Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Page 30
Fimmtudagur 30. apríl 200930 Helgarblað
bækling við komuna til landsins.
Þau Ásdís hafa komið sér fyr-
ir í fínu hverfi í borginni og börn-
in eru komin á góðan einkarekinn
leikskóla. „Ég fann fína íbúð handa
okkur í afgirtum byggðarkjarna með
öryggisgæslu allan sólarhringinn. Í
miðju kjarnans er sundlaug og lík-
amsræktarstöð. Þetta er fínn stað-
ur og við erum enga stund að keyra
niður í bæ. Það eru margir kostir
sem gallar sem fylgja svona reglu-
leysi eins og þarna ríkir og maður
verður bara að einblína á kostina og
aðlagast hinu. Hér er veðrið gott og
hér viljum við vera.“
Leitar að nýju liði
Garðar segir áhrif efnahagskrepp-
unnar minna áberandi í Búlgaríu en
hér heima. Hennar sé þó að gæta í
fasteignabransanum þar eins og
annars staðar. Þótt þau Ásdís hafi
það ágætt fjárhagslega finni þau
persónulega fyrir kreppunni en þau
eiga íbúð hér á landi á óhagstæðum
lánum. „Við erum ekkert að losna
við þessa íbúð og lánið er komið
langt upp fyrir verðmat hennar svo
leigan dugar ekki til. En líklega erum
við betur sett en margir þeirra sem
maður heyrir af í fréttum svo við
ætlum ekki að kvarta.“
Þar sem árangur Garðars með
CSKA hefur ekki verið eins og helst
væri á kosið er umboðsmaður hans
farinn að leita að nýju liði. „Draum-
urinn væri náttúrlega að spila með
mínu uppáhaldsliði, Arsenal, en
maður verður víst að vera raunsær,“
segir hann brosandi. „Okkur lík-
ar vel að búa í heitu landi þar sem
vorið kemur snemma og það væri
óskandi að við gætum verið hér
áfram. En áður en þessar pælingar
byrja verð ég að ná mér af þessum
meiðslum,“ segir hann og bætir við
að það sé erfitt fyrir fjölskylduna að
þurfa að rífa sig upp og flytja þeg-
ar öllum líði vel. „Þetta reynir allt-
af mest á börnin og það getur tekið
þau langan tíma að aðlagast nýju
landi.“
Endalaust áreiti aðdáenda
Líkt og þau hjónin hafa heillað búlg-
örsku þjóðina hefur landið heillað
þau Garðar og Ásdísi sem eru með
þó nokkur járn í eldinum. Enda um
að gera að hamra járnið á meðan
það er heitt. Ásdís opnaði nýlega
glæsilega heimasíðu icelandicbea-
uty.com auk þess sem þau stefna
að því að opna tískuvöruverslun í
Sofíu. „Þekktur þýskur tískuhönn-
uður hafði samband við okkur að
fyrra bragði en þetta eru afar flott
föt í dýrari kantinum sem eru seld
í verslunum um allan heim. Okkur
langaði að opna Karen Millen-versl-
un en einhver varð á undan okk-
ur svo við erum alvarlega að skoða
þetta tilboð. Þetta er samt allt á byrj-
unarstigi ennþá.“
Athyglin sem þau hjónin fá í
Búlgaríu minnir helst á líf frægustu
Hollywood-stjarnanna. Í flest skipt-
in sem þau hjónin kíkja niður í mið-
bæ, fara á kaffihús eða eru á meðal
fólks er bent þá þau, talað um þau,
þau beðin um að sitja fyrir á mynd-
um og heimtaðar eiginhandarárit-
anir af æstum aðdáendum. Garðar
segir þau Ásdísi hafa gaman af lát-
unum en að þeim þyki ástandið oft
heldur súrrealískt.
Athyglin hefur þó ekki alltaf verið
af hinu góða enda keppast slúður-
blöðin um að skrifa krassandi frétt-
ir af hjónunum auk þess sem Gróa
á Leiti er sjaldan fjarri. „Pressan
þarna úti er mjög gul og það er eitt-
hvað skrifað um okkur í hverri ein-
ustu viku og margt af því er hreinn
og beinn uppspuni. Áður en við
fórum heim birti slúðurblað frétt
um að við værum farin frá Búlgar-
íu í fússi, að ég væri búinn að rifta
samningnum við liðið því ég fengi
ekkert borgað og svo framvegis. Ég
veit ekki hvar þeir fengu þessar upp-
lýsingar.“ Garðar segir slíkt ekki hafa
áhrif á þau. Þau standi keik sama
hvað á þeim dynji „Við höfum feng-
ið athygli frá því við byrjuðum sam-
an þótt áreitið hafi ekki verið neitt á
við það sem við upplifum í Búlgar-
íu. Ásdís starfaði sem fyrirsæta þeg-
ar við kynntumst og ári seinna varð
ég herra Ísland svo við erum vön alls
kyns umtali.“
Elskar hana eins og hún er
Garðar segir velgengni eiginkon-
unnar ekki koma sér á óvart. Hann
hafi alltaf vitað að hún myndi ná
langt og hann er auk þess sann-
færður um að hún sé rétt að byrja.
Aðspurður hvort hann óskaði þess
aldrei að Ásdís væri rólegri og jafn-
vel venjulegri segir hann það af og
frá. „Ég hef aldrei viljað að hún væri
öðruvísi en hún er enda er hún sama
konan og ég giftist.
Stór ástæða þess að ég elska
hana er það hvað hún er fylgin sér.
Hún gerir og segir það sem hún er
að hugsa og framkvæmir flestar sín-
ar hugmyndir. Ef hún væri eitthvað
öðruvísi held ég að við hefðum ekki
gifst. Ég hafði verið með hinum og
þessum stelpum sem mér fannst
ekkert varið í og vissi strax að það
væri mikið spunnið í þessa konu,“
segir hann og bætir við að þau Ásdís
passi vel upp á samband sitt. „Við
förum út að borða saman allavega
tvisvar í viku. Við erum með góða
barnapíu og förum af stað eftir að
börnin eru sofnuð,“ segir hann en
bætir við að þau séu ekki duglegir
þátttakendur í næturlífi Sofíu. „Ætli
við getum ekki talið á fingrum ann-
arrar handar hversu oft við höfum
farið út á lífið en hins vegar höfum
við gaman af því að fara út að borða,
bæði ein og með góðum vinum, og
erum þá oft lengi að og njótum góðs
matar og víns.“
Fallegri í dag en þegar þau
kynntust
Hvað framtíðina varðar segist hann
vonast til að þau Ásdís eigi mögu-
leika á að ferðast um heiminn. „Ef
ég á að spá tuttugu ár fram í tím-
ann vona ég að börnin verði farin
að heiman,“ segir hann hlæjandi og
bætir við að hann vonist til að þau
Ásdís geti notið velgengni sinnar,
sama í hverju hún felist. „Ég vona að
við eigum eftir að ferðast saman og
skoða allt það sem okkur langar til
að skoða sem hingað til hefur þurft
að bíða þar sem við stofnuðum ung
til fjölskyldu. Ásdís hefur fylgt mér
um heiminn og það kæmi alveg til
greina að ég myndi elta hana þang-
að sem hún stefnir.
Eftir fótboltaferilinn verð ég von-
andi búinn að næla mér í meira
nám en ég stefni á fjarnám í við-
skiptafræði við viðskiptaháskólann
á Bifröst svo ég hafi eitthvað í hönd-
unum þegar ferlinum lýkur. Svo er
bara vonandi að konan geti séð fyrir
manni,“ segir hann hlæjandi.
Að öllu gamni slepptu er það
staðreynd að knattspyrnuferill end-
ar og fegurð dofnar. Garðar hefur
þó ekki áhyggjur af framtíðinni og
segist stefna á einhvern bisness að
loknu prófi. Varðandi fegurðina seg-
ir hann Ásdísi aldrei hafa verið fal-
legri. „Aldur er afstæður og Ásdís
er eins og gott vín. Hún verður allt-
af fallegri og fallegri og mér finnst
hún miklu fallegri í dag en þegar við
kynntumst, þótt hún hafi verið stór-
glæsileg þá. Ég sé það best þegar ég
skoða gamlar myndir. Hún er í raun-
inni búin að vera ófrísk síðustu árin
og er rétt að byrja að blómstra aftur.
Ég er viss um að hún eigi eftir að ná
miklu lengra, miðað við alla þá vel-
gengni sem hún hefur náð á þessum
stutta tíma. Þetta er bara byrjunin.“
Indíana Ása Hreinsdóttir
„
“
Þú getur keypt þig frá öllu ef þú átt pen-
ing og sjálfur mútaði ég löggunni þegar
ég átti að borga háa sekt fyrir að taka
ólöglega beygju. Ég slapp við sektina
með því að borga löggunni 2000 krónur.
Ástfanginn
Elskar Ásdísi meira og meira.
mynd hEiða hELgadóttir
Ásdís og garðar
Beckham-hjón íslands.