Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2009, Blaðsíða 22
föstudagur 30. janúar 200922 Helgarblað
Sífellt fleiri bandarískir hermenn
hafa svipt sig lífi undanfarið, þrátt
fyrir að varnarmálaráðuneytið verji
meiri fjármunum í að finna þá her-
menn sem glíma við vandamál og
veita þeim þá hjálp sem þeir þarfn-
ast.
Staðfest hefur verið að að
minnsta kosti eitt hundrað tut-
tugu og fimm hermenn hafi fram-
ið sjálfsvíg árið 2008, miðað við
eitt hundrað og fimmtán 2007,
eitt hundrað og tvo 2006 og áttatíu
og sjö árið 2005. Talið er að fjöldi
þeirra sem frömdu sjálfsvíg á síð-
asta ári geti hækkað enn frekar því
herinn rannsakar nú sautján till-
felli þar sem hugsanlega var um
sjálfsvíg að ræða.
Flestir úr landgönguliðinu
Landgöngulið bandaríska flotans
tilkynnti um fjörutíu og eitt tilfelli
á síðasta ári þar sem hugsanlega
var um sjálfsvíg að ræða, miðað
við þrjátíu og þrjú tilfelli árið 2007,
að sögn embættismanna í varnar-
málaráðuneytinu, sem fréttastofa
NBC vitnaði í. Í sjó- og flugher gætti
minni fjölgunar að sögn embætt-
ismannanna, sem allir kröfðust
nafnleyndar.
Samkvæmt opinberum tölum
frömdu ellefu óbreyttir borgarar af
hverjum eitt hundrað þúsundum
sjálfsvíg árið 2005, en það er síðasta
árið þar sem fullnægjandi gögn eru
fyrirliggjandi.
Að sögn embættismanna var
fjöldi þeirra sem frömdu sjálfsvíg
í landgönguliði flotans á síðasta
ári nítján hermenn af hverjum eitt
hundrað þúsundum, en í flughern-
um var fjöldinn 11,5 og í sjóhern-
um 11,3 á hverja eitt hundrað
þúsund hermenn. Um er að ræða
marktæka fjölgun sjálfsvíga innan
hersins miðað við árið 2007.
Ekki er með góðu móti hægt að
bera tíðni sjálfsvíga innan hersins
saman við tíðni sjálfsvíga í banda-
rísku samfélagi sem heild, því her-
inn er ekki þverskurður þess. En
innan þess hluta sem að mestu leyti
endurspeglar samsetningu hersins
– karlmanna á aldrinum átján til
tuttugu og fjögurra – frömdu um
19,8 einstaklingar af hverjum eitt
hundrað þúsundum sjálfsvíg árið
2005.
Fjármagn til rannsókna
Á sama tíma og þeim fjölgar sem
sinna virkri herskyldu eykst tíðni
sjálfsvíga umfram fjölgun virkra
hermanna í öllum deildum Banda-
ríkjahers og eru embættismenn
varnarmála slegnir vegna þróun-
arinnar.
„Þeir hafa allir misst vin. Þeir
hafa verið ofurseldir mest eyði-
leggjandi umhverfi sem þekkt er í
stríði – í líkamlegu, sálfræðilegu,
andlegu og siðferðilegu tilliti,“ sagði
Loree K. Sutton, undirhershöfðingi
í landher Bandaríkjanna.
Fimmtíu milljónir bandaríkja-
dala hafa runnið til rannsókna á
ástæðum sjálfsvíga innan hersins
og til að treysta framkvæmdaáætl-
un sem miðar að því að bera kennsl
á þá hermenn sem eru hrjáðir á sál-
inni og veita þeim aðstoð. Þrátt fyr-
ir að eitthvað hafi áunnist á síðasta
ári telur Mark. A. Graham, yfirmað-
ur herstöðvarinnar í Carson-virki
í Colorado, að betur megi ef duga
skal. Að hans mati skortir herinn
sérfræðinga í atferlisfræðum.
Árið 2007 upplýsti samband
bandarískra sálfræðinga að skort-
ur á sálfræðingum í hernum næmi
fjörutíu prósentum. „Í ljósi þeirrar
streitu sem þjakar hermenn okkar
og fjölskyldur, þá tekur hann [skort-
urinn] sinn toll,“ sagði Graham.
Barist við fordóma
Mark A. Graham hefur ekki farið
varhluta af vandamálinu því tut-
tugu og eins árs sonur hans, Kevin,
framdi sjálfsvíg í júní 2003. Að sögn
Grahams er stór hluti vandans for-
dómar í garð þeirra hermanna sem
leita sér ráðgjafar eða annarrar að-
stoðar vegna sálrænna vandamála.
Átta mánuðum síðar, þegar
Graham íhugaði að setjast í helgan
stein, féll annar sonur hans, Jeff, í
sprengingu í Írak.
Graham viðurkennir að hann
hafi sjálfur verið þeirrar skoðun-
ar að „það væri veikleikamerki“ af
hálfu hermanns að viðurkenna að
hafa fengið sálrænt áfall.
„Vitið þið hvað? Í raun komst
ég að því hvað ég lagði á fjölskyldu
mína,“ sagði Graham. Hann segir að
sjálfsvígsfaraldur innan hersins sé
viðvörun og vinnur nú ásamt eigin-
konu sinni hjá samtökum sem vinna
að því að koma í veg fyrir sjálfsvíg.
Graham sagði að hann og eigin-
kona hans hefðu staðið frammi fyr-
ir því að láta þessa harmleiki verða
sögu þeirra, eða kafla í sögu þeirra.
Þau völdu það síðarnefnda.
„Þeir hafa allir misst
vin. Þeir hafa verið
ofurseldir mest eyði-
leggjandi umhverfi
sem þekkt er í stríði – í
líkamlegu, sálfræði-
legu, andlegu og sið-
ferðilegu tilliti.“
Sífellt fleiri bandarískir hermenn svipta sig lífi. Á síðasta ári fjölgaði sjálfsvígum samanborið við árið 2007.
Aukið fjármagn hefur verið veitt til rannsókna og fyrirbyggjandi ráðstafana. Betur má ef duga skal að mati
Mark A. Graham undirhershöfðingja sem hefur misst tvo syni sína; annar féll í Írak, hinn framdi sjálfsvíg.
KolBeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
HERMENN FALLA
FYRIR EIGIN HENDI
Mál Jasons scheuerMan
n Árið 2005 fór kafteinn í her Bandaríkjanna í Írak þess á leit að óbreyttur hermaður
undir hans stjórn fengi sálfræðilegt mat. Hermaðurinn, jason scheuerman, var
þekktur fyrir að setja hlaup byssu sinnar í munn sér og endaði mál hans á borði
réttindalauss sálfræðings, en á fyrstu árum stríðsins í Írak var það ekki með öllu
óþekkt að réttindalaust fólk væri fengið til ráðgjafar í slíkum tilfellum.
sálfræðingurinn komst að þeirri niðurstöðu að jason, þá tvítugur, „gæti gert sér upp
sálræn veikindi“ og með því ráðskast með yfirmenn sína. Hann þjáðist að mati
sálfræðingsins ekki af sálrænum vandamálum.
Þremur vikum síðar fór jason inn í skáp í herskála og skaut sig til bana. Á skáphurð-
ina hafði jason neglt miða með orðsendingu. Á miðanum stóð: „Kannski get ég að
lokum öðlast frið.“
GriMMd oG einelti
n Það er ekki eingöngu bandaríski herinn sem glímir við fjölgun sjálfsvíga í sínum
röðum. Árið 2007 framdi 341 maður úr röðum rússneska hersins sjálfsvíg og svarar
sá fjöldi hér um bil til þess fjölda sem fyllir eitt herfylki. Þrátt fyrir að það hafi verið
fimmtán prósenta fækkun frá árinu 2006 fer ekki hjá því að yfirmenn í hernum hafi
áhyggjur.
Einar helstu ástæður sjálfsvíga í rússneska hernum eru taldar vera grimmd og
einelti hinna eldri í garð nýliða.
Í rússneska hernum gildir, að sögn stevens Eke, sérfræðings BBC í málefnum
rússlands, bókstaflega „vald hinna eldri“ – hefðbundið og gjarna ofbeldisfullt
einelti, sem algengt er að hreki unga hermenn til sjálfsvígs.
rússneskir fallhlífahermenn
nýliðar í rússneska hernum
sæta miklu harðræði sem
hrekur marga til sjálfsvígs.
Herkirkjugarðurinn í Arlington í Banda-
ríkjunum um 300.000 hermenn hafa fengið
hinstu hvílu í kirkjugarðinum síðan 1864.