Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Síða 4
Fimmtudagur 30. apríl 200904 Fréttir
Sandkorn
n Eitt af síðustu afreksverkum
Björns Bjarnasonar, fyrrver-
andi dómsmálaráðherra, var
að veita
Rúnari
Þór Ró-
bertssyni,
meintum
höfuðpaur í
nýja skútu-
málinu,
gjafsókn
vegna um-
fjöllunar
DV um annað smyglmál þar
sem Rúnar slapp undan rétt-
vísinni. Nú er gjafsóknarþegi
Björns í varðhaldi grunaður
um að vera höfuðpaur. Það er
auðvitað fráleitt að halda að
Björn hafi sýnt þetta örlæti
vegna óvildar sinnar í garð
DV.
n Guðlaugur Þór Þórðarson
alþingismaður þarf í kjölfar
útstrikana að sleppa oddvita-
sæti sínu
í Reykja-
vík suður.
Ljóst þykir
af hinum
fjölmörgu
útstrik-
unum að
innan hans
eigin flokks
hafi verið
áróður fyrir því að strika hann
út. Meðal grjótharðra óvina
Guðlaugs Þórs eru þeir sem
kenndir eru við náhirð Davíðs
Oddssonar. Það er skilningur
stuðningsmanna þingmanns-
ins að styrkjamálið eitt hafi
ekki valdið útstrikunum held-
ur hafi útsendarar náhirðar-
innar verið á fullri ferð.
n Meðal rótgróinna þing-
manna sem féllu af þingi er
Sigurður Kári Kristjánsson.
Hann er
lögfræð-
ingur að
mennt og
má búast
við að hann
snúi aftur í
þann geira
þar sem
fjárnám og
gjaldþrot
eru gullnáma fyrir lögfræð-
inga. Samflokksmaður Sig-
urðar Kára, Árni Mathiesen,
fyrrverandi fjármálaráðherra,
er dýralæknir að mennt. Það
er viðbúið að hann snúi aftur
til þeirra starfa nema ríkið
leggi honum til gjöfult starf í
stjórnsýslunni.
n Styrkjamálið var fyrirferð-
armikið í umræðunni fyrir
kosningar og þá ekki síst þeg-
ar DV birti nöfn þeirra sem
Baugur styrkti árið 2006. Þar
vakti sérstaka athygli að Jó-
hanna Sigurðardóttir var á
meðal þeirra sem fengu aur.
Upphæðin var þó lág eða
aðeins 200 þúsund og ekk-
ert óeðlilegt við þann styrk.
Hins vegar bíða
menn þess
spenntir
að önn-
ur stór-
fyrirtæki
opni bæk-
ur sínar.
Kaupþing
hafði til
dæmis orð á
sér fyrir sér-
stakt örlæti
og að láta
mun meira
af hendi
rakna en
Baugur.
Fjárfestingabankinn Straumur-Burðarás vill setja Magnús Þorsteinsson í gjaldþrot
vegna vanefnda. Magnús skrifaði upp á lán frá Straumi fyrir þriðja aðila sem ekki
hefur staðið í skilum. Munnlegur málflutningur í málinu hefst í dag í Héraðsdómi
Norðurlands eystra á Akureyri. Magnús keypti Landsbankann ásamt Björgólfi Guð-
mundssyni og syni hans Björgólfi Thor, stærsta eiganda Straums. Málið barst héraðs-
dómi áður en Straumur var tekinn yfir af ríkinu.
STRAUMUR VILL
MAGNÚS Í ÞROT
Fjárfestingabankinn Straumur-
Burðarás vill gera Magnús Þorsteins-
son, framkvæmdastjóra og einn af
meðlimum Samson-hópsins, gjald-
þrota vegna vanefnda. Beiðni um
að bú Magnúsar verði tekið til gjald-
þrotaskipta hefur verið lögð fram í
héraðsdómi Norðurlands eystra á
Akureyri. Fyrirtaka í málinu átti að
hefjast fyrir dómnum í gær en var
frestað þar til í dag þegar munnlegur
málflutningur fer fram.
Krafan er lögð fram vegna þess að
fyrir nokkrum árum skrifaði Magn-
ús upp á lán frá Straumi fyrir þriðja
aðila. Þessi aðili hefur ekki staðið í
skilum við Straum með afborganir af
láninu og er málflutningurinn byggð-
ur á því að ábyrgðin fyrir kröfunni eigi
því að falla á Magnús. Ágreiningur er
hins vegar uppi um hvort ábyrgðin
fyrir kröfunni eigi að falla á Magnús
eða ekki og mun verjandi hans mót-
mæla því, samkvæmt heimildum.
Ekki liggur ljóst fyrir hvern Magn-
ús skrifaði upp á þegar hann gekkst
í ábyrgð fyrir láninu, skuldin er einn
og hálfur milljarður króna. Mun það
koma nokkuð við fjárhag Magnúsar
ef hann þarf að standa skil á því.
Banki Björgólfs Thors
sækir að Magnúsi
Magnús Þorsteinsson varð þjóðkunn-
ur maður þegar hann keypti kjöl-
festuhlut í Landsbankanum ásamt
Björgólfi Guðmundssyni og syni
hans, Björgólfi Thor Björgólfssyni,
árið 2002 en þeir mynduðu Samson-
hópinn svokallaða. Þeir höfðu áður
rekið saman bruggverksmiðjuna Bra-
vo í Rússlandi sem þeir seldu síðan til
Heineken fyrir um 400 milljónir doll-
ara árið 2002.
Björgólfur Thor var stærsti ein-
staki hluthafi Straums-Burðaráss
þegar Fjármálaeftirlitið tók bankann
yfir 9. mars. Skilanefnd hefur nú verið
sett yfir bankann og hefur meirihluta
starfsmanna hans verið sagt upp.
Krafan um að bú Magnúsar yrði
tekið til gjaldþrotaskipta var hins veg-
ar komin inn á borð til héraðsdóms í
byrjun mars, áður en bankinn var yf-
irtekinn. Ljóst er því að gjaldþrota-
beiðnin á hendur Magnúsi var send
frá Straumi á meðan Björgólfur Thor
var ennþá ráðandi aðili í bankanum,
þó að ekki sé ljóst hvort hann hafi vit-
að af því eða ekki. Viðskiptasamband
Björgólfs Thors og Magnúsar mun
hins vegar, samkvæmt heimildum,
hafa súrnað nokkuð á liðnum árum.
Magnús afar ósáttur
Samkvæmt heimildum DV gekk
Magnús ekki í ábyrgð fyrir einn af
útrásarvíkingunum svokölluðu þeg-
ar hann skrifaði upp á lánið og ekki
heldur fyrir félag tengt Björgólfi Thor
sjálfum. Um var að ræða ábyrgð fyr-
ir félag í eigu annars viðskiptafélaga
Magnúsar, samkvæmt heimildum.
Magnús mun vera afar ósáttur við
að krafan hafi fallið á hann og hef-
ur þráast við að greiða ábyrgðirn-
ar vegna vanskilanna. Þess vegna
er málið nú komið í þann farveg að
Straumur vill sækja kröfuna með því
að ganga að búi Magnúsar.
DV náði hvorki tali af Magnúsi
við vinnslu þessarar fréttar né af lög-
manni hans, Benedikt Ólafssyni. Lög-
maður Straums, Gísli G. Hall, vildi
ekki tjá sig um málið þegar DV hafði
samband við hann.
Krafan um gjaldþrotaskipti verð-
ur tekin fyrir í dag og er líklegt að hér-
aðsdómur muni kveða upp úrskurð
um hvort gengið verði að búi Magn-
úsar eða ekki fljótlega eftir helgi.
InGI F. VIlhjálMsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Ljóst er því að gjald-
þrotabeiðnin á hendur
Magnúsi var send frá
Straumi á meðan Björ-
gólfur Thor var ennþá
ráðandi aðili í bankan-
um.“
Frá Bravo til beiðni um gjaldþrota-
skipti Björgólfur thor Björgólfsson var
stærsti einstaki eigandi Straums þar til
bankinn var yfirtekinn en hann keypti einn-
ig landsbankann árið 2002 ásamt Björgólfi
föður sínum og magnúsi Þorsteinssyni
sem sjást hér saman. Straumur sækir nú að
magnúsi vegna vanefnda og vill að bú hans
verði tekið til gjaldþrotaskipta.
Magnús afar ósáttur Beiðnin
um að bú magnúsar Þorsteins-
sonar yrði tekið til gjaldþrota-
skipta barst frá Straumi áður en
Fjármálaeftirlitið yfirtók bankann
9. mars. magnús mun vera afar
ósáttur við gjaldþrotabeiðnina.