Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.2009, Qupperneq 64
n Tugir breskra blaðamanna fylgd-
ust með því þegar útvarpsparið
Heimir Karlsson og Kolbrún
Björnsdóttir afhenti breskum elli-
lífeyrisþegum fullan gám af ullar-
vörum í bresku hafnarborginni Hull
í gærmorgun. Þeim var tekið eins og
þjóðhetjum, enda tilgangurinn sá
að bjarga öldruðu fólki frá kuldun-
um sem verða mörgum þeirra að
aldurtila. „Þetta er algjör sigur og
jákvæðni og þakklæti í garð okkar
Íslendinga skín úr hverju and-
liti,“ sagði Heimir við DV síðdegis
í gær. Það eru ekki aðeins breskir
fjölmiðlar sem sýna gjafmildinni
áhuga því þýsk sjónvarpsstöð fylgist
með málinu auk þess að amerískar
útvarpsstöðvar hafa rætt við þau.
Þáttur þeirra, Bítið, sendir
út beint frá Hull
í dag.
Var Gay Haarde
ekki nógu góður?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
Perez Hilton heldur úti einni vinsæl-
ustu slúðursíðu í netheimum, per-
ezhilton.com, en eins og margir vita
er Perez samkynhneigður. Honum
fannst því tilvalið að skrifa frétt um
að Jóhanna Sigurðardóttir yrði fyrsti
lesbíski forsætisráðherrann í heim-
inum. Á síðunni lendir Jóhanna í
hópi með stjörnum á borð við Brad
Pitt, Angelinu Jolie, Mickey Rourke
og Britney Spears sem eru fastagestir
á bloggi Perezar.
Perez er væntanlega ánægður með
þennan áfanga Jóhönnu en heldur að
hún eigi erfitt verk fyrir höndum.
„Gangi þér vel, Jóhanna! Þú þarft
á því að halda,“ segir Perez á síðunni
en 55 athugasemdir höfðu í gær bor-
ist vegna fréttarinnar. Þar óskar fólk
hvaðanæva úr heiminum Jóhönnu til
hamingju og finnst þetta stórt skref í
réttindabaráttu samkynhneigðra. Enn
fremur segir einn Bandaríkjamaður
að Bandaríkin ættu að taka Ísland sér
til fyrirmyndar og annar stingur meira
að segja upp á því að þeir Perez ættu
að flytja hingað á klakann.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ís-
lendingar lenda á bloggsíðu glimm-
erhommans knáa. Myndband
Eurobandsins við íslenska Euro-
vision-lagið í fyrra vakti mikla athygli
á vefsíðunni og Björk hefur einnig
prýtt síðuna nokkrum sinnum fyrir
einstakan klæðaburð.
liljakatrin@dv.is
Heimir og Kolla
þjóðHetjur
TB
W
A\
R
EY
KJ
AV
ÍK
\
SÍ
A
\ 0
94
08
5
Vinningslíkurnar í Happdrætti Háskólans eru ótrúlega
miklar. Jafnvel seinheppnasta fólk getur unnið!
Við minnum á afmælisútdráttinn í desember, 75 milljónir á einn miða.
Því fyrr sem þú kaupir þér miða á árinu, þeim mun oftar er númerið þitt í
afmælispottinum.
Náðu þér í miða á hhi.is,
hjá næsta umboðsmanni eða
með því að hringja í 800 6611.
Samkynhneigði ofurbloggarinn Perez Hilton ánægður með verðandi forsætisráðherra:
„gaNgi þÉr Vel, jóHaNNa!“
n Hin virta matreiðslukeppni Bocuse
d‘Or lauk í Frakklandi á miðvikudag.
Íslenski matreiðslumaðurinn Ragn-
ar Ómarsson lenti í sjöunda sæti
í keppninni en Bocuse d‘or-mat-
reiðslukeppninni mætti helst líkja
við óformlega heimsmeistarakeppni
í matreiðslu. Athygli vekur að sá sem
hafnaði í fyrsta sæti er norski mat-
reiðslumaðurinn Geir Skeie sem
einnig sigraði í keppninni um Food
& Fun-kokkinn á matarhátíðinni
miklu í febrúar í fyrra. Í öðru sæti
var svo Svíinn Jonas Lundgren sem
einmitt sigraði í Food & Fun-mat-
reiðslukeppninni árið á undan Geir,
eða 2007. Báðir hafa meistar-
arnir því sett upp matseðla
og eldað á veitingahús-
um Reykjavíkur sem þýðir
að þó nokkrir Íslendingar
hafa orðið þess heið-
urs aðnjótandi að
bragða á mat eftir
sigurvegara Bocuse
d‘Or-keppninnar.
n Eurosonic-tónlistarhátíðin fór
fram í síðustu viku en fulltrúar Ís-
lands á hátíðinni voru þau Dísa,
Helgi Jónsson og For a Minor
Reflection. Hátíðinni er ætlað að
koma ungum hljómsveitum og
listamönnum á framfæri við tón-
listarhátíðir og tónleikahaldara í
Evrópu. Skemmtilegt er að segja frá
því að tónleikar íslensku sveitar-
innar For a Minor Reflection þóttu
vera hápunktur hátíðarinnar í ár
að mati breska vikuritsins Music
Week. Fullt var út úr
dyrum á umtöluð-
um tónleikum sem
fram fóru í þrjú
hundruð manna
tjaldi. Í kjölfarið hafa
þrír tónleikabók-
arar sýnt sveit-
inni áhuga
og þegar eru
langt komnar
bókanir fyrir
þriggja vikna
tónleikaferð í
lok maí.
HápuNKtur
HátíðariNNar
eldaði fyrir
ísleNdiNga
Hluti af þotuliðinu Perez hilton skrifar
um skærustu stjörnurnar vestan hafs og
nú er Jóhanna komin í hóp þeirra.
mynd Stefán KarlSSon