Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2009, Qupperneq 10
föstudagur 26. júní 200910 Fréttir Nær öruggt má telja að ákvörðun Umhverfisstofnunar um að leyfa fyr- irtækinu ORF Líftækni hf. að rækta erfðabreytt bygg á allt að 10 hekturum lands í eigu ríkisins við Gunnarsholt verður kærð til umhverfisráðherra. Umhverfisstofnun veitti leyfið 22. júní síðastliðinn. Þeir sem telja á rétt sinn hallað vegna ákvörðunarinnar geta kært hana til umhverfisráðherra inn- an þriggja mánaða. Eftir framlengdan frest bárust athugasemdir frá 99 ein- staklingum og 28 félögum. Umhverf- isstofnun bárust einnig undirskriftir 905 einstaklinga þar sem leyfinu til útiræktunar á erfðabreyttu byggi var mótmælt. Hverfandi áhætta, segir meirihluti Náttúrufræðistofnun telur útilokað að koma í veg fyrir að lífverur sem fari um Gunnarsholt komist í snertingu við erfðabreytta byggið. Stofnunin telur engu að síður að litlar líkur séu á að framleidd græðisprótein skaði villt dýr og menn þar sem um sé að ræða algeng prótín og að auki ólíklegt að þau berist í teljandi magni í villtar lífverur. Umsögn meirihluta ráðgjafar- nefndarinnar er á sömu lund; áhætt- an sé lítil sem engin á einangruð- um tilraunareitum í Gunnarsholti. Á grundvelli þessara umsagna veitti Umhverfisstofnun ORF leyfi til að rækta erfðabreytt bygg utandyra. Sérálit Gunnar Á. Gunnarsson, fulltrúi í ráð- gjafarnefndinni, og Jón Á. Kalmanns- son, hjá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands, skiluðu báðir séráliti og lögð- ust gegn leyfisveitingunni. Jón telur meðal annars að málið hafi engan veginn fengið þá umræðu og kynn- ingu hér á landi sem nauðsynleg sé fyrir svo mikilsvert mál. Gunnar tekur í svipaðan streng og segir athygli vísindamanna erlendis beinast í auknum mæli að áhrifum erfðabreytingarferilsins sjálfs á þá sem neyta erfðabreyttra afurða. Þeir telji að við erfðabreytingu verði marg- þætt röskun á genamengi viðkomandi lífveru með ófyrirsjáanlegum afleið- ingum. Þetta þurfi að rannsaka bet- ur. Gunnar telur að yfirlýsingar þeirra sem fylgjandi séu áformum ORF hafi verið ógætilegar að þessu leyti. Leyfi Umhverfisstofnunar var veitt með níu skilyrðum, meðal annars um tilkynningaskyldu, varnir á ræktunar- svæði og fleira. Titringur í háskólasamfélaginu Opið bréf Kristínar Völu Ragnars- dóttur, forseta Verkfræði- og nátt- úruvísindasviðs Háskóla Íslands, til Umhverfisstofnunar og umhverfis- ráðherra olli titringi. Bréfið er dagsett 26. maí, en þar leggst Kristín eindreg- ið gegn leyfisveitingunni: „Ég tel mig sem náttúrufræðing bera ábyrgð á þeirri náttúru sem við skilum til kom- andi kynslóða og mæli því gegn rækt- un genbreytts byggs úti í náttúrunni á Gunnarsholti á meðan umhverf- isáhættumat hefur ekki verið unnið á viðunandi máta,“ segir í niðurlagi bréfsins. Gegn bréfi Kristínar risu Eiríkur Steingrímsson, prófessor við lækna- deild HÍ, Zophonías Jónsson, dós- ent við líf- og umhverfisvísindadeild HÍ, og Ólafur Andrésson, prófessor í sömu deild. Í opnu bréfi nokkru síðar tala þeir um ónákvæmni og misskiln- ing Kristínar: „Niðurstaða meirihluta ráðgjafarnefndar um erfðabreyttar líf- verur er vönduð og vísindalega unn- in enda allt sem bendir til að tilraunin sem ORF Líftækni stefnir að sé hættu- laus fyrir menn, skepnur og umhverf- ið. Það er mjög miður að forseti Verk- fræði- og náttúruvísindasviðs HÍ taki þátt í því að dreifa rangfærslum og misskilningi sem kynda undir van- þekkingu og hindurvitnum.“ Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs HÍ, sá einn- ig ástæðu til að senda umhverfisráð- herra og Umhverfisstofnun bréf þar sem hann lýsti eindregnum stuðningi við umsókn ORF Líftækni. „Rann- sóknir af þessu tagi eru til þess falln- ar að auka þekkingu okkar verulega, án þess að marktæk áhætta sé tekin. Niðurstöður munu geta nýst við lyfja- þróun og þannig stuðlað að bættri meðferð sjúkdóma,“ segir Sigurður meðal annars. Samkvæmt heimildum DV gekk málið svo langt að Kristín Vala, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, var kölluð á fund Kristínar Ingólfs- dóttur rektors. Rík starfs- og hagsmunatengsl Athygli vekja rík starfs- og hagsmuna- tengsl milli ORF Líftækni annars veg- ar og hins vegar háskóla, stofnana, nefnda og annarra umsagnaraðila sem komu að leyfisveitingunni. Land- búnaðarháskóli Íslands á 12 prósenta hlut í ORF. Þorvaldur T. Jónsson, fjár- málastjóri Landbúnaðarháskólans, situr í stjórn ORF og fyrirtækið gerði jafnframt samstarfssamning við há- skólann árið 2005. Því kunna að vakna efasemdir um vísindaráðgjöf frá Landbúnaðarháskólanum sem notuð hefur verið sem rökstuðningur með umsókn ORF. „Er mark takandi á vísindaráðgjöf hluthafa í sjálfu fyr- irtækinu?“ eins og spurt var í frétta- skýringu mbl.is 8. júní síðastliðinn. Þetta er ekki eina álitamálið um vanhæfi í tengslum við umsókn ORF því samkvæmt heimildum DV hafa forsvarsmenn fyrirtækisins véfengt hæfi Gunnars Á. Gunnarssonar til setu í ráðgjafarnefndinni. Hann var annar tveggja af níu fulltrúum sem lýstu andstöðu við leyfisveitinguna. Forsvarsmenn ORF telja hann vinna gegn félaginu, taka afstöðu á ómál- efnalegum grunni og vera því van- hæfan. Vísindi og hagsmunir Tengsl ORF við HÍ eru einnig mikil, en skólinn gerði samstarfssamning við fyrirtækið í febrúar síðastliðnum. Í fréttatilkynningu frá HÍ um mál- ið segir að með samstarfinu verði stuðlað að gagnkvæmri nýtingu á rannsóknaraðstöðu og jafnvel sam- eiginlegum kaupum og rekstri á dýr- um tækjabúnaði. „Samningurinn tryggir einnig samstarf í markaðs- og viðskiptamálum sem tengjast viðskiptaþróun, markaðssetningu og sölu á lífvirkum próteinum.“ Í rauninni felur samstarfið í sér að vísindamenn HÍ vinna fyrir ORF og sérfræðingar ORF vinna fyrir HÍ á afmörkuðum sviðum. Í ljósi þessa má skoða val á vís- indamönnum í ráðgjafarnefndina sem nýlega mælti með leyfi fyrir ORF til útiræktunar á erfðabreyttu byggi. Eva Benediktsdóttir örveirufræð- ingur er formaður nefndarinnar. Hún er dósent við Líf- og umhverf- isvísindadeild HÍ. Sigríður Þorbjarnardóttir sam- eindaerfðafræðingur situr í nefnd- inni. Hún starfar hjá Líffræðistofn- un HÍ. Guðrún Skúladóttir vísindamað- ur situr í nefndinni. Hún starfar við læknadeild HÍ. Í nefndinni situr einnig Magnús Guðmundsson verkfræðingur, til- nefndur af Iðntæknistofnun. Iðn- tæknistofnun og Nýsköpunarmið- stöð tengjast rekstri Líftæknihúss þar sem ORF hefur aðstöðu. Háskóli Íslands rekur Rann- sóknaþjónustu Háskólans. Í stjórn Rannsóknaþjónustunnar á sæti Júlí- us B. Kristinsson, fjármálastjóri ORF Líftækni. ORF er þar að auki í sam- starfi við Heilbrigðisvísindasvið HÍ. Þá hefur Einar Mäntylä, yfirmaður framleiðslusviðs og þróunar ORF Líftækni, verið kennari og leiðbein- andi í lyfjafræðideild Heilbrigðisvís- indasviðs HÍ. Var hægt að segja nei? Þannig er ljóst að ráðgjafarnefnd sú, sem mælti með leyfi ORF Líftækni til útiræktunar á erfðabreyttu byggi í Gunnarsholti, var fyrir fram í marg- víslegum tengslum við fyrirtækið sem hafði hagsmuna að gæta. Jafn- vel er að sjá sem hagsmunir HÍ og ORF Líftækni fari saman að umtals- verðu leyti ef litið er til samstarfs- samnings ORF og HÍ frá því í febrú- ar og fréttatilkynningar um málið. Loks má nefna að Landgræðslan heyrir nú undir umhverfisráðuneyt- ið sem þarf að skera úr um leyfis- veitinguna verði hún kærð. Land- græðslan leggur ORF Líftækni til land í Gunnarsholti og tekur að sér verkefni fyrir líftæknifyrirtækið eftir því sem næst verður komist. Af gögnum málsins má því álykta að ákvörðunin um leyfi ORF til úti- ræktunar á erfðabreyttu byggi var fyr- ir fram vel völduð með hagsmuna- tengslum jafnvel þótt hlutaðeigandi hefðu viljað láta ómenguð vísindaleg sjónarmið ráða því hvort leyfið yrði veitt. Öruggt má telja að sú ákvörðun Umhverfisstofnunar að leyfa ORF Líftækni að rækta erfðabreytt bygg í Gunnarsholti verður kærð. Mjög rík tengls eru á milli ORF Líftækni og Háskóla Íslands. Sérfræðingar innan skólans hafa risið upp til varnar tilraunum ORF með erfðabreytt bygg og enn aðrir starfsmenn skólans sitja í ráðgjafarnefnd sem hafði úrslitaáhrif á að leyfið var veitt. Átök magnast um erfðabreytt bygg Samkvæmt heimildum DV gekk málið svo langt að Kristín Vala, forseti Verkfræði- og náttúru- vísindasviðs, var kölluð á fund Kristínar Ingólfs- dóttur, rektors HÍ. JóHann HaukSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Bygg Með erfðatækni ætlar Orf að láta byggplöntur framleiða prótín til lyfjaframleiðslu á allt að 10 hekturum lands við gunnarsholt. staðurinn heyrir undir umhverfisráðherra. oRF Líftækni Eigendur og starfs- menn Orf hafa mikil tengsl inn í lítið háskóla- og vísindasamfélag á íslandi. svo mjög að vandséð er hvort unnt er að veita því leyfi af óháðum aðila. Háskóli Íslands tengsl Hí við Orf Líftækni eru marg- vísleg og starfsmenn skólans koma nærri örlagaríkri leyfisveitingu fyrir fyrirtækið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.