Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Qupperneq 40
Franco
Bandamenn Forsetinn Dwight D. Eisenhower
faðmar og knúsar Franco í heimsókn sinni til
Spánar árið 1959. Bandaríkjamenn urðu mikil-
vægir bandamenn spænska einræðisherrans.
FimmtuDagur 30. apríl 200940 Helgarblað
Á
rla morguns 29. júní 1916 tók
höfuðsmaðurinn Franco, 23 ára,
við stjórn hersveitar sinnar eftir
að foringi hennar hafði verið illa
særður. Á meðan hermennirnir
féllu eins og flugur allt í kringum hann stýrði
þessi lágvaxni, mjóslegni maður sem var
af liðsfélögum sínum kallaður Franquito,
Franco litli, liði sínu áfram í mikilli árás á
víglínur óvinarins.
Orrustuvöllurinn var Spænska Mar-
ókkó þar sem spænski herinn reyndi að
berja niður blóðuga uppreisn Rif-fólks-
ins sem var berbneskt þjóðarbrot sem
barðist fyrir sjálfstæði.
Lífshættulega særður
Þennan morgun vann herfylki Fran-
cos glæstan sigur. En ungi höf-
uðsmaðurinn, sem hafði verið
alinn upp við hermannarómant-
ík og hetjudrauma, fékk ekki að
njóta augnabliks sigursins. Einn
Rif-mannanna sem hafði verið
handsamaður lyfti upp byssu og
skaut hann í magann.
Í þessu stríði jafngilti byssu-
skot í magann oftast dauða.
Sjúkrahúsin voru frumstæð
og eyðimerkurhitinn olli
því að sjúkdómar breidd-
ust hratt út. Sama kvöld
var skrifuð skýrsla þar sem
hetjudáðir Francos voru
útlistaðar, en það var oft
gert þegar menn vissu að
líf ungra stríðshetja var
senn á enda.
Þvert á allar vænt-
ingar náði hann sér þó
af skotsárunum. Mar-
okkóskir málaliðar í þjón-
ustu Spánverja töluðu um
baraka Francos, guðlega
forsjá sem þeir trúðu að
gerði hann ódrepandi. Sjálf-
ur átti Franco – sem seinna
varð einræðisherra Spánar og sat
á þeim stóli til dauðadags 82 ára að
aldri – eftir að skrifa að hann hefði
verið útvalinn af guði.
Eftir að skotsárin voru gróin tók ferill Fran-
cos fljótt miklum framförum þar til hann var
skipaður undirhershöfðingi og skólastjóri for-
ingjaháskóla hersins aðeins 34 ára gamall. Það
voru embætti sem hjálpuðu honum að ger-
ast leiðtogi nýrrar kynslóðar ungra en stríðs-
reyndra hermanna.
Af herforingjaætt
Francisco Franco fæddist fjórða
desember 1892 í spænsku hafnar-
borginni Ferrol. Hann var af herforingjum
kominn, synir ættarinnar urðu samkvæmt
hefðinni yfirmenn innan sjóhersins. Tveir eldri
bræður hans menntuðu sig í takt við hefðina en
Francisco fékk ekki inngöngu í sjóherskólann.
Hann lærði þess í stað til yfirmanns í venjulega
hernum, föður sínum til mikillar gremju.
Franco-ættin var síður en svo samlynd.
Pabbinn, Nikulás, yfirgaf eiginkonuna og börn-
in oft til þess að búa um stund með öðrum kon-
um.
Bræður Franciscos héldu upp á föður sinn
en hann var á bandi móður sinnar. Hann erfði
frá henni stranga kaþólska trú og trúði á sterk
fjölskyldugildi umfram allt annað.
Fámáll og hlédrægur
Franco var fámáll og hlédrægur í barn-
æsku. Þegar faðir hans heimsótti fjölskylduna
þurfti Franco að þola harðar refsingar og högg,
„en ekkert meira en önnur börn á þessum tíma“,
eins og mamma hans útskýrði seinna. En hann
var tilfinningalega bældur og dulur alla ævi.
Margir hafa lýst Francisco Franco sem dæmi-
gerðum Galisíumanni en hann ólst upp í Galis-
íuhéraði. Sagt er að þeir séu svo leyndardóms-
fullir að mæti maður alvöru Galisíumanni í stiga
viti maður ekki hvort hann sé á leið niður eða
upp. Franco varð síðar frægur fyrir þessi Galis-
íueinkenni sín.
Í júlí 1936 braust spænska borgara-
styrjöldin út. Hún byrjaði sem valdaránstilraun,
sem Franco hafði tengst seint og nokkuð á móti
sínum vilja. Hann bauð sitjandi stjórn þjónustu
sína til þess að berja uppreisnina niður. Hvort
hann gerði það af heilum hug hefur aldrei verið
vitað, en á endanum gekk hann aftur í lið með
uppreisnarmönnum.
Uppreisnin mistókst og Spánn liðaðist fljótt
í tvennt þar sem tvær stríðandi fylkingar börð-
Einræðisherra Eftir borgarastríðið
gerði Franco sjálfan sig að einræðisherra
Spánar. myndin er frá 1948.
Nú í lok mars voru 70 ár liðin síðan spænsku
borgarastyrjöldinni lauk. Sigurvegari þeirra
blóðugu átaka hét Francisco Franco, íhalds-
samur herforingi sem breytti Spáni í einræðis-
ríki. Harðri stjórn hans lauk ekki fyrr en að honum
látnum árið 1975.