Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2009, Blaðsíða 28
föstudagur 17. apríl 2009xx Sakamál Líkin í aLdingörðunum Juan Corona var sakfelldur fyrir morð á 25 farandverkamönnum. lík þeirra fundust í grunnum gröfum í aldingörðum ávaxtabúgarða í sutter-sýslu í Kaliforníu. Á þeim tíma var um að ræða hroðalegustu og alræmdustu raðmorð í sögu Bandaríkjanna og að sögn lögreglustjórans á staðnum var ekki útilokað að jafnvel fleiri lík hefðu verið grafin á svæðinu. lesið um Juan Vallejo Corona og líkin í aldingörðunum í næsta helgarblaði dV. Morðin í Kaliforníu Um áratugaskeið fannst fjöldi ungra karlmanna myrtur við hraðbrautir Kaliforníu. Líkin voru vel flest illa leikin vegna pyntinga og kynferðislegrar misnotkunar. Árið 1975 munaði litlu að morðinginn yrði handtek- inn en fyrir kaldhæðni örlaganna slapp hann fyrir horn. Á áttunda áratug síðustu ald- ar og á fyrstu árum þess níunda var framinn fjöldi morða í grennd við hraðbrautir Kaliforníu í Bandaríkjunum og sum fórnar- lambanna fundust í nágrannarík- inu Oregon. Fórnarlömbin voru ungir karl- menn og táningsdrengir sem höfðu flestir sætt pyntingum og verið kynferðislega misnotað- ir. Á sumum líkanna mátti sjá brunaför eftir sígarettukveikjara bifreiðar og ennfremur fannst í mörgum mikið magn áfengis og róandi lyfja og því ekki ólíklegt að fórnarlömbin hafi ekki verið í stakk búin til að veita mótspyrnu þegar þeim var misþyrmt. Morðaðferðirnar voru mis- munandi. Sumir höfðu verið kyrktir, sumir skotnir í höfuð- ið og aðrir drepnir með blöndu af pyntingum og lyfjagjöf. Mörg fórnarlambanna áttu það sam- eiginlegt að hafa verið í hernum, og höfðu verið á leið til eða frá herstöð sinni. Aðrir þeirra myrtu voru strokudrengir, puttalingar eða höfðu kynnst morðingjanum á krám samkynhneigðra. Vel gefinn barþjónn Randy Steven Kraft ólst upp í Kali- forníu og var talinn vel gefinn og námfús. Árið 1965 hóf hann störf sem barþjónn á bar fyrir sam- kynhneigða skammt frá heim- ili sínu. Um það leyti var eftir því tekið að hann var orðinn háður valíum sem hann tók vegna kvið- verkja og mígrenis. Árið 1968 út- skrifaðist hann úr hagfræði með BA-gráðu og sama ár gekk hann í flugher Bandaríkjanna. Kraft var staðsettur á Edwards-herflug- stöðinni í Los Angeles-sýslu. Árið 1969 sagði Kraft foreldrum sínum að hann væri samkynhneigður og fékk lausn úr hernum af „heilsu- farsástæðum“ sama ár. Í kjölfarið tók Kraft upp sitt gamla starf sem barþjónn. Síðla árs 1971 fann lögregl- an rotnandi lík Waynes Josephs Dukette, þrítugs samkynhneigðs barþjóns, við Ortega-hraðbraut- ina. Talið var að hann hefði lát- ist 20. september 1971 en engin augljós merki voru um að brögð hefðu verið í tafli. Fatnaður og eigur Dukettes fundust aldrei, en talið er að hann hafi verið fyrsta fórnarlamb Krafts. Kraft sleppur fyrir horn Litlu munaði að Kraft yrði hand- tekinn árið 1975. Þannig var mál með vexti að nítján ára strákur, Keith Daven Crotwell sem hafði gefið skólann upp á bátinn, fór frá Long Beach á puttanum 29. mars 1975. Mánuði síðar fannst höfuðið af Keith í smábátahöfninni á Long Beach og var ljóst að hann hafði ekki komist langt. Lögreglan leit- aði logandi ljósi á Long Beach að bílnum sem Keith hafði fengið far í og hafði árangur sem erfiði. Í ljós kom að bifreiðin var skráð á Randy Steven Kraft. Þegar lögreglan yfirheyrði Kraft 19. maí 1975 viðurkenndi hann að hafa gefið Keith far, en þeir hefðu bara ekið um í reiði- leysi. Kraft fullyrti að hann hefði skilað Keith af sér á lífi á kaffihúsi sem opið var allan sólarhringinn. Rannsóknarlögreglan mun hafa viljað leggja fram kæru á hendur Kraft en saksóknaraemb- ætti Los Angeles-sýslu hafnaði því og bar við að ekkert væri lík- ið og ekkert væri vitað um dánar- orsök. Átta árum síðar 14. maí 1983 stöðvaði lögreglan Kraft þar sem hann ók eftir San Díegó-hraðbrautinni. Kraft steig út úr bifreiðinni og hellti inni- haldi bjórflösku á götuna í leið- inni. Lögreglumaðurinn tók eft- ir því að gallabuxur Krafts voru óhnepptar. Kraft tókst ekki að framkvæma þau próf sem fyrir hann voru lögð til að meta hversu drukkinn hann væri og var því settur í járn og handtekinn fyrir ölvun við akstur. Þegar lögreglan athugaði bif- reið Krafts betur rak hún augu í mann í farþegasætinu aftur í bif- reiðinni, að hluta til hulinn jakka, og tómar bjórflöskur við fætur hans. Þar var um að ræða líkið af Terry Gambrel, tuttugu og fimm ára landgönguliða, og hafði hann verið kyrktur. Fjöldi annarra sönnunargagna fannst í bílnum, þeirra á meðal áfengi, róandi lyf og blóð sem ekki var úr Gambrel. Síðar fundust á heimili Krafts, sem hann deildi með vini, fatn- aður og fleiri eigur manna sem höfðu fundist látnir við hrað- brautir Kaliforníu síðastliðinn áratug og fjöldi ljósmynda af fórnarlömbunum, annaðhvort meðvitundarlausum eða dánum. Listi á dulmáli Einnig fann lögreglan lista á dul- máli með 61 tilvísun til fórnar- lamba Krafts, þar á meðal fjög- urra tvöfaldra morða, eða samtals 65 fórnarlamba. Ljóst er að í það minnsta eitt nafn vantar á listann; nafn Terrys Gramble, enda var Kraft handtekinn áður en hann fékk tækifæri til að færa Terry til bókar. Almennt telur lögreglan að Kraft hafi verið ábyrgur fyrir 67 morðum og jafnvel fleirum, en hann var að lokum ákærður fyrir sextán. Kraft lýsti yfir sakleysi sínu við réttarhöldin sem fram fóru 1988 en var sakfelldur fyrir öll ákæru- atriðin og dæmdur til dauða 29. nóvember 1989. Dauðadómur- inn var staðfestur af hæstarétti Kaliforníu 11. ágúst 2000. Af þeim 67 mönnum sem Kraft er grunaður um að hafa myrt hafa lík tuttugu og tveggja fórnarlamba aldrei fundist. Randy Steven Kraft bíður ör- laga sinna á dauðadeildinni í San Quentin-fangelsinu. umsJón: KolBeinn þorsteinsson, kolbeinn@dv.is Þegar lögreglan athugaði bifreið Krafts betur rak hún augun í mann í farþegasætinu aftur í bifreiðinni, að hluta til hulinn jakka, og tómar bjórflöskur við fætur hans. Randy Steven Kraft Bókfærði fórnarlömb sín á lista sem ritaður var á dulmáli. ... á Dalveg 16a Sími: 554 3430 Erum fluttir...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.