Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Blaðsíða 4
Íslenskir framhaldsskólanemendur geta verið ansi hugmyndaríkir þeg- ar það kemur að hrekkjum og þá sér- staklega í aðdraganda ýmissa keppna þeirra á milli. Þannig beið eins og hálfs metra hnísa, þyrlupallur og tug- ir vörubretta eftir nemendum Verzl- unarskóla Íslands þegar þeir mættu til náms í gærmorgun. Hrekkurinn er úr herbúðum Fjölbrautaskóla Suður- nesja en ræðulið hans mætir ræðu- liði Verzlunarskóla Íslands í úrslitum Morfís í Háskólabíói í kvöld, föstu- dagskvöld, klukkan átta. Þetta er í fyrsta skiptið í 36 ára sögu Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem hann tekur þátt í úrslitum Morf- ís en svokölluð „stríðsnefnd“ skól- ans tók forskot á sæluna í fyrrinótt og málaði meðal annars þyrlupall á bílastæði Verzlinga. Allt í gríni gert „Þetta var allt í gríni gert. Við höf- um aldrei áður náð í úrslit Morfís og því er stemningin í skólanum fyrir keppninni gríðarleg,“ segir formaður stríðsnefndar Nemendafélags Fjöl- brautaskóla Suðurnesja sem ekki vill koma fram undir nafni vegna hættu á að verða lögsóttur. „Við höfum fylgst með öðrum skólum sem hafa tekið þátt í úrslit- unum og oft á tíðum hafa þeir strítt hvor öðrum í aðdraganda keppn- innar. Við vildum að sjálfsögðu taka þátt í því og gáfum þeim þess vegna þessa fallegu hnísu sem ættuð er úr Faxaflóa. Alvöru hnísa handa alvöru fólki,“ segir formaðurinn og hlær. En hnísan var ekki það eina sem mætti Verzlingunum í gærmorgun heldur beið þeirra einnig einkenn- ismerki Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem var á stærð við lítið fjölbýlishús á bílastæði skólans. Einkennismerk- ið var búið til úr tugum vörubretta sem stríðsnefndin skrúfaði saman á bílastæði skólans um nóttina. Þyrlupallur við anddyrið Þá var einnig búið að mála risastór- an þyrlupall á bílastæðið fyrir framan anddyri Verzlunarskólans. Formaður stríðsnefndar NFS segir brandarann liggja í augum uppi. „Útrásarvíkingarnir í Verzló geta núna lent á þyrlunni sinni beint fyr- ir utan skólann á morgnana. Með tilkomu þyrlupallsins geta þeir lagt Range Rover-inum sínum enda er það ekkert kúl í dag að eiga Game Over,“ segir formaður stríðsnefndar- innar og hlær. Líffræðikennararnir sáttir Hafsteinn Gunnar Hauksson, forseti Nemendafélags Verzló og liðsmaður í Morfís-liði Verzlinga, segir í sam- tali við DV að nemendurnir hafi ekki beint átt von á þessu en að þetta hafi vakið mikla athygli. „Menn urðu svolítið sjokkerað- ir á þessu, við höfum lítið verið í hrekkjum fyrir keppni. Líffræðikenn- ararnir voru hins vegar mjög sáttir. Hnísan liggur núna inni í líffræði- stofu og verður rannsökuð,“ segir Hafsteinn Gunnar. Hrekkir, eins og þessi sem stríðs- nefnd NFS stóð fyrir, eru alþekkt- ir meðal framhaldsskólanema. Árið 2006 var til að mynda mjög eftir- minnilegt hvað hrekki varðar en þá áttust við Morfís-lið Menntaskól- ans í Reykjavík og lið Menntaskól- ans í Hamrahlíð. Mikið gekk á í þeim hrekkjum en nemendur MR mál- uðu meðal annars mann í hjólastól, líkt og um bílastæði fyrir fatlaða væri að ræða, á næstum því öll bílastæði Menntaskólans við Hamrahlíð. föstudagur 17. apríl 20094 Fréttir Sandkorn n Steingrímur J. Sigfússon spilaði út sinni stærstu kosn- ingabombu þegar hann sem sjávarút- vegsráðherra tilkynnti að smá- bátamenn mættu veiða kvótalaust við strönd- ina. Fjöldi atkvæða á landsbyggðinni mun skila sér til VG fyrir vikið. Jafnframt er ljóst að sægreifar landsins munu berja á Steingrími af hörku. Vandinn er sá að ekki er einfalt að veita kvótaflokkun- um styrki. n Raunhæfur möguleiki virð- ist nú á að Þráinn Bertelsson nái kjöri á Alþingi fyrir Borg- arahreyfinguna í Reykjavík norður. Þráinn fór líka mikinn á framboðsfundi sjónvarps- ins og bölvaði hinum spilltu valdaflokkum í sand og ösku, svo vart gekk hnífurinn milli hans og Ástþórs Magnússon- ar. Athyglisvert er að Þráinn hefur alveg snúið við blaðinu síðan í febrúar er hann reyndi af alefli að komast á þing fyrir Framsóknarflokkinn. Þá lof- aði hann og prísaði ríkisstjórn Samfylkingar og vinstri grænna á bloggsíðu sinni og bætti við: „Og allt þetta í boði Framsókn- arflokksins – sem er nú geng- inn í endurnýjun lífdaganna, kátur eins og lamb á vordegi.“ n Þráinn tilkynnti svo fram- boð sitt í efsta sæti Framsókn- ar í öðru Reykjavíkurkjördæm- anna. Upp úr miðjum febrúar kom babb í bátinn þegar flokk- urinn samþykkti að stilla upp á lista en ekki hafa prófkjör eins og Þráinn vildi. Þá sagðist hann ekki aðhyllast „pólitík reyk- fylltra bakherbergja“ og sagði sig úr Framsóknarflokknum. Hann gekk síðan til liðs við Borgarahreyfinguna og var að lokum valinn í efsta sæti fram- boðslista hennar í Reykjavík norður. Ekki var haldið prófkjör svo líklega var Þráinn valinn í framboðið í „reykfylltu bakber- bergi“ en hann hefur þó ekki séð ástæðu til að amast við því. Lýðveldishúfa kr 1.500.- Nóatúni 17 S: 534 3177 eða 820 7746 www.icefin.is HVAL RAK upp AÐ ANDDYRI VERZLÓ Nemendum Verzlunarskóla Íslands brá heldur betur í brún þegar þeir mættu til skóla á fimmtudagsmorgun. Eins og hálfs metra hnísa beið þeirra við anddyri skólans auk þess sem þyrlupallur hafði verið málaður á bílastæðið. Hrekkurinn tengist ræðukeppn- inni Morfís. Þar etja kappi Fjölbrautaskóli Suðurnesja og Verzlunarskóli Íslands. Hefð er fyrir hrekkjum skóla í milli í þeirri keppni. AtLi Már GyLfAson blaðamaður skrifar atli@dv.is „Menn urðu svolítið sjokkeraðir á þessu, við höf- um lítið verið í hrekkjum fyrir keppni. Líffræði- kennararnir voru hins vegar mjög sáttir.“ ræðulið fs Hnísan var hluti af hrekk sem stríðsnefnd Nemendafélags fjölbrautaskóla suðurnesja gerði í aðdraganda Morfís en þetta er í fyrsta skiptið í 36 ára sögu skólans sem lið á hans vegum kemst í úrslit Morfís. Hnísan Hnísa er hvalateg- und en ein slík tók á móti nemendum við Verzlunar- skóla íslands í gærmorgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.