Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.2015, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 01.09.2015, Blaðsíða 45
LÆKNAblaðið 2015/101 433 U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R Aleris i Norge søker hudlege og gynekolog Aleris er en av Nordens ledende aktører innen helse- og sykehusdrift, pleie og omsorgstjenester, psykiatri og barnevern. Konsernet har ca. 9000 ansatte i Norge, Sverige og Danmark. www.aleris.no Aleris Helse er i stor vekst og opplever økt etterspørsel. Vi søker flere dyktige spesialister i heltid eller deltid: • Hudlege (Trondheim) • Gynekolog (Bergen) Vi søker deg som ønsker å jobbe i et spennende fagmiljø med en kompetent legegruppe bestående av både allmennleger og spesialister. Vi tilbyr topp moderne utstyr. Du bør ha gode samarbeidsevner, engasjement for arbeidet og god serviceinnstilling. Vi tilbyr gode betingelser og faglige utfordringer i et dynamisk og godt arbeidsmiljø. Vi er behjelpelige med å skaffe bolig. Tiltredelse etter avtale. Søknadsfrist: Snarest Kontaktpersoner: Anne-Elin Hanebrekke (Bergen) tlf: +47 926 06 685 • anne-elin.hanebrekke @aleris.no Maja Mortensen (Trondheim) tlf: +47 911 71 018 • maja.mortensen @aleris.no Halldór Bjarki Einarsson, sérnámslæknir við heila- og taugaskurðdeild háskóla- sjúkrahússins í Árósum, varði þann 19. júní síðastliðinn doktorsritgerð sína í vefja- verkfræði. Ritgerðin heitir New Resorption Pathways in Polycaprolactone Degradation; roles of Mononuclear and Multinucleated Giant Cells. Þriggja manna doktorsmatsnefnd var skipuð háskólakennurum frá Danmörku, Hollandi og Bandaríkjunum, en formaður hennar var prófessor Thorsten Ingemann Hansen frá lýðheilsustofnun háskólans í Árósum. Andmælendur voru Dr. Marco Helder frá læknadeild Vrije-háskólans í Amsterdam og Stuart Goodman, prófessor í heilbrigðisverkfræði og bæklunarskurð- lækningum við Stanford-háskólasjúkra- húsið í Kaliforníu. Ritgerðin fjallar um ígræðslu plast- efnasambanda en megintilgáta vefjaverk- fræðinnar er sú að slík efnasambönd þjóni sem sniðmót fyrir enduruppbyggingu líffæra. Stofnfrumur á sniðmótinu sjálfu má virkja með frumuboðefnum sem getur leitt til sérhæfingar og enduruppbygg- ingar þess vefjar sem óskað er eftir að myndist. Í rannsókninni voru viðbrögð ónæmiskerfisins við ofangreindu efnasam- bandi rannsökuð. Hvatti það til samruna einkjörnunga og myndunar á fjölkjarna- frumum með átfrumueiginleika. Þessir eiginleikar gera frumunum kleift að brjóta niður efnasambandið. Hefst það með virkjun hins svokallaða komplementkerfis og opsónunar. Í kjölfarið á sér stað agnaát á þessari fjölliða sameind í líkingu við niðurbrot örveira sem skyldar átfrumur geta stuðlað að. Með rannsókninni var jafnframt sýnt fram á að samræktun T- fruma og átfruma, auk nýliðunar þeirra við sjálfan ígræðslustaðinn, efli niðurbrot sniðmótsins. Niðurstöðurnar benda þar með til þess að plastefnasambönd á borð við polycaprolactone geti valdið bæði ósérhæfðum og sérhæfðum ónæmisvið- brögðum. Í niðurlagi ritgerðarinnar er því vakin athygli á brýnni nauðsyn þróunar sniðmóts fyrir vefjanýmyndun með sam- rýmanleika vefja líkamans fyrir ígræðslu. Halldór lauk diplómaprófi á sviði frumulíffræði, með áherslu á samruna ein- kyrndra fruma, frá háskólanum í Árósum árið 2005 eftir árs dvöl á Yale í Banda- ríkjunum. Því næst hóf hann formlega doktorsnám í vefjaverkfræði í Danmörku samhliða læknanámi, en embættisprófi í læknisfræði lauk Halldór árið 2012 frá læknadeild háskólans í Árósum. Doktor í vefjaverkfræði

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.