Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Side 64

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2009, Side 64
n „Ég var að raka á mér punginn,“ sagði Auðunn Blöndal á Face- book-síðu sinni í gær eins og fátt væri eðlilegra. Nokkrum mínútum síðar var tilkynning þessi hins veg- ar horfin af síðu kapp- ans. Fréttir herma að Auðunn sjálfur sé búinn að gera vini sínum Agli Einars- syni, eða Gillzen- egger eins og flestir þekkja hann, lífið leitt undanfarna daga með því að stelast inn á Facebook- síðu hans og birta þar mis- skemmtilegar yfirlýsingar. Má því ætla að nú hafi grínið verið á kostnað Audda. Bubbi bítur ekki á ryðgaðan öngul! Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. „Ingvi Hrafn ætti að skammast sín,“ skrifar Bubbi Morthens á heimasíðu sína og vísar í viðtal við Ingva Hrafn Jónsson sem birtist í DV fyrir stuttu. Þar lýsti Ingvi Hrafn tryllingnum í boðs- ferðum Glitnis í Langá þegar hann var umsjónarmaður árinnar. Sagði hann starfsmenn Glitnis ávallt hafa verið ofurölvi og gekk það svo langt að þeir ældu, migu og skitu í rúmin sín. Í viðtalinu við DV sagði Ingvi Hrafn að Bubbi og Jónsi í Í svörtum föt- um hefðu verið fengnir þangað til að skemmta boðsgestum eftir kvöldmat. Á heimasíðu sinni segir Bubbi það al- rangt. „Nú veit ég ekki hvað Ingvi Hrafn hefur verið mikið drukkinn þeg- ar hann heldur að svo hafi verið en þeir vita sem þekkja til að hann drekkur stíft og mikið. Ég hef veitt einu sinni í ánni og var það dags- partur í kringum 1990, má vera 2000 og eitthvað í boði Orra Vigfússonar. Þetta fólk sem Ingvi lastar er fólkið sem borgaði vínið hans. Hann ætti að skammast sín.“ Í viðtalinu við DV sagði Ingvi Hrafn að bankarnir hefðu keypt árn- ar að stórum hluta fyrir morð fjár. Bubbi segir að bankarnir hafi ekki verðlagt ána heldur Ingvi Hrafn. Bubbi lýkur reiðilestri sínum með því að benda Ingva Hrafni á að hann ætti að íhuga meðferð. liljakatrin@dv.is Gera Grín á Facebook Bubbi Morthens fer hörðum orðum um Ingva Hrafn Jónsson: InGvI ættI að Fara í meðFerð n Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, nýkjörin þingmaður vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi, varð í fyrra- dag móðir þegar maki hennar Steinunn H. Blöndal eignaðist þeirra fyrsta barn. Þær Guðfríður og Steinunn eignuð- ust strák en þrátt fyrir að barnið sé þeirra fyrsta ætti Steinunn að hafa verið vel undirbú- in því hún starfar sem ljósmóðir. Sá stutti lét heldur betur bíða eft- ir sér en Steinunn var komin rúmlega tvær vikur fram yfir settan dag þegar hann lét loksins sjá sig. n Turtildúfurnar Beggi og Pacas eru afar samrýmdar og mæta iðu- lega saman í líkamsrækt í World Class í Laugum. Eftir góða æfingu og heita sturtu slaka kapparnir á fyrir utan World Class og reykja eina sígarettu – þó ekki alltaf sam- an. Pacas finnst betra að njóta nikó- tínsins með því að halla sér upp að bifreið parsins á meðan Beggi röltir um svæðið og tyllir sér stundum á stein fyrir utan líkamsræktarstöð- ina með sígarettu í hendi. Beggi og Pacas eru eitt litríkasta par Íslands og hafa verið fastagestir á síðum blaðanna eftir að þeir báru sigur úr býtum í sjónvarpsþættinum Hæð- inni. Þá tekur parið ávallt virkan þátt í Gay Pride-göngunni í ágúst og er fólk sammála um að Pacas sé oftar en ekki í langflottasta búningi há- tíðarinnar. Algjör þvæla bubbi segist aldrei hafa skemmt starfsmönnum glitnis í langá. nýbökuð móðIr reykja eFtIr ræktIna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.