Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Blaðsíða 31
föstudagur 26. júní 2009 31Fókus
Þegar tíkin sem er kærasta Jimmys,
leikinn af Matthew Horne, yfirgefur
hann í enn eitt skiptið þvingar besti
vinur hans, Fletch, leikinn af James
Corden, í ferðalag til þess að gleyma
raunum sínum. Auralausir komast
þeir ekki úr landi á sólarströnd og
ákveða því að fara þangað sem pílan
endar á korti af Bretlandi. Á þorpinu
sem verður fyrir valinu hvíla þau ör-
lög að allar stúlkur þess verði lesb-
ískar vampírur um leið og þær verða
átján ára. Magnað plott. Á einu æv-
intýraríku kvöldi þurfa þeir að af-
létta bölvununni með hjálp blótandi
prests og yndisfagurrar stúlku.
Horne og Corden eru nýjasta
gríntvíeyki Breta og hafa farið á kost-
um í gamanþáttunum Gavin and
Stacey sem unnið hafa ótal verðlaun,
bæði á BAFTA og bresku grínverð-
laununum. Í þáttunum leika þeir
félagana Gavin og Smithy sem auð-
velt er að elska enda samband þeirra
bæði fáránlega fyndið og sykursætt.
Þeir félagarnir fara ekki langt í kar-
aktersköpun fyrir þessa mynd og eru
þetta í raun sömu karakterarnir. Ga-
vin, nú Jimmy, þessi mjúka týpa og
Smithy, nú Fletch, fíflið en svo sann-
arlega fyndið fífl. Þessi fáviti sem
James Corden hefur skapað er nefni-
lega alveg viðbjóðslega fyndinn.
Lesbian Vampire Killers er vissu-
lega algjör þvæla en hún var gerð til
þess að vera þvæla og býður því ekki
upp á neinn kjánahroll. Menn vissu
nákvæmlega út í hvað þeir voru
að fara og reyna því ekkert skot yfir
markið. Hraðar klippingar í breskum
stíl og teiknimyndatexti lífgar upp
á myndina á milli þess sem Fletch
blótar öllu í sand og ösku og reynir
við gullfallegar, stórbrjósta fegurðar-
dísir.
Yfirhöfuð er myndin ekkert meira
en fínasta afþreying og á skilið það
sem hún fær. Unnendur Gavin and
Stacey-þáttanna verða þó mun hrifn-
ari en aðrir af myndinni og geta vel
bætt við hálfri, jafnvel einni stjörnu.
Tómas Þór Þórðarson
Hressandi þvæla
m
æ
li
r
m
eð
...
Tölvuleikurinn uFC 2009
„skugga- og
sudda-
rudda-
mudda-
tuddalegur,“
segir gagnrýnandi dV.
Grease
sýningin
grease er
í einu orði
sagt „dúndur
show“ segir
gagnrýnandi.
The hanGover
frábær grínmynd
úr smiðju todds
Phillips sem hefur
leikstýrt myndum á
borð við Old school
og road trip.
year one
gamanmynd
sem springur
eins og Kínverji,
ekki skipa-
raketta eins og
innihaldslýsingin vísaði á.
TerminaTor salvaTion
„Christian Bale
er fínn í hlutverki
johns Connor
en myndin ekki
jafngóð,“ segir
gagnrýnandi.
Íslenska eFnahaGs-
undrið: FluGeldahaG-
Fræði Fyrir byrjendur
Bók um hrunið eftir jón fjörni
thoroddsen féll ekki vel í
kramið hjá gagnrýnanda.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
föstudagur
n Gunni og sinfó
Meistaralagasmiðurinn og -tónlistar-
maðurinn gunnar Þórðarson opnar
söngbók sína og spilar öll sín bestu
lög með aðstoð sinfóníuhljómsveitar
ísland í Háskólabíói. tvö miðaverð
eru á tónleikana en hægt er að kaupa
miða á midi.is.
n Útgáfupartí Thule og beatport
Á jacobsen verður útgáfupartí thule
og Beatport í tilefni þess að Beatport
gefur út lög frá thule-músík.
Beatport er með eitt stærsta net af
elektrónískum lögum til niðurhals.
Þarna verða dj thor, Hunk of a Man,
strákarnir í Plugg´d, dj Oxy, hg dj
a.t.L að þeyta skífum.
n nana á kúltúru
Það verður dúndrandi hip-hop, r&b
og reggeaton-kvöld á Cafe Kúltúru
við Hverfisgötu 18 á föstudagsnótt-
ina. dj nana mun trylla lýðinn og sjá
til þess að fólk hristi rassinn þangað
til það getur einfaldlega ekki meira.
n v.i.P. á Prikinu
Það er V.I.P.-helgi á skemmtistaðnum
Prikinu um helgina. Á föstudaginn
hefur húsbandið leik klukkan
nákvæmlega sautján mínútur og
þrjátíu og þrjár sekúndur yfir tíu. Eftir
það sér svo dj addi Intro um að klára
kvöldið.
laugardagur
n hjaltalín á nasa
Á laugardaginn ætla Hjaltalín og rás
2 að slá upp ærlegri veislu á nasa í
tilefni þess að Hróarskelduhátíð er rétt
handan við hornið, en Hjaltalín mun
einmitt spila á hátíðinni. 1.500 krónur
kostar inn á tónleikana sem hefjast
klukkan 21.30.
n house á jacobsen
Á neðri hæð skemmtistaðarins
jacobsen á laugardaginn verður spilað
minimal house- og teknó-tónlist alla
nóttina. Oculus, Oran og asli munu
þeyta skífum fram undir morgun en
Oculus hefur meðal annars verið að
gefa út á Beatport.
n dalton á hressó
Hljómsveitin dalton spilar í garðpartíi
Hressingarskálans á laugardaginn
en þar verða fríir borgarar og áfengi
á meðan birgðir endast. tuttugu ára
aldurstakmark er í partíið en aðeins
er hægt að fá miða með því að senda
línu á dalton-menn: daltonbandid@
gmail.com.
n deluxxx á Prikinu
Hinn vikulegi útifatamarkaður Priksins
verður á sínum stað á laugardaginn
en V.I.P.-helgi er á staðnum. Meistara-
plötusnúðurinn dj danni deluxxx sér
svo um að þeyta skífum um kvöldið og
verður enginn svikinn af því frekar en
fyrri daginn.
n mafían í london og reykjavík
strákarnir í the House Mafia munu
spila á London/reykjavík á laugardag-
inn og gera allt vitlaust eins og þeir
gerðu á júróvisjón-kvöldinu í maí. öll
besta danstónlistin verður spiluð og
kostar aðeins 500 krónur inn eftir eitt.
fram að því er frítt inn.
Hvað er að
GERAST?
Lesbian Vampire
KiLLers
leikstjóri: Phil Claydon
aðalhlutverk: Matthew Horne og
james Corden
kvikmyndiR
lesbian vampire killers algjör
þvæla en Horne og Corden eru góðir.
ing þannig að maður sé ekki að end-
urtaka sig.“
Hann segir það frábært að vinna
með Ladda. „Þeir sem þekkja hann
vita að hæfileikarnir sem fóru í Ladda
áttu að fara í fimm þúsund manns en
hann leikur mann alltaf út í horn,“
segir Stefán brosandi.
lárus í laxdælu
Um miðjan júlímánuð hefjast síðan
tökur á myndinni Laxdæla Lárusar
Skjaldarsonar. Myndinni er leikstýrt
af Ólafi Jóhannessyni sem gerði með-
al annars Stóra planið og The Amaz-
ing Truth About Queen Raquela.
„Það er meira drama í þessari
mynd. Þetta er ekki ádeilumynd en
hún fjallar um íslenskt hugarfar að
sumu leyti og ég er þá ekki að meina
ástandið í dag heldur bara okkur Ís-
lendinga,“ segir Stefán sem fer með
hlutverk Lárusar í myndinni.
Úrvalslið leikara fer einnig með
hlutverk í þessu fjölskyldudrama og
má þar meðal annars nefna Eggert
Þorleifsson, Ágústu Evu Erlendsdótt-
ur, Pétur Einarsson, Flosa Ólafsson,
Ingvar E. Sigurðsson og Ragnhildi
Steinunni Jónsdóttur.
Myndin er tekin upp að mestu í
Búðardal en Ólafur Jóhannesson er
einmitt þaðan. Lárus lendir í því áfalli
að eiginkona hans yfirgefur hann fyrir
yfirmann hans sem leikinn er af Sig-
urði Sigurjónssyni. „Hann er að reyna
að fóta sig í lífinu og fer út á land, í
Búðardal að ósk föður hans, að end-
urreisa gamalt sláturhús á staðnum,“
segir Stefán. „Aumingja Lárus hefur
aldrei komið nálægt viðskiptum en
lýgur sig inn til að reyna að húrra sam-
félagið upp og það er gaman að fylgj-
ast með Lárusi þar sem hann verður
betri maður eftir þessa reynslu.“
Stefán fer fögrum orðum um leik-
stjórann og bindur miklar vonir við
hann. „Hann er mjög skipulagður
og með sýnina yfir myndina alveg í
hausnum sem er frábært. Það eru for-
réttindi að fá að vinna með svoleiðis
fólki.“
Fjarri fjölskyldunni
Stefán dvelur á Íslandi fram í miðjan
ágúst frá fjölskyldu sinni sem hann
viðurkennir að sé mjög erfitt. Því
fylgja blendnar tilfinningar en hann
segir það nánast ómögulegt að fljúga
með alla fjölskylduna til landsins frá
Los Angeles. „Það hefði klárað laun-
in ansi fljótt hefði ég komið með þau
heim. Við hefðum sennilega ekki náð
að borða neitt,“ segir Stefán að gamni
sínu. En Stefán segir að flug fyrir alla
fjölskylduna hefði kostað hátt í millj-
ón íslenskra króna.
Hann segir það ávallt skrýtið að
koma heim eftir svona langa dvöl úti.
„Mér líður alltaf eins og gesti í eigin
landi en þó er ég alltaf meira og meira
sannfærður um það að Ísland sé besta
land í heimi,“ segir Stefán og tekur þá
sérstaklega fram einstaka hlýju sem
hann finnur frá landanum.
„Það er alltaf hlýlegt og heimilis-
legt að koma heim. Ókunnugir menn
gefa sig á tal við mann eins og ættingja
og vin úti á götu og það er ofboðslega
heimilisleg tilfinning og þægileg og
gerir fjarveruna frá minni eigin fjöl-
skyldu bærilegri. Satt best að segja er
þetta besta land í heimi,“ ítrekar hann
enn eina ferðina. „Svo ekki sé minnst
á kókið hérna heima. Það er alvöru
sykur og vatn í því en ekki klórvatn og
kornsíróp.“ hanna@dv.is
stefán karl stefánsson
Hann hefur tekið að sér tvö
hlutverk í tveimur afar ólíkum
myndum í sumar ásamt því
að gefa út skemmtidiskinn
túrett og moll.
mynd heiða helGadóTTir