Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.2015, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 01.09.2015, Blaðsíða 9
LÆKNAblaðið 2015/101 397 R i T S T J Ó R n a R G R E i n Matareitrun í skemmtiferðaskipi, tugir eldri borgara þurfa vökvagjöf og aðhlynn- ingu. Ungur franskur ferðamaður í geðrofi, þarf heimfylgd. Andlát erlends ferðamanns eftir bílveltu á íslenskum malarvegi. Allt eru þetta dæmi um áhrif fjölgunar erlendra ferðamanna á eftirspurn og kröfur til heil- brigðisþjónustu. Landspítalinn hefur ekki farið varhluta af þessari þróun. Árið 2010 leituðu alls 2167 ósjúkratryggðir til dag- og göngudeilda spítalans, þar á meðal bráðamóttöku, en árið 2014 hafði þeim fjölgað um 44%, voru 3122. Í flokk ósjúkratryggðra falla ekki ein- göngu erlendir ferðamenn heldur einnig til dæmis þeir sem búið hafa skemur en 6 mánuði á Íslandi og njóta því ekki trygg- ingaverndar, svo og sjúklingar frá Fær- eyjum og Grænlandi sem hingað er vísað til þjónustu. Fjölgun ósjúkratryggðra sem sækja heilbrigðisþjónustu til Landspítala má að langmestu leyti rekja til fjölgunar erlendra ferðamanna. Á sama tíma fjölgaði innlögnum þessa hóps um 19% (úr 283 í 336). Eðli málsins samkvæmt leita langflestir erlendir ferða- menn þjónustu yfir sumarmánuðina – þeg- ar mönnun er oft naum vegna sumarleyfa. Árið 2014 áttu 46% af innlögnum ósjúkra- tryggðra sér stað á þriggja mánaða tíma, júlí-september. Áhrifa aukins ferðamanna- fjölda gætir því mun meira en ætla mætti af fjöldatölum eingöngu og hugsanlega þyrfti að endurskoða mönnun og annan viðbúnað yfir þau tímabil þar sem álagið er mest. Þetta á ekki síst við í tengslum við komur skemmtiferðaskipa sem fluttu 105.000 farþega hingað árið 2014. Dæmi eru um að farþegar komi í rútum á bráða- móttöku frá skipshlið samkvæmt ákvörð- unum skipslæknis um að vísa öllu því sem ekki er hægt að leysa um borð til spítalans meðan skipið liggur í höfn. Flestir farþegar skemmtiferðaskipa eru eldri borgarar, með fjölþættan heilsuvanda og taka fjölda lyfja að staðaldri – og engin fyrri heilsufarsgögn eru aðgengileg. Þarna geta því verið um meiriháttar verkefni að ræða sem leysa þarf á tiltölulega skömmum tíma, oft við erfiðar aðstæður. Eins og við er að búast leita flestir ósjúkratryggðir til Landspítala vegna minniháttar óhappa eða vandamála sem ekki krefjast innlagnar. Meðal þeirra sem þurfa á innlögn að halda eru algengustu vandamálin, útlimabrot, liðáverkar og tognanir, botnlangabólga og kransæða- sjúkdómar. Af þeim sem lögðust inn árið 2014 þurfti tæpur helmingur á inngripi að halda og 12% dvöldu á gjörgæslu, að meðal- tali í 11 daga. Meðallegutími í heild var 6,6 dagar. Almennt er óhætt að segja að Land- spítala hafi tekist vel að sinna þessum ört vaxandi hópi sjúklinga en honum fylgja óneitanlega ýmsar áskoranir og viðfangs- efni bæði í klínískri þjónustu og hvað praktísk mál varðar. Tungumálaerfiðleikar koma kannski fyrst upp í hugann. Gagn- vart sjúklingi og aðstandendum er þetta leyst með aðkomu túlka ef þess er kostur en samskiptin taka óneitanlega meiri tíma og reyna meira á en ef um sameiginlegt tungu- mál væri að ræða. Nauðsynlegt samráð og samskipti við lækna sjúklings heima fyrir geta verið tímafrek. Skrifa þarf læknabréf á ensku fyrir hvern einstakling. Ef erlendir ferðamenn uppfylla skimunarskilmerki vegna ónæmra baktería (sjúkrahúsdvöl er- lendis síðastliðna 6 mánuði, blóðskilun er- lendis eða endurteknar húðsýkingar) þarf að taka skimsýni (til dæmis fyrir MÓSA) og hafa sjúklingana í einangrun, með til- heyrandi óþægindum, töfum og kostnaði, þar til neikvæð svör liggja fyrir. Skrá þarf ýmsar upplýsingar í sambandi við tryggingamál; taka ljósrit af vegabréfi og tryggingakortum og alloft þarf að að- stoða sjúklinga og aðstandendur við heim- ferð, fylgd og jafnvel sjúkraflug. Reikningar eru gefnir út á ensku og þeim fylgt sérstak- lega eftir. Iðulega þarf miklar bréfaskriftir og endurtekin samskipti við erlenda greið- endur (einstaklinga, tryggingafélög) áður en reikningur er greiddur. Tekjur Landspítala af þjónustu við ósjúkratryggða hafa vaxið verulega, eða um 99% á föstu verðlagi milli 2010 og 2014, (úr 167 m.kr. í 385 m.kr). Þá eru tekjur af samningsbundinni þjónustu við sjúklinga frá Grænlandi og Færeyjum undanskildar. Þessi hækkun helst í hendur við þróun á umfangi þjónustunnar en stafar einnig af bættu verklagi við skráningu, gagna- vinnslu og gerð reikninga fyrir þennan hóp sjúklinga. Þó svo þessar tekjur séu vissu- lega umtalsverðar og vaxandi er þjónusta við erlenda sjúklinga að meðaltali tíma- frekari og kostnaðarsamari en almennt gerist, vegna þeirrar umsýslu sem að ofan er lýst, og innheimta erfið og dýr. Gera má ráð fyrir að áhrif aukinnar aðsóknar erlendra ferðamanna á starfsemi annarra heilbrigðisstofnana séu svipuð og á Landspítala. Að sjálfsögðu er það keppi- kefli allra að veita sem besta þjónustu óháð því hvaðan sjúklingurinn kemur en huga þarf sérstaklega að ákveðnum þáttum (samanber hér að ofan) gagnvart þessum sjúklingahópi, ekki síst ef fjölgun ferða- manna heldur áfram á sömu braut. Tryggja verður að bæði heimamenn og hinir er- lendu gestir hafi áfram aðgang að góðri og öruggri þjónustu. Lykilatriði er að tryggja að þjónusta við erlenda ferðamenn standi undir sér og kalli ekki á niðurgreiðslu úr vasa skattgreiðenda. Ef vel er að málum staðið geta falist í þessu tækifæri fyrir veitendur þjónustunnar og aukið framboð á þjónustu fyrir heildina. María Heimisdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs, klínískur lektor HÍ mariahei@landspitali.is increasing tourism – a challenge for health care María Heimisdóttir MD, PhD, MbA Chief Finance and Information Executive Clinical Lecturer, Ass. Clinical Professor Landspitali - The National University Hospital of Iceland Aukin ferðamennska – áskorun í heilbrigðisþjónustu http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2015.09.39 Ein tafla á dag Varnar heilablóðfalli og segareki að lágmarki til jafns við warfarín Sambærileg blæðingarhætta og í meðferð með warfaríni en marktækt færri innankúpublæðingar og dauðsföll vegna blæðinga Að taka lyf einu sinni á dag við hjarta- og æðasjúkdómum eykur líkur á því að lyfið sé leyst út af sjúklingi eykur líkur á því að sjúklingur taki lyfið eykur líkur á því að lyfið sé tekið á réttum tíma samanborið við lyf sem taka þarf oftar ♦♦ ♦♦ ♦♦ Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto. 2. Patel MR et al. N Engl J Med 2011; 365:883-891. 3. Bae JP et al. Am J Manag Care 2012; 18:139-146. 4. Coleman CI et al. Curr Med Res Opin 2012; 28:669-680. Fyrsti beini hemillinn á storkuþátt Xa til inntöku 3 2 2 *1 4 4 L.IS.11.2014.0086 Öryggisupplýsingar: Eins og almennt gildir um segavarnarlyf og blóðflöguhemla verður að nota rivaroxaban með varúð hjá sjúklingum með aukna blæðingarhættu.1 Algengar aukaverkanir ( ≥1/100 til <1/10): Blæðingar: Í tannholdi, margúll, flekkblæðing, blóðnasir, blóðhósti, blæðing í auga, blæðingar í húð og undirhúð, blæðing eftir aðgerðir, blæðing í meltingarvegi, blæðing í þvag- og kynfærum. Aðrar: Blóðleysi, verkir í meltingarfærum og kvið, meltingartruflanir, ógleði, harðlífi, niðurgangur, uppköst, lágur blóðþrýstingur, kláði, útbrot, verkir í útlim, sundl, höfuðverkur, skert nýrnastarfsemi, hækkun á transamínasa, sótthiti, bjúgur í útlimum, skertur almennur styrkur og orka, marmyndun, rennsli úr sárum.1 Ekki er mælt með notkun Xarelto hjá sjúklingum með gervihjartalokur.1 *sem fyrirbyggjandi meðferð gegn heilablóðfalli og segareki hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif án lokusjúkdóms og einn eða fleiri áhættuþætti, svo sem hjartabilun, háþrýsting, aldur ≥ 75 ára, sykursýki, sögu um heilablóðfall eða skammvinnt blóðþurrðarkast1

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.