkallaði alvarlega gjaldeyriskreppu. Geng- isfall íslensku krónunnar fyrstu níu mánuðina í fyrra jók erlendar skuld- ir þjóðarbúsins um eitt þúsund millj- arða í íslenskum krónum talið, eins og Gunnar Tómasson hagfræðingur hefur bent á. Svo hörð var þessi sér- íslenska kreppa að Alþjóðagjaldeyr- issjóðurinn sá sig knúinn til þess að beita gjaldeyrishöftum sem enn eru í gildi. Ríkisstjórnin sýndist andvaralaus gagnvart þeirri kreppu sem kjósend- um virtist efst í huga. Vikum og mán- uðum saman hafa mótmælendur krafist þess að einhverjir axli ábyrgð innan ríkisstjórnarinnar, Fjármála- eftirlitsins og í Seðlabankanum. Fréttir voru sagðar af því í Sjónvarp- inu um miðjan desember að til stæði að skipta út ráðherrum um áramótin síðustu. Skömmu fyrir jól var ljóst að af því yrði ekki og engin svör fengust frá oddvitum ríkisstjórnarinnar um framtíð seðlabankastjórnarinnar og Fjármálaeftirlitsins. Í síðustu viku var sem siðkreppa íslenskra stjórnmála og krafan um kosningar hefði fram- kallað byltingarástand í þjóðfélaginu með miklum og ógnandi mótmæl- um í miðborg Reykjavíkur. Hámarki náðu þau þegar beitt var táragasi gegn mótmælendum og lögreglu- þjónar meiddust í síðustu viku. Fjarvera Ingibjargar Veikindi Ingibjargar Sólrúnar og fjar- vera hennar á örlagastundu juku á óvissuna fyrr í þessum mánuði. DV hefur heimildir innan beggja stjórn- arflokkanna um að verkstjórn henn- ar og Geirs H. Haarde hafi þótt afleit meðal þingmanna og margra ann- arra sem gegna trúnaðarstörfum fyr- ir stjórnarflokkana. Í síðustu viku og um helgina var óþolið innan Sam- fylkingarinnar orðið yfirþyrmandi. Ekki einasta var samþykkt í flokksfé- lögum að efnt yrði til kosninga í vor heldur einnig að stjórnarsamstarf- inu við Sjálfstæðisflokkinn yrði rift hið snarasta. Þær samþykktir standa enn. Við þessar aðstæður beið þing- flokkur og miðstjórn Samfylkingar- innar eftir heimkomu Ingibjargar Sólrúnar úr læknismeðferð í Svíþjóð. Síðan þá er orðið ljóst að Geir H. Haarde forsætisráðherra er sjálf- ur orðinn sjúkur og þarf að gangast undir meðferð gegn illkynja æxli í vélinda. Landsfundi flokksins hef- ur verið slegið á frest og flokkurinn samþykkt að kosningar verði í vor. Þar með er Evrópuáætlun Samfylk- ingarinnar í uppnámi eins og áður segir. Í kjölfarið hefur svo Björgvin G. Sigurðsson sagt af sér ráðherraemb- ætti. Þingflokksfundir í dag Ljóst má vera að Sjálfstæðisflokk- urinn fer nú í gegn um einhverjar mestu hremmingar sínar í meira en tvo áratugi. Geir H. Haarde gefur ekki kost á sér til endurkjörs í embætti for- manns flokksins. Hann er æðsti yfir- maður Seðlabankans og hefur reynst ófær um að taka á málum varðandi hann. Ekki er víst að neinn þeirra sem sækist eftir formannsembætti í Sjálfstæðisflokknum hafi heldur þrek til þess að fara gegn Davíð Oddssyni í Seðlabankanum af ótta við að hann, og sá armur flokksins sem hann teng- ist, vinni gegn sér í formannskjöri á landsfundi flokksins í lok mars. Stjórnarflokkarnir hafa báðir boð- að þingflokksfundi fyrir hádegi í dag þar sem formenn flokkanna gera grein fyrir stöðu mála. Telja má full- víst að eftir fundina verði gefnar út yfirlýsingar um líf núverandi ríkis- stjórnar sem mótmælendur hafa róið gegn vikum og mánuðum saman, nú síðast undir slagorðinu „Vanhæf rík- isstjórn“. Niðurstaða í dag Ingibjörg Sólrún telur að niðurstaða viðræðna stjórnarflokkanna liggi fyrir í dag. „Björgvin G. Sigurðsson er nú búinn að fara fram með góðu fordæmi og Fjármálaeftirlitið. Þá hlýtur athyglin að beinast að Seðla- bankanum... Við viljum sjá breyt- ingar í stjórnkerfinu.“ Ingibjörg segir Samfylkinguna ekki skipta sér af ráð- Ögurstund ríkisstjórnarinnar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur Davíð Oddsson Ekki er víst að neinn þeirra sem sækist eftir formannsembætti í Sjálfstæðisflokknum hafi heldur þrek til þess að fara gegn Davíð Oddssyni í Seðlabankanum. JóhaNN haukSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Fyrir utan heimilið geir H. Haarde glímir við veikindi, ætlar ekki að gefa kost á sér í formannskjöri Sjálfstæðis- flokksins og býst við að fara úr pólitík. MYND hEIÐa hELGaDóTTIR Ögurstundin Ingibjörg Sólrún gísla- dóttir hefur sett hámarksþrýsting á samstarfsflokkinn en hennar eigin flokksmenn þrýsta einnig á hana. MYND hEIÐa hELGaDóTTIR mánudagur 26. janúar 2009 3 Fréttir herravali Sjálfstæðisflokksins. Ekki vildi hún heldur svara spurning- um um hugsanlegt brotthvarf Dav- íðs Oddssonar úr Seðlabankanum skömmu fyrir landsfund Sjálfstæðis- flokksins. Ingibjörg sagði að ástæða væri til þess að skoða einnig mögu- leika á að breyta verkstjórnarvaldi ef ríkisstjórnin héldi velli. Undir kvöld í gær kvaðst hún ekki hafa rætt við forystumenn VG um hugsanlegt stjórnarsamstarf með hlutleysi eða þátttöku Framsóknar- flokksins fram að kosningum. „Ég er ekki í þreifingum við neina flokka.“ Líkur á að upp úr slitni Þetta þarf þó ekki að merkja að Sam- fylkingin sé ekki í sambandi við for- ystumenn VG. Heimildir eru fyrir því að Samfylkingin hafi vissu fyrir því að hún geti efnt til skammtímasam- starfs við VG þar sem gert yrði einfalt samkomulag um fá en mikilvæg at- riði. Reynt yrði að verjast gjaldþrot- um fyrirtækja og heimila og auknu atvinnuleysi. Við blasir geigvænleg- ur hallarekstur ríkissjóðs og lánsfjár- þurrð frá öðrum löndum og líkur eru til þess meðal annars að grípa þurfi til niðurskurðar í heilbrigðis-, vel- ferðar- og menntakerfinu frekar en orðið er. Ofan á annað gætir auk þess aukinnar svartsýni og eru traustar vísbendingar fyrir því að fjöldi ein- staklinga og fjölskyldna undirbúi för sína af landi brott í atvinnuleit. Geir H. Haarde sagði í gærkvöldi að mál færu senn að skýrast og að allt kæmi til greina. Hann minnti á að hann hefði lagt fram hugmyndir um að sameina Seðlabankann og Fjár- málaeftirlitið með lagabreytingum. „Mér finnst ekki að rasa eigi um ráð fram í þessu efni... Ég veit ekki hvort þetta er krafa af hálfu Samfylkingar- innar. En þetta hefur borið á góma,“ segir Geir og bætir við að Sjálfstæðis- flokkurinn ráði sínum ráðherrasæt- um sjálfur. Geir segir það vera ábyrgðarlaust að skilja landið eftir stjórnlaust. „Ef upp úr þessu slitnar verða menn náttúrulega að grípa til annarra ráða... Aðalatriðið er að hægt verði að stjórna landinu fram að þing- kosningum.“ Geir sagði að Sjálfstæð- isflokkurinn hefði ekki þreifað neitt fyrir sér um samstarf við aðra flokka en Samfylkinguna. Nýr meirihluti og þingrof Sem forsætisráðherra hefur Geir einn vald til þess að biðja forseta Ís- lands um að rjúfa þing. Lög gera ráð fyrir því að forsetinn verði við beiðni forsætisráðherra. Forsetinn hefur þó vald til þess að meta aðstæður og kanna hvort annar meirihluti sé starfhæfur í þinginu. Þá er einnig sá möguleiki fyr- ir hendi að til verði nýr meirihluti á þingi án þess að reynt hafi á þing- rofsheimildina. Þess má geta að bæði Davíð Oddsson og Geir H. Haarde hafa gengið á fund forseta Íslands og tilkynnt honum um nýjan þingmeiri- hluta og nýja ríkisstjórn í kjölfar þing- kosninga á undanförnum árum. Til fundar við forsætisráðherra Tómlæti gagnvart kröfunni um manna- breytingar, endurnýjun og kosningar kom ríkisstjórninni á kaldan klaka. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR „Mér þykir þetta langt í frá eðlilegt, mér finnst hann vera með nógu há laun til að geta staðið undir bílakaupum og rekstri sjálfur.“ FORMAÐUR Á LÚXUSJEPPA Boði loGason blaðamaður skrifar bodi@dv.is Formaður VR gunnar Páll Pálsson segir að bíllinn hafi kostað sex og hálfa milljón. lúxusjeppi Bíllinn er útbúinn glæsilegum útbúnaði. Myndin er ekki af bílnum hans gunnars Páls.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.