Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Page 12
Fimmtudagur 30. apríl 200912 Helgarblað Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sá ástæðu til þess að biðja fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis fyrirgefn- ingar í setningarræðu við upphaf Prestastefnu Íslands. Karl segir fyrirgefninguna vera almenna og útilokar ekki að einstaka fórnarlömb verði beðin fyrirgefningar seinna meir. Karl segir kirkjunnar starfsmenn vera fólk eins og annað fólk. Þau mál sem borið hefur hæst síðustu ár beindust gegn Ólafi Skúlasyni biskupi og Gunnari Björnssyni, sóknarpresti á Selfossi. FYRIRGEFNING SYNDANNA „Ég bið þær konur og börn, sem brot- ið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar á þeirri þjáningu og sársauka sem þau hafa liðið,“ sagði Karl Sigurbjörns- son, biskup Íslands, í setningarræðu sinni við upphaf Prestastefnu Íslands í Kópavogskirkju á þriðjudagskvöld. Sagði biskup ennfremur að Kirkju- þing hefði sett starfsreglur um með- ferð kynferðisbrotamála í kirkjunni. „Settar hafa verið siðareglur og heilræði fyrir starfsfólk í barna- og æskulýðsstarfi. Við verðum að taka mark á þessu og fylgja eftir í starfi kirkjunnar. Þessa dagana er verið að ljúka gerð bæklings sem unninn er af starfshópi á vegum Þjóðkirkjunnar og annarra kristinna trúfélaga sem vill leggja sitt af mörkum til að vinna gegn ofbeldi í hvaða mynd sem er, sem sagt kynferðisáreitni og mis- notkun.“ Vonar að sár muni læknast Karl segir í samtali við DV að fyrir- gefningin sé almenn en útilokar ekki að einstaka aðilar verði beðnir fyrir- gefningar persónulega af hálfu kirkj- unnar. „Þá er það þegar og ef. En ég tek það skýrt fram að þetta er almenn yf- irlýsing og þetta snertir ekki einstaka atvik. Ég er ekki í þeirri stöðu þarna að taka á sérstökum málum sem fyrir liggja. Ég er að vísa til bæði mála sem hafa verið í hámæli og til reynslu sem fólk hefur talað um stundum mörgum árum síðar þar sem farið hefur verið yfir mörkin. Ég er að vísa til þessara sára, þjáningar og sárs- auka sem er þarna úti sem í raun ýf- ist upp og hefur aldrei fengið neina sérstaka úrlausn. Ég er bara að orða það. Ég bið þess og vona að þessi sár muni læknast. Ég tala við presta og djákna og kirkju fólksins og það er fyrir þeirra hönd sem ég ber þetta fram en ég er ekki með nein sérstök dæmi í huga. Ég er ekki að dæma í sérstökum, til- teknum málum. Ég er bara að vísa til þess að það eru ýmsir sem bera sár og finna til þeirrar þjáningar sem hefur kannski aldrei verið tekið á. Eins og er alls staðar í okkar samfé- lagi eru kirkjunnar starfsmenn upp til hópa fólk eins og annað fólk.“ Kynbundið ofbeldi er samfélagsvá Karl telur að kynferðisbrot verði ekki aðeins gerð upp með lögum og reglum heldur líka með hjálp trúarinnar. „Heimilisofbeldi og kynbundið of- beldi er samfélagsmein á Íslandi í dag. Kirkjan hefur markað stefnu um virka andstöðu gegn kynbundnu ofbeldi í samfélaginu. Hún hefur markað stefnu bæði innan sinna vébanda í kirkjunni og líka í samfélagi við alþjóðakirkju- stofnanir sem við erum þátttakendur í. Það er mikilvægt að við fylgjum því eftir og tökum það alvarlega og látum þau skilaboð hljóma í samfélaginu. Öll umræða um slíka hluti verður til þess að ýfa upp sárar minningar um brot og margt af því verður ekki gert upp með þeim verkfærum sem samfélag- ið leggur til með lögum sínum og regl- um, siðareglum og dómstólum heldur með þeim verkfærum sem trúin bend- ir okkur á. Það er að tala um hlutina, iðrunin, fyrirgefningin sem til þarf. Það er vegur trúar, vonar og kærleika. Að því þurfum við að stuðla. Það sem ég er fyrst og fremst að vísa til er að okkar stefnumörkun í þessum málum er alveg skýr og kirkjan vill ekki líða slíka framkomu. Hún vill vinna að því og taka undir með þeim í okkar samfélagi sem vilja vinna gegn þess- ari samfélagsvá sem margvíslegt kyn- bundið ofbeldi er. Við eigum að taka það alvarlega. Þetta eru ekki bara ein- hver pappírsgögn þessar stefnumark- anir kirkjunnar. Þetta á að hafa áhrif á okkar persónulegu afstöðu og hvernig við vinnum úr málum þegar þau koma upp í framtíðinni.“ Sakaður um nauðgunartilraun Nokkur tilfelli hafa komið upp síð- ustu ár þar sem starfsmenn kirkj- unnar hafa verið sakaðir um kyn- ferðislega áreitni. Árið 1996 sakaði Sigrún Pálína Ingvarsdóttir séra Ólaf Skúlason, þá- verandi biskup, um nauðgunartil- raun. Mál Sigrúnar vakti mikla at- hygli á Íslandi og í kjölfar ásakana hennar gáfu aðrar konu sig fram og sökuðu biskup um kynferðislega áreitni. Öll málin voru frá þeim tíma þegar Ólafur var prestur. Biskup kærði málið til saksókn- ara og sagði sakaráburð nafn- greindra og ónafngreindra aðila vega að friðhelgi einkalífs hans og æru með ólögmætum hætti. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér á þessum tíma sagði að ráða mætti af ummælum í fjölmiðl- um að markmiðið með þess- um röngu sakargiftum væri að þvinga hann til að segja sig frá biskupsembættinu. Ríkissaksóknari vísaði mál- inu frá þar sem hann taldi ekki efni fyrir hendi til að ákæru- valdið aðhefðist neitt í máli kvenn- anna sem biskup kærði. Skömmu áður en saksóknari tilkynnti þessa niðurstöðu ákvað biskup að aftur- kalla kröfu sína. Biskupinn er sekur Í viðtali við Helg- lilja Katrín GunnarSdÓttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is Baðst fyrirgefningar Karl bað fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis fyrirgefningar við upphaf prestastefnu íslands og segir kynbundið ofbeldi samfélagsmein á íslandi. Sýknaður Séra gunnar var sýknaður fyrir skemmstu af ákærum um kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum. „Eins og er alls staðar í okkar samfélagi eru kirkjunnar starfsmenn upp til hópa fólk eins og annað fólk.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.