Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Page 24
Fimmtudagur 30. apríl 200924 Fókus um helgina Frægar með Fatamarkað Leikstjórinn Silja Hauksdóttir, ljósmyndarinn Nína Björk Gunnars- dóttir og leikkonan Elma Lísa Gunnarsdóttir ætla að koma saman næstkomandi laugardag í Félagi íslenskra leikara á Lindargötu 6 og halda þar glæsilegan flóamarkað frá klukkan ellefu til klukkan sex. Allt eru þetta smekklegar konur og verður því spennandi að sjá hvað þær draga fram úr fataskápunum sínum. Sextett, Svan- hildur og kk Sextett Ólafs Gauks, Svanhildur Jakobsdóttir og KK halda tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld, fimmtudag, klukkan 21. Fyrr í vetur var sextettinn með tónleika á sama stað sem tókust afar vel, færri kom- ust að en vildu og „mikið klappað og stappað“, eins og segir í tilkynningu. Á tónleikunum bregður KK sér í spor Rúnars Gunnarssonar og syngur meðal annars Undarlegt með unga menn auk þess sem hann syngur með Svanhildi Vestmannaeyjalögin sívinsælu. Miðinn kostar 1.500 krón- ur og er miðasala við innganginn. guðmundur með Shunt- hópnum Guðmundur Ingi Þorvaldsson, leikari og leikstjóri, vinnur nú með hinum rómaða Shunt-hóp í London. Um er að ræða tveggja manna verk, The Destruction of Experience: Klamm’s Dream’, sem fjallar á afar sérstæðan hátt um síðustu mánuðina í lífi rit- höfundarins Franz Kafka. Verkið er samið og leikstýrt af einum stofnenda Shunt, Mischa Twich- in. Shunt-hópurinn er tíu manna hópur listamanna, stofnaður fyrir níu árum. Hann hefur um árabil verið rómaður fyrir framúrstefnu- legar sýningar og þykir einn merkilegasti leikhópur Breta um þessar mundir. vinjettudag- Skrá á Sæluviku Sæluvikan á Sauðárkróki stend- ur sem hæst um þessar mundir en það er ein elsta menningarhátíð landsins. Á meðal dagskrárliða er vinjettudagskrá sem fram fer í Húsi frítímans á laugardaginn klukkan 16. Ármann Reynisson vinjettuhöf- undur les upp úr verkum sínum ásamt Sigríði Jónsdóttur, séra Gísla Gunnarssyni, Katrínu Maríu Andr- ésdóttur, Ásdísi Hermannsdóttur, Ólafi Jónssyni og Söru R. Valdimars- dóttur. Á milli atriða leikur ungur og efnilegur gítarleikari, Andri Már Sigurðsson, og á veggjum salarins er svo áhugaverð listsýning heima- manna. Sýningin Leiftur á stund hætt- unnar verður opnuð í Listasafni Árnesinga á laugardaginn. Á sýn- ingunni verða sýnd verk eftir átta íslenska myndlistarmenn sem allir vinna með ljósmyndina í list sinni og hafa á undanförnum árum hlotið mikla athygli bæði hér heima og erlendis fyrir verk sín. List þeirra er á margan hátt alþjóðleg og fjallar um veruleik- ann á persónulegan en um leið margslunginn hátt. Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Pétur Thoms- en, Kristleifur Björnsson, Katrín Elvarsdóttir, Ingvar Högni Ragn- arsson, Haraldur Jónsson, Einar Falur Ingólfsson, Gréta S. Guð- jónsdóttir og Charlotta Hauks- dóttir. Sýningarstjóri er Sigrún Sigurðardóttir menningarfræð- ingur. Sýningin sækir heiti sitt í frægan texta eftir þýska menningarfræð- inginn Walter Benjamin sem vísar til þess að nauðsynlegt sé að brjóta upp viðtekin viðhorf um sannleik- ann og veruleikann í kringum okkur með því að varpa á hann óvæntu og oft á tíðum ófyrirsjáanlegu ljósi, líkt og ljósmyndin sjálf kann að gera. Sýningin stendur til 28. júní og frá og með maí er safnið opið alla daga klukkan 12-18. Aðgangur er ókeypis. Sýningaropnun í Listasafni Árnesinga á laugardaginn: Hættustund í Árnesi Þ etta er smá ádeila á Jak- ob Frímann af því að hann var miðborgarstjóri og lét mála yfir allt graff,“ segir Einar Ingi Sigmundsson, nemi í grafískri hönnun, um listaverk sem hann gerði og er nú til sýnis á út- skriftarsýningu Listaháskóla Íslands á Kjarvalsstöðum sem var opnuð á sumardaginn fyrsta. Verk Einars er svart-hvítt graffíti spreiað á stensil en í miðri myndinni er andlit sem líkist andliti Jakobs Frímanns Magnússon- ar, forsprakka Stuðmanna og fyrrver- andi „miðborgarstjóra“ eins og hann var titlaður í skammri borgarstjóratíð Ólafs F. Magnússonar. Ef einhver vafi var til staðar hvort þetta eigi að vera Jakob eru tekin af öll tvímæli um það í textanum sem fylgir með. „Jakob Frí- mann / er enginn venjulegur maður / já hann er / miðborgarkóngur.“ „Ég vildi líka sýna að tögg þurfa ekkert að vera ljót heldur geta þau myndað verk síðar meir,“ segir Einar ákveðinn. Verkið varð þannig til að Einar bjó til stóran stensil sem hann lagði á viðarplötu, lét filmu yfir, lét svo nokkra stráka tagga á filmuna og tók hana loks af. Ferlið allt tók tvo mán- uði, skipt í nokkur sessjón, en hægt er að sjá verkið „in the making“ í um tveggja mínútna langri samantekt á sjónvarpsskjá sem stillt er upp við hliðina á því á Kjarvalsstöðum. Jakob varð hálfpirraður Einar viðurkennir að hann hafi aðeins spilað Stuðmannalög framan af ferl- inu. „Ég blastaði Stuðmenn á byrjun- arstiginu. Þar fékk ég líka hugmynd- ina að línunni úr Ofboðslega frægur.“ Jakob Frímann kom að sjá verkið á sýningunni á opnunardaginn og mið- að við lýsingu Einars á þeim atburði gleymir listamaðurinn ungi því seint. „Það kom einn strákur sem er með mér í bekk hlaupandi til mín eftir að hafa séð Jakob á leiðinni inn í húsið og sagði svolítið æstur: „Hann er kom- inn, hann er kominn!“ Þá varð ég nett stressaður en ég vissi samt þannig séð að hann myndi koma. Þetta var stuttu fyrir lokun og hann virtist vera búinn að frétta af þessu því hann labbaði beint að verkinu mínu. Ég labbaði á móti honum og sagði honum að þetta væri mynd af honum. „Já, ég sé það,“ segir Einar að Jakob hafi svarað, og gerir sig um leið dimmraddaðan til að reyna að ná Stuðmanninum betur. Einar spurði Jakob hvort hann væri „brjálæður“ sem sá síðarnefndi kvaðst ekki vera. Þá tók Jakob heldur ekki illa í það að Einar skuli hafa vísað í Stuðmannalag í textanum, að sögn Einars. „Hann var samt frekar þurr á manninn. Við náðum því ekki mjög góðu spjalli. Hann var eitthvað hálf- pirraður út í mig.“ Einar segir að þrátt fyrir kalt viðmót Jakobs hafi hann ekki farið gjörsamlega í hnút. Né fríkað út. Fannst myndin falleg Þeir Jakob spjölluðu svo saman um graff og hvernig ætti að taka á því. Ein- ar kom þeirri skoðun sinni á fram- færi að honum fyndist rangt að mála yfir graff eins og Jakob vill gera því það hafi öfug áhrif. Það er, sporni ekki gegn útbreiðslunni heldur auki hana. Einari finnst að frekar ætti að fræða unga fólkið um áhrif athæfisins. „Aft- ur á móti sagði Jakob að þetta væri fal- legt verk, og benti á verkið mitt, og að ég mætti alveg setja það út á götu. Ég þyrfti bara að fá leyfi fyrir því áður hjá borginni.“ Einar hefur sjálfur ekki lent í því að hafa gert flott verk einhvers stað- ar niðri í bæ sem svo var málað yfir að skipun Jakobs Frímanns. „Nei, en ég sá bara hvernig fór fyrir ýmsum flottum verkum niðri í bæ sem mað- ur hafði gaman af því að labba fram- hjá og skoða, til dæmis var geðveikt flott „piece“ hjá Nakta apanum sem var bara málað yfir. Það var mjög leið- inlegt.“ Þótti ekki „of“ pólitískt Á meðal þeirra staða þar sem kosið var um síðustu helgi voru Kjarvals- staðir. Útskriftarsýningin var opn- uð tveimur dögum áður og þar sem í kosningalögum segir að bannað sé að vera með áróður á kjörstað röltu full- trúar kjörstjórnar um sýninguna til að til að kanna hvort einhver verkanna sem til sýnis eru brjóti í bága við þau lög. Einungis tvö verkanna þurfti að fjarlægja eða hylja af þessum sökum og var verk Einars ekki annað þeirra. Aðspurður segist Einar ekki svekkt- ur yfir því að hans verk teldist ekki „það“ pólitískt að nauðsynlegt væri að hylja það sjónum kjósenda. „Nei, nei, og eiginlega bara feginn. Reyndar var talað um það fyrst hvort það þyrfti ekki að fela það en ekkert varð af því. Var Jakob nokkuð annars í framboði?“ spyr Einar Ingi réttilega á móti. Ætir minjagripir Miðborg Reykjavíkur er Örnu Rut Þórhallsdóttur, nema í vöruhönnun, einnig hugleikin í framlagi hennar á sýningunni á Kjarvalsstöðum. Verk- ið samanstendur af eins konar súkk- ulaðipinnum þar sem súkkulaðið er í laginu eins og þekkt bygging í Reykja- vík. Um er að ræða þrjár byggingar: Hallgrímskirkju, tónlistarhúsið og eitt háhýsanna í Skuggahverfinu. „Þettu eru ætir minjagripir. Ég ákvað að velja mér þessar þrjár bygg- ingar af því að mér finnst þær hafa svo mikil áhrif á borgarlandslagið,“ segir Arna en hún kallar gripina „Reykjavík moments“. Stressaðist þegar Stuðmaðurinn mætti Graffítimynd af Jakobi Frímanni Magnússyni og súkkulaðipinnar í laginu eins og þekktar byggingar í miðborginni eru á meðal þess sem gefur að líta á útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands sem nú stendur yfir. Kristján Hrafn Guðmundsson spjallaði við listamennina efnilegu sem eiga heiðurinn af hinum „miðborgarmiðuðu“ verkum, þau Einar Inga Sigmundsson og Örnu Rut Þórhallsdóttur. Arna Rut Þórhallsdóttir „Þessar byggingar gnæfa alltaf yfir okkur þegar við göngum eða ökum um miðborgina.“ MYND SIGtRYGGuR ARI JóHANNSSoN Hættulegt? Ein mynda péturs thomsens sem prýða sýninguna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.