Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Qupperneq 21
fimmtudagur 26. mars 2009 21Brúðkaup
Hvítar brúðartertur verða vinsælli
með hverju árinu, enda er hvíti litur-
inn táknrænn fyrir brúðkaupið. Sum-
ir kjósa þó að skreyta hvítar kökur með
skrauti í sterkum lit.
Súkkulaðikökur eru líka vinsæl-
ar en oft eru þær dulbúnar með hvítu
kremi.
Geómetrísk form, til dæmis fern-
ingar og sexhyrningar, eru vinsæl. Það
að raða til skiptis ferhyrndu og hring-
laga kökulagi er frumleg lausn. Lög-
unum er gjarnan staflað hverju ofan
á annað án þess að hafa súlur á milli,
en annars eru terturnar huldar með
sykurblómum, ferskum berjum eða
ávöxtum.
Það er þó enginn sem segir að
brúðartertur þurfi að vera hefðbundn-
ar. Yfirleitt sýnir það karakter og skap-
ar skemmtilega stemningu að gera
eitthvað óvænt. Brúðartertur mega al-
veg vera röndóttar. Eða í laginu eins og
ferðatöskur.
Brúðartertur eru jafnvel gerðar úr
stafla af litlum kökum, ávaxtabökum
eða múffum. Oft eru þá hjörtu eða
upphafsstafirnir í nöfnum brúðhjón-
anna settir ofan á hverja köku. Sum-
ir stafla jafnvel upp konfekti, hvítu og
brúnu, og enn aðrir litlum kaffibollum
með gómsætum eftirréttum, til dæmis
tíramisú – eða „skyramisú“.
Kannski getur bakarinn þrykkt
mynstur í kökuna sem fellur ykkur
í geð; jafnvel í stíl við útsauminn á
brúðarkjólnum eða blómin í vendin-
um. Stundum er fallegt mynstur prent-
að á þunnan ætan renning, eða upp-
hafsstafirnir í nöfnum brúðhjónanna.
Blóm eru líka fallegt og sígilt tertu-
skraut. Hægt er að nota alvörublóm,
sumir nota aðeins ekta blóm á topp-
inn, aðrir þekja heilu terturnar með
ekta blómum. Þá er einnig algengt að
búa til blómablöð úr marsípani.
Litlar styttur af brúðhjónunum eru
einnig áberandi. Sumir móta þær úr
leir en aðrir láta steypa þær úr súkku-
laði. Stundum eru postulínsstyttur
notaðar, jafnvel úr brúðkaupi foreldra.
Sykursvanir og súkkulaðihjörtu eru
líka vinsæl.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
n Samkvæmt hefðinni skera brúðhjónin saman fyrstu sneiðina
af brúðartertunni, það er brúðguminn leggur hönd sína yfir hönd
brúðarinnar um leið og hún sker.
n Ef um kransaköku er að ræða skipta brúðhjónin efsta hluta
kökunnar á milli sín.
n Best er að láta starfsfólk skera kökuna. Annars er hætta á að
hún klárist áður en allir gestirnir hafa fengið sneið en endi samt í
ruslinu.
n Miklu máli skiptir að velja brúðartertuna vel. Ef vel tekst til
gleður hún bæði auga og maga, sem skraut og eftirréttur. Mögu-
leikarnir eru endalausir, bæði hvað varðar útlit og innihald. Því
ættu brúðhjón alltaf að fá að sjá nokkur sýnishorn og smakka á
þeim áður en kakan er valin.
fullkomin terta
á fullkomnum degi
Vandasamt getur reynst að
finna réttu brúðartertuna.