Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Qupperneq 48
fimmtudagur 30. apríl 200948 Helgarblað
HIN HLIÐIN
Kolsvört fortíð
á Selfossi
Nafn og aldur?
„Atli Fannar Bjarkason, 25 ára.“
Atvinna?
„Ritstjóri tímaritsins Monitor.“
Hjúskaparstaða?
„Ögrandi.“
Fjöldi barna?
„Eitt. Indverska stúlkan Malleswari frá Ind-
landi. Hún er yndisleg.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Nei, enda er ekki einu sinni hægt að
treysta mér fyrir að vökva plöntu vikulega.“
Hvaða tónleika fórst þú á síðast?
„Ég sá hljómsveitina Mammút á Sódómu.
Það var stórkostleg upplifun og ég vil ætt-
leiða þau öll sem eitt.“
Hefur þú komist í kast við lögin?
„Já, oft. Fortíð mín á Selfossi er kolsvört.
Ég var einu sinni grunaður um stórfellt
fíkniefnamisferli, en þegar hópur lögreglu-
manna stöðvaði mig sá einn þeirra sakleys-
ið í augum mínum og hvíslaði: „Við erum
með rangan mann“ og ég fékk að fara.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín og af hverju?
„Nokkrir bolir með landakortsmynd af Eyjafirði og
stjörnu þar sem Dalvík er. Þá fékk ég óvænt senda
beint frá Google eftir að ég fjallaði um Íslandsævintýri
forritarans Dans Boeckner.“
Hefur þú farið í megrun?
„Já, ég varð að taka mig á eftir að kærasta fyrrverandi
leigusala míns eignaðist sitt fyrsta barn. Meðgangan
var sældarlíf þar sem hún gekk glottandi með osta-
bakka inn í stofu á hverju kvöldi.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já, ég skeit á kjörseðilinn minn um síðustu helgi.
Djók.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Hver kærir sig um það? Framhaldið er aldrei eins gott
og orginalinn. Ég er samt opinn fyrir trílógíu.“
Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið
upp á?
„Ég er með svo stórbrotinn tónlistarsmekk að enginn
efast þegar ég segi að lag sé gott. Þess vegna hef ég
aldrei þurft að skammast mín.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Kynferðislega? Allt með Lady Gaga.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Að fara til Akureyrar og vinna að leynilegu verkefni
með vinsælli hljómsveit.“
Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur? (af
hverju?)
„Office Space. Besta mynd sem hefur verið gerð. Svo
verð ég að fá að nefna The Big Lebowski, Fight Club og
American History X.“
Afrek vikunnar?
„Að ég nái að vakna á hverjum degi er
afrek út af fyrir sig. Ég hef líka verið dug-
legur að klæða mig og átt í reglulegum
samskiptum við fólk.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei, ég þori því ekki.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Nei, en mig langar til að kunna að spila á
píanó. Ég væri til í að fá aukavinnu við að
leika dinnertónlist á Grillinu.“
Viltu að Ísland gangi í ESB?
„Ég veit það ekki. Það er enginn búinn að
athuga fyrir mig formlega hvað það hefur
í för með sér.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Regluleg næring - andleg og líkamleg.“
Hvaða íslenska ráðamann mundir þú vilja
hella fullan og fara á trúnó með?
„Katrínu Jakobs. Hún er svo sæt og hress.“
Hvaða fræga einstakling myndir þú helst
vilja hitta og af hverju?
„Ég myndi vilja stýra pallborðsumræð-
um í kvöldsjónvarpi, þar sem Megan Fox, Lady Gaga,
Nadía Banine og skvísan sem leikur kærustu Dexters
myndu ræða mikilvægi líkamlegrar tjáningar í mann-
legum samskiptum.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, ég er að vinna að örljóðabók um kvennafar.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Ég laug í viðtali í DV í dag að vinafólk mitt, Eyþór og
Helga, eigi von á barni.“
Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest?
„Ég er eins og óskilgetið afsprengi Petes Doherty og
lesbíunnar sem vann Eurovision 2007.“
Ertu með einhverja leynda hæfileika?
„Nei, þegar ég uppgötva hæfileika opinbera ég þá. Þess
vegna er vinnan mín gefin út í 12.000 eintökum, blogg-
ið mitt aðgengilegt öllum og Fésbókin full af myndum
af mat sem ég elda.“
Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Jájá, leyfa þetta allt svo við getum tekið af þessu nógu
mikinn skatt til þess að borga heilbrigðisþjónustu und-
ir þá sem kunna sér ekki hóf. En þá yrðu önnur lönd að
gera það sama, glatað ef Ísland væri einhver dópnýl-
enda. Lokasvar er því nei.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn?
„Heimilið mitt hverju sinni.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að
sofa?
„Loka tölvunni, stari upp í loftið, andvarpa kæruleysis-
lega og halla aftur augunum.“
Hver er leið Íslands út úr kreppunni?
„Ef ég vissi það væri ég löngu búinn að blogga um það
og þiggja nóbelsverðlaunin fyrir hagfræði.“
Atli FAnnAr BjArkAson er ritstjóri tímAritsins monitor. HAnn segir HjúskAp-
Arstöðu sínA ögrAndi og gerir upp Fortíð sínA á selFossi. HAnn vinnur Að
leynilegu verkeFni og segir oFFice spAce Bestu mynd í Heimi.
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
30 days
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því
að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30
days saman.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
GLÆNÝ DEKK Á FELGUM
AF LAND CRUISER
Undan VX Land Cruiser
Upplýsingar í síma:
897-0600 Cecil
690-0666 Ingi
Cecil og Ingi
NICOLAI
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Oxy tarm
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama oxy tarmið
mynd kristinn mAgnússon