Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Síða 50
fimmtudagur 30. apríl 200950 Lífsstíll
Sumarlínurnar komnar í húS Sleg-
ið verður upp veislu í versluninni KronKron í
kvöld og er tilfefnið sumarlína íslenska fata-
hönnuðarins munda og Kron by KronKron.
gleðin hefst klukkan 18 og stendur áfram
fram eftir kvöldi. Áhugasamir ættu ekki að láta
þetta kvöld framhjá sér fara. Boðið verður upp
á veitingar og tónlist.
umSjón: Hanna EiríKSdóttir, hanna@dv.is
magabolurinn
aftur í tíSku
Það voru nokkur trend frá níunda
áratuginum sem margar konur
óskuðu sér að kæmu aldrei aftur í
tísku. Eitt þeirra er magabolurinn
ógurlegi. En á sýningarpöllunum
fyrir vor/sumarlínurnar voru
magabolirnir afar áberandi. Einnig
voru brjóstahaldarar í anda
madonnu á Vogue-tímabilinu
sjáanlegir. Stúlkurnar í Hollywood
eru sjúkar í þetta trend. En flestar
konur líta ekki út eins og ungu
stúlkurnar í Hollywood. Þær konur
sem ekki eru með hinn fullkomna
maga geta samt gengið í magabol
með því að klæða sig í hvítan
stuttermabol undir og viti menn
það kemur alls ekki illa út.
EinStakir
StrigaSkór
perspective Cubes-strigaskórnir eftir
hönnuðinn pierre Hardy eru einir
sinnar tegundar og er óhætt að
segja að Hardy fari ótroðnar slóðir
með gerð perspective-skónna.
Strigaskórnir verða eingöngu seldir í
takmörkuðu upplagi, eða fimm
hundruð stykki, á nokkrum stöðum í
heiminum og koma út í júní
næstkomandi. Áhugasamir sem
staddir eru erlendis á þeim tíma geta
kíkt í pierre Hardy-verslunina í parís,
dover Street market í london,
Barneys í new York eða 10 Corso
Como í Seoul í Kóreu.
gEStirnir Skiptu
um drESS
mexíkóska leikkonan Salma Hayek
gekk að eiga francois-Henri pinault í
annað sinn í feneyjum um síðustu
helgi. Salma klæddist glæsilegum
Balenciaga-kjól og geislaði í
athöfninni. allar helstu stjörnur
heims voru samankomnar til að
fagna með hjónakornunum og voru
allir klæddir í sitt fínasta púss. Salma
var með eina bón til gesta sinna.
Hún bað alla um að koma með föt til
skiptanna. Eitt dress fyrir athöfnina,
annað fyrir veisluna. Salma skipti þó
ekki sjálf um kjól.
Fatahönnuðurinn Ágústa Hera Harðardóttir gekk lengi með þá hugmynd í kollinum
að búa til kápu sem hægt væri að breyta í tösku. Í byrjun þessa árs dreif Ágústa Hera
hugmyndina í framkvæmd og kom útkoman skemmtilega á óvart.
„Hugmyndin kom fyrir mörgum
árum. Ég man ekki nákvæmlega
hvenær það var, en ég fann fyrir
tilviljun eftir að ég var búin að út-
færa prótótýpu af káputöskunni,
gamla skyssubók þar sem ég var
búin að teikna ljósaperu og skrifa
fyrir neðan töskujakki,“ segir Ág-
ústa Hera Harðardóttir, oftast
kölluð Hera fatahönnuð-
ur, sem fengið hefur gíf-
urlega athygli síðustu
tvo mánuði vegna káp-
unnar sem hægt er að
breyta auðveldlega í
tösku eins og nafnið
gefur til kynna.
Eftir margra ára
dvöl í Danmörku flutti
Hera heim til Íslands
grunlaus um að ís-
lenska efnahagskerf-
ið myndi hrynja eins
og það gerði síðasta
haust. „Mér fannst
mjög óspennandi
að fara í atvinnu-
leit þegar kreppan
var nýskollin á,“ seg-
ir Hera. „Ég frétti af því
að búðirnar hérna heima
vantaði vörur og gjaldeyri
til að kaupa vörurnar utan
frá. Ég var nýflutt heim með
fullt af efni og ákvað að byrja
að hanna,“ bætir hún við.
Hera hannaði kjól sem
seinna kom í ljós að hægt
er að breyta á mismunandi
vegu. Það var í heimsókn í
Danmörku er Hera fékk bústið
sem hana vantaði frá félaga sínum
til að hrinda hugmynum sínum í
framkvæmd.
„Hann var svo hrifinn bæði
af kjólnum og hugmyndinni að
káputöskunni að hann sagði ein-
faldlega: „Þú kemur ekki aftur til
Danmerkur fyrr en þú ert kom-
in með bæði kjólinn og kápu-
töskuna,“ segir hún hlæjandi og
þannig varð þessi gamla hugmynd
að veruleika.
Hera lagði stund á þriggja ára
fatahönnunarnám í Danmörku.
Eftir námið opnaði hún sitt eigið
fyrirtæki í Kaupmannahöfn ásamt
vinkonu sinni sem hún rak í nokk-
ur ár. Hera fékk þá löngun til þess
að mennta sig frekar og fór í rekstr-
arstjórnun.
Káputaskan hefur fengið ótrú-
lega góðar viðtökur að sögn Heru
og hefur hún varla undan að búa
til fleiri. Til eru tvær tegundir,
annars vegar einföld og hins veg-
ar tvöföld sem einnig er nothæf á
röngunni, en kápan er fóðruð að
innan.
Aðspurð segir Hera erfitt að
segja hver draumurinn sé. „Von-
andi verð ég svo lánsöm að geta
lifað á þessu og byggja ofan á það
sem nú er komið.“ Káputaskan
er seld í Nakta apanum á Lauga-
veginum og er væntanleg í fleiri
verslanir á Reykjavíkursvæðinu.
Áhugasamir geta kíkt inn á agusta-
hera.com með frekari fyrirspurnir.
hanna@dv.is
KáputasKan
slær í gegn
Ágústa Hera Harðardóttir
gekk lengi vel með
hugmyndina í kollinum.
MYND SigtrYggur Ari
Sem taska
Hér sést hvernig
hægt er að breyta
kápunni í tösku.
Margbreytileg kápa
Hægt er að hafa
kápuna missíða eftir
smekk og rykkja hana
til á alls kyns vegu eins
og sést á myndinni.