Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Side 2
Miklar endurbætur standa nú yfir
á húsi Bjarna Ármannssonar, fyrr-
verandi forstjóra Glitnis, við Bakka-
vör á Seltjarnarnesi. Iðnaðarmenn
keppast nú við að lagfæra húsið sem
er meira en 20 ára gamalt og hefur
aldrei verið lagfært fyrr en nú.
Bjarni hefur búið í húsinu í þrjú ár
en hann hefur verið búsettur í Nor-
egi frá því í ágúst síðastliðinn. Byrj-
að var á framkvæmdunum við húsið
í janúar síðastliðnum og hefur á ann-
an tug iðnaðarmanna unnið við það
upp á dag síðan.
Í símtali við DV vill Bjarni að-
spurður ekki tjá sig um breytingarn-
ar á húsinu og því er ekki hægt að
komast til botns í kostnaðinum. Hins
vegar má reikna með að hann sé
gríðarlegur miðað við umfang breyt-
inganna.
Koma heim í nánast nýtt hús
Eins og DV.is greindi frá í vikunni er
Bjarni á leiðinni heim til Íslands með
fjölskyldu sína og má ætla að hann
vilji að framkvæmdirnar verði langt
komnar þegar hann kemur heim.
Ein af ástæðunum fyrir heimkomu
Bjarna er að börn hans geti sest á
skólabekk hér á landi í haust. Ekki er
vitað hvað Bjarni hyggst taka sér fyrir
hendur eftir að hann flytur heim en
hann hefur einbeitt sér að alls kyns
fjárfestingum upp á síðkastið og
keypti meðal annars nýlega bresku
sælgætisverksmiðjuna Elizabeth
Shaw af Nóa Siríus.
Hins vegar liggur ekki ljóst fyrir
hvort framkvæmdunum verður lokið
fyrir heimkomu Bjarna.
Allt rifið út úr húsinu
Samkvæmt heimildum DV hefur allt
verið rifið út úr húsinu og nýtt sett
inn. Skipt hefur verið um glugga í
húsinu og nýtt þak sett á það en þak-
ið mun hafa lekið. Svo hefur verið
settur stigi sem mun ná af svölum
hússins og út í garðinn. Ekki er
hins vegar verið að stækka húsið
eða bæta við það að grunnfleti.
„Myndir þú þora þessu?“
Íbúi í hverfinu, sem vill ekki
láta nafn síns getið, segir að
á milli átta til tíu bílar iðnað-
armanna hafi verið fyrir utan
hús Bjarna síðustu mánuði og að á
annan tug iðnaðarmanna hafi unn-
ið við það.
Hann segir að mikið hafi verið
skrafað í hverfinu um breytingarnar á
húsi Bjarna og að fólk undrist hvern-
ig hann þori að standa í slíkum stór-
framkvæmdum í kreppunni. Á dög-
um góðærisins var mjög algengt að
auðmenn keyptu hús og rifu allt út
úr þeim og settu inn nýtt en lítið hef-
ur frést af slíku eftir hrunið í haust:
„Myndir þú fara að gera þetta ef þú
þú værir þessi maður?“ spyr íbúinn
í hverfinu og bætir við: „Mér finnst
stórfurðulegt hvernig hann þorir
að gera þetta á þessum tíma. Þetta
er einn af mönnunum sem byrjuðu
á þessu (innskot blaðamanns: út-
rásinni),“ segir íbúinn sem segir mik-
ið hafa gengið á við framkvæmdirnar
frá því í janúar.
Miklar framkvæmdir standa nú yfir á húsi Bjarna
Ármannssonar á Seltjarnarnesi. Allt hefur verið rifið út úr hús-
inu og nýtt sett inn. Á annan tug iðnaðarmanna hefur unnið að
framkvæmdunum síðan í janúar. Íbúi í hverfinu á Nesinu segist
vera undrandi yfir því hvernig Bjarni þori að standa í slíkum
framkvæmdum í kreppunni.
föstudagur 26. júní 20092 Fréttir
hitt málið
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
skattar hækka
Meirihluti þátttakenda í
viðhorfskönnun MMR fyr-
ir DV segist sammála því
að ríkisstjórnin sé nauð-
beygð til að hækka skatta.
Ólafur Ísleifsson segir þessa
niðurstöðu ekki koma á óvart. „Ég tel
að þetta sýni bara að almenningur
áttar sig á því að það eru engir kostir
í efnahagsmálum sem eru raunverulega til vinsælda fallnir,“
segir hann. Þór Saari tekur í sama streng. Hins vegar er munur á við-
horfi fólks eftir tekjuhópum. Þeir tekjulægstu eru mest á móti skatta-
hækkunum en mestan stuðning fá þær frá þeim tekjuhæstu. Menntun
litar einnig afstöðu fólks að því leyti að flestir þeirra sem aðeins hafa
lokið grunnskólaprófi eru „mjög ósammála“ því að ríkisstjórnin sé
nauðbeygð til þess að hækka skatta. Í öllum öðrum menntunarflokk-
um er meirihluti fólks „frekar sammála“ fullyrðingunni.
snekkja og skuldir
Menn á vegum Steingríms Wern-
erssonar, sem kenndur er við
Milestone, hafa unnið að því að
flytja snekkju í hans eigu úr landi.
Snekkjan var hífð upp á bakka í
Sundahöfn fyrir síðustu helgi. Stein-
grímur hefur selt hjólhýsi sitt, torfæruhjól
og lúxusjeppa síðustu vikur og er fluttur
til Bretlands. Málaraverktaki sem vann við
600 fermetra einbýlishús hans er kominn í
skuldamál við Steingrím vegna 2 milljóna króna sem hann telur
að Steingrímur skuldi sér. Steingrímur var ásamt Karli Wernerssyni,
bróður sínum, atkvæðamikill í íslensku útrásinni í gegnum félag sitt
Milestone.
dæmdur fyrir
hótanir
Hornfirðingurinn Bjarki Kárason var dæmd-
ur í sex mánaða fangelsi fyrir hótanir gegn
fjölskylduföður og tíu ára dóttur hans. Bjarki
reyndi að fá manninn til að draga til baka
kæru á hendur Bjarka og félaga hans fyrir
alvarlega líkamsárás nokkrum mánuðum
áður. Þetta gerði hann rétt áður en málið fór
fyrir dóm. Fjölskyldufaðirinn sagðist í sam-
tali við DV vera feginn að þetta mál væri búið, það hefði verið langt og
erfitt. Bjarki hringdi á heimili fjölskylduföðurins að kvöldi og svaraði
tíu ára dóttir mannsins. Dómara þótti sýnt fram á, gegn neitun Bjarka,
að hann hefði hótað bæði dótturinni og manninum.
2
3
1
dv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
þriðjUdagUr 23. júní 2009 dagblaðið vísir 91. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
FLESTir SKiLja
SKaTTaHÆKKanir
FréTTir
BARÐI OG NIÐURLÆGÐI FJÖLSKYLDUFÖÐUR:
SnEKKjan SEnd
úr Landi
HÓTAÐI SVO
TÍU ÁRA
DÓTTUR
ViLTU SjÁ PaBBa þinn
aLBLÓðUgan aFTUr?
„nú SKaLTU draga
þESSa KÆrU TiL BaKa”
„VEiSTU HVEr
þETTa Er?”
STúLKan gréT
MEð SÁran EKKa
gEKK í SKrOKK Á
FÖðUrnUM í FjÓra TíMa
sv
ið
se
tt
m
yn
d
FréTTir
STEingríMUr WErnErSSOn SELUr Eignir
MÁLari í SKULdaMÁL gEgn HOnUM
„ég TaPaði
ÖLLU“
BUBBi MOrTHEnS FÓLK
PaSSaðU þig
Á FaCEBOOK
nEyTEndUr
1.000.000.000
HUngraðra
í HEiMinUM
SViðSLjÓS
BESTU
Búningar
BrUnOS
FréTTir
STjÓrnin
nÖTrar
ELdFiMT iCESaVE
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Helmingur þátttakenda í nýrri við-
horfskönnun Markaðs- og miðla-
rannsókna, MMR, er sammála því að ríkisstjórninni sé nauðugur sá kostur að hækka skatta. 22,6 prósent segjast „mjög sammála“ en 27,5 eru „frekar sammála“.
Nokkru færri, eða 36,7 prósent, eru ósammála því að skattahækk-
anir séu nauðugur kostur fyrir ríkis-
stjórnina. Þar af segjast 17,8 prósent vera „mjög ósammála“ en 18,9 „frek-
ar ósammála“. 13,2 prósent segjast hvorki sammála né ósammála.
Deilt um einstaka hækkanir
„Þetta kemur ekki á óvart,“ segir Ól-
afur Ísleifsson, lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. „Ég tel að þetta sýni bara að almenningur átt-
ar sig á því að það eru engir kostir í efnahagsmálum sem eru raunveru-
lega til vinsælda fallnir,“ segir Ólaf-
ur.
Margar þær hugmyndir sem ríkis-
stjórnin hefur kynnt til skattahækk-
ana hafa engu að síður hlotið mikla gagnrýni. Ólafur segir að gera verði greinarmun á einstaka skattahækk-
unum og afleiðingum þeirra, og síð-
an þeirri almennu stefnu að hækka skatta til að sækja auknar tekjur í rík-
issjóð. „Það verður að jafna þennan mikla halla sem orðinn er á ríkis-
sjóði og greinilegt að menn átta sig á
því að skattahækkanir hljóta að vera nauðsynlegur þáttur í því, samhliða niðurskurði útgjalda, þó deila megi um einstakar ákvarðanir og fram-
kvæmd þeirra,“ segir Ólafur.
Einföldun á flóknu máli
Þór Saari, þingmaður Borgarahreyf-
ingarinnar og hagfræðingur, segir niðurstöður könnunarinnar held-
ur ekki koma sér á óvart. „Það gef-
ur augaleið að það hefur orðið mik-
ið tekjufall hjá ríkissjóði og það þarf einhvern veginn að mæta því, frekar með sköttum en niðurskurði. Það er okkar afstaða. Aftur á móti er mik-
ið af þessum vanda til komið vegna efnahagshrunsins og við teljum að ríkisstjórnin sé að nálgast það mál með röngum hætti. Það er síðan önnur saga. Mér finnst þetta í raun
einföldun á afar flóknu máli. En vissulega þurfa að koma til skatta-
hækkanir til að koma ríkissjóði yfir erfiðasta hjallann,“ segir Þór.
Fjárlagagatið er 20 milljarðar á þessu ári en gert er ráð fyrir 170 milljarða króna halla á næstu þrem-
ur árum. Í tilraun til að fylla upp í þetta gat hefur ríkisstjórnin lagt til
ýmsar skattahækkanir. Þar á meðal er hinn umdeildi sykurskattur, há-
tekjuskattur á tekjur yfir 700 þúsund krónum og hækkuð skattprósenta á fjármagnstekjur.
Tekjulágir mótfallnir
hækkunum
Nokkur munur er á afstöðu svarenda
þriðjudagur 23. júní 20098
Fréttir
„Vissulega þurfa
að koma til skatta-
hækkanir til að koma
ríkissjóði yfir erfiðasta
hjallann.“
MEIRIHLUTI SKILUR
SKATTAHÆKKANIR
Ólafur Ísleifsson
Þór Saari
Erla HlynSDÓTTir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Hversu sammála eða ósammála ertu eftir-farandi fullyrðingu? ríkisstjórninni er nauðugur sá kostur að
Hækka skatta.“
17,8%
m
jö
g
ó
sa
m
m
á
la
18,9%
fr
ek
a
r
ó
sa
m
m
á
la
13,2%
H
v
o
r
k
i n
é
27,5%
fr
ek
a
r
sa
m
m
á
la
22,6%
m
jö
g
sa
m
m
á
la
nMjög sammála
n Frekar sammála
nHvorki né
n Frekar ósammála
nMjög ósammála
800 þúsund
eða meira
undir 250
þúsund
250-399
þúsund
400-599
þúsund
600-799
þúsund
14,3% 25,1% 24,9% 25,7% 29,6%
19,2%
23,8%
31,8% 35,3%
24,4%
8,9%
12,7%
11,9%
12,4%
21,8%
22,6%
17,6%
16,6%
15,5%
18,5%
18,6%
10,8%14,8%
21,1%22,1%
afstaða eftir
Heimilistekjum
Tekjur skipta máli Meirihluti telur að ríkisstjórnin sé nauðbeygð til að hækka skatta. Skoðanir eru hins vegar skiptar eftir tekjuhópum.
eftir tekjum heimilisins. Þannig er stærsti hluti þeirra sem hafa heimil-
istekjur undir 250 þúsundum „frekar ósammála“ því að ríkisstjórninni sé nauðugur sá kostur að hækka skatta. Skoðun stærsta hluta þeirra sem eru í tekjuhópum á bilinu 250 til 799 þús-
und er hins vegar einkennandi fyrir heildina en þeir segjast „frekar sam-
mála“ fullyrðingunni. Fólk með 800 þúsund krónur eða meira í heimilis-
tekjur er síðan „mjög sammála“.
Einnig er eftirtektarvert að í hópi þeirra sem segjast hvorki sammála né ósammála fullyrðingunni eru hlutfallslega flestir með heimilis-
tekjur undir 250 þúsund krónum en fæstir með 800 þúsund krónur eða meira.
Grunnskólamennt-
aðir skera sig úr
Menntun litar einnig afstöðu fólks að því leyti að flestir þeirra sem að-
eins luku grunnskólaprófi eru „mjög ósammála“ því að ríkisstjórnin sé nauðbeygð til þess að hækka skatta. Í öllum öðrum menntunarflokkum er meirihluti fólks „frekar sammála“ fullyrðingunni.
MMR kannaði afstöðu fólks til málsins í netkönnun fyrir DV dagana 9. til 13. júní. Úrtakið var 18-67 ára Íslendingar valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Alls tóku 849 þátt í könnuninni. Þar af svör-
uðu 806, eða 95 prósent, spurning-
unni: „Hversu sammála eða ósam-
mála ertu eftirfarandi fullyrðingu? Ríkisstjórninni er nauðugur sá kost-
ur að hækka skatta.“
Vikmörk í könnuninni, þegar lit-
ið er til svara allra þeirra sem svara, eru á bilinu 2,3 til 3,1 prósent. Stærst eru vikmörkin hjá þeim sem segjast frekar sammála fullyrðingunni en minnst hjá þeim sem segjast hvorki sammála né ósammála.
þriðjudagur 23. júní 2009 9
Fréttir
200
9
Skýr greinarmunur Ólafur ísleifsson segir að gera verði greinarmun á
einstaka skattahækkunum og þeirri
almennu hugmynd að hækka skatta til að auka tekjur ríkissjóðs.
Röng nálgun þór Saari telur skatta-
hækkanir ákjósanlegri en niðurskurð til að minnka halla ríkissjóðs. Honum finnst ríkissjórnin þó nálgast vandann með röngum hætti.
STAKK EINN og
SKAR ANNAN
Tólf mánaða fangelsi, þar af níu
mánuðir skilorðsbundnir, bíða
Frans Friðrikssonar, 21 árs Hafn-
firðings, eftir að hann var fundinn
sekur um að hafa stungið einn ung-
an mann sem hann átti í útistöðum
við og skorið annan.
Frans var ákærður fyrir tilraun til
manndráps og alvarlega líkamsár-
ás eftir að hann særði mennina fyr-
ir utan Hverfisbarinn 13. desember
í fyrra. Dómari komst hins vegar að
þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið
um tilraun til manndráps að ræða.
Samskipti mannanna hófust inni
á skemmtistaðnum Hverfisbarnum.
Frans var þar ásamt systur sinni,
vinkonum hennar og kærasta syst-
ur sinnar. Kærastinn bað Frans að
sættast við menn sem voru inni en
Frans sagðist ekki hafa viljað gera
það enda hefðu þeir barið hann fyrir
utan Hlöllabáta sumarið 2007. Þessi
neitun hans leiddi til rifrildis milli
Frans og nokkurra ungra manna
sem endaði á því að Frans flýtti sér
út. Hann sagði einn mannanna hafa
beðið dyravörð um að henda sér út
svo þeir gætu barið hann en dyra-
vörðurinn hafi ekki orðið við því.
Eftir að út var komið hélt Frans
að bíl sínum en ákvað eftir nokkra
umhugsun að fara ekki af vett-
vangi líkt og á flótta heldur keyra
að skemmtistaðnum. Nokkru síðar
komu mennirnir út og segist Frans
hafa spurt þá að nafni en þeir að
hann hafi hótað þeim. Tveir mann-
anna komu þá að bílnum bílstjóra-
megin og var annar þeirra kom-
inn hálfur inn um gluggann þegar
manninum fannst sem hann hefði
verið barinn. Á sama tíma gaf Frans
í og ók á brott. Það var ekki fyrr en
skömmu seinna sem uppgötvaðist
að maðurinn sem fór inn um glugga
bílsins var blóðugur, hafði verið
stunginn, félagi hans var sár eftir
skurð með hnífnum. Hvorki þeir né
félagi þeirra sem var á glugganum
farþegameginn sáu hvað gerðist.
Dómari sagði að sökum aðdrag-
anda árásarinnar væri ekki hægt
að segja að Frans hafi ætlað sér að
bana manninum sem hann stakk
og sýknaði hann því af ákæru um
tilraun til manndráps. Hins vegar
væri það sérstaklega hættuleg árás
að sveifla hníf að tveimur mönnum
og hafi í raun hending ein ráðið því
að ekki fór verr.
Frans var dæmdur til að greiða
öðrum manninum hálfa milljón
króna í bætur og hinum 80 þúsund
krónur. Loks þarf hann að greiða
tæpar tvær milljónir króna í máls-
varnar- og sakarkostnað.
BRynjólfuR ÞóR GuðmundSSon
fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is
Árás við Hverfisbarinn Mönnunum laust saman fyrir utan Hverfisbarinn eftir að hafa rifist þar inni.
þriðjudagur 23. júní 20092
Fréttir
FLYTUR SNEKKJUNA ÚR LANDI
Snekkja útrásárvíkingsins Stein-
gríms Wernerssonar var hífð upp úr
Sundahöfn í Reykjavík síðasta föstu-
dag og sett á fleka í höfninni þar sem
hún bíður þess að vera flutt úr landi
með gámaflutningaskipi Eimskips á
næstu dögum. Snekkjan, sem heit-
ir Almira, er af gerðinni Sealine S24
og er talin vera smíðuð árið 2005
eða 2006. Samkvæmt upplýsingum
frá þeim sem eru kunnugir slíkum
bátum, má ætla að báturinn kosti á
fimmta tug milljóna króna. Snekkj-
an hefur verið geymd undanfarin ár
í Snarfarahöfn í Reykjavík, þar sem
samnefndur sportbátaklúbbur hefur
aðstöðu. Nafn snekkjunnar, Almira,
þýðir jafnan prinsessa.
valGEIR ÖRN RaGNaRSSON
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Steingrímur Wernersson
Árland 1 Einbýlishús Steingríms er á besta sta
ð í Fossvogi. Málaraverktaki telur
Steingrím skulda sér rúmar 2 milljónir krón
a vegna málningarvinnu við húsið.
„Ég sé ekki að það
komi ykkur á nokk-
urn hátt við.“
Úr landi Steingrímur
Wernersson, sem sést
hér ásamt eiginkonu
sinni, hefur verið að
selja eignir sínar.
Á leið til Sundahafnar Snekkj-
unni almiru var siglt frá Snarfara-
höfn að Sundahöfn fyrir helgi.
Á leið úr landi Snekkjan verður
flutt úr landi á næstu dögum.
þriðjudagur 23. júní 2009 3
Fréttir
Steingrímur var ásamt Karli Wern-
erssyni, bróður sínum atkvæðamikill
í íslensku útrásinni í gegnum félag
sitt Milestone. Bræðurnir högnuðust
gífurlega og mat Markaðurinn eign-
ir hans á 42 milljarða króna í júlí á
síðasta ári. Ljóst er að verulega hef-
ur hallað undan fæti hjá Steingrími
undanfarna mánuði.
Selur eignirnar
Snekkjan Almira er að öllum líkind-
um skráð erlendis, en þegar leitað var
í skipaskrá Siglingastofnunar, fannst
enginn bátur með nafninu Almira á
skrá. Meðal þeirra sem komu að því
þegar snekkjunni var siglt úr Snar-
farahöfn og yfir í Sundahöfn á föstu-
daginn var Stefán Bragi Bjarnason,
lögfræðingur Steingríms, sem sjálf-
ur er búsettur erlendis. Ekki er vitað
hvers vegna flytja á bát Steingríms úr
landi, en hann hefur verið að selja
persónulegar eignir sínar undan-
farna mánuði. Þeirra á meðal er Toy-
ota Landcruiser 200 jeppi, árgerð
2008 sem Steingrímur seldi í apr-
íl. Kaupandinn af bílnum var Stefán
Bragi, lögfræðingur hans, og er al-
gengt söluverð á slíkum bílum um 12
milljónir króna. Skömmu áður hafði
Steingrímur reyndar veðsett bílinn
vegna 160 milljóna króna láns sem
Ingunn Gyða Wernerssdóttir, syst-
ir hans, veitti honum í mars á þessu
ári.
Auk jeppans hefur hann ný-
lega selt sex hjóla torfæruhjól sitt af
gerðinni Polaris Sportsman og hjól-
hýsi af gerðinni Tabbert Davinci.
Kaupandinn að því var eiginkona
Tómasar Ottó Hanssonar, sem hef-
ur verið framkvæmdastjóri fjárfest-
ingafélags Björgólfs Thors Björgólfs-
sonar, Novator. Öll farartækin sem
Steingrímur seldi voru veðsett í mars
vegna lánsins sem systir hans veitti
honum. Við söluna á þeim voru þau
hins vegar öll veðbandalaus, sam-
kvæmt upplýsingum frá Umferðar-
stofu.
Málari í skuldamál
Málarafyrirtækið Milli mála, sem
sá um málningarvinnu á nýju tæp-
lega 600 fermetra einbýlishúsi
Steingríms í Árlandi 1 í Fossvogi,
er komið í skuldamál við Stein-
grím vegna vangoldinna greiðslna
upp á rúmar tvær milljónir króna.
Málaraverktakinn hóf að vinna við
húsið í janúar árið 2008, að mála
það bæði að utan og innan. Hann
segir að Steingrímur hafi flutt inn
í húsið áður en vinnu var lokið,
en ekki borgað fyrir þá vinnu sem
verktakinn innti af hendi. Hann
segir að fulltrúi Steingríms hafi gert
honum tilboð um greiðslu sem var
talsvert lægri en 2 milljónir. Hann
segist hins vegar ekki hafa tekið
það í mál og hafnað tilboðinu.
Karl Georg Sigurbjörnsson,
lögmaður verktakans, staðfestir
að skuldin sé komin í innheimtu-
meðferð og málið sé á frumstigi.
Ágreiningur er um umfang verks-
ins. Lögmaðurinn hefur sent
Steingrími innheimtubréf og búast
má við að næstu skref séu að dóm-
kveða matsmenn sem munu taka
verkið út til að skera úr um ágrein-
inginn.
Kemur ykkur ekki við
„Ég sé ekki að það komi ykkur á
nokkurn hátt við,“ svaraði Stefán
Bragi Bjarnason, spurður um áform
Steingríms með Almiru. Hann segist
aðeins vera að flytja bátinn úr landi
fyrir Steingrím, þar sem hann er bú-
settur erlendis. Hann segist ekki vita
hvort selja eigi bátinn. Stefán Bragi
vildi ekki kannast við að málaraverk-
takinn væri kominn í skuldamál við
Steingrím og sagði að síðast þegar
hann vissi hefði hann verið hættur
við að stefna Steingrími, enda hefði
hann ekki ástæðu til.
DV náði ekki tali af Steingrími
Wernerssyni við vinnslu fréttarinnar.
Hífð upp almira var
hífð upp í Sundahöfn.
Bjarni Ingimarsson
Kristjáni Einarssyni
Bjarni Ingimarsson var einn þeirra
slökkviliðsmanna sem hætti störf-
um hjá Brunavörnum Árnes-
sýslu fyrir stuttu vegna ósættis við
slökkviliðsstjórann Kristján Ein-
arsson. Bjarni hefur nú ráðið sig í
slökkvilið Þorlákshafnar en ósætt-
inu er ekki lokið.
Samkvæmt heimildum DV
hringdi Kristján í slökkviliðsstjóra
Þorlákshafnar, Guðna Þór Ágústs-
son, og tjáði óánægju sína með að
Bjarni hefði verið ráðinn í vinnu.
Þá krafðist Kristján þess að Guðni
myndi leysa Bjarna frá störfum.
Heimildarmenn DV segja símtalið
hafa verið ansi harðort og á Kristján
að hafa hótað því að hringja í Mjólk-
urbú Flóamanna þar sem Bjarni
vinnur sitt aðalstarf og stefna fram-
tíð hans hjá fyrirtækinu í hættu. Í
lok símtalsins ku Kristján hafa ráð-
ist persónulega á unnustu og fjöl-
skyldu Bjarna, þá sérstaklega föður
hans sem er góðvinur Guðna.
Í farvegi í stjórnsýslunni
Heimildir DV herma að Bjarni hafi
kært Kristján fyrir athæfið til Lands-
sambands slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamanna og að málið sé til
umfjöllunar hjá sambandinu núna.
Bjarni vill ekkert tjá sig um málið á
þessu stigi þar sem það er „í ákveðn-
um farvegi í stjórnsýslunni“.
DV hafði samband við Guðna
Þór, slökkviliðsstjóra í Þorlákshöfn,
og hann treystir sér ekki til að tjá sig
um málið á þessari stundu.
„Ég ætla ekki að gefa neitt út á
þetta að svo stöddu. Þetta er mjög
viðkvæmt mál.“
Heimildarmenn DV sem þekkja
til Brunavarna Árnessýslu telja ljóst
að Kristján leggi Bjarna beinlínis í
einelti.
Mikið ósætti
DV skrifaði fyrst um ósætti inn-
an Brunavarna Árnessýslu í janúar
þegar 25 af 63 slökkviliðsmönnum
stefndu Brunavörnum. Snerist mál-
ið um síma sem slökkviliðsmenn-
irnir fengu svo hægt væri að kalla
þá út á öllum tímum sólar-
hringsins.
Símamálið var korn-
ið sem fyllti mælinn í sam-
skiptum slökkviliðsmanna
við Kristján Einarsson
slökkviliðsstjóra en deilur
þeirra í milli ná mörg á aftur
í tímann. Í samtali við DV í
janúar sagðist Kristján ekki kannast
við ósætti innan Brunavarna Árnes-
sýslu. Hann kenndi kreppunni um
pirring vegna vangoldinna síma-
greiðslna.
DV hafði samband
við Kristján vegna símtalsins við
Guðna. Hann vildi ekkert tjá sig um
málið þar sem hann hefði brennt sig
áður á ummælum sem höfð voru
eftir honum í fjölmiðlum.
ENN KVARTAÐ UNDAN
SLÖKKVILIÐSSTJÓRA
Tjáir sig ekki
Kristján vill
ekkert tjá sig
við fjölmiðla
um símtalið við
guðna.
Ólga í Árnessýslu Margir lykilmenn Bruna-
varna Árnessýslu létu af störfum fyrir stutt
u
vegna ósættis við slökkviliðsstjórann.
MYND GuðMuNDur VIGfúSSoN
„Það er búin að vera bullandi sátta-
vinna í þessu máli. Strákarnir vilja
fá greitt fyrir að fá símana og bera
þá þrjú ár aftur í tímann samkvæmt
kjarasamningi. Túlkun á því frá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga er
að það verði að gera. Þó svo við hefð-
um látið þá fá góða síma og komið til
móts við allskyns kröfur mega sveit-
arfélög gera vel við sína menn en það
kemur kjarasamningum ekki við,“
segir Kristján Einarsson, slökkviliðs-
stjóri Brunavarna Árnessýslu.
25 af 63 slökkviliðsmönnum hafa
stefnt Brunavörnum Árnessýslu og
var málið þingfest í fyrradag. Símana
fengu slökkviliðsmennirnir svo hægt
sé að ná í þá á hvaða tíma sólar-
hrings sem er ef eldur kviknar. Sam-
kvæmt kjarasamningum eiga þeir
að fá greiddar nítján þúsund krón-
ur hver á ári. Sú greiðsla hefur aldrei
verið reidd af hendi og krefjast þeir
nú greiðslu þrjú ár aftur í tímann fyr-
ir að hafa gsm-síma frá slökkviliðinu
á sér allan sólarhringinn eins og seg-
ir til um í kjarasamningum. Er upp-
hæðin sem deilt er um komin upp
í um 1,8 milljónir án vaxta og lög-
fræðikostnaðar.
Óánægja í slökkviliðinu
Guðni Á. Haraldsson, lögmaður
slökkviliðsmanna, segir sáttavið-
ræður standa og á hann ekki von á
því að málið fari mikið lengra.
„Brunavarnir tóku sér frest til að
skila greinargerð um málið en við
erum í viðræðum um hvort hægt sé
að semja um þetta og greiða þessa
upphæð. Við vonum að það tak-
ist sátt í málinu og ég á frekar von á
því.“
Samkvæmt heimildum DV hefur
verið mikil óánægja meðal slökkvi-
liðsmanna í Árnessýslu og skilja þeir
ekki af hverju málið hefur þurft að
ganga svona langt. Heimilidir DV
herma enn fremur að Kristján Ein-
arsson slökkviliðsstjóri hafi neitað
að borga þetta gjald og telja slökkvi-
liðsmenn að með því hafi hann vís-
vitandi verið að brjóta kjarasamn-
inga. Því hafi málið undið upp á sig
og slökkviliðsmenn séð sig knúna til
að leita til lögfræðings.
Kristján kannast ekki við ósætti
hjá Brunavörnum og botnar ekki í
því af hverju málið fór svona langt.
„Þetta mál fór miklu lengra en
allir aðilar ætluðu sér. Það hafa hin-
ir og þessir slökkviliðsmenn sem
standa í þessu komið til mín og þeir
ætluðust ekki til þess að þetta mál
færi svona. Það eru engir að skella
hurðum. Þetta eru fínir strákar sem
vilja þessu apparati vel. Vegna and-
rúmsloftsins í þjóðfélaginu eru sum-
ir hverjir með erfiðar skuldir og því
pirraðir inni í sér en það er ekkert
ósætti,“ segir Kristján.
Einn stór misskilningur
„Við höfum engar áhyggjur. Málið
verður ekki tekið fyrir fyrr en eftir
tvær til þrjár vikur og ég vona að við
verðum búnir að ná lendingu fyr-
ir það. Þetta er hundleiðinlegt mál,“
segir Kristján og telur það byggt á
einum stórum misskilningi.
„Við vorum í góðri trú að við vær-
um að gera gott og það ætti að ganga
frá þessum greiðslum í launaum-
ræðunni í desember. Þá hefði þetta
leiðrést gagnvart launanefnd sveit-
arfélaganna og Landssambandi
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna. En síðan voru samningarn-
ir framlengdir og þetta atriði var ekki
með. Ég kenni samt engum um.“
Svipað mál kom upp hjá slökkvi-
liðinu í Þorlákshöfn en það gekk frá
málinu í fyrra og bað slökkviliðs-
menn sína afsökunar. Árnessýsla er
nú eina sveitarfélagið sem hefur ekki
borgað slökkviliðsmönnum þessar
greiðslur.
Margrét Katrín Erlingsdóttir, for-
maður Brunavarna Árnessýslu, ber
ábyrgð á málinu en hún vildi ekkert
tjá sig um það af hverju málið hefði
gengið svona langt.
„Ég er búin að vera að vinna í
þessu máli síðan það kom upp og
ég vil ekkert tjá mig um það. Þetta
er launamál starfsmanna sem ég vil
ekki ræða í fjölmiðlum. Það er búið
að stefna okkur fyrir dóm og þá þarf
ég að passa mig. Við erum búin að
vinna að lausn málsins á síðustu
mánuðum og ég vona að það leysist
sem fyrst.“
Kristján Einarsson
föstudagur 23. janúar 20098
Fréttir
„Vegna andrúmsloftsins í þjóðfélaginu eru
sumir hverjir með erfiðar skuldir og því pirraðir
inni í sér en það er ekkert ósætti.“
lilja Katrín gunnarsdÓttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Óánægðir slökkviliðsmenn
samkvæmt heimildum dV eru
slökkviliðsmenn í Árnessýslu
ekki ánægðir með framgöngu
slökkviliðsstjóra í málinu.
mynd guðmundur Vigfússon
Á bakvakt allan sólarhringinn
slökkviliðsmönnum hafa ekki
verið greiddar nítján þúsund
krónur á mann síðustu þrjú árin.
mynd stEfÁn Karlsson
Ekkert ósætti
Kristján Einarsson harmar að
lögfræðinga hafi þurft til að útkljá
málið og segir ekkert ósætti vera
milli sín og slökkviliðsmanna.
SLÖKKVILIÐSMENN
STEFNA YFIRMANNI
„Þetta er mjög
viðkvæmt mál.“
lIlja GuðMuNDSDÓTTIr
blaðamaður skrifar lilja@dv.is
Kornið sem fyllti mælinn
dV fjallaði um ósætti i nan
Brunavarna Árnessýslu fyrst í
janúar.
LÆTUR RÍFA ALLT
ÚT ÚR HÚSINU SÍNU
IngI F. VIlhjÁlMsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Á glitnisrúntinum Hópur mótorhjólamanna veifaði
glitnisfána við hús Bjarna. Mótorhjólamennirnir hafa
boðað að taka fleiri slíka rúnta heim til bankamanna.
„Mér finnst stórfurðu-
legt hvernig hann þorir
að gera þetta á þessum
tíma.“
Allt rifið út allt hefur verið rifið
út úr húsi Bjarna Ármannssonar á
seltjarnarnesi og nýtt sett inn.
Á heimleið Bjarni flyst heim frá
noregi ásamt fjölskyldu sinni.