Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Blaðsíða 22
föstudagur 26. júní 200922 Fréttir
Hátíðarmatseðill
Forréttur
Koniaksbætt humarsúpa
Aðalréttur
Steikt Lúðufiðrildi með
hvítlauksristuðum
humarhölum og humarsósu
Dessert
Hátíðardessert
Forréttur
Súpa dagsins
Aðalréttur
Hunangsgljáð andabringa
„Orange” með rusty kartöflum
og ristuðu grænmeti
Dessert
Hátíðardessert
Forréttur
Koniaksbætt humarsúpa
Aðalréttur
200 gr. ristaðir humarhalar
með mangó-chilli cous cous,
salat og kartöflubátar
Dessert
Hátíðardessert
Forréttur
Súpa dagsins
Aðalréttur
Glóðuð Nautalundarpiparsteik,
ristaðir humarhalar, grænmeti
og rjómalöguð piparsósa
Dessert
Hátíðardessert
Laugaás 30 ára
25. júní
NÆRMYND Auðmaðurinn Guðmundur Birgisson á Núpum hefur ekki verið áberandi í fjöl-
miðlum á undanförnum árum ef undan er skilin umfjöllun um minningarsjóð
frænku hans Sonju Zorrilla. Eignir hennar voru metnar á tíu milljarða króna. Einungis nokkrar milljónir hafa
verið veittar úr sjóðnum. Guðmundur er talinn hafa tapað miklum peningum við bankahrunið síðasta haust. Að
sögn viðmælenda hefur þeim fækkað sem vilja stunda viðskipti við hann.
Auðmaðurinn Guðmundur Birgisson
á Núpum hefur ekki verið áberandi í
umræðunni undanfarin ár þrátt fyrir
að hafa vera mjög umsvifamikill fjár-
festir. Hann er líklega þekktastur fyrir
að vera í forsvari fyrir minningarsjóð
frænku sinnar Sonju Zorrilla. Guð-
mundur er meðeigandi að félaginu
Lífsval sem er stærsti landeigandi
landsins. Félög sem hann kemur að
eiga Hótel Borg og Nordica Spa og
hann kemur að fiskeldi víðs vegar á
Suðurlandi, þar á meðal að Núpum
í Ölfusi en þar leigir hann Samherja
aðstöðu.
Hann á hús að Hofsvallagötu 1 og
Sóleyjargötu 7 sem hann færði yfir
á eiginkonu sína nokkrum dögum
eftir bankahrunið. Auk þess á hann
hús að Núpum sem Sonja frænka
hans bjó í síðustu þrjú ár ævi sinn-
ar að ógleymdri fasteign á Flórída.
Hann hefur einnig verið í fasteigna-
viðskiptum í Slóvakíu undanfarin ár
með Runólfi Oddssyni, hálfbróður
Davíðs Oddssonar.
Þegar hlutafélagaþátttaka Guð-
mundar er skoðuð kemur í ljós að
hann er ansi umsvifamikill þó ekki
sé fastar að orðið kveðið. Hann er
skráður stjórnarmaður í 29 félögum,
framkvæmdastjóri níu félaga, prók-
úruhafi þrettán félaga og stofnandi
20 félaga.
Óljós staða
Þeir viðmælendur sem DV ræddi við
sem hafa stundað viðskipti með og
við Guðmund á undanförnum árum
voru ekki vissir hvernig fjárhagsleg
staða hans er í dag. „Þetta er mjög
heiðvirður og góður maður. Hefur
haft mörg járn í eldinum. Er í sömu
stöðu og margir sem voru í verð-
bréfaviðskiptum og farið mismun-
andi út úr því. Hann hefur líklega
tapað miklum peningum eins og
allir,“ sagði einn viðmælandi. Hann
sagði Guðmund bera gott skynbragð
á markaðinn og bera það enn þrátt
fyrir að hafa tapað að undanförnu.
„Hann vill engum illt,“ bætti hann
við.
Skilur eftir sig sviðna jörð
Ekki báru þó allir viðmælendur hon-
um vel söguna. „Hann er tillitslaus
og mjög óstundvís. Hann hefur aldrei
byggt upp eitt eða neitt á sínum 30
ára fjárfestaferli heldur ávallt hagn-
ast á kostnað annarra,“ sagði viðmæl-
andi. Sagðist hann hafa heyrt margar
frásagnir frá viðskiptafélögum hans
sem segja Guðmund yfirleitt skilja
eftir sig sviðna jörð eftir samstarf við
þá. „Ef eitthvað bjátar á er hann fyrst-
ur til að hoppa af vagninum.“
Eins og áður kom fram er hluta-
félagaþátttaka Guðmundar ansi um-
fangsmikil. Sagði einn viðmæland-
inn að samstarf Guðmundar byggðist
fyrst og fremst á því að komast yfir
upplýsingar og hugmyndir án þess
að leggja neitt út fyrir þeim. „Kjafta-
gangur í kringum hann er mjög mik-
ill og er sannleikurinn þá oft látinn
liggja á milli hluta. Ef það hentar
honum að koma af stað einhverjum
orðrómi gerir hann það hvort sem
hann er sannur eða ekki,“ sagði við-
mælandinn.
Rifist um Picasso
Í samtali við DV fullyrðir Guðmund-
ur Franklín Jónsson, æskuvinur
nafna hans, að Sonja hafi á sínum
tíma ánafnað honum verk eftir Pablo
Picasso. Guðmundur Franklín var á
sínum tíma verðbréfasali á Wall Street
í New York og var verðbréfamiðlari
Sonju. Hann segist hafa kynnt Guð-
dularfullur
frændi sonju
þÓRaRinn þÓRaRinSSon
fréttastjóri skrifar toti@dv.is
Sjóðsstjórinn guðmundur
a. Birgisson á núpum er annar
sjóðsstjóra minningarsjóðs
sonju Zorrilla.