Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Page 16
Dagar Baracks Obama, forseta
Bandaríkjanna, í embætti náðu fyrsta
hundraðinu á miðvikudaginn. Hann
hóf feril sinn í embætti með háfleyg-
um yfirlýsingum um nýja stefnu í
málefnum sem spanna allt frá efna-
hagsmálum til loftslagsmála og ýjaði
jafnvel að breytingum á samskiptum
Bandaríkjanna og Íran.
Það er freistandi að loknum
hundrað forsetadögum Obamas að
leggja mat á árangur hans í þessu
valdamesta embætti heims, en
stjórnmálaskýrendur vara þó við því
og segja of snemmt að segja til um
hvort Barck Obama muni hafa er-
indi sem erfiði hvað varðar stefnu-
mörkun sína.
Forsetinn vinsæll
Að lokinni eitt hundrað daga setu
nýtur Barack Obama mikilla vin-
sælda og mælast þær yfir 60 prósent
og í fyrsta skipti síðan í janúar 2004
finnst fleiri Bandaríkjamönnum að
þjóðin stefni í rétta átt, eða 48 pró-
sent gegn 44 prósentum sem finnst
hið gagnstæða.
Það hefur einnig vakið athygli að
þrátt fyrir að efnahagur þjóðarinnar
sé á niðurleið hefur fjöldi bjartsýnna
Bandaríkjamanna vaxið hægt en ör-
ugglega.
Á kosningadaginn sagði Barack
að „leiðin fram undan yrði löng“ og
„á brattann að sækja“. Sú fullyrðing
hefur sennilega sjaldan átt eins vel
við og þá, en niðurstöður vinsælda-
kannana benda til þess, að með
réttri forystu, sé bandaríska þjóð-
in nógu þroskuð til að ætlast ekki til
tafarlauss árangurs.
Fjöldi fréttamannafunda
Á sínum fyrstu hundrað dögum
hefur Obama haldið nánast jafn-
marga fréttamannafundi og George
W. Bush, forveri hans, gerði allt sitt
fyrsta kjörtímabil. Barack Obama
hefur einnig sýnt mikinn vilja til að
tala við bandarísku þjóðina eins
beint og á verður kosið. Hann hef-
ur talað í samkomusölum víða um
land, notað YouTube og gert sér
grein fyrir að spjallþættir á borð við
þátt Jays Leno eru kjörinn vettvang-
ur til að koma skilaboðum áleiðis til
hins almenna borgara.
Að auki hefur Barack Obama not-
að netið til samskipta við fólk með
því að svara spurningum.
Forsetahjónin eru um margt ólík
fyrrverandi forsetum Bandaríkjanna
en engu að síður eru það stóru mál-
in og árangur sem að endingu verða
vegin og metin.
Erfið verkefni
Fram undan eru verkefni sem snúa
að heilbrigðiskerfinu, bankakerfinu,
björgun bílaframleiðslu Bandaríkj-
anna, baráttu vegna hlýnunar lofts-
lags og síðast en ekki síst að bæta
ímynd Bandaríkjanna á alþjóða-
grundvelli, sem hefur beðið veru-
legan hnekki síðastliðin ár, og bæta
samskipti landsins við aðrar þjóðir.
Að sögn Ross Baker, prófessors
í stjórnmálavísindum við Rutgers-
háskólann, er ekkert töfrum líkt við
fyrstu 100 daga Baracks Obama í
embætti.
„Ég held að fólk sé ávallt að leita
að geranda eða einhvers konar veg-
vísi,“ sagði Ross Baker. Enginn skyldi
velkjast í vafa um að Barack Obama
tók við afar slæmu búi frá George W.
Bush, og til að bæta gráu ofan á svart
hóf svínaflensan ferð sína um heims-
byggðina. Á sama tíma kraumuðu
andstæðar skoðanir á þeirri um-
deildu ákvörðun Obamas að aflétta
leynd á skjölum sem innihéldu afar
nákvæmar lýsingar á yfirheyrsluað-
ferðum bandarísku leyniþjónust-
unnar gagnvart þeim sem grunað-
ir voru um aðild að hryðjuverkum,
aðferðum sem reyndar var beitt í tíð
forvera Baracks.
Hefur opinberað
stjórnunarstíl sinn
Engu að síður eru Ross Baker og
aðrir sérfræðingar þeirrar skoðun-
ar að Barack Obama hafi á þessum
fyrstu mánuðum í embætti opinber-
að stjórnunarstíl sinn, sem mörg-
um finnst einkennast af yfirvegaðri
framkomu og hæfileika til að ráða
sviðinu, en einnig tilhneigingu til að
hrúga miklu á stefnuskrá sína.
Það sem af er embættistíð Obam-
as hefur hann samþykkt 787 millj-
arða dala örvunaráform, sett í gang
átak til að taka heilbrigðiskerfið í
gegn, hafið samningaumleitanir
gagnvart óvildarþjóðum Bandaríkj-
anna til langs tíma, Íran og Kúbu, og
svipt hulunni af nýrri aðferðafræði
hvað varðar stríðið í Afganistan og
Írak.
William Galston, fræðimaður við
Brookings Institution og fyrrver-
andi ráðgjafi Bills Clinton, fyrrver-
andi forseta Bandaríkjanna, fer ekki
í grafgötur með álit sitt á 100 daga
markinu og segir það að „öllu leyti
tilbúið viðmið“. Engu að síður sagði
Galston: „Ég tel að við höfum kom-
ist að heilmiklu um manneskjuna
Obama sem heldur til á forsetaskrif-
stofunni.
En fjöldi fólks hefur stokkið frá
þeirri staðreynd, að hann hefur kom-
ið hreyfingu á fjölda mála, til þeirrar
niðurstöðu að þau mál sem nú eru á
hreyfingu verði til lykta leidd,“ sagði
Galston, og bætti við að hann væri
ekki reiðubúinn til taka það stökk.
Gagnrýnisraddir
Hvað varðar innanríkismál hefur
Barack Obama verið gagnrýndur af
sumum sem halda því fram að örv-
unaraðgerðirnar og fyrirhuguð 3,55
billjóna dala fjárlög sem Barack lagði
fram fyrir 2010 muni hamla hagvexti
til framtíðar litið og leiða til uppsöfn-
unar skulda hins opinbera.
Sumir gagnrýnendur eru einn-
ig þeirrar skoðunar að Obama hafi
verið mislagðar hendur hvað varð-
ar bankakreppuna og telja að hann
hefði átt grípa til aðgerða fyrr og af
meiri hörku til að reyna að ná tökum
á skuldum sem héngu yfir fjármála-
kerfinu.
Stuðningsmenn Baracks Obama
benda hins vegar á það sem þeir
telja til marks um að efnahagsað-
gerðir hans séu jafnvel farnar að
hafa áhrif. Einnig vann Barack smá-
sigur í vikunni þegar Arlen Specter,
öldungadeildarþingmaður Penns-
ylvaníu, sagði skilið við félaga sína
í Repúblikanaflokknum og gekk til
liðs við demókrata. Ákvörðun Spect-
ers færir flokk forsetans nær 60 sæta
meirihluta í öldungadeildinni sem
aftur gæti létt Obama róðurinn við
að koma einhverjum af hans málum
í gegn.
100
dagar
Obamas
Að sögn Ross Baker,
prófessors í stjórnmála-
vísindum við Rutgers-
háskólann, er ekkert
töfrum líkt við fyrstu
100 daga Baracks
Obama í embætti.
Það hefur tíðkast að leggja mat á frammistöðu forseta Bandaríkjanna eftir eitt hundrað daga setu í emb-
ætti. Barack Obama tók ekki við góðu búi og skiptar skoðanir eru um frammistöðu hans og árangur í
þeim vandamálum sem bandaríska þjóðin glímir við bæði heima fyrir og utan landsteinanna.
Fimmtudagur 30. apríl 200916 Fréttir
KOlBEinn þOrstEinssOn
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Barack Obama
að loknum 100 dögum
í embætti nýtur hann
mikilla vinsælda.
Á leið á forsetaskrifstofuna
„Ég tel að við höfum komist
að heilmiklu um manneskjuna
Obama sem heldur til á
forsetaskrifstofunni.“