Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Blaðsíða 42
föstudagur 26. júní 200942 Sport
Lífið ekki aLLtaf
Ljúft á BernaBeu
Því fylgir eðlilega mikil pressa að leika fyrir stórliðið Real Madrid. Þetta sögufræga lið hefur
síðustu áratugi aðeins keypt bestu leikmenn heims. En þegar svona margir eru keyptir get-
ur lífið ekki verið öllum gott á Bernabeu. Meira að segja þó að þú standir þig vel áttu þér ekki viðreisnar
von í hörðum heimi þess að vera leikmaður Real Madrid. DV tekur saman sjö leikmenn sem lifa eða lifðu
ekki sældarlífi á Bernabeu.
javi Garcia - Spáni
Staða: Varnarsinnaður miðjumaður
Aldur: 22 ára
Núverandi lið: real Madrid
Ár með Real Madrid: 2004-2007 og
2008-?
Leikir með Real Madrid (mörk): 18 (0)
javi garcia er einn af sárafáum leik-
mönnum real Madrid sem koma úr
unglingastarfi liðsins. Miklar væntingar
voru bundnar við hann þegar hann var að brjótast fram á sjónarsviðið
fyrir fáeinum árum. ungur að aldri fékk hann afar fá tækifæri og var
seldur til Osasuna þar sem hann fékk að njóta sín og sýndi hvers
hann var megnugur. real Madrid hafði rétt á að kaupa hann aftur til
baka og í stað þess að leyfa honum að þroskast annars staðar stukku
Madridingar á hann þegar önnur lið fóru að bera víurnar í garcia.
Hann kom aftur á Bernabeu fyrir síðasta tímabil en hefur meira og
minna setið á bekknum síðan.
joSe antonio reyeS
Spáni
Staða: Vængmaður
Aldur: 25 ára
Núverandi lið: Benfica
Ár með Real Madrid: 2006-2007
Leikir með Real Madrid (mörk): 49 (9)
draumur joses reyes var alltaf að leika
fyrir real Madrid og sannaðist það hvað best í frægu útvarpsviðtali
þar sem hann var plataður til þess að segja sína skoðun á Lundúnum
og drauma sína um Bernabeu. Hann fékk svo loks tækifærið tímabilið
2006-2007 og lék vel með liðinu það ár en hann var á láni frá arsenal.
Hann kom meira að segja inn á snemma í lokaleik tímabilsins þar
sem real Madrid var undir, 1-0, skoraði tvö mörk í 3-1 sigri og real
endurheimti titilinn á ný. Það virtist aðeins formsatriði að reyes
myndi skrifa undir varanlegan samning en skjótt skipast veður í lofti
og áður en hann vissi af var hann kominn í lið Madrid. En ekki real.
Heldur atletico. Hjá atletico gekk reyes ekkert og er hann nú kominn
í Benfica í Portúgal og virðist sem snögglega hafi fjarað undan ferli
joses antonios reyes.
juLio BaptiSta
BraSiLíu
Staða: framherji
Aldur: 27 ára
Núverandi lið: roma
Ár með Real Madrid: 2005-2008
Leikir með real Madrid (mörk): 58 (11)
julio Baptista var stórkostlegur í liði
sevilla þegar það var að vinna sig upp
á meðal þeirra bestu á spáni árin 2003-2005. real Madrid fór ekki
varhluta af gæðum Brasilíumannsins og fékk hann til þess að styrkja
framlínu sína. Baptista var þó einn af þeim sem einfaldlega komust
aldrei í takt við lífið hjá real Madrid. Hann lék aðeins fimmtíu og átta
leiki á þremur tímabilum og skoraði ellefu mörk. Áður hafði hann
skorað fjörutíu mörk í sextíu leikjum fyrir sevilla. Hann fór eitt ár til
arsenal á láni áður en real Madrid þakkaði Baptista pent fyrir sitt
framlag og sendi hann með frímerki á rassinum til roma á ítalíu.
tomaS GraveSen danmörku
Staða: Miðjumaður
Aldur: 33 ára
Núverandi lið: Hættur
Ár með Real Madrid: 2005-2006
Leikir með Real Madrid (mörk): 35 (1)
danski harðjaxlinn thomas gravesen var
eiginlega keyptur til real Madrid fyrir misskilning. Mönnum á Berna-
beu fannst sárlega vanta upp á varnarleikinn á miðjunni og ætluðu
gravesen að binda saman vörn og miðju eins og hann hafði gert svo
snilldarlega með Everton fram að því. Málið var að gravesen sá ekkert
um hlutverk varnarsinnaðs miðjumanns hjá Everton. Það gerði annar
sköllóttur leikmaður sem er afar líkur gravesen, Lee Carsley, sem nú
leikur með Birmingham. gravesen hafði sig mun meira í frammi í
sókninni og lagði upp ófá mörkin. í hlutverki varnarsinnaðs miðju-
manns gekk gravesen lítið og var hann kominn til skotlands ári síðar.
javier SavioLa arGentínu
Staða: framherji
Aldur: 27 ára
Núverandi lið: real Madrid
Ár með Real Madrid: 2007-?
Leikir með Real Madrid (mörk): 16 (4)
ungur að árum raðaði saviola inn mörk-
um fyrir Barcelona. Hann var sendur á
lán síðustu tvö árin sín hjá Barca og þegar kom að því að selja saviola
voru erkifjendurnir í real Madrid ekki lengi að klófesta argentínu-
manninn snjalla. saviola hefur verið meira og minna týndur frá því
hann klæddist fyrst hvíta búningnum enda virðist sem honum hafi
aldrei verið ætlað byrjunarliðssæti. Hann hefur aðeins komið við sögu
í sextán leikjum hjá liðinu á tveimur tímabilum og þá meira og minna
komið inn á sem varamaður. Margir bíða eftir að þessi hæfileikaríki
framherji komi sér eitthvað annað og fari að skora en hann virðist vera
nokkuð sáttur með sinn stað í lífinu.
micHaeL oWen
enGLandi
Staða: framherji
Aldur: 29 ára
Núverandi lið: newcastle
Ár með Real Madrid: 2004-2005
Leikir með real Madrid (mörk): 35 (16)
Það verður seint sagt að Michael Owen
hafi staðið sig illa hjá real Madrid. Þvert
á móti. Owen var mikið notaður sem varamaður tímabilið sem hann
eyddi hjá real Madrid en tókst samt að skora nokkur mörk. Það virtist
þó að hvað sem hann gerði vel, hann var einfaldlega ekki í myndinni
hjá þjálfara né stuðningsmönnum liðsins. Hann hrökklaðist því til
newcastle og féll með liðinu úr ensku úrvalsdeildinni í vor. Hann hefur
þó verið afar mikið meiddur á síðustu árum. Owen byrjaði hægt með
real Madrid en var fljótur að koma sér í gang. seinagangurinn í byrjun
móts gleymdist þó aldrei og var hann alltaf kaffærður af spænskri
pressu sama hvað hann gerði gott.
antonio caSSano
ítaLíu
Staða: framherji
Aldur: 26 ára
Núverandi lið: sampdoria
Ár með Real Madrid: 2006-2008
Leikir með Real Madrid (mörk): 19 (2)
uppalinn hjá Bari átti Cassano sín
langbestu ár hingað til með roma árin 2001-2006. Þar kornungur lék
hann eins og kóngur og var samstarf hans og tottis alveg magnað.
Með hverri mínútunni varð Cassano hins vegar alltaf meira og meira
fífl en ósjaldan hefur hann komist í kast við þjálfara, stuðningsmenn
eða fjölmiðla vegna hegðunar sinnar. real Madrid ákvað þó að
taka sénsinn á stráknum og reyna að berja í hann vitið. Á tveimur
tímabilum lék Cassano aðeins nítján leiki og átti meira og minna við
sömu hegðunarvandamálin að stríða. Hann virðist þó hafa fundið
fjölina sína hjá sampdoria síðustu tvö árin og hefur hagað sér meira
og minna vel.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON