Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Síða 13
Fimmtudagur 30. apríl 2009 13Helgarblað
FYRIRGEFNING SYNDANNA
arpóstinn 30. maí árið 1996 lýsti Sig-
rún Pálína yfir vonbrigðum sínum
við þessari niðurstöðu og sagðist
standa við að biskup væri sekur.
„Ég er ekki sátt við þessi málalok,
þar sem engin niðurstaða fékkst. Það
segir þó sína sögu að ríkissaksóknari
skuli ekki telja ástæðu til málshöfð-
unar gagnvart okkur fyrir að hafa
borið biskup röngum sökum. Bendir
það til þess að biskup sé saklaus? Mér
sýnist að ef ég hefði komið fram með
þetta mál
áður
en
það var fyrnt hefði ég jafnvel getað
unnið það, því ég stend við það að
biskupinn er sekur. Við rannsókn
RLR komu fram vitni sem höfðu
sömu sögu að segja af samskiptum
við biskup og við. En það hlýtur að
vera óviðunandi, bæði fyrir presta
landsins og okkur sem tilheyrum
Þjóðkirkjunni, að biskup sitji áfram
í embætti eftir það sem á undan er
gengið,“ sagði Sigrún Pálína í við-
talinu.
Valdníðsla
Sigrún Pálína tók málið fyrst upp
tveimur árum áður. Þá talaði hún
við séra Pálma Matthíasson og
árið eftir við séra Vigfús Þór
Árnason. Hún bað prestana
tvo að taka málið upp inn-
an kirkjunnar en hvorugur
hafðist að í málinu.
„Í upphafi lagði ég ekki
fram kæru á hendur bisk-
upi heldur erindi til siða-
nefndar Prestafélagsins.
Framganga biskups í mál-
inu varð hins vegar til
þess að ég fór að sækja
málið með ákveðn-
ari hætti. Eg sé ekki eftir
að hafa farið af stað með
þetta mál þótt niðurstaðan
valdi mér vonbrigðum. Ég
var svo barnaleg að halda að
siðanefnd Prestafélagsins tæki
virkilega á málinu og liti það
alvarlegum augum. Tilgang-
ur minn var að losa mig við
þessa vitneskju og
hræðslu um
að aðrar
konur ættu eftir að lenda í því sama
og ég. En þegar málið snýst upp í það
að Ólafur Skúlason fer að hóta mér,
eins hann gerði á sáttafundi í Graf-
arvogskirkju, varð ekki aftur snúið.
Þetta mál er löngu hætt að snúast um
mig og biskup. Það snýst um vald og
valdníðslu og réttarkerfið í landinu,“
sagði Sigrún Pálína í viðtali við Helg-
arpóstinn 30. maí árið 1996.
„Neytir aflsmunar“
Sigrún Pálína og tvær aðrar kon-
ur sögðu sögu sína í helgarblaði DV
í byrjun mars þetta ár. Þar lýsti Sig-
rún Pálína fundi sínum við séra Ólaf
í Bústaðakirkju að kvöldi vegna þess
að séra Ólafur sagðist ekki geta hitt
hana á öðrum tíma, að sögn Sigrún-
ar.
„Ég kalla þetta tilraun til nauðg-
unar. Þegar viðkomandi neytir afls-
munar til að koma fram vilja sínum
og fórnarlambið þarf að beita afli til
að komast undan er farið yfir mörk-
in á milli kynferðislegrar áreitni og
nauðgunartilraunar,“ sagði Sigrún í
viðtalinu. „Ég komst út úr kirkjunni,
fór heim og brotnaði alveg niður. Ég
skalf og grét alla nóttina. Ég sagði
mínum nánustu frá þessu en það
var alls staðar sama svarið. „Þú getur
ekkert gert, þetta er orð á móti orði.“
Á þessum tíma voru engin Stígamót
og þessi umræða ekki byrjuð nema
að mjög litlu leyti. Eðli atburðarins
og hversu alvarlegur hann var gerði
það að verkum að ég gat ekki fundið
sökina hjá mér þrátt fyrir að ég færi
strax að leita að henni eins og fórn-
arlömb reyna jafnan að gera.“
Önnur kona sagði frá því að séra
Ólafur hefði leitað á hana í Kaup-
mannahöfn 1979. Þá hefði hún
búið þar ásamt eiginmanni sínum
og séra Ólafur viljað hitta þau en
hann var þá í borginni á presta-
þingi. Þriðja konan sagðist hafa
orðið fyrir áreitni séra Ólafs þeg-
ar hún var tólf ára.
Nokkru áður en konurnar
þrjár komu fram í DV birtist frétt
í blaðinu þar sem greint var frá
að þrjár konur hittust reglulega
hjá Stígamótum vegna fyrri
samskipta sinna við biskup
og að starfskona samtakanna
vissi af fleiri konum en vildi
ekki greina nánar frá málum
þeirra.
Tveir biskupar í
málinu
Einn þeirra sem
tengdust inn í
mál kvenn-
anna gegn
séra Ól-
afi
biskupi á sínum tíma var séra Karl
Sigurbjörnsson, þá prestur og nú
biskup. Samkvæmt frétt DV 6. mars
1996 beittu tveir prestar, þeir Hjálmar
Jónsson, sem þá var þingmaður en er
nú sóknarprestur dómkirkjunnar, og
Karl, núverandi biskup, áhrifum sín-
um til að fá konurnar sem ásökuðu
Ólaf biskup um kynferðislega áreitni
til að falla frá málum sínum. Í frétt-
inni segir meðal annars að prestarn-
ir tveir hafi átt tíða fundi með kon-
unum og að í kjölfar þeirra hafi ein
kvennanna dregið mál sitt til baka.
„Munu prestarnir meðal annars hafa
lagt mikla áherslu á kostnaðinn sem
því fylgi að standa í málarekstri gegn
biskupi,“ segir í fréttinni.
Séra Karl vildi ekkert tjá sig um
þetta á þeim tíma en ónafngreind-
ur prestur sem DV ræddi við á þeim
tíma sagði að miklu „handafli“ hefði
verið beitt af hálfu biskupsmanna til
að þagga það niður.
Gefðu mér nú kraft
Á síðasta ári kærðu tvær unglings-
stúlkur séra Gunnar Björnsson,
sóknarprest á Selfossi, fyrir kynferð-
islega áreitni og brot á blygðunar-
semi. Stúlkurnar voru sóknarbörn
hans þegar meint brott áttu að eiga
sér stað. Önnur stúlkan fór fram á
tvær milljónir króna í skaðabætur og
hin sex hundruð þúsund krónur.
Héraðsdómur Suðurlands sýkn-
aði Gunnar.
Séra Gunnar sagði við DV í lok
apríl að ásakanir stúlknanna
væru einn stór misskilningur,
að hann hefði aðeins sýnt
stúlkunum hlýju en ekki
áreitt þær á nokkurn hátt.
Þetta staðfesti dómari en
hafi látið orðin: „Gefðu
mér nú kraft A mín“ falla
er hann faðmaði stúlkuna,
hann hafi einungis ekki
verið alveg hress. Í skýrslu
sagði stúlkan að Gunnar
hafi látið þau orð falla að
straumarnir streymdu úr lík-
ama hans við það að
faðma hana.
Sigurður Þ.
Jónsson, þá-
verandi
lög-
maður séra Gunnars, sagði í samtali
við DV í maí að umbjóðandi hans
væri algjörlega saklaus. „Þetta er nú
bara það sem sums staðar hefðu ver-
ið talin afar eðlileg samskipti. Þannig
sé ég þetta eftir að hafa skoðað málið
vandlega,“ sagði Sigurður í maí á síð-
asta ári.
Leitaði á drengi í KFUM og K
Ágúst Magnússon var dæmdur í
fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
gegn sex drengjum og losnaði út af
Litla-Hrauni snemma á síðasta ári.
Þegar Ágúst var nýlega laus úr fang-
elsi fékk hann leyfi fangelsismála-
yfirvalda til að flytja til Uppsala í Sví-
þjóð þar sem hann ætlaði að stunda
nám í biblíuskóla. Ágústi var neitað
um skólavist eftir kvartanir foreldra
barna í skólanum um að dæmdur
barnaníðingur myndi sækja skól-
ann.
Ágúst ólst upp í Grýtubakka og var
í Breiðholtsskóla á sínum yngri árum.
Samkvæmt heimildum DV tók hann
að sér vinnu í æskulýðsstarfi kirkj-
unnar, KFUM og K, í Bakkahverfinu
sem unglingur og las sögur fyrir ungt
fólk. Þar lentu einhverjir drengir í því
að Ágúst leitaði á þá. Málið vakti usla
í hverfinu en var aldrei kært til lög-
reglu.
Alræmdur barnaníðingur Ágúst
tók að sér að lesa sögur fyrir ungt
fólk í KFum og K á sínum yngri
árum og leitaði þar á unga drengi.
Fyrsta fréttin lítil frétt á innsíðu í
dV 15. febrúar 1996 markaði upp-
hafið að umfjöllun um mál nokkurra
kvenna gegn þáverandi biskupi.
Sver af sér sakir Séra
Ólafur Skúlason biskup sagði
ekkert til í ásökununum.
Stigu fram Þrjár konur
sem sakað höfðu biskup
um áreiti og tilraun til
nauðgunar komu fram í
viðtali í helgarblaði dV 2.
mars 1996.