Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2009, Blaðsíða 4
föstudagur 30. janúar 20094 Fréttir
Sandkorn
n Væntanlegar kosningar eiga
hug og hjarta margra. Sér-
staklega velta menn því fyrir
sér hverjir séu á leið í fram-
boð og hverjir ekki. Nú hefur
Sigmundur
Ernir Rún-
arsson, fyrr-
verandi for-
stöðumaður
fréttasviðs
Stöðvar 2,
gefið sterk-
lega í skyn
að hann
kunni að skella sér í stjórnmál-
in nú þegar hann er laus við
að þurfa að gæta fulls hlutleys-
is. Sjálfur segir hann ekkert
um hvern hann kynni að fara
í framboð fyrir en einhverjir
þykjast finna framsóknarlykt
af honum. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem Sigmundur Ernir er
orðaður við framboð en hingað
til hefur hann tekið vinnuna og
fjölmiðlunina fram yfir stjórn-
málin.
n Sjálfstæðismenn hafa marg-
ir hverjir verið með böggum
hildar síðustu daga, eftir að
þeir hrökkluðust út úr ríkis-
stjórn. Nú er
helgin þegar
landsfundur
sjálfstæð-
ismanna
átti að
standa yfir
en honum
var frestað
þegar Geir
H. Haarde, fráfarandi formað-
ur flokksins, tilkynnti um veik-
indi sín. Þeir landsfundargest-
ir sem voru orðnir spenntir að
fá tækifæri til að spyrja ráð-
herra flokksins út úr þurfa þó
ekki að örvænta um að spyrja
valdalausa menn í mars eða
apríl. Sjálfstæðismenn boða til
fundarhalda á föstudag og þar
sitja ráðherrarnir fyrir svörum
flokksmanna síðasta daginn
áður en þeir detta úr stjórn.
n Helga Lára Haarde, dótt-
ir Geirs fráfarandi forsætis-
ráðherra, er talin vera einn af
framtíðar-
pólitíkusum
landsins.
Hún er beitt-
ur penni og
lætur óhikað
í ljósi skoð-
anir sínar.
En á meðan
allt logaði í
illdeilum innan ríkisstjórnar og
fall blasti við var Helga Lára á
Skagaströnd. Þar er hún að ljúka
við að skrifa sálfræðiritgerð sína.
Þegar stund gafst á milli stríða
brá hún sér í Kántríbæ og drakk
kaffi með Hallbirni Hjartar-
syni, óumdeildum kántríkóngi
Íslands.
Trúverðugleiki á tombóluprís
kristján hreinsson skáld skrifar. „Í nær tvo áratugi hefur Sjálfstæðisflokkurinn fengið að riðlast á undirstöðum þjóðlífsins.“
Síðustu árin hefur okkar einstöku þjóð ver-ið seldur trúverðugleiki þingmanna og ráðherra á slikk. Og nú er svo komið að út-salan er á enda. Ekki finnst ein einasta sála
sem getur hugsað sér að greiða svo mikið sem einn
eyri fyrir það sem eitt sinn hét tiltrú á kerfið. Lýð-
ræðið er fótum troðið – flokksræði og einkavina-
væðing hafa með dyggri aðstoð kerfiskarla náð að
eitra alla innviði þess sem áður þótti þrifalegt þjóð-
arbú – reist á traustri stjórnarskrá.
Í nær tvo áratugi hefur Sjálfstæðisflokkurinn fengið
að riðlast á undirstöðum þjóðlífsins. Og allan tím-
ann hefur illkvittin ásjóna Davíðs Oddssonar vak-
að yfir niðurrifinu. Megnið af tímabili eyðingarafla
hefur sá skelfilegi flokkur fengið liðsinni Fram-
sóknarflokksins og saman náðu þessir flokkar að
lyfta þjóðinni efst á stall þegar mæld er spilling
hins opinbera. Já, þessir tveir flokkar komu okkur í
eitt af efstu sætunum yfir minnst spillta stjórnsýslu
í veröld vorri. Núna eru þjóðir einsog Simbabve
og Nígería að ýta okkur niður fyrir sig, því nú eru
íslensku spillingaröflin öll að koma í ljós og ekki
lengur hægt að fela andlit eymdarinnar. Ástandið
er orðið svo hryllilegt að meira að segja Framsókn
vill láta endurskoða stjórnarskrá lýðveldisins. Að
vísu hljómar þetta einsog flokkurinn hafi aldrei
komið nálægt stjórn landsins. En það er nú önnur
saga. Nýr formaður á víst að fegra ímyndina, jafn-
vel þótt hann tengist Finni Ingólfssyni og S-hópn-
um afar sterkum böndum. Þau tengsl þykja ekki
góð fyrir þann mann, sem sagður var með frekar
óflekkað mannorð, þótt ættartengslin stilltu hon-
um upp í námunda við Kögun og eitt og annað
misjafnt sem fortíðinni tilheyrir.
Jæja, núna erum við laus við Sjálfstæðisflokkinn
og vonandi kemst sá frjálshyggjuflokkur aldrei aft-
ur til valda á Íslandi. Síðasta aulaverk og reyndar
eitt af heilladrýgri óhæfuverkum flokksins var þeg-
ar Geir Haarde sagði að hann ætlaði að gera allt til
að koma í veg fyrir það sem hann kallaði stjórnar-
kreppu, en um leið og þess var óskað að hann gæfi
eftir forsætisráðherrastólinn til að bæta andrúms-
loftið á stjórnarheimilinu, þá gaf hann skít í fyrri
loforð og bauð stjórnarkreppunni inní stofu.
Samfylking og Vinstrihreyfingin - grænt framboð
ætla nú að stjórna þjóðarskútunni og verða, því
miður, að reiða sig á stuðning þeirrar sýktu fylk-
ingar sem í daglegu tali kallast Framsóknarflokk-
ur.
Í illri kreppu urðu stór
átökin í bænum
en Samfylkingin síðan fór
í sæng með vinstri grænum.
Skáldið Skrifar
„Við ætlum fyrst og fremst að bjóða
okkur fram sem nýjan valkost í for-
ystu Frjálslynda flokksins og svara
þeirri kröfu um endurnýjun,“ segir
Guðrún María Óskarsdóttir skóla-
liði sem ætlar að bjóða sig fram sem
formaður Frjálslynda flokksins á
komandi landsþingi í mars. Hún og
Ásgerður Jóna Flosadóttir stjórn-
málafræðingur, sem ætlar að bjóða
sig fram sem varaformaður flokksins,
vilja breytingar í flokknum ásamt því
að halda í gömul gildi.
Mikilvægt að konur
fái að spreyta sig
„Við viljum sjá auknar áherslur í
baráttunni fyrir aðalmálinu sem er
kvótamálið. Við viljum fá það yfir-
stéttarþjóðfélag sem er hér við lýði
á Íslandi á brott. Það er mikilvægt
að minnka útgjöld ríkisins, þar sem
þenslan er orðin of mikil, og færa
verkin í hendur einstaklinga því frelsi
einstaklingsins er leiðarljós Frjáls-
lynda flokksins,“ segir Guðrún María
og bendir á að það vanti konur í for-
ystuna. „Okkur finnst sjálfsagt að
bjóða okkur fram sem konur, þær
eiga ekki að láta sitt eftir liggja. Við
viljum sjá hér þjóðfélag jafnréttis og
sýna að við konur sitjum ekki alltaf
eftir heldur höldum áfram því ein-
hver þarf að ryðja brautina.“
Ásgerður Jóna tekur í sama streng
og segir að það séu ekki bara karlar
í flokknum. „Það er fullt af konum
sem hafa margt gott fram að færa,
til að mynda hefur verið erfitt að fá
konu sem ritara flokksins. Fólk verð-
ur fyrst og fremst að fá að sanna hvað
það getur í starfi.“
Getum lifað í yndislegu
samfélagi
Þær vilja efla og stækka flokkinn
enda hefur hann mælst með töluvert
minna fylgi í skoðanakönnunum en
hann ætti í raun og veru að gera að
þeirra mati. „Það er mjög slæmt að
við getum ekki komið okkur betur
á framfæri en raun ber vitni og við
viljum efla flokkinn og þetta er okk-
ar leið til þess,“ segir Ásgerður Jóna.
Hún bendir á að málefni aldraðra og
öryrkja séu mikilvæg. „Við eigum öll
eftir að verða gömul og viljum ekki að
það sé komið fram við okkur eins og
komið er fram við eldri borgara í dag.
Í raun ættu aldraðir að vera á stalli
þjóðfélagsins. Við viljum lýðræði
og réttlæti og að það haldist í hend-
ur er mjög mikilvægt.“ Hún segir að
hreinsunin í þjóðfélaginu sé hafin og
það sé mikilvægt að halda því áfram.
„Þegar það er búið að rusla þessu liði
út úr stofnunum þjóðfélagsins sem
hefur verið að maka krókinn síðustu
áratugi í skjóli yfirvalda eigum við
eftir að upplifa yndislegt samfélag.“
Eiga góða möguleika
Guðrún María segir að flokkurinn
eigi góða möguleika í komandi kosn-
ingum. „Ég tel að flokkurinn geti nýtt
sína stöðu því hann er hægra meg-
in við miðju í pólítíkinni en hefur
oft viljað stíga á bremsuna varðandi
kvótakerfið og ýmis mál.“ Báðar hafa
þær tekið þátt í starfi Frjálslynda
flokksins í gegnum árin og ætla að
kynna sig vel fyrir landsfundinn. „Við
ætlum að fara vel ofan í stefnuskrána
og kynna hana eins vel og við getum
því stefnuskráin er mjög góð. Um
leið og fólk áttar sig á stefnu flokksins
munu menn gefa honum sín atkvæði
og við viljum hvetja fólk til að skrá sig
í flokkinn. Við ætlum einnig að dæla
inn greinum í blöðin og vera sýnileg-
ar þótt við höfum enga peninga. Svo
er það undir flokksmönnum komið
hvort þeir vilja sjá einhverjar breyt-
ingar,“ segja þær báðar að lokum.
Guðrún María Óskarsdóttir og Ásgerður Jóna Flosadóttir ætla að bjóða sig fram
sem formaður og varaformaður Frjálslynda flokksins á næsta landsþingi í mars. Þær
segja mikilvægt að konur fái að sanna sig í starfi og berjast fyrir auknum réttindum
aldraðra. Þær segja mikla vinnu fram undan og vilja leggja sitt af mörkum til að fá
spillingu burt og leggja mikla áherslu á þjóðfélag réttlætis og jafnréttis.
Boði loGason
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
fara fraM GeGn
flokksforYstU
„Okkur finnst sjálfsagt
að bjóða okkur fram
sem konur, þær eiga
ekki að láta sitt eftir
liggja.“
Í framboð guðrún María og Ás-
gerður jóna ætla að bjóða sig fram
til forystu í frjálslynda flokknum.
Mynd RÓBERt REynisson
Varahlutir
og viðgerðir
511 2222
Norðurhella 8 l 221 Hafnarfirði
S: 511 2222 l Fax: 511 2223
varahlutir@varahlutir.is
www.varahlutir.is