Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2009, Blaðsíða 25
föstudagur 30. janúar 2009 25Umræða
Hver er konan? „ragnhildur
sigurðardóttir, leiðsögumaður,
sagnfræðingur og lögfræðingur.“
Hvað drífur þig áfram? „Leit að
réttlæti og virðing fyrir manneskjunni.“
Hvar ólstu upp? „Ég ólst upp í
reykjavík og austur á Hellu.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„fiskur.“
Hvað hefur þú að segja um Ísland í
dag? „Við erum í ótrúlegri klípu sem
erfitt er að ráða fram úr en við erum
jafnframt stödd í einhvers konar
uppróti hugmyndagervis sem
spennandi er að takast á við. Hvernig
við gerum það á eftir að hafa áhrif á
hversu lengi kreppan varir og hvers
konar samfélag skapast úr þessu
umróti.“
Af hverju Neyðarstjórn kvenna?
„upphaflega grasrótarhugsjónin að
styðja við bakið á konum í kreppunni
og sjá til þess að jafnrétti sé ekki bara
verkefni sem detti út af borðinu þegar
þetta er yfirstaðið. Við stöndum frammi
fyrir efnahagsvanda og reynum að
hugsa um jafnrétti. Hugmyndin á bak
við þetta er að konur hafi vettvang til
að koma hugmyndum sínum á
framfæri og vinna sig saman út úr
kreppunni.“
Hvað þarf að gera núna varðandi
ástandið? „Bretta upp ermarnar og
vinna sig út úr því.“
Eruð þið tilbúnar í framboð? „Í
kjölfar þessa gerðum við samfélags-
sáttmála þar sem við skrifuðum niður
draumasamfélagið þar sem jafnrétti,
virðing og velferð eru mikilvæg gildi .
Við ákváðum líka að athuga hvort það
væri grundvöllur fyrir kvennaframboði
og höfum fengið góðar undirtektir. Það
ræðst af því hver viljinn er.“
Hafið þið fengið einhver viðbrögð
frá karlkyninu? „Ekkert nema jákvæð
viðbrögð, fyrir utan smá á Eyjunni.is en
við þurfum ekki að hlusta á það.“
Hver er draumurinn? „að skapa
réttlátt þjóðfélag þar sem allir fá notið
sín óháð kyni, kynferði og litarhætti.“
Hvað finnst þér um ákvörðun sjávarútvegsráðHerra að leyfa Hvalveiðar rétt áður en Hann Hætti?
„Mér finnst það nú ótímabært og búa
til vandamál fyrir komandi ríkisstjórn.“
Oddur THOrArENsEN
50 ára tæknifræðingur
„Mér finnst tími til kominn að leyfa
það. Það bæði gefur okkur meiri
fiskveiðikvóta og eflir efnahaginn til
muna.“
ErliNg VAlur iNgAsON
29 ára VEfsÍðuHönnuður
„Mér finnst það tímaskekkja. Þetta er
embættisverk sem klárlega á ekki að
gera á síðustu dögum í embætti.“
guNNAr sTEiNN ÞórssON
43 ára starfsMaður EiMskips
„Ég hef enga skoðun á því.“
guNNAr VAldimArsssON
48 ára Múrari
Dómstóll götunnar
rAgNHildur sigurðArdóTT-
ir er ein þeirra sem standa á bak við
grasrótarhreyfinguna neyðarstjórn
kvenna en stofnfundur var haldinn á
Hallveigarstöðum í gærkvöldi.
Hreyfingin var stofnuð vegna
efnahagskreppunnar og stefnir að
uppbyggingu
VettVangur
konunnar
„Ég held það sé bara allt í lagi.“
mAgNús gissurArsON
80 ára rafVirkjaMEistari
maður Dagsins
„Hvernig geturðu sagt að það sé gott
að lifa á þessum voðatímum - sagði
léttmóðguð vinkona mín fyrr í vik-
unni og þegar ég var svona rétt að
byrja að skammast mín fyrir mína
kærulausu tilfinningu bætti hún við
- nefndu mér eitthvað eitt sem gladdi
þig í vikunni og í guðs bænum slepptu
- Stjórnin er fallin - því við vitum ekk-
ert hvaða húllumhæ tekur við. Ég
sagði henni einsog var að ég hefði
fyrir tveimur dögum endurnýjað ást
mína á Þulu frá Týli eftir Jóhannes úr
Kötlum og svo las ég ljóðið fyrir hana
og eftir lesturinn vorum við sam-
mála um að Þula frá Týli (Íslandi)
væri einn heimsins óður til friðar,
fegurðar og vonar og að við ættum
öll að hafa hana yfir að minnsta kosti
einu sinni á dag á tímum vargaldar
og ótta.“
Horfumst í augu
fögnum morgunhvítri sólinni
laugum iljar okkar í dögginni
biðjum um frið
leggjum grasið undir vanga okkar
vermum frækornið í lófa okkar
stígum varlega á moldina
biðjum um frið
borum fingrinum í sandinn
sendum vísuna út í vindinn
speglum okkur í hylnum
biðjum um frið
reikum um fjárgöturnar
teljum stjörnurnar
hlustum á silfurbjöllurnar
biðjum um frið
göngum að leiði móður okkar
göngum að leiði föður okkar
minnumst hins liðna
biðjum um frið
tökum í hönd systur okkar
tökum í hönd bróður okkar
lyftum því sem er
biðjum um frið
lítum í vöggu dóttur okkar
lítum í vöggu sonar okkar
elskum hið ókomna
biðjum um frið
horfumst í augu
horfumst í augu gegnum fjarlægð
irnar
horfumst í augu gegnum aldirnar
biðjum um frið.
Þula frá Týli
kjallari
VigdÍs
grÍmsdóTTir
rithöfundur skrifar
„Lítum í vöggu dóttur
okkar, lítum í vöggu
sonar okkar, elskum
hið ókomna, biðjum
um frið“
mynDin
gæsAfANs Mannfólkið er víst ekki eitt um að þurfa stundum að klóra sér á hökunni, eins og þessi gæs fékk að kynnast á dögunum. fyrir utan smá kláða undi hún sér þó vel
í grasagarðinum þar sem hún vappaði um í nýföllnum snjónum. myNd rAkEl ósk sigurðArdóTTir