Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Blaðsíða 12
föstudagur 26. júní 200912 Fréttir
Í september 2007 vissu allir sem ein-
hvers máttu sín í fjármálageiran-
um bæði á Íslandi og annars staðar
að afar erfið staða væri komin upp
úti um allan heim. Þó að enn væri
ár í allsherjarkreppu voru flest við-
vörunarljós farin að blikka þegar
þarna var komið sögu. Undirmáls-
lánin í Bandaríkjunum voru fúlnuð
og lausafjárkreppa var orðin stað-
reynd.
En þó að áhyggjuský hrönnuðust
upp í kringum fjármálakerfi heims-
ins, var bjartsýnin enn við völd hjá
Glitni. Partíið var rétt að byrja. Ekk-
ert áhyggjukjaftæði hér. „Engin
áhætta, enginn árangur“ var ennþá
mottóið. Ef heimurinn er hættur að
skilja hvað við erum flink í banka-
starfsemi, er kominn tími til að keyra
á orkuna.
Flestir á Saga Class
Í áætlunarflugvél Icelandair til New
York snemma í septembermán-
uði 2007 var ljóst að eitthvað mikið
stæði til. Heimildarmenn DV segja
að þannig hafi meira en helmingur
vélarinnar verið lagður undir Saga
Class og tjaldið dregið aftarlega í
vélinni. „Það gustaði af farþegun-
um sem þarna voru komnir í boði
Glitnis og manni fannst nánast eins
og aðrir farþegar sem voru á leiðinni
til New York ættu ekki að vera þarna.
Sumum þeirra leið augljóslega ekki
vel innan um þennan elítuhóp,“ seg-
ir einn viðmælandi.
Hafa ber í huga að þarna var eng-
an skugga farið að bera á snillinga-
ímynd útrásarvíkinganna. Þarna
giltu ennþá þau lögmál að lítillæti
og hógværð væru ekki einkunnarorð
sigurvegarans. „New York here we
come.“ Tilefnið var opnun útibús á
Manhattan 5. september og kynning
orkuútrásarinnar. En um þetta leyti
lá sameining REI og Geysis Green
Energy fyrir dyrum, eins og frægt er
orðið, og var Glitnir einn af helstu
þátttakendunum í því ævintýri.
Árni Magnússon átti að leiða
orkuútrásina
Ekki minnkaði íburðurinn þegar
út var komið. Undir hópinn voru
leigðir nokkir tugir herbergja á
Hotel New York Palace í hjarta New
York-borgar. 500 dollarar nóttin
fyrir hvert herbergi, eða rétt rúm-
lega 60 þúsund krónur miðað við
gengi dagsins í dag. Víkingar hafa
alltaf borðað vel til að verða stór-
ir og sterkir og því viðeigandi að
eftir hópnum biði morgunverður
meistarans í rúmgóðum sal á hótel-
inu. Hlaðborð með ávöxtum, kjöti,
brauði og kökum fyrir þá sem ekki
höfðu þegar fengið nóg að bíta og
brenna í vélinni.
Síðar um daginn sem lent var í
New York var boðið í veglegt kok-
teilboð, en hin eiginlega dagskrá
byrjaði ekki fyrr en daginn eftir. Þar
voru lykilmenn Árni Magnússon,
fyrrverandi félagsmálaráðherra, og
Lárus Welding bankastjóri. Árni
hafði þarna nýverið hætt í pólitík
og tekið að sér að leiða orkuútrás-
ina fyrir hönd Glitnis og þess vegna
verið með annan fótinn í New York
um skeið.
Viðmælendur DV sem voru í
ferðinni segja að andrúmsloftið
hafi verið á þá leið að æðstu prestar
bankans hafi í einlægni trúað því að
stórkostlegir hlutir væru um það bil
að gerast og að orkuútrásin ætti eftir
að slá öllum öðrum afrekum bank-
anna erlendis við. Árni sagði við
þetta tilefni í viðtölum við fjölmiðla
að Glitnir horfði til fjárfestinga upp
á 40 milljarða Bandaríkajdala fyrir
árið 2025 í orkugeiranum í Banda-
ríkjunum. Það eru á núvirði um það
bil 5.000 milljarðar íslenskra króna,
eða meira en sjöföld Icesave-upp-
hæðin eins og hún leggur sig. Marg-
falt eigið fé bankans á þessum tíma,
þannig að augljóst var að það átti
ekki að ráðast á garðinn þar sem
hann var lægstur.
Á fundum með erlendum fjár-
festum og lykilmönnum í orku-
málum að morgni næsta dags voru
stórhuga áformin kynnt. Nú átti að
kenna Bandaríkjamönnum að losna
undan olíufíkninni og stöðugri þörf
fyrir auðlindir Mið-Austurlanda.
Til að rifja upp þann stórhug sem
var í mönnum varðandi orkuútrás-
ina á þessum tíma má rifja upp að í
upphafi október, mánuði eftir ferð-
ina, héldu Bjarni Ármannsson og
Hannes Smárason kynningu fyr-
ir fjárfestum á starfsemi hins sam-
einaða félags REI í London. Stjórn
Orkuveitu Reykjavíkur hafði þá
samþykkt sameininingu fyrirtækj-
anna og Hannes og Bjarni áttu að
stjórna því. Í kynningunni sögðu
Bjarni og Hannes að draumur þeirra
væri að búa til stærsta jarðvarmafyr-
irtæki í heimi sem eiga myndi eign-
ir upp á 5 til 8 milljarða Bandaríkja-
dala. Þetta voru svipaðir draumar
og komu fram í máli Árna í ferðinni:
Ísland átti að sigra heiminn á sviði
jarðvarma.
„How big is this Glitnir?”
Strax var ljóst að hinir erlendu gestir
voru hissa á „lúkkinu“ á öllu saman
og fannst mikið til koma. Í samræð-
um nokkurra úr íslenska hópnum
í kaffipásu var hlegið. Einn sagði
stoltur frá því hvernig Bandaríkja-
mennirnir hefðu spurt hann: „How
big is this Glitnir?“ Ljóst var að hon-
um og öðrum á vegum bankans
leiddist ekki að Bandaríkjamennirn-
ir virtust alveg steinhissa og hrein-
lega ekki trúa sínum eigin augum.
Einn viðmælandi sem var stadd-
ur í New York segir íburðinn hafa
komið erlendum ráðstefnugestum
í opna skjöldu og svo virðist sem
þeir hafi talið Glitni miklu stærri en
raunin var. Ljóst var á öllu að þeim
sem skipulögðu atburðina á vegum
Glitnis í New York í byrjun septem-
ber 2007 leiddist ekki að gestir teldu
fyrirtækið mörgum sinnum stærra
en það var í raun. Miðað við lýsing-
ar þeirra sem þarna voru má í raun
telja líklegt að það hafi verið hluti af
planinu.
Forsetinn mætir til leiks
Áætlunin svínvirkaði, Bandaríkja-
mennirnir virtust bera mikla virð-
ingu fyrir Glitni. En stóru trompin
voru enn á hendi og þeim átti eftir
að spila út.
Sjálfur forsetinn Ólafur Ragnar
Grímsson átti eftir að stíga á stokk og
halda fyrirlestur til að gefa samkom-
unni enn frekari þungavigt. Hinn
snjalli ræðumaður stóð sig vel. Svo
vel að nokkrir Íslendinganna höfðu
á orði að útlendingarnir hefðu talað
um að hann minnti á sjálfan Al Gore.
Svo mikil væri þekking hans þegar
kæmi að orku- og náttúruauðlinda-
málum. Forsetinn notaði tækifær-
ið til að ræða um hlýnun jarðar og
mikilvægi þess að nýta jarðvarma.
Allt gekk vel og ekki annað að sjá en
Ísland væri á beinni braut í orkuút-
rásinni, sem forsetinn sagði að yrði
enn stærri en bankaútrásin. „Græn
orka heillar Bandaríkjamenn“ sagði
í fyrirsögn í Fréttablaðinu 6. sept-
ember, þar sem meðal annars var
fjallað um ráðstefnu Glitnis og hlut-
verk forsetans.
Hann sló raunar tvær flugur í einu
höggi í ferð sinni til New York, því
eins og minnugir lesendur muna stóð
„lobbyismi“ vegna framboðs Íslands
til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna
sem allra hæst þarna. Bæði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra
og Ólafur Ragnar höfðu lýst því yfir
að Íslendingar nytu mikils velvilja í
alþjóðasamfélaginu. Í þá gömlu góðu
daga.
Nífaldur Grammy-verðlauna-
hafi spilar yfir kvöldmatnum
En nóg af útúrdúrum og aftur að
Glitni. Þó að fyrsti heili dagurinn í
Glitnir bauð fríðum hópi manna í boðsferð til New York-borg-
ar í september árið 2007. Tilefni ferðarinnar var opnun útibús
Glitnis í New York og þátttaka í orkuráðstefnu. Forseti Íslands
var með í för og fór svo fögrum orðum um íslensku orkuút-
rásina að Bjarni Ben og Árni Sigfússon muna ennþá eftir
því. Ekkert var til sparað í ferðinni og var gist á fimm stjörnu
hóteli. Auk þess var veitt vel í mat og drykk og heimsþekktur
djassisti lék undir borðum. Þarna stóð íslenska orkuútrásin
sem hæst og REI átti að sigra heiminn.
INGI F. VIlHjÁlMSSoN
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Boðsferð Glitnis til New York glitnir bauð vel völdum viðskiptavinum og hagsmunaaðilum sínum
í boðsferð til new York í september árið 2007. tilefnið var opnun útibús glitnis í borginni og ráðstefna
um orkumál; vonir manna við orkuútrásina voru gríðarlegar á þessum tíma.
„HOW BIG IS THIS GLITNIR?“