Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2009, Page 28
Radisson SAS Hótel Saga býður verðandi brúðhjónum heildarlausn fyrir brúðkaupið.
Boðið er upp á veislur allt frá 20 manns til 350 manns í sæti. Bjarni Gunnar Kristinsson,
fyrirliði landsliðs matreiðslumanna, sér um veitingar í veislurnar en hann er yfir-
matreiðslumaður hótelsins. Mjög vinsælt er núna að bjóða í gestum í pinnahlað-
borð í veislusal og síðar fara brúðhjónin í kvöldverð á Grillið með nánustu ættingum.
Brúðhjón sem velja að halda veisluna á hótelinu fá 50% afslátt af brúðarsvítu brúð-
kaupsnóttina þar sem þeirra bíður kampavín og jarðarber, sloppar og notalegheit. Þar
geta þau dvalið fram eftir degi daginn eftir brúðkaupið.
Veislan, svítan og rómantískar stundir
Hótel Saga er flestum vel kunn
enda margrómað hótel, klassískt
og fallegt.
Þar hafa margar brúðkaupsveislur
verið haldnar og að sjálfsögðu
hefur svo rómantíkin tekið við hjá
brúðhjónunum á glæsilegum hót-
elsvítunum.