Læknablaðið - 01.09.2015, Blaðsíða 32
420 LÆKNAblaðið 2015/101
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Fyrirtækið Stjörnu-Oddi framleiðir
mælitæki til rannsókna á fólki
Rannsókn á vörn við HIV-smiti
Hátæknifyrirtækið Stjörnu-Oddi hefur
um árabil sérhæft sig í framleiðslu
smárra en harðgerðra mælitækja til
ýmiss konar dýra- og umhverfisrann-
sókna. Nýlega var fyrirtækið fengið til
að framleiða hitamæla í sérstaka hringi
sem ætlaðir eru í leggöng kvenna sem
vörn við HIV-smiti. Þetta er í fyrsta sinn
sem Stjörnu-Oddi framleiðir mælitæki
til rannsókna á mönnum og er því nýtt
skref í starfsemi fyrirtækisins.
Ásgeir Bjarnason er þróunarstjóri Stjörnu-
Odda en hann stundaði nám í heilbrigðis-
verkfræði við Háskólann í Reykjavík og
síðan meistaranám í Finnlandi þar sem
hann sérhæfði sig í hönnun ígræðanlegra
mælitækja. Hann varð fyrir svörum þegar
blaðamaður heimsótti fyrirtækið í Garða-
bæinn á dögunum.
Hann sýnir mér hitamælinn sem ætl-
aður eru í HIV-hringina og segir að í raun-
inni sé þetta ekkert annað en hitamælir
en þó þannig gerður að hann skráir sjálf-
krafa hitastig á fyrirfram ákveðnum fresti.
„Þessi mælir er aðeins um eitt gramm en
getur vistað allt að 65.000 mælingar en
þá verður að taka hann og lesa af honum.
Hvern mæli er hægt að nota ótal sinnum.“
Nokkur hundruð rannsóknir
„Dýratilraunirnar sem við höfum fram-
leitt hitamæla í skiptast gróflega í tvennt.
Annars vegar eru rannsóknir á tilrauna-
stofum þar sem verið er þróa ýmis lyf
og bóluefni, sérstaklega við ýmiss konar
veirusýkingum. Ígræðanlegir hitamælar
frá okkur hafa verið notaðir um árabil við
slíkar rannsóknir með mjög góðum ár-
angri þar sem fylgst er með áhrifum bólu-
efnisins og sýkinga á líkamshita dýrsins.
Það má segja að það hafi leitt okkur inn í
þessa rannsókn á HIV-hringnum. Þessar
bóluefnarannsóknir eru yfirleitt mjög
stórar og það skiptir okkur miklu máli að
þegar rannsóknarniðurstöður eru birtar í
vísindatímaritum sé vísað til þess að hita-
mælarnir hafi verið frá okkur. Okkar hef-
ur verið getið í nokkur hundruð birtum
vísindagreinum um rannsóknir á land-
spendýrum og sjávardýrum og þannig
hefur okkar orðstír í vísindasamfélaginu
spurst jafnt og þétt út á undanförnum
árum og leitt okkur inn í hverja rann-
sóknina á fætur annarri. Það eru margir
á þessum markaði en það sem stóru aðil-
arnir eru að sækjast eftir er stöðugleiki í
framleiðslu og gæði tækjanna.
Þá höfum við líka framleitt mæla til
vistfræðirannsókna á dýrum, bæði í hafi
og á landi. Þá er þeim komið fyrir í villtum
dýrum og síðan fylgst með þeim í tiltekinn
tíma þar til tækið er tekið úr og lesið af
því.“
Aðspurður um hvort ekki sé mögulegt
að láta tækin senda upplýsingarnar
þráðlaust segir Ásgeir það vel mögulegt
en þá takmarki það stærðina, minnið, og í
flestum tilfellum henti betur að láta tækið
safna upplýsingunum fremur en að senda
þær jafnóðum.“
Ásgeir segir að vissulega séu ýmis
tæki í boði til rannsókna og mörg hver
mun ódýrari en þau sem Stjörnu-Oddi
framleiðir. „Við höfum ekki reynt að fara
í samkeppni við ódýrari vörurnar heldur
haldið okkur við framleiðslu á sérhæfðari
tækjum sem þola meira og eru öruggari
við alls kyns aðstæður. Það hefur leitt
okkur inn í ýmsar forvitnilegar rannsókn-
ir og verkefni en haldið okkur utan við
fjöldaframleiðslu sem Asíuþjóðirnar eru
hvort eð er miklu öflugri í en við. Dæmi
um sérhæft verkefni sem var sérstaklega
skemmtilegt var rannsókn í Japan á lífs-
ferli skógarbjarna. Við lögðum til bæði
hitamæla og hjartsláttarmæla í birnina
sem sýndu mjög stóra sveiflu eftir árs-
tímum. Það var aðeins einn vísindamaður
sem fylgdist með björnunum og hann
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Hitamælirinn sem settur
er í HIV-hringinn er
ekki stærri en raun ber
vitni.