Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Síða 52
fimmtudagur 30. apríl 200952 Lífsstíll
Frægar með Fatamarkað leikstjórinn Silja
Hauksdóttir, ljósmyndarinn Nína Björk gunnarsdóttir
og leikkonan Elma lísa gunnarsdóttir ætla að koma
saman næstkomandi laugardag í félagi íslenskra
leikara á lindargötu 6 og halda þar glæsilegan flóa-
markað frá klukkan ellefu til klukkan sex. allt eru þetta
smekklegar konur og verður því spennandi að sjá
hvað þær draga fram úr fataskápunum sínum.
Umsjón: Úlfar Finnbjörnsson
Myndir: Kristinn Magnússon
Hrossakjöt er alltaf að verða vinsælla
og vinsælla hér á landi og ekki að
ástæðulausu. Kjötið er nánast alltaf
meyrt og bragðgott og er jafnframt
á góðu verði. Hrossakjöt hefur ekki
alltaf verið vinsælt. Á öldum áður
lögðu kirkjunnar menn algjört bann
við áti á hrossakjöti. Það bann var
tengt túlkun á Biblíunni að einung-
is mætti borða afurðir af klaufdýrum.
Neysla á hrossakjöti var meðal ann-
ars notuð til að greina á milli heið-
inna og kristinna manna. Í fyrstu
íslensku kristnilögunum var hrossa-
kjötsátið lagt til jafns við barnaút-
burð. En hrossakjöt býður upp á
alla sömu matreiðslumöguleika og
nautakjöt. Allar þær sósur og með-
læti sem passa með nautakjöti eru
einnig góðar með hrossakjöti.
Uppskrift fyrir 4
4 x 200 g hrossasteik, lund eða fillet
2 msk. olía
salt
nýmalaður pipar
BBQ-sósa með viskíi og engifer:
2 dl BBQ-sósa
2 tsk. engifer, smátt saxað
½ dl viskí
Setjið allt sem á að fara í sósuna í
skál og blandið vel saman.
Penslið steikina með olíu og salt-
ið og piprið. Grillið á meðalheitu
grilli í 2 mín. á hvorri hlið. Penslið þá
kjötið með BBQ-sósunni og grillið í
1 mín. í viðbót báðum hliðum. Berið
steikurnar fram með afganginum af
BBQ-sósunni og grænmeti.
Í boði Gestgjafans:
Hrossa-BBQ með viskíi og engiFer
umSjóN: kolBrúN pálíNa HElgadóttir, kolbrun@dv.is
Dekraðu við þig
með BoBBi Brown
Glæsileg förðun
Þessi glæsilega förðun er ein af
sumarförðunum Bobbi Brown þetta
sumarið.
flott sumar
litirnir í þessari flottu línu eru
einstaklega sumarlegir og ferskir.
kremuð stemning
í línunni má finna úrval förðunar-
vara, meðal annars kremuð gloss í
handhægum umbúðum sem og
flottir og öðruvísi kremaðir
augnskuggar sem hver sem er getur
borið á augnlokið með góðum
árangri.
kinnalitur
Þessi einstaklega fallegi, sumarlegi
kinnalitur býður upp á marga
möguleika. með góðum kinnalita-
bursta getur þú stjórnað því hvort
þú notar ljósari tónana í kinnalitn-
um, dökku tónana eða hvort þú
blandar þeim öllum saman. Ef þú
rennir penslinum varlega eftir öllum
litunum og berð á kinnbeinin
læturðu ljósasta litinn efst og svo
dökknar hann niður á við og út
kemur glæsileg
skygging.
Líkamsolía
glansandi
líkamsolía með
örlitlu glimmeri
sem mýkir
húðina og lætur
hana glóa.
ilmurinn af
olíunni er
léttur og
ferskur í anda
sumarsins.
Nú þegar flestir eru að draga saman hefur sjaldan verið meira að gera hjá Gögu skorr-
dal hönnuði. Hún hefur sameinað rekstur nokkurra fyrirtækja á einum stað í skemmti-
legu húsnæði á Vesturgötunni. Hún býður gesti og gangandi velkomna 1. maí.
„Ég er verkamaður og kaupmaður,
ég er sú sem hugsar um verkin og
gerir verkin,“ segir hinn skapandi og
skemmtilegi hönnuður og verslunar-
eigandi Gaga Skorrdal spurð um titil
sinn.
Gaga Skorrdal keypti Blómálfinn
við Vesturgötu ekki alls fyrir löngu.
Og selur þar blóm eins og gert hef-
ur verið í Blómálfinum í um 25 ár.
En einnig er hún þar með sérstæða
fatahönnun sína og fer ótroðn-
ar slóðir, enda sjálfstæð og frum-
leg. Hún notar ull, hör og silki. Í
Blómálfinum er hún líka með til
sölu hið vinsæla merki Trippen
sem eru þýskir hátískuskór. Ofan á
þetta glæsilega úrvarl bættist vefn-
aðarvöruverslunin SEYMA, sem
hefur verið þekkt fyrir að bjóða há-
gæðaefni í næstum 30 ár, nýlega við
reksturinn hjá Gögu. „Örlögin gripu
í taumana, ég fór í verslunina rétt
áður en átti að loka henni til þess
eins að birgja mig upp af efnum og
svona fór,“ segir Gaga ánægð. Versl-
unin fjölbreytta sem Gaga rekur er
við Vesturgötu 4 eða í Kvosinni en
þar líður Gögu afar vel. Upphaflega
þegar húsið var reist, eða fyrir rúm-
um 100 árum, var í þessu sama hús-
næði rekin vefnaðarvöruverslun
Björns Kristjánssonar.
„Verslunin er á efri hæðinni hjá
mér og svo er ég með vinnustofuna
mína á neðri hæðinni.“ Á vinnustof-
unni verður hönnunin Gaga Skorr-
dal hönnun til, Gaga vinnur mest
með ullarvöru og önnur efni en að
eigin sögn hafa húfurnar og prjóna-
kjólarnir verið hvað vinsælastir und-
anfarið.
„Hér er alveg einstök stemning og
fólk sem kemur til mín verður bæði
hissa og finnst þetta ofboðslega snið-
ugt og fjölbreytt.“
Gaga segir hugmyndina á bak
við verslunina svolítið í takt við tíð-
arandann sem nú ríkir. „Nú er fólk
farið að sauma og prjóna aftur, þetta
var orðið þannig að efni voru orðin
dýr og föt ódýr. Nú hefur þetta snúist
við á ný. Fermingargjöfin í ár ætti að
vera saumavél, við þurfum að virkja
þessa hæfileika í unga fólkinu.“
1. maí ætlar Gaga að bjóða gesti
og gangandi velkomna í verslun sína
og kynna starfsemi sína. „Það verður
opið hús, heitt á könnunni og kleinur
í körfunni,“ segir þessi hæfileikaríka
kona að lokum.
kolbrun@dv.is
Ég geri
verkin
Gaga skorrdal hönnuður gaga
Skorrdal hannar glæsilegar flíkur úr
ull og öðrum efnum.
fjölbreytt og skemmtilegt
Skemmtilegt er um að litast í
versluninni og fjölbreytt úrval.