Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2009, Blaðsíða 52
föstudagur 30. janúar 200952 Lífsstíll
Linsubaunir hoLLar Linsubaunir eru afar prótínríkar,
fitulitlar og kolvetnasnauðar og því góðar til að nota í heilsufæð-
ið. Þær innihalda líka mikið af trefjum, fólínsýru og B1- vítamíni.
Þess má þó geta að grænar linsubaunir eru miklu trefjaríkari en
þær rauðu. Linsubaunir eru oftast notaðar í grænmetisrétti og
með til dæmis hrísgrjónum skapast gott hlutfall æskilegra bæti-
efna en nauðsynlegt er að neyta bæði kolvetna og prótína en
vera vel á verði gagnvart hlutfalli fitu í fæðunni.
Setjið allt nema rúsínur í hrærivél-
arskál og hrærið vel saman. Bætið
rúsínum út í og blandið vel saman.
Hitið olíuna í 190°C. Sumir djúp-
steikingarpottar ná þeim hita og er
mjög gott að nota slíka potta ef þið
eigið, annars bara stálpott. Það er
ágætt ráð til að athuga hvort olían
er nógu heit að setja svolítið af deigi
út í og ef olían freyðir vel í kring-
um það er hún tilbúin. Gætið þess
að hafa olíuna ekki of heita því þá
dökkna ástarpungarnir of fljótt og
verða hráir að innan. Setjið deig-
klumpa á stærð við valhnetur út
í olíuna, 5-6 stk. í einu, og steikið
þar til ástarpungarnir verða fallega
brúnir eða í 3-4 mínútur. Veiðið þá
upp úr með gataspaða og setjið á fat
með nokkrum blöðum af eldhús-
pappír undir svo olían renni af. Ást-
arpungarnir eru bestir nýbakaðir en
það er upplagt að frysta þá.
Uppskrift: Sigríður Björk Bragadótt-
ir Uppskrift úr nýjasta tbl.
Gestgjafans.
Þjóðlegt góðgæti:
ÞjóðLegt góðgæti
umsjón: koLBrún páLína heLgadóttir, kolbrun@dv.is
girniLegar
uppskriftir
fyrir þá sem hafa gaman af því að
prófa nýja hluti í eldhúsinu er um að
gera að kíkja inn á heimasíðu
Wholefoods-verslunarkeðjunnar.
Wholefoods er ein virtasta
matvöruverslanakeðja Bandaríkj-
anna og jafnframt sú girnilegasta.
Verslanirnar selja meðal annars
íslenska lambið, smjörið og skyrið. á
heimasíðu Wholefoods má finna
aragrúa af uppskriftum fyrir hvert
einasta tækifæri og eru þær allar
mjög spennandi. auðvelt er að slá í
gegn í næsta teiti eða matarboði
með hjálp Wholefoods. slóðin er
www.wholefoodsmarket.com.
einfaLdur
eftirréttur
fátt er betra en að gæða sér á
góðum eftirrétti eftir ljúffenga
máltíð án þess að hafa mikið fyrir því.
einnig getur verið dýrt að búa til
flottan eftirrétt en til eru ýmsar
gómsætar uppskriftir sem kosta
lítinn pening. ein þeirra hljómar
svona: skerðu niður nokkur rauð epli
í skífur og byrjaðu á því að steikja
þau á pönnu upp úr kókosolíu.
Leyfðu þeim að malla um stund og
bættu síðan niðurskornum döðlum
við. Þú ræður magninu. dreifðu
síðan kanil yfir. einfaldara verður það
ekki. til að krydda upp á desertinn
má bjóða upp á ís eða rjóma til
hliðar eða jafnvel strá góðu
súkkulaði yfir.
sterkur matur
bætir
Yfir köldustu mánuðina er nauðsyn-
legt að hlúa vel að líkamanum.
sterkur matur örvar blóðrásina og
hækkar á sama tíma líkamshitann.
fyrir fólk sem býr í heitu loftslagi
hefur sterkur matur öfug áhrif og
kælir niður líkamann. Yfir vetrartím-
ann er sterkur matur góður kostur til
þess að koma í veg fyrir flensu.
indverskur matur er dæmi um
frábæran vetrarmat. hann er
bragðsterkur og rífur í. Það sama má
segja um bragðsterkar súpur og
jafnvel mexíkóskan mat. ekki er
slæm hugmynd að eiga alltaf chilli-
pipar til þess að hressa upp á
matargerðina yfir vetrarmánuðina.
Ljúffeng
baunasúpa
Í nýjasta tölublaði Gestgjafans má finna gómsætar
uppskriftir að hollum og matarmiklum súpum sem
ættu að láta öllum líða betur yfir vetrarmánuðina.
Ástarpungar
500 g hveiti
200 g sykur
3 tsk. lyftiduft
1 egg
1-2 msk. brætt smjör
3 dl mjólk
1 tsk. vanilludropar
2 dl rúsínur
olía til að steikja upp úr, t.d. Wesson-
grænmetisolía
Mynd: Kristinn Magnússon
uppskrift: sigríður Björk Bragadóttir
Myndir: kristinn magnússon
uppskrift úr nýjasta tbl. gestgjafans.
ofan á:
4-6 msk. sýrður rjómi
söxuð steinselja fersk eða þurrkuð
steikið laukinn í smjörinu þar til hann
fer að verða glær. Bætið gulrótum,
sellerístilkum og hvítlauk út í og steikið
góða stund í viðbót. Bætið engifer,
karrímauki og kóríanderdufti út í og
steikið 1-2 mín., setjið linsubaunir,
grænmetissoð og tómatdjús út í og
látið súpuna sjóða í 30 mín. Bætið
kókosþykkni út í. hellið súpunni í skálar
og setjið 1 msk. sýrðan rjóma, sneiddar
paprikur og smávegis af steinselju í
hverja skál.
ofan á:
2-3 rauðar paprikur
stillið ofninn á grill. skerið paprikurnar í
fjóra bita eftir endilöngu og raðið þeim
á ofnrist. grillið undir heitu grillinu
í u.þ.b. 5-10 mín. eða þar til húðin á
paprikunni er svört eða myndar blöðrur.
Það er ágætt að hafa ofnskúffu
undir því það rennur safi úr paprikunni
þegar hún grillast og vont að fá hann
á botninn í ofninum. takið paprikurnar
út, leggið hreint viskastykki yfir og látið
bíða í 5-10 mín. flettið hýðinu af og
skerið paprikuna í strimla.
Krydduð baunasúpa
fyrir 4-6
30 g smjör
2 laukar, saxaðir
2 gulrætur, saxaðar
4 sellerístilkar, saxaðir
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
3 cm engiferrót, söxuð
1-2 msk. karrímauk
1 tsk. kóríanderduft
100 g rauðar linsubaunir
1 l grænmetissoð eða vatn og kraftur
2 dl tómatdjús eða maukaðir
tómatar
50 g kókosþykkni