Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Blaðsíða 34
föstudagur 17. apríl 200934 Helgarblað HIN HLIÐIN Lífið er megrun Nafn og aldur? „Jóhannes Haukur Jóhannesson, 29 ára.“ Atvinna? „Leikari.“ Hjúskaparstaða? „Í skráðri sambúð.“ Fjöldi barna? „Ein pínulítil stelpa.“ Hefur þú átt gæludýr? „Já, ég hef átt nokkra páfagauka og einn kött.“ Hvaða tónleika fórst þú á síðast? „Ég fór síðast á Rósenberg að hlusta á Kjart- an Arnald flytja eigið efni í bland við ábreið- ur. Hann var helvíti góður drengurinn.“ Hefur þú komist í kast við lögin? „Nei, það hef ég ekki gert og stefni ekki á það.“ Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju? „Það eru sennilegast Levi‘s-buxurnar mínar sem ég kaupi alltaf aftur og aftur. 506- eða 512-snið. Einfaldlega vegna þess að þær virka.“ Hefur þú farið í megrun? „Líf mitt er megrun, þetta er eilífðarbarátta.“ Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmæl- um? „Já, oftar en einu sinni. Maður verður að gera það ef manni er misboðið, þetta 101- lið með álpappír á hausnum má ekkert eiga einkarétt á þessu.“ Trúir þú á framhaldslíf? „Nei, það held ég að sé bara vitleysa. Við fáum bara einn séns.“ Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið upp á? „Ég skammast mín ekki fyrir að hafa haldið uppá neitt. Ég fíla Bítlana, Pink Floyd, 80‘s rokk, MeatLoaf og söngleikjatónlist.“ Hvaða lag kveikir í þér? „Annie‘s song með John Denver. Það er heitt!“ Til hvers hlakkar þú núna? „Ég hlakka til frumsýningarinnar á Söngva- seið sem er 9. maí. Það er svo gaman að æfa þennan söngleik og ég held að það verði enn skemmtilegra að leika í honum fyrir fullan sal af fólki.“ Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur? „The English Patient, þetta er tímalaust listaverk sem hægt er að njóta endalaust.“ Afrek vikunnar? „Fór á skíði í fyrsta sinn á ævinni í Odds- skarði. Ég veit ekki hvað fólk er að gera mál úr þessu, ég var kominn í fullorðins- brekkuna fyrir hádegi.“ Hefur þú látið spá fyrir þér? „Nei, ég trúi ekki á svoleiðis vitleysu.“ Spilar þú á hljóðfæri? „Já, ég spila á gítar og píanó. Þyki einnig liðtækur á lágfiðlu eða víólu en hef svo sem ekkert verið að nýta mér það í starfi.“ Viltu að Ísland gangi í Evrópusamband- ið? „Ég vil að Ísland skoði þann möguleika, já.“ Hvað er mikilvægast í lífinu? „Peningar, og nóg af þeim. Þeir geta nefnilega keypt hamingju. Ég hef séð það gert.“ Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja hella fullan og fara á trúnó með? „Ég nenni ekkert á fyllirí með þeim.“ Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta og af hverju? „Paul McCartney, bara af því hann er snillingur.“ Hefur þú ort ljóð? „Hefur páfinn lifað skírlífi?“ Nýlegt prakkarastrik? „Geri ekki svoleiðis.“ Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest? „Þú segir nokkuð, mér hefur ansi oft ver- ið líkt við Brendan Fraser (George of the jungle).“ Ertu með einhverja leynda hæfileika? „Ég reyni nú yfirleitt að trana fram öllu sem ég hef fram að færa en það yrði þá helst víóluleikurinn. Það vita fáir af því.“ Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi? „Nei, auðvitað ekki.“ Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn? „Heima, Súfistinn í Hafnarfirði, á leik- sviði, Akureyri, Hafnarfjörður og á Vatnajökli.“ Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa? „Kyssi stelpurnar mínar góða nótt.“ Hver er leið Íslands út úr kreppunni? „Olía!“ Jóhannes haukur Jóhannesson er einn af færustu leikurum landsins af yngri kynslóðinni og hefur gert það gott undanfarið. hann segir lífið vera eina megrun og nennir ekki á fyllirí með ráðamönnum. Jóhannes á pínu- litla stelpu og telur olíu vera leið íslands út úr kreppunni. mynd sigtryggur ari Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Oxy tarm Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla genginu. Oxy tarm Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama oxy tarmið Bæjarflöt 8E · 112 Reykjavík SÍMI: 567 4262 · GSM: 893 3236 FAX: 567 4267 · sagtaekni@sagtaekni.is www.sagtaekni.is STEYPUSÖGUN KJARNABORUN MÚRBROT Sími: 567 4262 sagtaekni@sagtaekni.is · www.sagtaekni.is Sími 565-4440 & 616-3078 smurning@smurning.is www.smurning.is Land Cruiser 100 -WW Bora - Mazda 2 Engin skipti 30 days Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla verðinu. 30 days Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.