Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2009, Blaðsíða 46
Á sunnudaginn fæst úr því skorið,
allavega í smástund, hvort sóknin sé
besta vörnin. Spurning sem allavega
margir knattspyrnuframherjar þykjast
auðveldlega geta svarað. Pittsburgh
Steelers mætir þá Arizona Cardin-
als í sjáfum Superbowl-leiknum, ein-
um vinsælasta íþróttaviðburði heims
á hverju ári. Vörn Steelers er sú lang-
besta í deildinni og hefur fleytt lið-
inu alla leið í úrslit. Stálverkamenn-
irnir þurfa að byggja nægilega öflug
búr í varnarleiknum svo Kardínálarn-
ir komist ekki á flug. Þeir státa einmitt
af besta sóknarleiknum í deildinni og
einum allra útsmognasta og besta leik-
stjórnanda sem deildin hefur séð.
Öskubuskuævintýrið
Ef allt væri eðlilegt væri Arizona Card-
inals ekki komið í Superbowl. Sem
betur fer er ekkert til sem heitir eðlilegt
í íþróttum og geta lið eins og Cardin-
als komið öllum á óvart. Arizona vann
ekki nema níu leiki á tímabilinu og
skreið inn í úrslitakeppnina. Þannig
lið hafa ekki gert það að vana sínum
að komast í úrslitaleikinn. En úrslita-
keppnin sjálf var hreint ótrúleg í ár og
í úrslitum Þjóðardeildar, sem Arizona
leikur í, mætti það eina liðinu sem var
með verri árangur en það, Philadelph-
ia Eagles.
Eftir magnaða sýningu Cardinals
í fyrri hálfleik, þar sem það leiddi, 21-
6, var liðið komið undir, 25-24, þegar
skammt var eftir af leiknum. En eins
og í góðu ævintýri kláraði liðið síðasta
snertimarkið í síðasta kerfinu í síðustu
sókninni.
Refurinn Warner
Kurt Warner, leikstjórnandi Arizona
Cardinals, hefur átt ótrúlegt tímabil en
eins og kollegi hans hjá Pittsburg státar
hann af einum Superbowl-titli. Hann
vann þá með St. Louis Rams árið 1999
í liði sem var kallað „skemmtilegasta
sýning jarðar“. Því var samt aldrei spáð
titlinum, frekar en Cardinals nú.
„Ég hef verið í tveimur liðum sem
var aldrei spáð góðu gengi,“ seg-
ir Warner. „Það er nokkuð sem ég vil
muna alla ævi því þegar ég rifja upp
ferilinn verða Rams og Cardinals
mér efst í huga. Þessi lið eru einfald-
lega eins og þau eru. Þegar öllu er á
botninn hvolft vil ég bara gera mitt
besta innan og utan vallar hvar sem
ég er og ég vona svo sannarlega að
ég hafi alltaf gert það,“ segir Warner
sem hefur verið ævintýralega rólegur
í kringum allt fjölmiðlafárið.
Vörn Steelers beitir mikið öflug-
um leifturárásum sem eiga eftir að
vera gamla manninum Warner erfið-
ar. Það er hans að vinna lausn á því
og það skal enginn veðja gegn þess-
um útsmogna hugsuði.
Stóri stressaður
Stóri Ben-Roethlisberger, leikstjórn-
andi Steelers, hefur ekki sömu
reynslu og Warner hjá Cardinals.
Hann á þó að baki eina ferð í Super-
bowl og sigur að auki. Hann vann
Superbowl með Steelers árið 2005,
yngstur allra leikstjórnenda til að
gera það en þá var hann aðeins á
sínu öðru ári í deildinni. Stóri-Ben
hefur leikið rólega gaurinn alla vik-
una og reynt að láta fjölmiðlafárið
ekkert á sig fá. Ástæðan fyrir því er
einföld. Síðast þegar hann lék í Sup-
erbowl varð stærð leiksins honum
ofviða og bókstaflega skeit hann á sig
í leiknum. Hann náði aðeins að klára
níu sendingar af tuttugu og einni
og ekkert snertimark. Hann kastaði
boltanum frá sér og var með leik-
stjórnendaeinkunn upp á 22,6. Það
lægsta sem nokkur leikstjórnandi
hefur boðið upp á í Superbowl.
„Ég hjálpaði mikið til við að reyna
að tapa síðasta leik,“ segir sá stóri
auðmjúkur. „Ég býst við því að þetta
verði öðruvísi núna. Ég ætla einfald-
lega að líta á þetta sem hvern annan
leik og ekki láta andrúmsloftið yfir-
buga mig,“ segir Roethlisberger.
tomas@dv.is
föstudagur 30. janúar 200946 Sport
Pittsburgh Steelers og Arizona Cardinals
mætast á sunnudagskvöldið í einum stærsta
íþróttaviðburði hvers árs í Bandaríkjun-
um, Superbowl. Tímabil Cardinals hefur
verið sannkallað öskubuskuævintýri en
hvort rauðliðarnir frá Arizona passi í gler-
skóinn verður að koma í ljós á sunnudag-
inn. Cardinals státar af bestu sókn deildar-
innar en Steelers af langbestu vörninni.
© GRAPHIC NEWS
1 1
1
2
Heimild: NFL Myndir: Associated Press, Getty Images
Raymond James-völlurinn, Tampa Bay, FlórídaPITTSBURGH
STEELERS
Vörnin sett saman í Philadelphia: Þjálfarinn
Mike Tomlin er ásamt varnarþjálfaranum Dick LeBeau
búinn að setja saman bestu vörn deildarinnar.
ARIZONA
CARDINALS
Þekkir til Steelers: Ken Whisenhunt þekkir
ágætlega til Steelers en hann var sóknarþjálfari þeirra
þegar liðið vann Superbowl árið 2005.
Reyna við sinn sjötta
sigur í Super-
Bowl sem væri
met.
Fyrsta skiptið
í Superbowl
13-33
35-24Pittsburgh San Diego
ArizonaCarolina
24-30 ArizonaAtlanta
Átta liða úrslit
25-32
23-14Pittsburgh Baltimore
ArizonaPhiladelphia
Úrslitaleikir Ameríku- og Þjóðardeildar
Leiðin til T AMPA B AY
Wild Card-helgin
VÖRNIN (stig fengin á sig)Steelers Cardinals Steelers CardinalsSÓKNIN
Sendingar
Heppnaðar
Yardar
Snertimörk
Kastað frá sér
29.3
17.56
206
1.02
0.94
37.4
25.1
286
1.88
0.88
13.4
4.5
Kastker: 162 76
Hlaupaker Hlaupaker
105 106 79
25.7
5.3
225
Stig per leik.
Yardar per ker
Yardar í leik
22.5
4.9
Kastker: 206
27.5
5.9
286
Tölfræði
per leik
(2008)
LEIKSTJÓRNENDURNIR
Lykilmaðurinn: Larry Fitzgerald
Cardinals er eitt besta liðið
í deildinni á þessu ári í kastkerfum.
Larry Fitzgerald útherji þeirra er
sá besti í deildinni
Lykilmaðurinn: James Harrison Hin ótrúlega leiftursókn Steelers
verður Cardinals mjög erð.
Mikið mun reyna á leikstjórnanda
Cardinals að hugsa hratt undir
mikilli pressu.
Ef Cardinals ætla sér eiga einhvern
möguleika á titlinum verða þeir
að leysa varnarleik Steelers
VÖRNIN VERÐUR CARDINALS ERFIÐ:
Útherjarnir: Þurfa að hlaupa
djúpt og nýta breiddina.
Hlauparinn: Verður að taka skáhlaup
til að láta bakvörðinn hafa fyrir hlutunum
S VÆÐIS-LEIFTURÁRÁS STEELERS:
Línumennirnir vernda
svæði sem bakverðirnir
skilja eftir opin þegar þeir
framkvæma leifturárás
eða neyða leikstjórnandann
til að senda boltann í
svæði sem er vel valdað.
Fela árásina: Línumaðurinn
færir sig í stöðu framar
í vörninni en bakkar svo
og ver svæði aftar.
Bolta stolið: Leikstjórnandi
andstæðingana sér bakvörðinn
undirbúa leifturárás. Sendir þá
á útherja sem tekur skáhlaup
en sendingin er lesin og boltanum stolið.
LB
LB
Leikstjórnandinn
Ben Roethlisberger Kurt Warner
SÓKNIN
VÖRNIN
2
1
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Er sóknin
bEsta vörnin?
Fuglarnir fljúgandi Cardinals verða að
hafa sóknina í sínu besta standi ætli þeir
að komast í gegnum stálbúr steelers.