Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Blaðsíða 39
föstudagur 26. júní 2009 39Helgarblað
Hvanndali eða leiðin úr Hvanndöl-
um um Sýrdal, yfir Hvanndalabjarg
og yfir í Fossdal. Varla nema fyr-
ir vana göngumenn í góðu formi.
Sumt er vandratað fyrir ókunnuga
en skipulagðar ferðir eru í boði ár-
lega og njóta vinsælda.
Lónsöræfi
Stórkostlega litríkt og fallegt svæði í
nágrenni við Jökulsá í Lóni fyrir inn-
an Illakamb. Bílfært er á Illakamb á
öflugum bílum og bera verður allan
farangur þaðan í skála í Nesi sem er
ríflega kílómetri. Þar liggja ferða-
langar einatt við í 2–3 daga og fara
gangandi í Víðidal yfir Kollumúla og
inn í Tröllakróka og margir ganga á
Sauðhamarstind sem er hæst fjalla
í nágrenninu. Náttúran býður upp á
einstakt samspil af fjölskrúðugu líp-
aríti og kjarri en stopul og átakanleg
byggðasaga Víðidals gefur staðnum
sérkennilega vídd. Úr Víðidal liggja
leiðir yfir í Geithellnadal og einn-
ig er hægt að ganga norður öræfin
um Geldingafell, yfir Eyjabakka-
jökul í Snæfell. Göngubrú á Jökulsá
við Eskifell hefur aukið úrval leiða á
svæðinu. Ferðalangar geta því val-
ið sér misjafnlega erfiðar leiðir sem
flestar krefjast þess að menn beri
farangur með sér.
Flateyjardalur og Fjörður
Stórkostlega fallegt og mikilfenglegt
svæði á skaganum milli Eyjafjarðar
og Skjálfanda. Margar leiðir eru fær-
ar til þess að njóta náttúru svæðisins
gangandi. Hægt er að flytja farangur
út á Flateyjardal og í Hvalvatnsfjörð.
Leiðin þar á milli liggur um Bjarn-
arfjallsskriður sem mörgum finnst
brattar. Frá nyrstu bæjum í Kinn er
hægt að ganga á tveimur dögum yfir
á Flateyjardal og þaðan er ein dag-
leið í Hvalvatnsfjörð. Úr Hvalvatns-
firði er hægt að ganga á rúmum
tveimur dögum um Þorgeirsfjörð og
Keflavík yfir á Látraströnd að enda
bílvegar. Boðið er upp á hestaferð-
ir um hluta svæðisins. Fjallgarður-
inn milli Flateyjardals og Skjálfanda
nær upp í tæplega 1000 metra hæð
og Uxaskarð frá Keflavík yfir á Látra-
strönd er rúmir 600 metrar. Vaða
þarf ár á Flateyjardal, Þorgeirsfirði
og Keflavík en ár í Hvalvatnsfirði
eru brúaðar. Að ganga alla leið frá
Skjálfanda til Látrastrandar tekur
sex daga hið minnsta og er öll leið-
in um 70 kílómetrar en auðvelt er að
ferðast um svæðið í styttri áföngum.
Gista verður í tjöldum.
Víkur og Loðmundarfjörður
Svæðið sunnan við Borgarfjörð eystri,
nánar tiltekið Breiðavík, Brúnavík,
Húsavík, Álftavík og Loðmundar-
fjörður, eru heillandi göngusvæði
sem nýtur vaxandi vinsælda. Góðir
skálar eru við leiðina og hægt að flytja
farangur göngumanna. Líparítfjöllin
eru hvergi litríkari og fjölbreyttari en
á þessu svæði og nægir að minna á
fjallið Hvítserk eða Röndólf sem eng-
um gleymist sem það sér. Í Húsavík er
forn kirkjugarður að hrynja úr sjávar-
bakkanum og sunnan víkurinnar er
merkasti fundarstaður baggalúta á
Íslandi í Álftavíkurtindi. Eyðibyggð-
irnar búa yfir sérstakri og átakan-
legri sögu. Þetta telst vera nokkuð
létt gönguleið því þótt farið sé um
fjallaskörð eru þau ekki sérlega há
(400-500 metrar) og víða bílslóðir til
að ganga eftir. Fyrir vaskari göngu-
menn leynast áhugaverðir möguleik-
ar á svæðinu eins og heimsóknir að
Glettingi og í Ytri-Álftavík sem hlýt-
ur að teljast eitt sérstæðasta bæjar-
stæði á Íslandi. Heildarvegalengd úr
Borgarfirði í Loðmundarfjörð er um
38 kílómetrar og hæfilegt að ganga í
þrjá daga.
Kjalvegur
Hinn forni Kjalvegur, þjóðleið milli
byggða um aldir, er merkileg göngu-
leið þar sem sagan angar úr hverju
hóffari og hverju vörðubroti. Grón-
ar götur, skófum vaxnar vörður og
sögusvið átakanlegra atburða eins
og endaloka bræðranna frá Reyni-
stað gera Kjalveg að ákjósanlegu
verkefni fyrir þá sem hafa áhuga á
sögu landsins.
Flestir sem fara þessa leið byrja
eða enda á Hveravöllum eða Hvítár-
nesi en vegalengd þar á milli er 40
kílómetrar. Góðir skálar eru í Þjófa-
dölum og við Þverbrekknamúla og
engar ár þarf að vaða á leiðinni og
gengið er í svo til jafnri hæð alla
leiðina. Auðvelt er að flytja farangur
göngumanna. Í Hvítárnesi er elsta
sæluhús FÍ, frægt fyrir draugagang.
Rétt norðan við Þverbrekknamúla
skammt frá hefðbundinni gönguleið
er Beinahóll þar sem Reynistaða-
bræður urðu úti 1780 og Hveravell-
ir eru meðal þekktustu dvalarstaða
Fjalla-Eyvindar og Höllu lagskonu
hans. Heitt náttúrulegt bað er á
Hveravöllum. Auðvelt er að ganga
milli Hvítárness og Hveravalla á
tveimur til þremur dögum. Vilji
menn svo lengja leiðina annaðhvort
til norðurs eða suðurs eru margir
möguleikar á gististöðum, í Haga-
vatni, Áfangafelli eða Galtarárskála
austan Blöndu.
Öskjuvegurinn
Leiðin úr Herðubreiðarlindum að
Svartárkoti í Bárðardal er kölluð
Öskjuvegurinn og er um 75 kíló-
metrar að lengd. Leiðin liggur um
Bræðrafell, Drekagil, Öskju og Víti,
um Jónsskarð í Dyngjufjalladal og
þaðan norður Ódáðahraun og end-
ar í Suðurárbotnum. Leiðin er vel
merkt og greið og góðir gistiskálar í
eigu Ferðafélags Akureyrar á öllum
gististöðum. Hægt er að flytja farang-
ur milli staða og leiðin liggur lengst
af í jafnri hæð en taka þarf um 500
metra hækkun á leiðinni frá Dreka-
skála yfir í Öskju. Magnþrungn-
ar sögur af dularfullum slysförum
í Öskju gefa ferðinni dulúðugt yfir-
bragð en stórbrotin náttúrufegurð
tignarlegustu fjalla landsins, ekki síst
þjóðarfjallsins Herðubreiðar gera
leiðina ógleymanlega. Bræðrafell og
Kollóttadyngja búa yfir töfrum sem
eru fáum kunnir og ferðalangur sem
kemur að fossandi uppsprettulind-
um Suðurár eftir eyðimerkurgöng-
una gegnum Ódáðahraun getur
ekki annað en fallið fram og tilbeðið
þetta land.
Gönguleiðir eru auðvit-
að óteljandi í sjálfu sér
en sumar eru gríðarlega
vinsælar meðan aðrar
eru lítt þekktar og sum-
ar eru auðrataðar en
aðrar vandfarnar.
Tíu mögnuðusTu gönguleiðirnar
Laugavegurinn er vinsælasta
gönguleið landsins Horft af brúnum
ofan Brennisteinsöldu til Bláhnúks.
3
4