Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Blaðsíða 1
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 17. – 19. apríl 2009 dagblaðið vísir 62. tbl. – 99. árg. – verð kr. 548 KOSNINGAÁRÓÐUR n „traust efnahagsstjórn“, „efnahagsundur“ og fleiri sögulegar auglýsingar helgarBlaÐ n Var dapur MÁnuÐuM saMan n stöÐ 2 ViÐ sölVa: „ViÐ eruM óÁnÆgÐir“ n Missti stóra BróÐur í eldsVoÐa n fÉKK ógnanir frÁ ValdafólKi n óttinn ríKjandi Á stöÐ 2 sÚrt og sÆtt í lífi sölVa trYggVasonar : FYRIR VIÐTAL VIÐ GEIR„MÆliKVarÐinn Á stYrK Manna er eKKi hVe Vel þeir fela erfiÐleiKana eÐa BÆla þÁ niÐur heldur hVernig þeir Vinna Úr þeiM.“ M YN d s ig tr Yg g u r a ri J ó h a N N ss o N GRÉT Samfylkingarfólk veit að hægt er að gera mikið betur í menntamálum hér á landi. Sig- urður Kári Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, virð- ist hins vegar vera á öðru máli í grein sinni í Fréttablaðinu 3. maí sl. Þar lýsir hann því hvernig allt sé í fínu standi í menntamál- um á Íslandi og segir okkur vera þar í fremstu röð. Sigurður Kári skammast heilmikið út í undir- rituð fyrir að styðjast í gagnrýni okkar við gögn frá OECD, sem þó sérhæfir sig í að bera saman töl- fræði á milli landa. Við studdumst við nýjustu skýrslu OECD um menntamál (Education at a Glance) frá 2006. Þar sést að við stöndum illa í al- þjóðlegum samanburði á stöðu framhalds- og háskóla. Þenn- an samanburð vill Sjálfstæðis- flokkurinn ekki heyra. Flestar samanburðartölur OECD í þess- ari skýrslu eru frá árinu 2004 og gefa því góða mynd af stöðu menntamála. Frammistaða íslenskra stjórn- valda er að sjálfsögðu mæld í samanburði við önnur lönd. Vörn Sjálfstæðisflokksins virðist hins vegar felast í að vilja bera saman framlög mismunandi ára milli landa. Það gengur auðvit- að ekki að bera saman framlög- in til framhaldsskóla eins og þau voru á Íslandi árið 2007 við fram- lög til framhaldsskóla í Svíþjóð árið 2004. Það er lenska hjá Sjálfstæðis- flokknum að véfengja ætíð óhag- stæðan samanburð, hvort sem hann kemur frá OECD, Lands- sambandi eldri borgara, ASÍ eða öðrum aðilum. Í töflu B2.1c á bls. 207 í skýrslu OECD um opinber útgjöld til há- skólastigsins sést að Ísland er að verja 1,2% af landsframleiðslu en meðaltalið í OECD er 1,4%. Danir, Norðmenn og Finnar verja 1,8% og Svíar 1,5%. Ísland er í 21. sæti af 30 þjóðum. Í sömu töflu má sjá hverju önnur ríki verja til framhalds- skóla en samkvæmt upplýsinga- þjónustu Alþingis varði Ísland 1,3% til þeirra. Sá samanburð- ur sýnir að Ísland er í 16. sæti af 30 OECD-þjóðum. Sigurður Kári reynir ekki að hrekja þennan samanburð í grein sinni og minn- ist ekki á hann. 68% á aldursbilinu 25-34 ára hafa lokið framhaldsskólanámi en á hinum Norðurlöndunum er þetta 86-96% skv. töflu A1 2a á bls. 38. Meðaltalið í OECD er 77% og í ESB 78%. Við erum hér í 23. sæti af 30 þjóðum. 31% á aldrinum 25-34 ára hafa lokið háskólanámi hér en á hinum Norðurlöndunum er þetta hlutfall 35-42% skv. töflu A1.3a. á bls. 39. Hér er Ísland í 17. sæti af 30 þjóðum. Sigurður Kári rengir ekki þessa tölu. Sigurði Kára tekst því ekki að hrekja samanburðinn. Honum er bara illa við samanburðinn sjálf- an. Heimild sem hann vitnar sjálfur til í greininni styður mál okkar enn frekar. Samkvæmt töl- fræðiskýrslu norrænu Hagstof- unnar (Nordic Statistical Year- book 2006) sést að hlutfall fólks á aldrinum 15-74 sem hafði lokið námi á háskólastigi árið 2005 var 18,9% á Íslandi en 24,7% í Nor- egi, 23,3% í Svíþjóð, 22,2% í Dan- mörku og 26,5% í Finnlandi. Sigurður Kári heldur því fram að á þessu kjörtímabili hafi fjár- framlögin aukist svo mikið að samanburðurinn sé úreldur. Lítum því aðeins betur á hvað hefur gerst í þróun útgjalda til framhaldsskólanna frá árinu 2004. Á vef Hagstofunnar kemur fram að 2004-2005 hafi framlög til framhaldsskóla lækkað um 123,7 milljónir og hlutur fram- haldsskólans í landsframleiðsl- unni lækkað úr 1,41% í 1,33%. Á sama tíma fjölgaði skráðum nem- endum á framhaldsskólastigi um 873. Þá nemur niðurskurður til framhaldsskóla 2007, 650 milljón- ir króna. Það virtist koma stjórn- völdum á óvart að þeir einstakl- ingar sem fæddust í stórum ár- göngum 1989 og 1990 skiluðu sér í menntaskóla. Fjármagn hefur ekki fylgt þessari „óvæntu“ nem- endafjölgun. Loks hefur reiknilíkaninu sem nota á til að reikna út raunkostn- að á hvern nemanda í framhalds- skóla verið breytt þannig að nú er það notað til að dreifa niður- skurðinum. Sigurður Kári getur því ekki haldið því fram að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi tekið sig saman í andlitinu á kjörtímabilinu nema síður sé. En í samanburði á heildarút- gjöldum til menntamála komum við þó ágætlega út í skýrslu OECD. Sú staða er hins vegar til- komin vegna þess að við erum nálægt toppi þegar kemur að út- gjöldum til leik- og grunnskóla. Þau skólastig eru hins vegar rekin af sveitarfélögum en ekki ríkisvaldinu. Ríkisvaldið rekur framhalds- og háskólana þar sem við fáum hina alræmdu fallein- kunn. En það hafa verið jafnað- armenn í Reykjavík, Hafnarfirði og víðar sem hafa rekið flesta grunnskóla og leikskóla landsins undanfarinn áratug. Það er fjárfesting sveitarfé- laga í grunnskólum og leikskólum sem togar Ísland upp þegar litið er til heildarútgjalda til mennta- mála. Framlög ríkisvaldsins til framhalds- og háskólanna toga okkur hins vegar niður. Ísland er jafnframt hið eina af Norðurlöndunum sem ekki styrk- ir sína námsmenn heldur lánar þeim eingöngu. Sjálfstæðisflokk- urinn er búinn að stjórna mennta- málaráðuneytinu í 16 ár. Árang- urinn er falleinkun í menntamál- um. Við þessi orð stöndum við. Varnarleikur Sjálfstæðisflokks- ins er tilraun til sjónarspils, eins og ofangreindar staðreyndir sýna glögglega. Höfundar eru alþingismenn Samfylkingarinnar. Falleinkunn í menntamálum Höfundar þessarar greinar hafa sýnt með margvísleg- um hætti á liðnum misserum að hagur stórs hóps eldri borgara á Íslandi hefur ekki verið með þeim hætti sem skyldi. Lífeyris- þegar hafa dregist afturúr öðrum þjóðfélagshópum. Fernt hefur ráðið mestu um það. Í fyrsta lagi hefur sá hluti líf- eyris frá almannatryggingum sem flestir fá (grunnlífeyrir og tekjutrygging eins og hún var skilgreind til ársins 2006) ekki aukist jafn hratt og lágmarks- laun, meðaltekjur og hærri tekj- ur á vinnumarkaði. Í öðru lagi hafa tekjur úr flest- um lífeyrissjóðum fylgt verðlagi frá ári til árs en ekki kaupmátt- arþróuninni í samfélaginu. Vegna þeirrar kaupmáttaraukningar sem verið hefur frá 1995 hefur þessi þáttur lífeyristekna dregist afturúr tekjum á vinnumarkaði. Í þriðja lagi hafa skerðingará- kvæði vegna greiðslna frá Trygg- ingastofnun valdið því að ellilíf- eyrisþegi heldur minna eftir af tekjum sínum úr lífeyrissjóði en eðlilegt getur talist. Í fjórða lagi hefur skattbyrði lífeyrisþega og þeirra sem lægst- ar hafa tekjurnar aukist mun meira en hjá öðrum tekjuhópum. Það varð vegna rýrnunar skatt- leysismarka að raungildi. Lífeyr- isþegar hafa alla jafna lægri tekj- ur en fólk á vinnumarkaði og slík- ir hópar eru viðkvæmari fyrir raunlækkun skattleysismarkanna en fólk með hærri tekjur. Skatt- leysismörk eru nú 90.000 krónur á mánuði en ættu að vera hærri en 140.000 krónur ef þau hefðu haldið gildi sínu miðað við launa- vísitölu frá 1988. Ofangreind þróun hefur leitt til þess að hækkun kaupmáttar ráð- stöfunartekna dæmigerðs ellilíf- eyrisþega með t.d. um 53 þúsund krónur í tekjur úr lífeyrissjóði á mánuði og greiðslur almanna- trygginga, hefur verið mun minni en varð hjá meðaltekjufólki og hátekjufólki á síðasta áratug. Þannig hafa ráðstöfunartekj- ur hans hækkað um u.þ.b. 20% frá árinu 1995 á meðan hækkun- in er sögð yfir 60% fyrir heimil- in í landinu. Þegar þessi þróun er höfð í huga vekur furðu að stjórn- málaheimspeki- prófessor við Háskóla Íslands skuli halda því ítrekað fram, að kjör íslenskra lífeyrisþega séu betri en er hjá sambæri- legum hópum í grannríkjun- um. Það er gert með tilvísunum í talnaefni, m.a frá ráðuneyt- um, sem er ósambærilegt og vill- andi. Við höfum í fyrri grein bent á annað efni sem sýnir hið gagn- stæða, en í því voru notaðar sam- bærilegri reikniaðferðir. Fleira mætti tína til um það. Nýleg skoðanakönnun Gallup um mat einstaklinga á hvort kjör þeirra hafi batnað, staðið í stað eða versnað styður niðurstöður okkar fyllilega. Fólk finnur þessa þróun á eigin skinni. Mun færri í hópi eldri svarenda telja kjör sín hafa batnað á sl. 4 árum en er meðal þjóðarinnar alls og mun fleiri úr hópi eldri svarenda segja kjör sín hafa staðið í stað eða versnað. Þetta er afleitur vitnis- burður um misjafna kjaraþróun á góðæristíma í samfélaginu. Enginn skyldi því leggja trún- að á tal um að lífeyriskjör eldri borgara séu almennt betri hér á landi en í grannríkjunum. Það er væntanlega sagt til að fela ofan- greinda þróun lífeyriskjara og réttlæta áframhaldandi sinnu- leysi stjórnvalda um hag lífeyr- isþega. Einar Árnason er hagfræðing- ur Landssambands eldri borg- ara, Ólafur Ólafsson er formað- ur LEB og fyrrverandi landlækn- ir og Stefán Ólafsson er prófessor við Háskóla Íslands. Óviðunandi hagur Þegar öllu er á botninn hvolft er traust efnahagsstjórn stærsta velferðarmálið xd.is Nýir tímar - á traustum grunni Það hefur aldrei veriðbetra að búa á Íslandi KG fiskverkun á Rifi., sem Hjálm-ar Kristjánsson, stjórnarmaður í Vinnslustöðinni, fer fyrir, keypti hlutabréf í Vinnslustöðinni fyrir um 61,9 milljónir króna á þriðju-daginn. Kaupgengið var 8,3 krónur á hlut sem er langt umfram það til-boðsgengi sem ráðandi hluthafar , er vilja taka Vinnslustöðina yfir, bjóða í bréf annarra hluthafa. Það hljóðar upp á gengið 4,6.Hjálmar er bróðir Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims, sem hefur lýst því yfir að yfir-tökutilboðið sé of lágt. Saman eiga þeir feðgar, Guðmundur, Hjálm-ar og Kristján Guðmundsson, rúm þrjátíu prósent í Vinnslustöðinni.Að yfirtökutilboðinu standa Eyjamenn, félag sem m.a. er undir forystu Sigurgeirs B. Krist-geirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar. Miðað við 30 prósenta arðgreiðslu fyrir síðasta ár er kaupgengi KG fiskverkun-ar 70 prósentum yfir tilboði Eyja-manna. Kaupir langt yfir tilboðsgengi Orðrómur fór á kreik í gær að bresk-ástralska námu- og álfyrir-tækið BHP Biliton væri að undir-búa yfirtökutilboð í landa sinn og helsta keppinaut, Rio Tinto. Gengi bréfa beggja félaga hækkaði mikið, þó mest í Rio Tinto sem fór upp um 11 prósent í 99,69 dali á hlut í kaup-höllinni í Sydney í Ástralíu og hefur aldrei verið hærra. Talsmaður Rio Tinto vísaði orðrómnum á bug en Chris Lynch, forstjóri BHP, sagði félagið ætíð vera að skoða góða fjárfestinga-kosti. Greinendur sem breska ríkis-útvarpið ræddi við telja að yfir-tökutilboð í Rio Tinto, sem skilaði metafkomu í fyrra, verði vart undir 100 milljörðum dala, jafnvirði 6.426 milljarða íslenskra króna. Yfirtaka á Rio Tinto? Danski bjórframleiðandinn Carls-berg skilaði hagnaði upp á 45 millj-ónir danskra króna, jafnvirði 525,4 milljóna íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársins. Þetta er umtals-vert betri afkoma en í f a en þá skilaði fyrirtækið tapi upp á 219 milljónir danskra króna, eða rúma 2,5 milljarða íslenskra.Bjórsala jókst um 21 prósent á milli ára á tímabilinu. Aukning-in dreifist nokkuð enda minnkaði bjórsala í heimalandi Carlsberg og í Bretl ndi á meðan hún jókst talsvert í öðrum Evrópuríkjum ogRússlandi. Stjórnendur Carlsberg voru hæstánægðir með niðurstöðuna í gær og s gja horfur á árinu góðar. Bjórinn skil-ar hagnaði Sparisjóður Reykjavíkur og ná-grennis (SPRON) hagnaðist um 4,7 milljarða króna á fyrstu þrem-ur mánuðum ársins samanbor-ið við rúman 1,1 milljarð króna á sama tíma í fyrra. Þetta er 318 prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. Eigið fé sparisjóðsins nam 30,5 milljörðum króna í lok fjórðungs-ins en það er nokkur samdrátt-ur frá áramótum þegar það nam tæpum 34,8 milljörðum króna.Guðmundur Hauksson spari-sjóðsstjóri segir afkomuna góða enda sé þetta næstbesta uppgjör sparisjóðsins á einum fjórðungi í 75 ára sögu hans. Næstbesti fjórð-ungur SPRON 07 BANKALEYND HINDRAÐI RANNSÓKN Á LANDSBANKA BETRA LÍF Á ATVINNULEYSISBÓTUM n atVinnulaust foreldri hefur Meira Á Milli handanna en þaÐ seM Vinnur DÓTTIR BUBBA og hRAfnhIlDAR: STRíðnIR nemenDUR: FÓRU MEÐ HVAL Í SKÓLANN „hélt að það yrðu meiri læti“ n leiKstjóri drauMalandsins upplifir VonBrigÐi DÖGUN PARÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.