Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Blaðsíða 48
föstudagur 26. júní 200948 Lífsstíll
Góð kaup í koló Kolaportið öðlaðist nýtt
líf er íslenska hagkerfið hrundi. troðið er út úr
dyrum hverja einustu helgi og hafa íslendingar
uppgötvað á nýjan leik að það er afar auðvelt
að þéna smá vasapening með því að taka til í
kompunni og selja gamla dótið og ónotuðu
flíkurnar. Kíktu í Kolaportið um helgina og
gerðu góð kaup.
Herratískan næsta vor
umsjón: hanna eiríKsdóttir, hanna@dv.is
Dýrt að líta vel út
Breska söngkonan Cheryl Cole eyðir
sem nemur tæplega 30 milljónum
króna á ári í útlitið. Það eru engir
smápeningar. „Cheryl er metnaðar-
fyllsta manneskja sem ég þekki,“ er
haft eftir heimildarmanni á female
first. „hún eyðir miklum pening í að
líta sem best út, ekki út af því að
hún er hégómagjörn heldur vegna
þess að hún stefnir hátt. hún lítur á
þetta sem fjárfestingu.“ Cheryl eyðir
6,3 milljónum í stílistann sinn,
tæpum tveimur milljónum í hárið,
tveimur og hálfri milljón í næringar-
fræðing og þremur milljónum í
einkaþjálfun. auk þess eyðir girls
aloud-söngkonan rúmri milljón í
neglur, nudd og þess háttar og
tæpum átta milljónum í fitu-
brennslu.
Frábærar Fyrir
raksturinn
mikilvægt er fyrir karlmenn að hugsa
vel um húðina sína og sérstaklega
þegar það kemur að rakstrinum.
Post-shave kremið frá Clinique
dregur úr roða og brunatilfinningu í
húðinni sem getur myndast við
rakstur. Kremið inniheldur aloe vera
og það er létt og græðandi á sár.
einnig kemur frá Clinique m shave
aloe-gelið sem er olíulaust rakagel.
Það mýkir jafnvel grófustu hárin og
gerir raksturinn auðveldari fyrir vikið.
gelið hefur kælandi áhrif á húðina
eftir rakstur.
Í aðeins nokkra daga snýst
allt um karlmenn í Míl-
anó eða allavega á með-
an Herratískuvikan stend-
ur yfir. Áhorfendur fengu
smjörþefinn af því sem
koma skal næsta vor.
Af myndunum að dæma
er allt leyfilegt í herratísk-
unni á næsta ári. En á sýn-
ingarpöllunum mátti sjá
allt frá rifnum gallabuxum
að glansandi jakkafötum a
là Goodfellas.
Gucci
BurBerry Prorsum
d&G
dolce e
GaBBana
etro
GiorGio armani
moschino
„Ég er með rosalega blandaðan
stíl og ég er ekki mikið að elta nýj-
ustu tísku heldur kaupi ég það sem
mér finnst þægilegt og passar,“ seg-
ir Þóra Kristín Sigurðardóttir, hár-
greiðslukona á hárstofunni Eplinu
í Borgartúni og pilates-kennari.
„Ég hef gaman af því að breyta
bolum og þess háttar og blanda því
við nýjar flíkur sem og gamlar.“
Buxur: Levi´s-buxur
keyptar í san sebastian
Bolur: top shop
Belti: all saints
skór: uppáhaldsskórnir
mínir keyptir í gs skóm
Úr: Keypt í danmörku
Kjóll: gamall kjóll sem ég
breytti í pils.
Vesti: Vero moda
skór: nýjasta parið keypt
í gs skóm
leggings: rokk og rósir
hálsmen: gjöf frá frænku
minni, keypt í China town
lopapeysukjóll:
Prjónaður af
mömmu minni. Ég
valdi litina sjálf
Kjóll: Keyptur í dublin
skór: úr Zöru
Gallajakki: Þetta er
uppáhaldsjakkinn minn
sokkabuxur:
Klassískar úr hm
elskar
að breyta
Flíkum