Læknablaðið - 01.09.2015, Blaðsíða 36
424 LÆKNAblaðið 2015/101
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
kvæmdir við endurbæturnar sem lagðar skulu
fyrir eigendur til samþykktar.
Unnin skal verklýsing um þessar fram-
kvæmdir, ásamt reikningum og skýrslu allt
samkvæmt reglum Húsfriðunarnefndar ríkis-
ins.“
Fyrst eftir undirskrift og glæsilegar
yfirlýsingar var mikill hugur í læknum
og hjúkrunarfræðingum. Hanna Rósa
Sveinsdóttir í Minjasafninu lagði mikið
af mörkum á þessum undirbúnings-
tímum. Af hálfu lækna er rétt að nefna
Ingvar Þóroddsson, Girish Hirlekar, Björn
Sigurðsson, og frá hjúkrunarfræðingum
komu Hallfríður Alfreðsdóttir, Anna Lísa
Baldursdóttir og Hólmfríður Kristjáns-
dóttir. Fleiri lögðu hönd á plóg, til dæmis
Ólafur H. Oddsson, Pedro Riba, Loftur
Magnússon, Brynjólfur Ingvarsson. Væri
vert að fara rækilega í gegnum alla þá
vinnu sem fór í fjáröflun, fundahöld, sam-
ráð við fagaðila í Reykjavík og á Akureyri,
hugmyndavinnu með handverkssnilling-
unum sem endurbyggðu húsið, Sverri Her-
mannssyni, Kristjáni Péturssyni og Snorra
Guðvarðarsyni. Ég gleymi einhverjum og
biðst velvirðingar á því.
Sem dæmi um einhug og áhuga lækna
má nefna fundargerð frá 1994, þar sem
formaður Læknafélaga Akureyrar gerir
grein fyrir óvæntum verkefnum við húsið
strax í byrjun og spyr „hvort einhverjir
félagar vildu ekki með eigin hendi hjálpa til
við endurbætur á því.“ Læknar brugðust vel
við og lögðu til dæmis talsverða vinnu
í að útvega hleðslusteina í undirstöður
hússins og einhverjir sýndu jafnvel tilþrif
við hleðslustörfin sjálf. Einnig kom fram
á sama fundi að fólk hafði þegar sett sig í
samband við LAk og spurst fyrir um hvort
félagið vildi ekki taka að sér varðveislu
muna sem þá voru í einkaeign.
Eftir mikla þolinmæðisvinnu var
loks komið að uppskeru: Viljayfirlýsing
um framtíðarstarfsemi Gamla spítalans
Gudmanns Minde á Akureyri var undir-
rituð 2009, sjá fylgiskjal í rafrænni útgáfu
greinarinnar.
Við opnunarathöfnina 2009 var vel
fagnað og fjölmiðlar gerðu deginum góð
skil.
Hanna Rósa Sveinsdóttir var einn af
ræðumönnum dagsins og rakti 15 ára
byggingarsögu í stórum dráttum. Þar kom
vel fram hve margt varð miklu flóknara og
dýrara í reynd en upphaflega var áætlað.
Fjármagn þurfti að sækja með ærinni
fyrirhöfn þar til tímamót urðu 2005 „með
samstilltu átaki og árlegum framlögum frá fjár-
laganefnd (í gegnum húsfriðunarnefnd) og frá
Akureyrarbæ. Hússtjórn Gamla spítala gerði
samning við Fasteignir Akureyrar árið 2006,
um að Fasteignir héldu utan um viðgerðir á
húsinu en hússtjórnin sæi um að útvega fjár-
veitingar til viðgerðanna. Sú skipan mála hefur
reynst farsæl og hafa Fasteignir Akureyrar
sinnt þessu verkefni af alúð sem ber að þakka”
eins og segir í Vikudegi 2009.
Eftir opnunina hafa læknar og hjúkr-
unarfræðingar notað húsið til fundahalda
á hverju ári, en sýningahald bíður enn
betri tíðar með blóm í haga. Það er
spurning hvert ætti að sækja hugmyndir
eða fyrirmyndir að þjónustu staðarins við
ferðamenn með svipuðu sniði og tíðkast
á fjöldamörgum stöðum erlendis. Eða
erum við Íslendingar orðnir svo uppteknir
af dægurmenningunni, að fortíðin og
sagan séu komin áleiðis á ruslahauginn?
Kannski fer þá eins fyrir Gudmanns
Minde og Nonnahúsi, að útlendingar hafi
framar öðrum áhuga á að líta þar inn og
anda að sér sögunni.
Hanna Rósa Sveinsdóttir afhenti Guðrúnu Heiðu, dóttur Kristjáns Péturssonar, mynd af þeim Kristjáni og Sverri
Hermannssyni fyrir framan Gamla spítala. Með myndinni fylgir áletrun þar sem segir að framlag þeirra Kristjáns og
Sverris sé ómetanlegt og verði aldrei fullþakkað.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
A
c
ta
v
is
4
1
2
1
2
1
Vaxandi
háþrýstingur?
Lerkanidipin Actavis
– Sértækur kalsíumgangaloki með aðalverkun á æðar
13
0/
90
12
0/
80
Virkt innihaldsefni: Hver 10 mg filmuhúðuð tafla inniheldur 10 mg af lerkanidipín hýdróklóríði, sem samsvarar 9,4 mg af lerkanidipíni. Hver 20 mg filmuhúðuð tafla inniheldur 20 mg af lerkanidipín
hýdróklóríði, sem samsvarar 18,8 mg af lerkanidipíni. Ábendingar: Lerkanidipin Actavis er ætlað til meðferðar við vægum til meðal háum háþrýstingi (essential hypertension). Skammtar og lyfjagjöf:
Til inntöku. Ráðlagður skammtur er 10 mg einu sinni á dag a.m.k. 15 mínútum fyrir mat. Auka má skammtinn upp í 20 mg eftir einstaklingsbundinni svörun hvers sjúklings. Skammtabreytingar ætti að gera
í skrefum þar sem liðið geta u.þ.b. 2 vikur þar til blóðþrýstingslækkandi áhrif lyfsins eru að fullu komin fram. Sumir einstaklingar, sem ekki tekst að stilla með fullnægjandi hætti með einu blóðþrýstings-
lækkandi lyfi, gætu haft gagn af því að bæta lerkanidipíni við meðferð með betablokka, þvagræsilyfi (hýdróklórtíazíði) eða angíótensín breytiensíma hemli. Þar sem svörunarferill skömmtunar er brattur
en stöðugur við skammtastærð milli 20 og 30 mg, er ólíklegt að verkun aukist við stærri skammta, en hætta er á auknum aukaverkunum. Aldraðir: Þó gögn um lyfjahvörf og klínísk reynsla bendi ekki til að
þörf sé á aðlögun skammtastærða ætti að gæta sérstakrar varúðar við upphaf meðferðar hjá öldruðum. Börn og unglingar: Ekki er mælt með notkun lerkanidipíns fyrir börn og unglinga yngri en 18 ára þar
sem ekki er nein klínísk reynsla af notkun þess hjá þeim. Skert starfsemi nýrna eða lifrar: Gæta þarf sérstakrar varúðar þegar meðferð sjúklinga með meðal til alvarlega nýrna- eða lifrarbilun er hafin. Þó
þessir sjúklingar þoli hugsanlega venjulegan ráðlagðan skammt, þarf að fara varlega við aukningu skammta í 20 mg á dag. Blóðþrýstingslækkandi áhrif geta verið meiri hjá sjúklingum með skerta
lifrarstarfsemi þannig að fyrir þá þarf að meta hvort aðlaga þurfi skammta. Ekki er mælt með lerkanidipíni fyrir sjúklinga með alvarlega lifrar- eða nýrnabilun
(kreatínín úthreinsun < 30 ml/mín.). Lyfjagjöf: Töflurnar ætti að taka með vatni a.m.k. 15 mínútum fyrir mat. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu, einhverju
díhýdrópyridíni eða einhverju hjálparefnanna. Hindrun á útflæði frá vinstri slegli. Ómeðhöndluð hjartaþröng (congestive cardiac failure). Óstöðug hjartaöng.
Minna en mánuður frá stíflufleyg í hjartavöðva. Alvarlega skert starfsemi nýrna eða lifrar. Samhliða notkun með: Sterkum CYP3A4 hemlum, ciclosporíni,
greipávaxtasafa. Meðganga og brjóstagjöf. Konur á barneignaaldri nema notaðar séu virkar getnaðarvarnir. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir,
varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Pakkningar og hámarksverð í smásölu (desember 2014): 10 mg,
28 stk.: 1.905 kr., 10 mg, 98 stk.: 3.550 kr., 20 mg, 98 stk.: 5.665 kr. Afgreiðsluflokkur: R. Greiðsluþátttaka: G. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf.
Frekari upplýsingar: www.actavis.is, s: 550 3300. Dagsetning nýjustu samantektar um eiginleika lyfsins: Desember 2014. Desember 2014.
10 mg og 20 mg filmuhúðaðar töflur.
14
0/
10
0
15
0/
110
Frá öldungadeild
Miðvikudaginn 7. október kl. 16 verðum við með fyrsta fræðslufundinn. Þá flytur dr. janus
Guðlaugsson, íþróttafræðingur, erindið „Farsæl öldrun og fjölþætt heilsurækt á efri árum“.
Síðan fylgir Steinunn jóhannesdóttir, rithöfundur, eftir með erindi um Hallgrím Pétursson
miðvikudaginn 4. nóvember. Erindið nefnir hún „Sá var fagur, sem það kunni smíða“.
Loks ljúkum við árinu miðvikudaginn 2. desember með því að dr. Gísli Már Gíslason, líffræðingur, sem
er okkur að góðu kunnur, flytur okkur sjálfvalið erindi sem við munum kynna síðar.
Eins og áður hittumst við kl. 15.30 til að rabba saman og fá okkur kaffi og vínarbrauð. Fundirnir eru
haldnir í húsakynnum Læknafélags Íslands að Hlíðasmára 8 í kópavogi.