Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2009, Side 20
Margir töpuðu
Margir fóru flatt á því að fjárfesta í
deCODE í kringum aldamótin. Má
þar nefna Raufarhafnarhrepp sem
keypti bréf á genginu 25. Hreppur-
inn tapaði tugum milljóna á þess-
um tíma vegna kaupa á bréfum í
deCODE auk félaga eins og Íslands-
síma og Oz.
Siv Friðleifsdóttir alþingismað-
ur er sögð hafa fengið 75 milljóna
króna lán hjá Landsbankanum til
kaupa á bréfum í deCODE. Hún
hefur hins vegar alfarið neitað fyrir
þetta lán í fjölmiðlum. Sömu sögu
er að segja um Svein Andra Sveins-
son hæstaréttarlögmann en háværar
sögusagnir gengu í samfélaginu fyr-
ir nokkrum árum um að hann hefði
tekið lán upp á tugmilljónir króna til
að fjárfesta í hlutabréfum í deCODE.
Einnig sagði breska blaðið The
Guardian frá því árið 2002 að Hinrik
Jónsson öryrki hefði fengið greidd-
ar út öryrkjabætur og fjárfest fimm
milljónir af þeim í deCODE. Hafði
hann keypt bréfin af verðbréfamiðl-
ara í Landsbankanum á genginu 56.
Árið 2002 var það komið niður í 6
og því hafði hann tapað nánast öllu
fénu sem hann lagði í félagið.
Aldrei hagnaður
Eins og sést í töflu með fréttinni hef-
ur deCODE, sem stofnað var árið
1996, aldrei skilað hagnaði.
Samkvæmt útreikningum DV hef-
ur tap félagsins frá upphafi numið 55
milljörðum króna. Kári Stefánsson
hefur þó oft sett fram áætlanir sem
gera ráð fyrir að rekstur félagsins
eigi að fara að skila hagnaði. Lands-
bankinn tryggði rekstur deCODE til
skamms tíma 20. janúar síðastliðinn
með kaupum á skuldabréfum í félag-
inu að upphæð 11 milljónir dollara
eða um 1,4 milljarðar króna.
Þar sem Landsbankinn er nú
aftur kominn í ríkiseign vakti þessi
trygging Landsbankans nokkra at-
hygli. Spurt var hvers vegna fyrirtæki
sem aldrei hefur skilað hagnaði fengi
slíka fyrirgreiðslu meðan önnur fyrir-
tæki landsins sem stæðu betur ættu í
erfiðleikum með að fjármagna sig.
Engin ríkisábyrgð
Þetta var ekki í fyrsta skipti sem
skuldabréf deCODE komast í frétt-
irnar en þekktasta dæmið er líklega
lög um ríkisábyrgð á 20 milljarða
skuldabréfi félagsins sem tóku gildi
árið 2002. Það var hins vegar haft eftir
Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra
í fyrra að skilyrði fyrir veitingu ríkisá-
byrgðar á skuldabréfum útgefnum af
deCODE væru ekki lengur til staðar.
Því væri óþarfi að fella lögin úr gildi.
Vinsemd Davíðs Oddssonar og
Sjálfstæðisflokksins í garð deCODE
hefur oft sætt gagnrýni. Talið er að
það vinarþel hafi einnig hjálpað Kára
við að fá tryggingu hjá Landsbankan-
um. Óljóst er hvort ný ríkisstjórn, sem
væntanlega verður kynnt á næstu
dögum, verði jafnhliðholl deCODE.
Í samtali við DV sagði Steingrím-
ur J. Sigfússon, formaður vinstri-
grænna sem orðaður hefur verið við
stól fjármálaráðherra í komandi rík-
isstjórn, að hann myndi ekki tjá sig
um afstöðu sína gagnvart deCODE
eða þeirrar lánafyrirgreiðslu sem
félagið fékk hjá Landsbankanum.
Hann gat heldur ekki sagt til um hvað
hann myndi gera varðandi deCODE
ef hann settist í ríkisstjórn.
Óskiljanlegt viðskiptamódel
Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Samtaka fjárfesta, segir að
áhætta Landsbankans vegna kaupa
á skuldabréfum í deCODE sé ekki
mikil. „Landsbankinn á ekki kröfu
á deCODE vegna bréfsins,“ segir Vil-
hjálmur. Hann segist þó aldrei hafa
skilið deCODE og aldrei eignast bréf
í félaginu með beinum hætti. „Það
er ekkert í viðskiptamódeli deCODE
sem gefur af sér fjárflæði,“ segir Vil-
hjálmur og því sé starfsemi félagsins
óskiljanleg.
Haft var eftir Kára Stefánssyni í
Morgunblaðinu að bréfin sem de-
CODE seldi Landsbankanum hefðu
verið keypt á undirverði á 11 millj-
ónir dollara en nafnverð bréfanna
væri 30 milljónir dollara. Þar var
einnig haft eftir Kára að deCODE
ynni nú að endurskipulagningu fé-
lagsins með erlendum ráðgjöfum
og að sú vinna gengi vel.
Gengi bréfa í deCODE stend-
ur nú í 0,22 sentum og er markaðs-
verðmæti félagsins 13,6 milljónir
dollara eða nálægt 1,6 milljörðum
íslenskra króna.
Samkvæmt reglum Nasdaq þarf
markaðsverðmæti hlutabréfa í de-
CODE að vera 50 milljónir dollara
að lágmarki. Bréf félagsins hafa
ekki náð því lágmarki síðustu fimm
mánuði. Reglan er yfirleitt sú að
félög eru tekin af markaði ef þau
uppfylla ekki þessi skilyrði í þrjá
mánuði. Félagið hefur þó fengið
undanþágu frá þessari reglu til 6.
mars.
föstudagur 30. janúar 200920 Helgarblað
LæknAbLAðshnEyksLið
Árið 2005 fékk Kári stefánsson starf sem læknir í afleysingum á taugadeild
Landspítalans. Þótti það hneyksli þar sem Kári hafði ekki starfað sem læknir í
áratug. jóhann tómasson læknir ritaði harðorða grein í Læknablaðið sama ár
um að Kári ynni í afleysingum sem læknir á deildinni. Í greininni kom meðal
annars fram að ferill Kára í verklegu og klínísku námi í læknadeild Háskóla
Íslands á kandídatsári hefði ekki verið góður. Kári fékk lækningaleyfi með
undanþágu árið 1977. Vilhjálmi rafnssyni var síðan vikið úr embætti sem
ritstjóri Læknablaðsins fyrir að hafa birt greinina.
skAphEitur kári
Kári stefánsson, forstjóri deCOdE, hefur alla tíð verið nokkuð umdeildur maður
og er hann frægur fyrir skaphita. Á menntaskólaárum sínum lenti hann víst
iðulega í pústrum á böllum í borginni enda segir einn af viðmælendum að Kári
hafi alla tíð verið „mjög aggresívur maður“ sem láti engan troða á sér enda er
hann mikill á velli og sterkur - á stundum líkari trölli en manni. Þessi skaphiti
mun hafa komið sér vel fyrir Kára á háskólaárunum á dögum Kalda stríðsins
þegar hann var harður vinstrimaður og einn af leiðtogum þeirra í pólitíkinni í
skólanum. Einnig mun skap Kára hafa komið skýrlega í ljós á körfuboltavellin-
um í World Class á liðnum árum þar sem hann oftsinnis hefur skorað á suma af
helstu körfuboltamönnum landsins í „einn á einn“. Kári reyndar þrætir fyrir
þetta og sagði í viðtali við dV fyrir fjórum að hann hefði ekki spilað „körfubolta í
25 ár“. Þeir sem hafa spilað við Kára segja hins vegar að hann sé erfiður
andstæðingur sem beiti öllum ráðum til að vinna - sem hann gerir víst oft þrátt
fyrir að vera 30 árum eldri en mótspilararnir. Þá fljúga gjarnan nokkrir olnbogar
og Kári „thrastalkar“ andstæðingana til að draga úr þeim máttinn. Það er
kannski þessi sigurvilji Kára og baráttuþrek sem gert hefur það að verkum að
deCOdE hefur haldið velli þrátt fyrir taprekstur og mótlæti liðinna ára:
maðurinn hreinlega neitar að gefast upp og játa sig sigraðan.
tAp dECOdE 1997-2008
1997 576 milljónir IsK
1998 770 milljónir IsK
1999 1.750 milljónir IsK
2000 2.635 milljónir IsK
2001 5.356 milljónir IsK
2002 10.611 milljónir IsK
2003 2.485 milljónir IsK
2004 3.477 milljónir IsK
2005 3.969 milljónir IsK
2006 6.192 milljónir IsK
2007 5.952 milljónir IsK
2008* 11.400 milljónir IsK
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
samtals: 55.175 milljónir IsK
*áætlað tap árið 2008
skólabræður davíð Oddsson og Kári
stefánsson. Þeir voru skólafélagar í
Menntaskólanum í reykjavík. Þar léku
þeir meðal annars saman í Bubba
kóngi þar sem davíð lék kónginn en
Kári keisara. Mynd tEitur JÓnAssOn